| « 5. febrúar |
■ 6. febrúar 2009 |
» 7. febrúar |
Hallgrímur Helgason fær 9,6 milljónir frá skattgreiðendum
Hallgrímur Helgason, rithöfundur, var í dag valinn einn þriggja rithöfunda sem fá greidd laun úr opinberum sjóðum til næstu þriggja ára. Heildarupphæðin nemur 9,6 milljónum króna. Styrkir til Hallgríms bætast við sölutekjur af bókum og laun fyrir önnur störf. Hallgrímur er því á margföldum launum.
Eiríkur og Ingimundur svara Jóhönnu
Eiríkur Guðnason og Ingimundur Friðriksson, seðlabankastjórar hafa svarað forsætisráðherra bréflega í dag. Jóhanna Sigurðardóttir hefur óskað eftir því formlega að seðlabankastjórar segir starfi sínu lausu. Ekkert hefur verið gefið upp um svör Eiríks og Ingimundar.
Börsen: Seðlabankastjórarnir virða forsætisráðherrann ekki viðlits
Hinn nýi íslenski forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur beðið þrjá bankastjóra Seðlabanka Íslands að segja af sér, en það verður greinilega ekki auðvelt að losna við þá, segir í frétt danska viðskiptablaðsins Börsen þar sem fram kemur að bankastjórarnir virði forsætisráðherrann ekki viðlits.
Fjármálaráðherrarnir ræddu hugsanlegt myntsamstarf
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, áttu fund í dag þar sem hugsanlegt myntsamstarf þjóðanna kom til tals.
Sambýlismaður í haldi lögreglu
Vettvangsrannsókn á máli konu á fertugsaldri, sem fannst látin í Kapelluhrauni í Hafnarfirði í gær, er ekki lokið. Hin látna var klæðalítil er að var komið, segir í frétt frá lögreglunni.
Samkomulag um uppskiptingu Enex
Samkomulag hefur tekist milli eigenda Enex um uppskiptingu félagsins. Hún hefur verið staðfest á hluthafafundi og af stjórnum stærstu eigendanna, Reykjavik Energy Invest (REI), dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur og Geysis Green Energy. Enex hefur verið í eigu Geysis að 70% og REI að 26,5%.
Sigmundur Ernir vill á lista Samfylkingarinnar nyrðra
Sigmundur Ernir Rúnarsson, fyrrum starfsmaður Stöðvar 2, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir þingkosningarnar í vor.
Ungir jafnaðarmenn vilja prófkjör hjá Samfylkingunni
Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, hefur samþykkt ályktun þess efnis að Samfylkingin haldi opin prófkjör til að tryggja aðkomu almennings og almenna flokksmanna að vali á frambjóðendum flokksins.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er ósátt við að Ásmundur Stefánsson taki við sem bankastjóri Landsbankans án þess að staðan sé auglýst. Hún segir þetta ganga gegn vilja ríkisstjórnarinnar og reynt verði að fá ákvörðuninni hnekkt.
Fiskiskipum fækkaði um tæplega 600 á fimm árum
Íslenskum fiskiskipum fækkaði um 43,5% á árunum 2003 – 2008. Alls voru skráð fiskiskip 1356 talsins fiskveiðiárið 2003/2004. Þeim hafði fækkað niður í 767 fiskveiðiárið 2007/2008. Fækkunin nemur 589 skipum.
Aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar
Jóhann Guðmundsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Hann hefur undanfarinn áratug verið skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu.
Hagnaður FIH dróst saman um nær 20 milljarða
Hagnaður FIH Erhvervsbank, sem er í íslenskri eigu, árið 2008 nam 184 milljónum danskra króna eftir skatta, eða sem svarar 3,6 milljörðum íslenskra króna. Hagnaðurinn er milljarði danskra króna, 19,6 milljörðum íslenskra króna, minni en árið 2007.
Hef áhuga á að leysa hvalveiðimálið á farsælan hátt
Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra sagði á borgarafundi um hvalveiðimál á Akranesi í gær að hann hefði áhuga á að leysa hvalveiðimálið á farsælan hátt. Tekist hefur verið á um ákvörðun forvera hans í embætti um veiðikvóta.
Lögreglan krefst gæsluvarðhalds
Lögreglan hefur krafist gæsluvarðhalds yfir manninum sem handtekinn var í nótt í tengslum við andláts konu sem fannst í dúfnakona skammt frá álverinu í Straumsvík.
Kannabis og amfetamín haldlagt á Akureyri
Lögreglan á Akureyri handtók aðfararnótt s.l. þriðjudags tvo menn á tvítugs- og fertugsaldri rétt norðan Akureyrar grunaða um fíkniefnamisferli eftir að þeir höfðu verið stöðvaðir á bifreið á leið til bæjarins.
Ríkislögreglustjóri ósáttur við frétt RÚV
„Í [frétt RÚV] var einnig tekið fram að ríkislögreglustjóri hafi viljað ganga miklu harðar fram gegn mótmælendum en gert var. Þetta er ósatt enda lagði ríkislögreglustjóri sérstaka áherslu á að lögreglan gengi ekki harðar fram en þörf krefði“, segir Haraldur Johannessen í yfirlýsingu.
Ilva hluti stærstu húsgagnakeðju Danmerkur
Húsgagnakeðjan Ilva er aftur komin í danskar hendur, eins og AMX hefur greint frá. Börsen fjallar um kaup IDdesign á keðjunni af íslenska félaginu Lagernum. Með kaupunum er til orðin stærsta keðja húsgagnaverslana í Danmörku.
Lækkun vaxta í 8% skapar sjö þúsund störf
Samtök atvinnulífsins segja að með því að lækka stýrivexti niður í 8% geti hugsanlega skapast sjö þúsund fleiri störf á Íslandi á næsta ári, en annars hefði orðið. Þetta er rúmlega helmingur af þeim fjölda sem nú er án vinnu.
Beiðni Baugs Group um greiðslustöðvun frestað
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur frestað til þriðjudags að taka afstöðu til beiðni stjórnar Baugs Group um greiðslustöðvun félagsins og nokkurra dótturfélaga. Beiðnin var talin óljós og byggja á gömlum upplýsingum sem eru úreltar.
„Tímamótaáfangi í þróun jafnréttisbaráttunnar“
Jafnréttisráð fagnar þeim sögulegu tímamótum sem orðið hafa í íslensku samfélagi hvað jafnrétti kynjanna og hlut kvenna í völdum á vettvangi stjórnmálanna varðar. Ekki aðeins hefur kona í fyrsta skipti tekið forystu fyrir ríkisstjórn heldur er hlutur kynjanna í fyrsta skipti jafn meðal ráðherra.
Stefán Hrafn Sigfússon, verðlaunahafi í keppninni um Köku ársins 2009 afhenti Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, eina slíka í morgun. Jóhann Felixson, formaður Landssambands bakarameistara, betur þekktur sem bakarameistarinn Jói Fel, óskaði forsætisráðherra velfarnaðar í starfi. Kakan var síðan borin fram á ríkisstjórnarfundi.
Þjóðverjar koma evrusvæðinu varla til bjargar
Ólíklegt er að Þjóðverjar séu reiðubúnir að koma evrusvæðinu til bjargar ef á þarf að halda, segir Wolfgang Münchau, aðstoðarritstjóri Financial Times.
Stjórnir Baugs og BG mótmæltu ekki beiðni um greiðslustöðvun
Stjórnir Baugs Group hf („Baugur“) og BG Holding ehf („BG Holding“) ákváðu að andmæla ekki beiðni Landsbanka Íslands hf um greiðslustöðvun BG Holding í Bretlandi sem tekin var fyrir hjá breskum dómstól High Court of Justice fyrr í dag.
Fallist á greiðslustöðvun BG Holding
Dómstóll í Bretlandi hefur fallist á kröfu skilanefndin Landsbankans um að BG Holding, dótturfélag Baugs Group í Bretlandi, verði sett í greiðslustöðvun.
Eftir skammvinnt bakslag í upphafi vikunnar hefur krónan haldið áfram að styrkjast jafnt og þétt, segir Greining Glitnis.
Seðlabankinn virkur á gjaldeyrismarkaði
Hrein sala Seðlabankans á gjaldeyri á markaði nam 1,3 milljörðum króna í janúar og samsvarar það tæpum þriðjungi af heildarveltu á millibankamarkaði með gjaldeyri í mánuðinum. Þetta hlutfall var áþekkt í desember, segir Greining Glitnis.
Kaupfélag Héraðsbúa hættir öllum rekstri. N1 tekur yfir rekstur Söluskála og Hraðbúðar á Egilsstöðum. Samkaup tekur yfir rekstur allra verslana, segir í frétt Ríkistútvarpsins.
Seðlabankastjóri: Ekkert hefði getað bjargað bönkunum
Eftir á að hyggja hefði öruggasta leiðin til þess að koma í veg fyrir hrun bankanna e.t.v. verið sú að setja í upphafi þrengri skorður við starfsemi þeirra en fjármálafyrirtækja í öðrum löndum Evrópska efnahagssvæðisins, segir Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri. Hann skýrir aðdraganda bankahrunsins í grein sem ætlunin var að flytja í Finnlandi sem ekki varð af enda hefur forsætisráðherra krafist afsagnar bankstjóranna þriggja.
Ástralinn áfram í keppninni um Moggann
Ástralinn Steve Cosser, Óskar Magnússon, Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson og Almenningshlutafélag um rekstur Morgunblaðsins eru fjárfestarnir sem boðið hefur verið að halda áfram í söluferli Fyrirtækjaráðgjafar Nýja Glitnis á hlutafé í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins.
Fleiri fljúga með Norwegian en sætanýting er verri
Farþegaaukning varð hjá norska lágfargjaldaflugfélaginu Norwegian í janúar en sætanýting véla félagsins er hins vegar verri en áður. Tekjur af hverjum farþega hafa aukist.
Maður handtekinn í tengslum við líkfund
Karlmaður á fertugsaldri var haldtekinn í nótt í tengslum við rannsókn á láti konu sem fannst við Reykjanesbraut á móti álverinu í Straumsvík í gærkvöldi. Hann verður yfirheyrður í dag, samkvæmt upplýsingum lögreglu.
Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 58.800 og fjölgaði um 10% frá desember 2007 þegar gistinætur voru 53.600. Gistinóttum á hótelum fyrir árið 2008 fjölgaði um rúm 2% milli ára.
Verulegt tap var á Volvo bílaverksmiðjunum á síðasta fjórðungi liðins árs, 2,5 milljarðar sænskra króna eða sem svarar 35 milljörðum íslenskra króna. Það er mikill viðsnúningur frá sama tíma árið á undan.
Afkomu British Airways má líkja við magalendingu
Líkja má afkomu breska flugfélagsins British Airways fyrstu þrjá fjórðunga liðins árs við magalendingu. Viðvörunarljósin blikka eftir uppgjör þriggja fjórðunga - en viðbúið er að talsvert tap hafi verið á rekstrinum sé litið til ársins í heild.
Bagger eins og skátadrengur í samanburði við hinn japanska Nami
Japaninn Kazutsugi Nami er talinn hafa svikið um 160 milljarða króna af fjárfestum. Danskir fjölmiðlar sem skrifað hafa óteljandi fréttir um fjársvikarann Stein Bagger segja hann hreinlega eins og skátadreng í samanburði við þann japanska.
Elísabet drottning reynir að innheimta leigu af Kaupþingi
Elísabet II Bretadrottning hefur krafið skilanefnd Kaupþings um greiðslu á ógreiddri leigu. Fasteignafélag drottningar leigði gamla Kaupþingi skrifstofuhúsnæði undir höfuðstöðvar Singer & Friedlander við Hanover-stræti 1 í London fyrir 2,8 milljónir punda á ári.
Vaka með meirihluta í Háskólanum
Vaka, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, sigraði í kosningum til stúdentaráðs Háskóla Íslands og fékk 52,25% atkvæða eða 2.342 atkvæði. Röskva fékk 47,75% atkvæða eða 2.140 atkvæði.
Jón Magnússon segir skilið við Frjálslynda flokkinn
Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi þingkosningum fyrir flokkinn. Hann segir í viðtali við DV að ekki sé hægt að bjóða sig fram fyrir flokk þar sem allt sé í vitleysu.
Kona fannst látin við geymslusvæðið í Hafnarfirði
Konan fannst látin í gærkvöldi austan við Reykjanesbrautina á móts við álverið í Straumsvík. Áverkar voru á líkinu og var fjölmennt lið lögreglu og tæknimanna kallað á vettvang. Réttarmeinafræðingur var einnig kallaður til.
Blessunarlega úr takti við tímann
Smáfuglunum finnst Kjartan Gunnarsson vera blessunarlega úr takti við tímann í grein sinni í Morgunblaðinu í morgun þar sem hann bendir á að ný ríkisstjórn sé byrjuð að með pólitískar hreinsanir í embættismannakerfi landsins
Af vinnubrögðum Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur fréttakonu
Í myndskeiði eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur á vef Morgunblaðsins var fjallað um ungan mann sem sagði frá því að hann hefði orðið fyrir höggi frá Toyota umborðinu fyrir ábendingar um hvað betur mætti fara í rekstrinum. Það sem vakti athygli smáfuglanna var ótrúleg blaðamennska Þóru Kristínar sem enga tilraun gerði til að greina frá því sem máli skipti í fréttinni.
Ólafur Ragnar 2005: Innrásin í Bretland mun halda áfram
Risið á okkur Íslendingum er ekki hátt þessa dagana og sumt af því sem sagt hefur verið hefði best verið ósagt. Smáfuglarnir hafa hvíslað sín á milli að varla muni breskir fjölmiðlar taka mikið mark á forseta Íslands í framtíðinni.