amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:39
 

Fimmtudagurinn 5. febrúar 2009

«
4. febrúar

5. febrúar 2009
»
6. febrúar
Fréttir

Heimssýnarfundur með Birni Bjarnasyni

Björn Bjarnason, alþingis­maður, verður á fundi Heimssýnar nk. sunnudag 8. febrúar kl. 16:00 á Kaffi Rót í Hafnarstræti, Reykjavík. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Ryk dustað af seðlabankabreytingu

Frumvarp Jóhönnu Sigurðadóttur forsætis­ráðherra um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands hefur verið lagt fram á Alþingi. Þegar það er lesið, sést, að frumvarpið er endurgerð af breytingartillögum, sem Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðar­dóttir og Margrét Frímanns­dóttir, þingmenn Samfylkingar, lögðu fram 2001.

Jóhannes segir að Baugur sé úr höndum fjölskyldunnar

Jóhannes Jónsson sagði í viðtali á Markaðinum á Stöð 2, að mikið þurfi að gerast til að hann og Jón Ásgeir haldi Baugi Group. Jóhannes er sleginn yfir stöðunni en hún sé meira áfall fyrir Jón Ásgeir en fyrir hann sjálfan.

Landsbankinn hefur gengið að öllum veðum í BG Holding

Skila­nefnd Landsbankans hefur gengið að öllum veðum í BG Holding, dóttur­félagi Baugs Group. Meðal veðanna eru hluta­bréf í verslunarkeðjunum Iceland og House of Fraser. Í tilkynningu segir að bankinn sé ekki orðinn beinn eigandi að hluta­bréfunum, heldur sé tryggt að ekki sé hægt að ráðstafa þeim án samþykkis skila­nefndarinnar.

PriceWaterhouseCoopers sér um BG Holding

BG Holding verður sett í greiðslustöðvun á morgun og mun breskur dómstóll ákveða að fela PriceWaterhouseCoopers að er tilsjónaraðili með fyrirtækinu. Þetta kemur fram í frétt Bloomberg.

Innbrot í hús og bíla

Tvö innbrot í fyrirtæki í miðborginni voru tilkynnt til lög­reglunnar í gær. Á öðrum staðnum braut þjófurinn rúðu til að geta teygt sig í afgreiðslukassann en sá hafði ekki ýkja mikið upp úr krafsinu.

Ný stjórn FME - Gunnar Haraldsson formaður

Gylfi Magnússon viðskipta­ráðherra hefur í dag skipað nýja stjórn Fjármála­eftirlitsins. Formaður stórnarinnar er Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræði­stofnunar Háskóla Íslands.

Kannabisræktun í Árbænum

Lög­reglan á höfuðborgar­svæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Árbæ í gær. Tveir karlar á fertugsaldri voru handteknir í þágu rannsóknarinnar. Fíkniefni fundust einnig við húsleit í Laugardalshverfi.

Þjófnaður úr verslunum

Talsvert er um að vörum sé stolið úr verslunum þessar vikurnar. Nokkur hnuplmál komu til kasta lög­reglunnar í gær en í Smáralind voru þjófar staðnir að verki í þrígang.

Ráðin aðstoðar­maður Ástu Ragnheiðar

Ásta Ragnheiður Jóhannes­dóttir félags- og tryggingamála­ráðherra hefur ráðið Írisi Lind Sæmundsdóttur aðstoðar­mann sinn. Íris Lind hefur undanfarið starfað sem sér­fræðingur hjá borgaraþjónustu utanríkis­ráðuneytisins.

Nær þriðjungsfækkun í Leifsstöð

Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fækkaði um rúmlega 28% í janúar miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 117 þúsund farþegum árið 2008 í rúmlega 84 þúsund farþega nú.

Frumtak kaupir í Trackwell

Samlags­sjóðurinn Frumtak hefur fest kaup á hlut í hugbúnaðar­fyrirtækinu Trackwell. Fyrirtækið var stofnað árið 1995 og sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum í tengslum við fjarskipti og staðsetningartækni.

Indriði settur ráðuneytis­stjóri fjármála­ráðuneytisins

Steingrímur J. Sigfússon, fjármála­ráðherra, hefur sett Indriða H. Þorláksson í embætti ráðuneytis­stjóra í fjármála­ráðuneytinu til 30. apríl nk. Baldur Guðlaugsson hefur fengið leyfi frá störfum ráðuneytis­stjóra á sama tímabili.

S&P lækkar mat á Danske Bank

Mats­fyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfismat Danske Bank eftir að bankinn kynnti uppgjör sitt í morgun. Það var verra en vænst hafði verið.

Hluta­bréf Bank of America ekki verðminni frá 1984

Sjötta daginn í röð halda hluta­bréf í Bank of America, stærsta viðskiptabanka Bandaríkjanna, áfram að falla í verði. Bréfin lækkuðu strax við opnun markaða og hefu gengi þeirra ekki verið lægra frá árinu 1984.

Bill Gates mætir með moskítóflugur á ráð­stefnu

Bill Gates, fyrrverandi framkvæmda­stjóri Microsoft, hélt fyrirlestur um malaríu á ráð­stefnu í gær. Þegar hann hafði fjallað um hvernig malaría smitast með moskítóflugum gerði hann sér lítið fyrir og opnaði krukku fulla af flugunum.

Mesta mánaðaraukning atvinnuleysis í Bandaríkjunum frá 1982

Atvinnástandið í Bandaríkjunum er enn verra en talið var. Nýjar tölur sýna að 626 þúsund bættust í hóp atvinnulausra í liðnum mánuði. Þetta er mesta mánaðarleg aukning atvinnuleysis í Bandaríkjunum frá því í október 1982.

Nýjar olíulindir í Mexíkóflóa

Umtalsverðar viðbótar olíulindir hafa fundist á botni Mexíkóflóa. Danir fagna fundinum þar sem danska félagið Mærsk Olie og Gas er hluthafi í félaginu sem fann olíuna. Chevron mun annast vinnslu á svæðinu.

Íbúðalána­sjóður semur við Hagfræði­stofnun

Nýlega voru undirritaðir tveir samstarfssamningar til þriggja ára milli Íbúðalána­sjóðs og Hagfræði­stofnunar Háskóla Íslands. Samkvæmt þessum samningum tekur Hagfræði­stofnun m.a. að sér að meta fjárhagslega áhættu Íbúðalána­sjóðs.

Óbreyttir stýrivextir Seðlabanka Evrópu

Evrópski seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum. Bankinn tilkynnti eftir hádegið að vextir yrðu áfram 2%.

Allt að 300 milljarðar í séreigna-lífeyrissparnaði

Talið er að allt að 300 milljarðar króna liggi í séreignar­lífeyrissparnaði landsmanna. Í verkefnaskrá nýrrar ríkis­stjórnar kemur fram að sett verði lög um séreignar­sparnað sem veiti sjóðfélögum tímabundna heimild til fyrirfram­greiðslu úr séreignar­sjóðum til að mæta brýnum fjárhagsvanda.

Birtíngur bauð ekki í Árvakur

Hreinn Loftsson, stjórnar­formaður Birtíngs, segist ekki hafa gert tilboð í Árvakur, Útgáfu­félag Morgunblaðsins, að því er fram kemur á Vísi. Birtíngur gefur m.a. út DV.

Segir Baldur hætta í ráðuneytinu

Baldur Guðlaugsson, ráðuneytis­stjóri fjármála­ráðuneytisins, lætur af störfum á næstunni, segir í frétt Vísis. Þar segir að óvíst sé hvernig staðið verður að starfslokum hans.

Mat á eignum gamla Kaupþings

Skila­nefnd metur eignir gamla Kaupþings á rúmlega 618 milljarða en skuldir félagsins eru 2.432 milljarðar. Samkvæmt matinu má ætla að nokkuð fáist upp í kröfur, segir Greining Glitnis.

Englandsbanki lækkar vexti í 1%

Englandsbanki lækkaði stýrivexti sína um hálft prósentustig í dag eins og búist hafði verið við og er vextir nú komnir niður í 1%. Englandsbanki hefur lækkað stýrivexti sína hratt á síðustu mánuðum og hefur lækkað þá um 4 prósentustig síðan í október.

Raungengi krónu afar lágt

Raungengi íslensku krónunnar er nú afar lágt, hvort sem miðað er við verðlag eða launakostnað. Hefur hlutfallslegur launakostnaður fallið enn hraðar en verðlag undanfarið og má segja að íslenskt vinnuafl sé orðið með því ódýrasta í Vestur-Evrópu í kjölfar gengishruns krónu á síðasta ári, segir Greining Glitnis.

Bjarni með mest fylgi

Flestir vilja Bjarna Benediktsson alþingis­mann sem næsta formann Sjálfstæðis­flokksins, samkvæmt könnun Frjálsrar verslunar fyrir vef­svæðið heimur.is. Næstflestir vilja Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, þingmann og varaformann flokksins.

Gæði jöfnunarkerfis sveitar­félaga metin

Verkefni starfshóps til að vinna að endurskoðun á regluverki Jöfnunar­sjóðs sveitar­félaga verður að meta gæði núverandi jöfnunarkerfis og setja fram hugmyndir um mögulega heildarendurskoðun sjóðsins.

Saga Capital selur skulda­bréf Byggða­stofnunar fyrir milljarð

Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur lokið við að selja skulda­bréf Byggða­stofnunar. Skulda­bréfin voru seld í lokuðu skulda­bréfaútboði og nam útgáfufjárhæðin einum milljarði króna. Með þessu sækir stofnunin sér fé til að fjármagna lánveitingar til atvinnuuppbyggingar á landsbyggðinni.

StatoilHydro finnur gas- og olíubrunn í Norðursjó

Norski olíurísinn StatoilHydro tilkynnti á heimasíðu sinni í morgun um nýjan gas- og olíufund í Norðursjó. Fyritækið rannsakar nú svæðið en þessi fundur kemur í kjölfar fundar olíubrunns út af Bergen í síðustu viku.

Þjóðin þarfnast samvinnu

Það er ástæða til að óska sérstaklega eftir því að allur þingheimur starfi nú saman og greiði fyrir framgangi mála sem miða að því að draga úr áhrifum bankahrunsins á atvinnulífið, heimili og fjölskyldur, sagði Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra m.a. í stefnuræðu sinni í gærkvöld.

Bakkavör innleysir 104 milljónir punda hjá Nýja Kaupþingi

Bakkavör hefur innleyst 104 milljónir punda af reikningi félagsins hjá Nýja Kaupþingi en upphafleg fjárhæð nam 150 milljónum punda. Þessir fjármunir nýtast einkum til greiðslu af 700 milljóna punda sambankaláni félagsins. Samkvæmt samkomulagi við Nýja Kauþþing banka mun innstæðan fást leyst út að fullu um miðjan apríl.

Hagnaður Össurar eykst

Hagnaður Össurar hf. nam alls 28,5 milljónum Bandaríkjadala á síðasta ári sem er veruleg aukning frá árinu 2007 þegar hagnaður félagsins nam 7,6 milljónum. Jón Sigurðsson, for­stjóri félagsins segir að fjármálakreppan hafi haft takmörkuð áhrif á reksturinn.

Stórtap Deutsche Bank

Síðasti fjórðungur liðins árs var þýska stórbankanum Deutche Bank erfiður. Tapið á fjórðungnum nam 4,8 milljörðum evra, eða sem svarar 720 milljörðum íslenskra króna. Tap ársins var heldur minna, eða nær 590 milljarðar króna.

Þrjár konur í úrskurðar­nefnd fjarskipta- og póstmála

Skipuð hefur verið ný úrskurðar­nefnd fjarskipta- og póstmála. Nefndina skipa þrjár konur: Jóna Björk Helga­dóttir héraðsdómslögmaður er formaður nefndarinnar, Brynja I. Hafstens­dóttir lög­fræðingur og Kirstín Flygenring hag­fræðingur.

Verri afkoma Danske Bank en búist var við

Eins og búist var við var árið 2008 Danske Bank erfitt. Uppgjör ársins var kynnt í morgun. Hagnaður bankans nam rúmlega 1 milljarði danskra króna, eða rúmlega 20 milljörðum íslenskra króna. Afkoman er miklu verri en árið 2007 en þá var methagnaður.

Philip Green hefur ekki áhuga á eignum Baugs

Philip Green, einn þekktasti kaupsýslumaður Bretlands, segist engan áhuga hafa á því að kaupa eistakar eignir af Baugi Group. Í viðtali við BBC segist Green ekki ætla að ræða við væntanlega tilsjónarmenn, að fyrra bragði.

Jón Ásgeir segist ekki gjaldþrota

Jón Ásgeir Jóhannesson, aðal­eigandi Baugs Group, segist ekki vera gjaldþrota en hann hafi orðið fyrir verulegu tjóni. Í viðtali við DV í dag segir Jón Ásgeir að það stefni í brunaútsölu aldarinnar eftir að skila­nefnd Landsbankans óskaði eftir að BG Holding, dóttur­félag Baugs, færi í greiðslustöðvun.

Árni Sigfússon býður sig ekki fram

Árni Sigfússon, bæjar­stjóri Reykjanesbæjar, ætlar ekki að sækjast eftir formennsku eða varaformennsku í Sjálfstæðis­flokknum. Hann ætlar heldur ekki að sækjast eftir þingmennsku, en hann hefur verið orðaður við framboð í Suðurlands­kjördæmi.

Sjálfstæðis­flokkurinn með mest fylgi

Sjálfstæðis­flokkurinn fengi 32% atkvæða ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt skoðanakönnun Frjálsrar verslunar fyrir vef­svæðið heimur.is. Vinstri grænir yrðu annar stærsti flokkur landsins með 24% en Samfylkingin fengi 23%.

Íslendingar skaðlausir vegna Edge-reikninga í Noregi og Finnlandi

Öll innlán á Edge-reikningum Kaupþings í Noregi, Finnlandi og Austurríki hafa verið greidd út. Verið er að greiða úr málum vegna Edge-reikninga í Þýskalandi. Ljóst er að ekkert fellur á ríkis­sjóð vegna reikninganna.

Víða hálka en autt yfir Hellisheiði

Það er hálka víðast hvar á Suðurlandi. Þó er autt yfir Hellisheiði og að Selfossi en aðeins hálkublettir í Þrengslunum og hringveginum milli selfoss og Hvolsvallar.

Fjármála­ráðherra á og rekur fjölmiðil

Steingrímur J. Sigfússon er 4,5% hluthafi í vefritinu Smugan.is ásamt stjórnmála­flokki sínum sem á 36%. Steingrímur fer því með 40,5% hlut í fjölmiðlinum. Ekki er vitað til þess að ráðherra í ríkis­stjórn hafi áður rekið eigin fjölmiðil. Slíkt þekkist þó erlendis t.d. á Ítalíu.

Fuglahvísl

Nei hættir – Smugan alráð

Smáfuglarnir hafa lýst undrun sinni á því, að Björg Eva Erlends­dóttir, málsvari gegnsæis og réttlætis, skuli ekki viðurkenna, að vinstri-græn eiga ráðandi hlut í miðlinum, sem hún ritstýrir smugan.is.

Bæ bæ, Hallgrímur Helgason

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, vandar Hallgrími Helgasyni rithöfundi ekki kveðjurnar í stuttri grein í Fréttablaðinu í dag. Þar bendir þingmaðurinn á tvískinnung rithöfundarins sem eitt sinn var í aðdáendaklúbbi og sérstöku klappliði útrásarvíkinganna.

Starfsmenn Seðlabankans svara fyrir sig

Hallgrímur Ólafsson, formaður starfsmanna­félags Seðlabankans, skýtur föstum skotum á þá sem harðast hafa gengið fram í kröfunni um að „hreinsa“ til í Seðlabankanum. „Gegndarlaus áróður og sleggjudómar eru þvílíkir, að helst minnir á aðferðir skipulagðra öfgahópa“, segir Hallgrímur.

Ein vandaðasta fréttaskýring ársins birt á Vísir.is

Blaðamaðurinn Friðrik Indriðason jafnar fyrri met á sviði blaðamennsku þegar hann greinir á djúpstæðan og lítalausan hátt frá setningu Alþingis. Hlutleysi og málvöndun í texta blaðamannsins lyftir hugtakinu fréttaskýring á áður óþekktan stall.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX