amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:31
 

Miðvikudagurinn 4. febrúar 2009

«
3. febrúar

4. febrúar 2009
»
5. febrúar
Fréttir

Öll lán Baugs Group og tengdra félaga gjaldfelld af gamla Glitni

Skila­nefnd gamla Glitnis hefur ákveðið að gjaldfella öll lán Baugs Group og tengdra félaga. Þetta er gert til að gamli bankinn nái haldi á þeim eignar­hlutum í Baugi sem bankinn hefur að veði til tryggingar lánum.

BG Holding ehf. fyrir enskum dómstólum

Skila­nefnd Landsbankans hefur engin áform um að krefjast sölu eigna BG Holding ehf. Það er hagur gamla bankans og kröfuhafa að sem æst verð fáist fyrir eignirnar til lengri tíma. Þetta kemur fram í yfirlýsingu skila­nefndarinnar.

Biðlaun seðlabanka­stjóra talin verða 44 milljónir króna

Fjárlagaskrifstofa fjármála­ráðuneytisins telur að kostnaður vegna biðlauna seðlabanka­stjóra sé 44 milljónir króna en þá er miðað við ákvæði um biðlaunaréttindi samkvæmt lögum um réttindindi og skyldur opinberra starfsmanna.

Fjórum fjárfestum boðið að halda áfram í söluferli Árvakurs

Fimm fjárfestar uppfylltu skilyrði opins söluferlis Fyrirtækjaráðgjafar Nýja Glitnis hf. á hlutafé í Árvakri ehf., útgáfu­félagi Morgunblaðsins. Fjórum fjárfestum hefur verið boðið að halda áfram í næsta hluta söluferlisins, en fjárfestum ber að leggja fram skuldbindandi tilboð eigi síðar en 17. febrúar.

Obama setur launaþak á banka­stjórana

Í neyðaraðstoð þeirri sem Barack Obama Bandaríkja­forseti vill drífa í gegnum þingið verður ákvæði um launaþak á banka­stjóra bandarískra banka. Laun mega ekki nema meira en hálfri milljón dollara eða sem svarar 4,8 milljónum íslenskra króna á mánuði.

Ekki vanskilum Baugs um að kenna heldur Davíð Oddssyni

Í viðtali við Jón Ásgeir Jóhannesson sem spilað var á hljóðvarpi Ríkisútvarpsins kemur fram sú skoðun Jóns Ásgeirs að Davíð Oddsson, seðlabanka­stjóri, sé sá sem beri ábyrgð á greiðslustöðvun félagsins en ekki krafa Baugs um að lengt yrði verulega í lánum bankans til Baugs.

Katrín rak Gunnar Birgisson og stjórn LÍN

Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra hefur vikið stjórn Lána­sjóðs Íslenskra námsmanna frá störfum og hyggst skipa nýja stjórn í lok vikunnar, að því er segir í frétt Ríkisútvarpsins. Formaður fráfarandi stjórnar er Gunnar Birgisson, bæjar­stjóri í Kópavogi.

Matarkarfan ódýrust í Bónus

Verðmunur reyndist 8,1% á matvörukörfunni þegar verðlags­eftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðs­verslunum í gær, þriðjudag. Vörukarfan var ódýrust í Bónus þar sem hún kostaði kr. 12.421 en dýrust í Nettó kr. 13.422.

Landbúnaðar­ráðherra hefur áhyggjur af stöðu bænda

Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðar­ráðherra óttast að margir bændur þurfi að bregða búi vegna fjárhagserfiðleika. Hann segist ætla að leita eftir viðræðum við bændaforystuna á næstunni um möguleg úrræði.

Ögmundur stakk Katrínu af

Í hádeginu ræstu heilbrigðis- og menntamála­ráðherrar Lífshlaupið þar sem almenningur er hvattur til að hreyfa sig. Ögmundur Jónasson heilbrigðis­ráðherra og hans lið hafði betur í keppni við Katrínu Jakobsdóttur menntamála­ráðherra og hennar lið í þraut í anda Skóla­hreysti.

Fimmtán sóttu um skóla­meistarastöðu FB

Umsóknarfrestur um stöðu skóla­meistara við Fjölbrautaskólann í Breiðholti rann út föstudaginn 30. janúar sl. Menntamála­ráðuneyti bárust fimmtán umsóknir um stöðuna.

„Hækkun hluta­bréfa kynti undir þenslu“

Samanburður á fjórum mismunandi vísitölum frá janúar 2001 til janúar 2009 leiðir í ljós að þróun OMX 15 hluta­bréfavísitölunnar hefur leikið lykilhlutverk í þeirri þenslu sem einkenndi íslenskt efnahagslíf frá síðustu aldamótum fram að bankahruninuí haust.

VG fagnar 10 ára afmæli

Vinstrihreyfingin – grænt framboð fagnar tíu ára afmæli sínu um næstu helgi á Grand Hóteli í Reykjavík. Fjöldi félaga og gesta mun fagna þessum tímamótum og frá Norðurlöndum eru væntanlegir formenn systur­flokka Vinstri grænna eða fulltrúar þeirra, segir í tilkynningu flokksins.

SI: Hátt vaxta­stig er að kæfa atvinnulífið

Í nágrannalöndum okkar er vaxta­stig víða 1-3% og stjórnvöld keppast við að reyna blása lífi í atvinnulífið til að sporna gegn samdrætti. Á Íslandi eru þessu öfugt háttað. Hátt vaxta­stig er að kæfa atvinnulífið, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmda­stjóri Samtaka iðnaðarins.

Sérstakt eignar­halds­félag er um Haga

Róttækar breytingar voru gerðar á skipulagi Baugs Group á síðasta ári og voru allar fjárfestingar félagsins hér á landi færðar yfir í önnur félög. Þannig tók eignar­halds­félagið 1998 ehf. yfir Haga, sem m.a. reka Bónus, Hagkaup og 10-11.

Segir evruna hluta efnahagsvandræða Spánverja

Pedro Solbes, fjármála­ráðherra Spánar, segir að það sé deginum ljósara að erfiðleikar Spánverja við að aðlaga sig að aðstæðum innan evru­svæðisins séu ein af meginástæðunum fyrir því hvernig komið sé.

Guðbjartur kosinn þing­forseti

Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingar­innar í Norðvestur­kjördæmi, var kjörinn forseti Alþingis í dag með 35 atkvæðum en Sturla Böðvarsson, fráfarandi þing­forseti, fékk 25 atkvæði.

Jyllands-Posten og Politiken undir sama þak

Skrifstofa Jyllands-Posten í Kaupmannahöfn flytur í haust frá Kongens Nytorv í hús Politiken við Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn. Þar er fyrir á fleti Ekstra Bladet. Þrjú öflugustu dagblöð Danmerkur verða þá undir sama þaki.

Hvað er Baugur Group?

Baugur Group hefur verið skilgreint sem alþjóðlegt fjárfestingar­félag sem leggur megináhersluna á fjárfestingar í smásölu­verslunum og tískufyrirtækjum í Bretlandi, á Norðurlöndunum og í Bandaríkjunum. Tugir verslana of fyrirtækja falla undir Baug með einum eða öðrum hætti.

Buffett bjargar Harley-Davidson

Warren Buffett, milljarðamæringurinn lánar Harley-Davidson mótorhjólaverkmiðjunum 300 milljónir dollara og sambærileg upphæð kemur frá aðal­eiganda verksmiðjanna, Davis Selected Advisers. Efnahagskreppan hefur leikið Harley-Davidson grátt.

Norski seðlabankinn lækkar stýrivexti

Norski seðlabankinn hefur lækkað stýrivexti sína um 0,5%, frá 3% í 2,5%. Lækkunin kemur ekki á óvart þótt sumir sér­fræðingar hafi jafnvel átt von á 0,75% lækkun.

Notkun greiðslukorta snarminnkaði eftir bankahrunið

Notkun greiðslukorta snarminnkaði frá því í haust þegar bankahrunið varð hér á landi. Almenningur virðist hafa forðast lántökur. Sýnt er þó að neysla byrjaði að dragast saman strax í upphafi árs 2008.

Jón Ásgeir kennir Davíð Oddssyni um vandræði Baugs Group

Jón Ásgeir Jóhannesson, segir að Davíð Oddsson, seðlabanka­stjóri hafi sett það sem skilyrði fyrir starfslokum í Seðlabankanum, að Baugur færi á undan. Í viðtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins segist Jón Ásgeir hafa heimildir fyrir þessu úr innsta kjarna Sjálfstæðis­flokksins.

Samkeppnis­eftirlitið leggur dagsektir á Teymi

Samkeppnis­eftirlitið leggur þriggja milljóna króna dagsektir á Teymi hf. í því skyni að knýja fram breytingar á stjórn Tals þar sem fyrirtækið hefur ekki farið að fyrirmælum Samkeppnis­eftirlitsins um breytingar á stjórn IP-fjarskipta (Tals).

Hópuppsagnir mestar í mannvirkjagerð

Enn er nokkuð um hópuppsagnir en alls misstu 167 manns vinnuna í slíkum uppsögnum í janúar. Alls misstu 5.100 manns vinnuna í hópuppsögnum á síðasta ári. Mest var um hópuppsagnir í mannvirkjagerð en 41% hópuppsagnanna voru í þeim geira, segir Greining Glitnis.

Straumur stýrir Magasin du Nord

Baugur hefur lagt hluta­bréf sín í dönsku stór­versluninni Magasin du Nord að veði gegn lánveitingum frá Straumi. Þar sem Baugur er kominn í greiðslustöðvun stýrir Straumur Magasin í raun. Stjórnandi hjá Magasin hefur trú á því að margir hafi áhuga á að eignast Magasin enda sé það dýrgripur.

Greiðslustöðvun Baugs vekur mikla athygli erlendra fjölmiðla

Greiðslustöðvun Baugs Group hefr vakið mikla athygli og þá ekki síst í breskum fjölmiðlum. Veldi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem eitt sinn var talinn einn áhrifamesti athafnamaður í breskri smásölu, rambar á barmi gjaldþrots. Tugir fyrirtækja eru undir og hjá þeim vinna tugþúsundir.

Evrópu­nefndin á að skila fyrir 15. apríl

Í samræmi við verkefnaskrá ríkis­stjórnar­innar mun nefnd um þróun Evrópu­mála á næstu dögum óska eftir upplýsingum um sértæka hagsmuni fjölda umsagnaraðila hvað varðar hugsanlega aðild Íslands að Evrópu­sambandinu. Nefndin á að skila skýrslu fyrir 15. apríl.

Greiðslustöðvun Baugs hefur ekki áhrif á Magasin

Danir þurfa ekki að hafa áhyggjur af framtíð Magasin, jafnvel þótt eigandi þess, hinn íslenski Baugur sé kominn í greiðslustöðvun, segir fjármála­stjóri dönsku stór­verslunarinnar Magasin Du Nord. „Bankar hér fjármagna okkur að fullu, svo við erum ekki háð Baugi,“ segir hann

„Pungspark“

„Þetta er pungspark frá Landsbankanum sem hefur það í för með sér að Bretar munu eignast nokkur af bestu fyrirtækjum í eigu Íslendinga á spottprís. Á meðan við ætlum að borga Icesave upp í topp þá gefum við á sama tíma Bretum fyrirtækin okkar,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnar­formaður Baugs á Vísi. Baugur er kominn í greiðslustöðvun.

Beiðni um greiðslustöðvun BG Holding hf. lögð fram í Englandi

Skila­nefnd Landsbanka Íslands hf. lagði í gær fram beiðni um greiðslustöðvun BG Holding ehf. fyrir enskan dómstól. BG Holding ehf. er dóttur­félag Baugs Group hf. og meginstarfsemi þess er tengd fjárfestingum Baugs Group hf. í Bretlandi.

„Viðvörunarljósin gegn aðild Íslands að ESB loga skært“

„Viðvörunarljósin gegn aðild Íslands að Evrópu­sambandinu loga skært. Ímyndið ykkur stöðu ykkar innan ESB ef sambandið ákvæði einn daginn að nýta fiski­stofnana ykkar í þágu aðildarríkjanna allra,“ segir Daniel Hannan, þingmaður breska Íhalds­flokksins á Evrópu­þinginu.

Selur ILVA

Lagerinn, sem m.a. rekur verslanir Rúmfatalagersins á Íslandi, hefur gert samning um sölu á húsgagna­verslununum ILVA í Danmörku og Svíþjóð til danska félagsins IDdesign, að því er mbl.is greinir frá.

Baugur óskar eftir greiðslustöðvun

Baugur Group hf. og nokkur dóttur­félaga þess, þ.á m. BG Holding ehf., fóru fram á það við Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun að félögunum yrði veitt heimild til greiðslustöðvunar.

Skoða kaup Kaupþings á Singer & Friedlander

Fjármála­nefnd neðri málstofu breska þingsins ætlar að skoða frekar kaup Kaupþings á breska bankanum Singer og Friedlander árið 2005, að því er Times greinir frá.

Inn- og útflutningur í jafnvægi

Útflutningur í janúar nam 33,6 milljörðum króna og innflutningur 33,3 milljörðum. Viðskiptin voru því hagstæð um 0,3 milljarða, samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands.

Baugur í greiðslustöðvun?

Frá því er greint á vef Retail Week í morgun að Baugur sé á barmi þess að lenda í greiðslustöðvun. Þar segir að Landsbankinn sé hættur að fjármagna fyrirtækið.

Ekkert verkefni brýnna en sporna gegn vaxandi atvinnuleysi

Ásta Ragnheiður Jóhannes­dóttir félags- og tryggingamála­ráðherra segir ekkert verkefni brýnna en að sporna gegn vaxandi atvinnuleysi með öllum tiltækum ráðum og jafnframt að byggja upp öfluga þjónustu við þá sem hafa misst atvinnu sína.

Óskað eftir tilboðum í Actavis

Novator, eignar­halds­félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur óskað eftir tilboðum í Actavis. Fréttaveitan Bloomberg segir að kaupverð geti verið 3,5-6 milljarðar evra en skuldir félagsins eru sagðar vera 5 milljarðar evra.

Gríðarlegt tap Straums

Tap Straums-Burðaráss nam nær 105 milljörðum króna á síðasta ári. Þetta er mesta tap íslensks fyrirtækins nokkru sinn og slær út taprekstur Eimskips sem tapaði 97 milljörðum króna á síðasta ári.

Umhverfis­ráðherra segir að sinn skilningur sé réttur

Kolbrún Halldórs­dóttir, umhverfis­ráðherra segir að sinn skilningur á stjórnar­sáttmála Vinstri grænna og Samfylkingar, um að álver á Bakka sé ekki á dagsrá sé réttur. Jóhanna Sigurðar­dóttir, forsætis­ráðherra segir þetta ekki rétt.

Fuglahvísl

Að fara yfir strikið

Það virðist vera að svipað sé ástatt með Jón Ásgeir og ex inspector Dreyfuss í hinum frægu gamanmyndum um Bleika pardusinn þegar hann sá eða frétti af inspector Clouseau og gjörsamlega missti hann fótanna og ærðist.

Hvalveiðimaðurinn Steingrímur J.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármála-, sjávar­útvegs- og landbúnaðar­ráðherra, var ekki búinn að vera lengi í ráðherraembætti þegar hann lýsti því yfir að ákvörðun um að leyfa hvalveiðar yrði endurskoðuð. Vinstri grænir eru mótfallnir hvalveiðum, en Steingrúmur J. er þó ekki með hreinan skjöld í þeim efnum.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX