amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:37
 

Þriðjudagurinn 3. febrúar 2009

«
2. febrúar

3. febrúar 2009
»
4. febrúar
Fréttir

Gassprengingin jafnaði húsið við jörðu

„Ég hef aldrei séð neitt í líkingu við þetta. Þetta líkist San Francisco eftir jarðskjálfta“, sagði blaðamaður BT í Danmörku, eftir að hús sprakk hreinlega í tætlur í Greve, sem er um 20 kílómetra frá Kaupmannahöfn. Gas olli sprengingunni.

Almenningshluta­félag um Morgunblaðið leggur fram tilboð

Hópur sem kallar sig Almenningshluta­félag um Morgunblaðið hyggst gera Nýja Glitni tilboð í Árvakur hf. Samkvæmt áætlun bankans þurfa óskuldbindandi tilboð að berast í síðasta lagi síðdegis á morgun.

Um 1.100 missa vinnuna í febrúar vegna hópuppsagna

Alls munu um 1.100 manns missa vinnuna í febrúar vegna hópuppsagna sem koma til framkvæmda. Þetta kemur fram í frétt frá Vinnumála­stofnun. Í lok dagsins voru 13.632 án atvinnu samkvæmt yfirliti Vinnumála­stofnunar.

Sjálfstæðis­flokkurinn stærstur en VG í þriðja sæti

Sjálfstæðis­flokkurinn fengi 29% atkvæða ef gengið yrði til kosninga nú og væri stærsti flokkurinn samkvæmt símakönnun sem gerð var fyrir fréttastofu Stöðvar 2. Vinstri grænir eru með stuðning 25% og yrði þriðji stærsti flokkurinn, en í könnunum undanfarið hefur flokkurinn fengið mestan stuðning flokka.

Liðlega helmingur styður ríkis­stjórnina

Um 52% styðja ríkis­stjórn Vinstri grænna og Samfylkingar, samkvæmt könnun sem gerð var fyrir fréttastofu Stöðvar 2 og Visis.is. Könnunin var gerð í gær og var símakönnun sem náði til 800 manns.

Jóhanna biðlar til Davíðs

Fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur birt bréf Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætis­ráðherra til Davíðs Oddssonar, seðlabanka­stjóra. Þar fer ráðherrann fram á að Davíð segi af sér embætti enda liggi fyrir að sett verði ný lög um bankann og að aðeins einn banka­stjóri verði yfir bankanum.

Samhæfingar­miðstöðin virkjuð í 71 skipti á liðnu ári

Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð var virkjuð í 71 skipti á árinu 2008. Flest tilvikin voru vegna leitar að fólki eða alls 36 skipti. Í flestum þessara atvika var verið að leita að týndu fólki á höfuðborgar­svæðinu.

Skíðaskálinn verður að fjúka líka

Örm er önd Asgers Jensby, fyrrum stjórnar­formanns danska svika­fyrirtækisins IT Factory. Lúxusvilla hans í Noregi er komin á söluskrá og nú bætist við skíðaskáli þeirra hjóna í fjalllendinu við Fageråsen i Trysil. Þar gátu þau með góðu móti tekið á móti 20 gestum meðan allt lék í lyndi.

SA: Vaxta­lækkun verði byggð á framsýni

Háir vextir eiga alls ekki við í efnahagskreppu eins og þeirri sem Íslendingar ganga í gegnum um þessar mundir. Þeir auka enn á rekstrarvanda fyrirtækja og stuðla að auknu atvinnuleysi, segja Samtök atvinnulífsins.

Ráðherrar tvísaga um stefnuna í uppbyggingu álvera

Ráðherrar ríkis­stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur eru tvísaga um stefnu ríkis­stjórnar­innar í uppbyggingu álvera. Össur Skarphéðinsson, iðnaðar­ráðherra og Kolbrún Halldórs­dóttir, umhverfis­ráðherra túlka verkefnaskrá ríkis­stjórnar­innar á gjörólíkan hátt. Skilningur ráðherranna getur haft áhrif á stuðning framsóknar­manna.

Óvænt aukin fasteignasala í Bandaríkjunum

Það voru í senn óvæntar og jákvæðar fréttir sem bárust af bandarískum fasteigna­markaði síðdegis. Nýjar tölur sýndu 6,3% söluaukningu í desember og er óhætt að segja að tíðindin hafi komið hag­fræðingum á óvart.

Tveir þriðju hlynntir hvalveiðum

Tveir þriðju hlutar landsmanna eru hlynntir hvalveiðum í atvinnuskyni. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem Capacent Gallup vann fyrir Sjávar­nytjar um helgina.

Bankainnistæður tryggðar að fullu

Ríkis­stjórn Íslands áréttar að innstæður í innlendum viðskiptabönkum og spari­sjóðum og útibúum þeirra hér á landi eru tryggðar að fullu, segir í tilkynningu viðskipta­ráðuneytisins.

Viðskiptaráð: Nánast allir vildu uppstokkun

Fleiri en 9 af hverjum 10 þátttakendum í viðhorfskönnun Viðskiptaráðs töldu nauðsynlegt að stokka upp í ríkis­stjórninni eða gera mannabreytingar hjá Seðlabanka og Fjármála­eftirliti.

LÍÚ: Tekjutap vegna afráns hvala nemur tugum milljarða

Samkvæmt fjöl­stofnalíkani Hafrannsókna­stofnunar gæti afrakstur þorsk­stofnsins orðið um 20% minni en ella njóti hvala­stofnar algerrar friðunar. Hvala­stofnar við Íslandsstrendur eru eru nú taldir nálægt upprunalegri stærð. Sér­fræðingar stofnunarinnar leggja til að hvalveiðar séu stundaðar með sjálfbærum hætti, segir á síðu LÍÚ.

Að kaupa eða kaupa ekki Ísland

Noregur missti Ísland þegar landið varð hluti Kalmars­sambandsins á 14. öld. Nú er svo að sjá að Evrópu­sambands­andstæðingar í Noregi vilji kaupa Ísland á ný til þess að koma í veg fyrir að rúmlega 300 þúsund eyjarskeggjar leiti sér neyðarhafnar í Evópu­sambandinu. Þannig hefst leiðari norska dagblaðsins Dagens Næringsliv.

Árni Páll vill varaformennsku í Samfylkingunni

Árni Páll Árnason þingmaður Samfylkingar­innar sækist eftir að verða varaformaður Samfylkingar­innar á landsfundi flokksins sem haldinn verður í komandi mánuði.

Sjö líkamsárásir um helgina

Eitthvað var um pústra á höfuðborgar­svæðinu um helgina en sjö líkamsárásir voru tilkynntar til lög­reglunnar. Fjórar voru tilkynntar aðfaranótt laugardags og þrjár aðfaranótt sunnudags.

Ríkis­stjórnin ætlar að ná 15-20 frumvörpum í gegn

Ríkis­stjórn Vinstri grænna og Samfylkingar telur nauðsynlegt að ná fram 15-20 frumvörpum áður en þingi verður slitið fyrir komandi þingkosningar. Eitt fyrsta frumvarpið er um breytingar á lögum um Seðlabankann.

Atvinnuleysi eykst enn á Spáni

Atvinnulausum á Spáni fjölgaði um 199 þúsund í janúar og eru alls 3,3 milljónir án vinnu. Í heild nemur atvinnuleysi 14,4% og er það mesta í ríkjum Evrópu­sambandsins. Reiknað er með að atvinnuleysi verði allt að 18,7% árið 2011.

Íbúðaverð hækkaði mest á Vesturlandi

Frá árinu 1990 hefur íbúðaverð hækkað mest á Vesturlandi undanfarin 18 ár en þar hefur íbúðaverð tæplega fimmfaldast frá árinu 1990 sé miðað við meðalkaupverð á fermetra. Á höfuðborgar­svæðinu, Reykjanesi og Suðurlandi hefur íbúðaverð fjórfaldast á sama tímabili, segir Greining Glitnis.

Steingrímur gefur út viðvörun vegna hvalveiðanna

Steingrímur J. Sigfússon sjávar­útvegs­ráðherra mun senda veiðiréttarhöfum vegna hvalveiða viðvörun vegna ákvörðunar fyrri ráðherra um hvalveiðiheimild til ársins 2013. Af orðum Steingríms má ráða að breytinga sé að vænta á fyrrir ákvörðun.

Davíð segir ekkert um hugsanleg starfslok

Davíð Oddsson, seðlabanka­stjóri, vildi ekki segja af eða á með hugsanleg starfslok sín í Seðlabankanum. Þetta kom fram á blaðamannafundi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis­ráðherra og Steingríms J. Sigfússonar fjármála­ráðherra.

Fjórtán teknir fyrir ölvunarakstur

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgar­svæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, fjórir á laugardag, átta á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags.

Norski fjármála­ráðherrann opinn fyrir mynt­samstarfi við Ísland

Kristin Halvorsen, fjármála­ráðherra Noregs, er opin fyrir því að ræða mynt­samstarf milli þjóðanna en hún hittir Steingrím J. Sigfússon fjármála­ráðherra síðar í vikunni. Formaður Mið­flokksins og samgöngu­ráðherra er sama sinnis og norskur hagfræðiprófessor segir mynt­samstarf við Ísland gott fyrir Noreg.

FME í hár við nýjan viðskipta­ráðherra

Fjármála­eftirlitið (FME) neitar því að stofnunin hafi verið í klappstýra eða verndað bankana fyrir erlendri gagnrýni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu á heimasíðu FME. Í gærkvöldi sagði Gylfi Magnússon, viðskipta­ráðherra að FME og Seðlabankinn hefðu verið í vitlausu liði.

Ber vott um skilningsleysi forsætis­ráðherra

Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmála­ráðherra, gagnrýnir Jóhönnu Sigurðardóttur harðlega í pistli hér á AMX, vegna ummæla hennar um frumvarp um greiðsluaðlögun. Hann segir forsætis­ráðherra sýna algjört skilningsleysi á miklu og vönduðu verki réttarfars­nefndar.

Skógarbændur í vanda

Niðurskurður ríksins á fjárframlögum til skógræktar leiðir til 45-50% samdráttar hjá framleiðendum skógarplantna, segir í ályktun stjórnar Sambands garðyrkjubænda.

Forval VG í Norðaustur­kjördæmi verður 28. febrúar

Kjörfundur vegna forvals Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðaustur­kjördæmi vegna Alþingis­kosninganna 2009 verður haldinn 28. febrúar næstkomandi.

Nýr ráðuneytis­stjóri í félags- og tryggingamála­ráðuneyti

Hanna Sigríður Gunnsteins­dóttir verið sett ráðuneytis­stjóri í félags- og tryggingamála­ráðuneytinu í stað Ragnhildar Arnljótsdóttur sem orðin er ráðuneytis­stjóri í forsætis­ráðuneytinu.

Fyrsta fjórðungstap BP í sjö ár

Tap varð af rekstri breska olíurisans BP á síðasta fjórðungi liðins árs. Tapið má rekja beint til mikillar verðlækkunar á olíu en þetta er í fyrsta skipti í sjö ár sem fjórungsuppgjör félagsins sýnir tap. Shell og ConocoPhiollips, keppinautar BP, töpuðu einnig á fjórðungnum.

Óttast gjaldþrot grænmetisbænda

Stjórn Sambands garðyrkjubænda óttast að hækkun raforkukostnaðar leiði til gjaldþrota í greininni. í ályktun stjórnar­innar segir að ríkið hafi aukið rafmagnskostnað garðyrkjubænda um 25% og slíkt sé aðför að íslenskri garðyrkju.

Sjötti hver Bandaríkjamaður tæknilega gjaldþrota

Fasteignaverð í Bandaríkjunum hefur lækkað svo mjög að sjötti hver Bandaríkjamaður skuldar meira í fasteign sinni en nemur virði hennar, er með öðrum orðum tæknilega gjaldþrota. Fasteigna­markaður er raunar frosinn víða um heim.

Nýr viðskipta­ráðherra: Úr háskóla í ráðherrastól

Gylfi Magnússon, viðskipta­ráðherra hefur varið stærstum hluta starfsævinnar innan veggja háskóla. Hann er doktor í hagfræði en var á námsárum blaðamaður á Morgunblaðinu. Gylfi er kvæntur Hrafnhildi Stefánsdóttur og eiga þau fimm börn.

OPEC tekst að halda olíuverði stöðugu

Olía hefur heldur hækkað í verði vegna samdráttar í framleiðslu OPEC, samtaka olíuframleiðsluríkja. Það sést því enn og aftur að samtökin geta haft áhrif á verðið. Þau draga nokkurn veginn úr framleiðslu sem nemur minni eftirpurn.

Breska fjármála­eftirlitið varað við Kaupþingi

Breska fjármála­eftirlitið, (FSA) var varað við yfirtöku Kaupþings á Singer & Friedlander bankanum árið 2005. Tony Shearer, sem var yfirmaður bankans, segist hafa gefið FSA viðvörun um að stjórnendur Kaupþings væru ekki hæfir til að eiga breska bankann.

Seðlabanki Japans kaupir hluta­bréf af bönkum

Seðlabanki Japans hefur tilkynnt að bankinn muni kaupa hluta­bréf í eigu þarlendra banka fyrir 11,1 milljarð dollara. Með þessu leitast bankinn við að auka lausafé fjármálafyrirtækja og þar með gefa þeim aukið svigrúm til lánveitinga.

Leit á Breiðafirði í nótt

Leit var gerð á Breiðafirði í nótt, eftir að tilkynnt var um að tvö neyðarblys hefðu sést á lofti um klukkan ellefu í gærkvöldi. Bátar frá Stykkishólmi og Búðardal og þyrla Landhelgisgæslunnar tóku þátt í leiðinni en leit hefur verið hætt en hefst aftur er birtir. Ekki er vitað um neinn bát sem er saknað.

Yfirlýsingar forsætis­ráðherra jaðra við einelti

Halldór Blöndal, formaður bankaráðs Seðlabankans, segir að yfirlýsingar Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætis­ráðherra, um störf banka­stjórnar Seðlabankans jaðri við einelti. Hann segir lítið fara fyrir efnislegri gagnrýni.

Víða hálka og hálkublettir

Á Suðurlandi eru hálkublettir á Hellisheiði en hálka er í Þrengslum. Hálka eða hálkublettir er á flestum leiðum á Suðurlandi. Þungfært er á Ísólfsskálavegi og Bláfjallavegi sunnan Bláfjalla.

Rúmlega þrjár milljónir í Neyðarsöfnun fyrir Gaza

Félagið Ísland-Palestína hefur staðið fyrir sérstöku söfnunarátaki, Neyðarsöfnun fyrir Gaza, allt frá fyrstu dögum árásarinnar á Gaza. Rúmlega þrjár milljónir hafa nú safnast í þessu átaki sem haldið verður áfram.

Fuglahvísl

Gylfi og „rétta liðið“

Smáfuglanir velta því fyrir sér hvort nýr viðskipta­ráðherra ræði ekki við Ólaf Ragnar Grímsson, sem áður var sérlegur sendiherra útrásarinnar, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Björgvin G. Sigurðsson, um að koma þeim í „rétta liðið“.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX