| « 1. febrúar |
■ 2. febrúar 2009 |
» 3. febrúar |
Kristján Guy Burgess aðstoðar utanríkisráðherra
Kristján Guy Burgess hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Kristján hefur meistarapróf í alþjóðastjórnmálum og alþjóðalögum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hélt svokallaðan Fjölskyldudag fyrir starfsmenn sína á laugardaginn. Uppákoman heppnaðist í alla staði mjög vel og féll sérstaklega í kramið hjá ungu kynslóðinni.
Nýr ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu
Ragnhildur Arnljótsdóttir hefur verið skipuð í embætti ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu til 30. apríl. Hún var ráðuneytisstjóri í félags- og tryggingamálaráðuneytinu.
Jóhanna hefur beðið seðlabankastjóra að biðjast lausnar
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra hefur farið þess á leit við sitjandi seðlabankastjóra, að þeir biðjist lausnar svo unnt sé að ganga frá starfslokasamningi við þá. Þá mun hún kynna á morgun frumvarp um breytingar á lögum um Seðlabankann.
Moody's lækkar matið á Barclays
Matsfyrirtækið Moody's lækkaði í dag lánshæfismat á breska stórbankanum Barclays. Samhliða jókst skuldatryggingarálag bankans. Markaðurinn telur auknar líkur á framlagi ríkisins til bankans og jafnvel þjóðnýtingu.
Forseti hafði tillögu um þjóðstjórn að engu
Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir að forseti Íslands hafi haft að engu tillögu Geir H. Haarde að mynduð yrði þjóðstjórn og tryggja þannig þingræðislega stjórn. Björn telur að forseti hafi gengið gegn þingræðisreglu sem gerir ráð fyrir að ríkisstjórn styðjist við meirihluta á Alþingi.
Ögmundur afnemur innritunargjöld á sjúkrahús
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um að afnema innritunargjöld á sjúkrahús en reglugerð þar um tók gildi um áramótin, að því er mbl. greinir frá. Gjaldið var sex þúsund krónur.
Búist við að Obama útnefni ráðherra úr hópi repúblikana
Búist er við að Barack Obama Bandaríkjaforseti útnefni Judd Gregg, öldungardeildarþingmann Repúblikanaflokksins sem viðskiptaráðherra síðar í dag. Það veldur, þótt furðulegt megi virðast, nokkrum titringi meðal repúblikana.
Styrkir til háskólanáms í Kína
Stjórnvöld Alþýðulýðveldisins Kína bjóða fram styrk handa Íslendingum til háskólanáms í Kína námsárið 2009-2010.
Nær fimmtug Barbie finnur fyrir krumlu kreppunnar
Hagnaður bandaríska leikfangaframleiðandans Mattel, hins stærsta í heimi, á síðasta fjórðungi liðins árs var aðeins helmingur miðað við sama tímabil árið áður. Frægasta leikfang Mattel er án efa Barbie-dúkkan. Jafnvel hún kemst ekki undan krumlu kreppunnar. Vera kann að aldurinn sé farinn að setja mark sitt á hana en hún verður fimmtug í næsta mánuði.
Liverpool selur Robbie Keane til Tottenham
Liverpool hefur selt írska landsliðsmanninn Robbie Keane til Tottenham. Stoppið var því stutt hjá Liverpool. Keane er því kominn heim á ný því hann var hjá Tottenham frá 2002 þar til á liðnu sumri að hann gekk til liðs við Liverpool. Tottenham veitir ekki af styrk enda nálægt fallsæti.
Mikið tap á Ryanair á þriðja fjórðungi
Írska lágfargjaldaflugfélagið Ryanair tilkynnti um 101,5 milljóna evra tap eftir skatta á þriðja ársfjórðungi, eða sem svarar um 15 milljörðum króna. Þrátt fyrir þetta reiknar félagið með hagnaði þegar árið í heild verður gert upp.
Samkomulag nýju ríkisstjórnarflokkanna felur meðal annars í sér að Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, verði forseti Alþingis, segir í frétt á Vísi.
Samruni British Airways og Iberia á lokastigi
Samruni flugfélaganna British Airways og hins spænska flugfélags Iberia liggur í loftinu. Unnið hefur verið að sameiningu félaganna frá því í júlí. Hlutabréf BA hafa fallið mjög í verði á tímabilinu, miklu meira en bréfin í Iberia.
Framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Byrs hættir
Samkomulag hefur orðið um að Carl H. Erlingsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Byrs, láti af störfum hjá fyrirtækinu frá og með deginum í dag.
Skotar vilja Ísland í ESB til að fá aðgang að fiskimiðunum
Skoskir sjómenn og forvígisimenn samtaka þeirra bíða þess nú í ofvæni að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Þannig vonast þeir til að Íslandsmið opnist hugsanlega fyrir þeim að nýju, segir á síðu LÍÚ þar sem vitnað er til fréttar The Press and Journal.
Samruni dönsku og sænsku póstþjónustunnar
Danska ríkið hefur keypt 22% hlut fjárfestingasjóðsins CVC í danska póstinum, Post Danmark. Kaupin eru liður í sameiningu dönsku og sænsku póstþjónustunnar. Svíarnir vildu ekki að einkaaðili kæmi að póstþjónustunni. CVC fær í staðinn hlut í belgíska póstinum.
Geir H. Haarde: Aðgerðin gekk vel
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, gekkst í dag undir speglunaraðgerð á háskólasjúkrahúsinu í Amsterdam þar sem fjarlægt var illkynja mein í vélinda. Aðgerðin heppnaðist vel að því er fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.
Guðlaugur Þór býður sig fram í formann Sjálfstæðisflokksins
Vísir.is fullyrðir að Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, hafi ákveðið að sækjast eftir formennsku í Sjálfstæðisflokknum á landsfundi sem hefst 26. mars næstkomandi. Fullyrt er að Guðlaugur Þór muni tilkynna framboð sitt formlega á morgun.
Einkaneysla minnkar í Bandaríkjunum sjötta mánuðinn í röð
Einkaneysla í Bandaríkjunum dróst saman í desember, sjötta mánuðinn í röð. Hún minnkaði um 1% og var samdrátturinn meiri en búist var við.
Engin viðskiptavakt með hlutabréf Eimskips
Nýi Landsbankinn hefur sagt upp samningi um viðskiptavakt með hlutabréf Hf. Eimskipafélags Íslands. Þar með eru engir samningar um viðskiptavakt fyrir bréf félagsins. Hlutabréf Eimskips eru á athugunarlista Kauphallarinnar.
Úrskurðarnefnd lækkar verð um 5-10%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 10%.
Aðgerðir til að efla atvinnuástand
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félags- og tryggingamálaráðherra hefur ýtt úr vör vinnu við fjölbreyttar aðgerðir gegn atvinnuleysi í samræmi við fyrstu tillögur starfshóps sem skipaður var.
Hlutabréf falla í Evrópu - bankar leiða lækkunina
Hlutabréf á helstu mörkuðum Evrópu hafa lækkað í verði það sem af er degi og fylgir lækkunin í kjölfar almennrar lækkunar í Asíu. Barclays baninn hefur lækkað um tæp 11% en lánshæfismat bankans hefur verið lækkað.
Verðbólguálag til þriggja ára á markaði er nú 4,7% en var 6,4% fyrir viku síðan. Verðbólguálag til lengri tíma litið hefur einnig lækkað töluvert, aðallega vegna lækkunar á kröfu lengstu ríkisbréfaflokkanna, segir Greining Glitnis.
Olía og gas hugsanlega meðal íslenskra auðlinda
Drekasvæðið fyrir norðaustan landið er það svæði sem helst er talið geyma olíu og gas í vinnanlegu magni hér við land. Landsvæðið er talið síst verra til slíkrar vinnslu fallið en sambærileg svæði við Noreg eða í Barentshafi, segir Greining Glitnis.
Fram til þessa hefur auðmannaparadísin í Dúbaí nánast verið ósnortin af alheimskreppunni, en ekki lengur. Fasteignaverð þar fellur nú hratt.
Rýmri útlánareglur og fleiri lánaflokkar hjá Íbúðalánasjóði
Íbúðalánasjóður fær heimild til lánveitingar til endurbóta og viðhalds á leiguíbúðum. Þá fær sjóðurinn rýmri heimildir til að veita fötluðum einstaklingum aukalán vegna sérþarfa og heimild til veðlánaflutninga milli leiguíbúða sem eru í eigu sama lántakenda.
Toyota í Kópavogi eykur starfshlutfall á verkstæðum í 100%
Vegna góðrar verkefnastöðu á verkstæðum Toyota í Kópavogi hefur verið ákveðið að í febrúar verði starfshlutfall starfsmanna þeirra 100% í stað 90%, segir í tilkynningu fyrirtækisins. 170 nýir fólksbílar seldust í janúar og þar af voru 55 eða 32,4% frá Toyota.
Þrýstiloftsbíll í stað rafbíls?
„Framtíðarbíllinn er loftbíllinn – bíllinn sem keyrir á þrýstilofti. Hann kemst 250 km á hleðslunni og það tekur einungis 2-4 mínútur að full-hlaða tóma loftgeymana. Svo segir Thure Barsøe-Carnfeldt sem verið hefur frumkvöðull rafbíla í Danmörku.
Ögmundur Jónasson mættur í heilbrigðisráðuneytið
Fyrsti starfsdagur Ögmundar Jónassonar sem heilbrigðisráðherra er í dag. Hann tók að vísu við lyklavöldum í gær en forveri hans, Guðlaugur Þór Þórðarson, afhenti honum lyklana.
Hvað er að frétta af rannsóknum Fjármálaeftirlitsins?
Það er skiljanlegt að marga þyrsti í að vita meira um rannsóknir á vegum Fjármálaeftirlitsins í aðdraganda og kjölfar falls bankanna þriggja, segir Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri á verðbréfasviði Fjármálaeftirlitsins, m.a. í grein á síðu eftirlitsins en greinin birtist í Morgunblaðinu á laugardaginn.
Fasteignaverð hækkaði á ný í Noregi
Fasteignaverð hækkaði milli desember og janúar í Noregi. Tíðindin komu á óvart og vöktu gleði. Fasteignasalar tóku eftir breytingu í desember, markaðurinn jafnaði sig og kaupendur sýndu sig á nýjan leik.
Nýi Glitnir setur samræmdar reglur vegna fyrirtækja í erfiðleikum
Nýi Glitnir hefur birt á heimasíðu sinni verklagsreglur sem skýrir hvernig bankinn meðhöndlar fullnustu krafna gagnvart fyritækjum í rekstrarerfiðleikum. Þessar viðmiðunarreglur koma í framhaldi af þeim vinnuramma sem bankinn kynnti til sögunnar um miðjan desember.
Svar kvenna við fjármálakreppunni er að lita hárið ljóst. Breskur hárgreiðslumeistari segir að sala í ljósum hárlit hafi aukist um 67% frá því að kreppan skall á. Hann segir ljósa hárlitinn fylla konur auknu sjálfsöryggi á örlagatímum. Blondínan er orðin baráttutákn.
Salan á Spanair gerir SAS söluvænna
Norræna flugfélagið SAS seldi spænska vandræðabarnið sitt, Spanair, fyrir lágmarksverð, eina evru. Eftir söluna er SAS sjálft söluvænna fyrirtæki enda laust við blæðandi tap spænska flugfélagsins.
Nokia hótar að yfirgefa Finnland
Finnski farsímaframleiðandinn Nokia, stærsti farsímaframleiðandi í heimi, hótar að flytja með starfsemí sína úr landi fái forráðamenn fyrirtækisins ekki heimild finnskra stjórnvalda til að fylgjast með tölvupósti starfsmanna sinna - svo koma megi í veg fyrir að viðskiptaleyndarmál leki út.
Ætla að breyta yfirstjórn einstakra ráðuneyta
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur stefnir ekki aðeins að því að skipta út yfirstjórn Seðlabanka Íslands, heldur á einnig að gera breytingar á yfirstjórn einstakra ráðuneyta. Þetta kemur fram í verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í gær.
Hlutabréf lækkuðu í verði á helstu mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Hitachi lækkaði um 17% eftir að hafa gefið út afkomuviðvörun. Nikkei 225 vísitalan lækkaði um 1,5%.
Víðast góðar aðstæður til akstur en hálka
Það eru frekar góðar aðstæður til aksturs um allt land, hálka eða hálkublettir, stillt veður og frost, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Hálka er á flestum leiðum á Suðurlandi.
Hreinsanir hefjast – Bolli í frí
Smáfuglarnir heyra, að innan stjórnarráðsins sé skrýtið andrúmsloft eftir stjórnarskiptin, því að embættismenn hafi strax orðið varir við tortryggni af hálfu nýju ráðherranna. Raunar sé það aðeins í viðskiptaráðuneytinu og dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, þar sem fólk sé óttalaust, af því að þar séu embættismenn við stjórnvölinn.
Hvar ætli jeppinn hans Steingríms J. hafi verið?
Smáfuglarnir við Austurvöll voru hissa þegar þeir fréttu að Steingrímur J. Sigfússon, hefði komið á fund forseta Íslands á 30 ára gömlum Volvo. Þekki smáfuglarnir rétt, þá er formaður vinstri grænna og núverandi fjármála-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, oftar en ekki á glæsilegum Volvo XC90 jeppa.