| « 31. janúar |
■ 1. febrúar 2009 |
» 2. febrúar |
Nýr dómsmálaráðherra er reyndur embættismaður
Ragna Árnadóttir tók við sem dóms- og kirkjumálaráðherra í dag af Birni Bjarnasyni. Ragna situr ekki á þingi en hún er fætt árið 1966 í Reykjavík. Eiginmaður hennar er Magnús Jón Björnsson, tannlæknir. Þau eiga tvær dætur.
Ferill hins nýja forsætisráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir, hinn nýi forsætisráðherra, á sér langan feril í stjórnmálum sem þingmaður, ráðherra og forystumaður flokka. Hún er fyrsta konan sem gegnir embætti forsætisráðherra hér á landi.
Siv sækist eftir oddvitasætinu
Siv Friðleifsdóttir hefur ákveðið að sækjast eftir endurkjöri og leiða framboðslista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Hún segir að mörg og vandasöm verkefni bíði þeirra stjórnmálamanna sem taka sæti á Alþingi eftir komandi kosningar.
Engin ný álver á dagskrá ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur ekki upp áform um ný álver. Óljóst er hvort fyrirhuguð álver eru utan við þetta. Hins vegar ætlar ríkisstjórnin að endurskoða áform opinberra aðila um framkvæmdir.
Ráðherralisti nýrrar 10 manna minnihlutastjórnar
Tveir utanþingsmenn sitja í nýrri ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra og Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tekur ekki sæti í ríkisstjórninni.
Heilbrigðisráðuneytið kaupir þjónustu af Hrafnistu
Heilbrigðisráðuneytið hefur samið við Hrafnistu um kaup á hvíldar- og dagdeildarrýmum. Um er að ræða rekstur á 30 hvíldar- og dagdeildarrýmum með endurhæfingu.
Óprúttið par rændi fatlaða konu við hraðbanka í Hafnarfirði um ellefu í gærkvöld. Konan var að reyna að taka út peninga úr hraðbankanum. Atvikið náðist á eftirlitsmyndavél.
Smáfuglarnir höfðu gert sér vonir um að Björg Thorarensen, prófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, yrði ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Af því varð ekki og er ástæðan einföld, hún þykir ekki hafa réttar skoðanir á Evrópusambandinu.
Smáfuglunum þótti Geir H. Haarde taka meira upp í sig en hann er vanur, þegar hann sagði í tilefni af stjórnarslitunum mánudaginn 26. janúar, að Samfylkingin væri flokkur í tætlum. Var þetta mat Geirs eftir að hafa setið á fundum með þeim Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Össuri Skarphéðinssyni.
Framsókn sigrar lýðræðisbyltinguna
Smáfuglunum þótti nóg um, þegar Páll Magnússon, þáverandi frambjóðandi til formennsku í Framsóknarflokknum, andmælti því, að flokkur sinn hefði verið „hækja“ fyrir Sjálfstæðisflokkinn.