| « 30. janúar |
■ 31. janúar 2009 |
» 1. febrúar |
Miðstjórn Framsóknar með fund á morgun
Miðstjórn Framsóknarflokksins hefur verið kölluð saman til fundar á morgun, sunnudag kl. 13.30. Þar mun formaður flokksins kynna framgang og niðurstöður viðræðna um að Framsóknarflokkurinn verji minnihlutastjórn Samfylkingar og vinstri grænna falli.
Tugir fórust í brennandi olíuhafi úr olíubíl í Kenýa
Brennandi olíuhaf frá olíubíl sem valt í bænum Molo í Kenýa olli dauða að minnsta kosti fimmtíu manns í dag, Hundruð manna söfnuðust að til að reyna að ná sér í olíu sem fossaði úr bílnum. Hugsanlegt er að sígaretta hafi valdið olíusprengingunni.
Bjarni Benediktsson býður sig fram í formann Sjálfstæðisflokksins
Bjarni Benediktsson, þingmaður hefur ákveðið að bjóða sig fram til formennsku í Sjálfstæðisflokknum og landsfundi, sem hefst 26. mars næstkomandi. Bjarni er fyrsti maðurinn sem lýsir opinberlega yfir framboði til formennsku, en Geir H. Haarde sækist ekki eftir endurkjöri.
Hvað hyggst ný ríkisstjórn fyrir í ESB- málum?
Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, efnir til opins fundar nk. sunnudag kl 14:00 á Kaffi Rót í Hafnarstræti 17, 101 Reykjavík þar sem umræðuefnið verður hvað ný ríkisstjórn kunni að aðhafast í Evrópumálunum.
Töluvert er um að snjóbrettum sé stolið þessa dagana. Að undanförnu hafa lögreglu borist margar slíkar tilkynningar, flestar ef ekki allar úr Bláfjöllum.
Hallur Magnússon býður sig fram í Reykjavík fyrir Framsókn
Hallur Magnússon hefur ákveðið að sækjast eftir einu af efstu sætum á framboðslista Framsóknarflokksins í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Í yfirlýsingu segir Hallur að hann hafi gagnrýnt það sem miður hafi farið hjá Framsóknarflokknum.
Gunnar Bragi vill fyrsta sæti hjá Framsókn í Norðvesturkjördæmi
Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Skagafirði, ætlar að sækjast eftir að leiða framboðslista flokksins í Norðvesturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Magnús Stefánsson, þingmaður hefur ákveðið að láta af þingmennsku.
Obama vill bætt samband við Kína
Barack Obama Bandaríkjaforseti hringdi í dag í Hu Jintao, starfsbróður sinn í Kína. Samtal þeirra er hið fyrsta frá því að Obama tók við embætti. Forsetarnir urðu sammála um að bæta samband þjóðanna, koma á „jákvæðara“ sambandi milli þeirra.
Boða til mótmæla og „sigurtónleika“
Samtökin Raddir Fólksins boða til mótmæla í dag á heimasíðu sinni. Einnig verða haldnir tónleikar í kvöld og rennur ágóðinn til samtakanna.
Framsókn hikstar á síðustu metrunum
Smáfuglarnir hafa beðið með öndina í hálsinum alla vikuna eftir því, að ný ríkisstjórn yrði mynduð. Síst af öllu áttu þeir von á því, að Steingrímur J. mundi ekki gæta þess að halda framsóknarmönnum upplýstum eftir allt hans tal um, að hann hefði um árabil skort upplýsingar frá valdamönnum til að mynda sér rökstudda skoðun á mönnum og málefnum.