| « 29. janúar |
■ 30. janúar 2009 |
» 31. janúar |
Aukið svigrúm vegna frávika frá hvíldartímareglum bílstjóra
Samgönguráðherra hefur staðfest breytingu á reglugerð um sektir og viðurlög vegna brota á reglum um akstur og hvíld ökumanna. Með breytingunni er aukið svigrúm vegna frávika frá reglunum. Þannig er nú ekki sektað fyrr en akstur er orðinn 10% yfir aksturstíma en var áður 5-10%.
Geir þakkar bankastjórn Seðlabankans
Geir H. Haarde, fráfarandi forsætisráðherra, þakkaði í dag bankastjórn Seðlabankans náið og ánægjulegt samstarf við gríðarlega erfiðar og óvenjulegar aðstæður.
Geir óttast sundrung í nýrri stjórn
Geir H. Haarde, fráfarandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, gerði upp stjórnarsetuna við Samfylkinguna á félagsfundi flokksins í dag. Hann óttast sundrung í nýrri ríkisstjórn en segir ástand efnahagsmála ekki jafn slæmt og margir hafa viljað vera láta.
Framsókn heldur Samfylkingu og VG volgum fram yfir helgi
Framsóknarflokkurinn tekur sinn tíma og boðar eigin tillögur um hvaða leiðir eigi að fara við stjórn landsins á næstunni. Ólíklegt er því að ný minnihlutastjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, með stuðningi Framsóknarflokksins, taki við völdum fyrr en eftir helgi.
Gengi íslensku krónunnar styrktist í dag líkt og undanfarna daga. Styrkingin nam 0,52%. Dollarinn er undir 114 krónum og evran undir 146 krónum.
Fjármálaeftirlitið hefur lagt stjórnvaldssektir á tæplega 30 aðila frá miðju ári 2007 til ársloka 2008. Um er að ræða álagningu stjórnvaldssekta vegna brota á lögum um vátryggingastarfsemi, lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um verðbréfaviðskipti.
Baugur lokar skrifstofunni á Túngötu
Baugur Group hefur ákveðið að loka skrifstofu sinni á Túngötu og hefur öllum fimmtán starfsmönnum fyrirtæksins hér á landi verið sagt upp störfum. Jafnframt hyggst Baugur fækka starfsmönnum í Bretlandi úr 29 í 16, að því er Vísir greinir frá.
Nýsköpun Íslendinga í 14. sæti í Evrópu
Ef lagt er mat á nýsköpun í hagkerfinu eru Íslendingar í 14. sæti ríkja í Evrópu. Ísland undir meðaltali ESB ríkjanna á mælikvarða nýsköpunar. Þessi mælikvarði er búinn til með því að bera saman fjölmarga þætti sem taldir eru skipta máli við mat á nýsköpun.
Nær 90% fækkun nýskráninga bíla
Til undantekninga heyrir nú að menn kaupi sér nýja bíla frá umboði. Umferðarstofa hefur tekið saman yfirlit yfir nýskráningar ökutækja fyrstu 23 daga ársins. Fækkun milli ára nemur 89,3%.
Vatnshornsskógur í Skorradal friðlýstur
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur undirritað friðlýsingu Vatnshornsskógar í Skorradal sem friðlands í samræmi við þingsályktun um náttúruverndaráætlun. Friðlýsingin var unnin í samvinnu við Skorradalshrepp og Skógrækt ríkisins.
Langanesbyggð tekur að sér rekstur Þórshafnarflugvallar
Flugstoðir og Langanesbyggð hafa gert með sér þjónustusamning um rekstur Þórshafnarflugvallar. Samgönguráðherra hefur staðfest samninginn. Langanesbyggð tekur að sér framkvæmd og umhirðu við flugbraut, stæði og öryggissvæði flugvallarins svo og viðhald á tækjum og búnaði og umsjón með fasteignum.
Íslenskur friðargæsluliði til Palestínu
Fulltrúi Íslensku friðargæslunnar, Ólöf Magnúsdóttir, heldur um helgina til starfa í Palestínu í tveggja mánaða verkefni hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF.
Há laun Eimskipafélagsforstjóra
Laun þeirra þriggja manna sem gegnt hafa forstjórastarfi hjá Eimskip síðustu misseri hafa verið til umfjöllunar í dag eftir að uppgjör félagsins lá fyrir, en félagið var rekið með meira tapi á síðasta árin en áður hefur þekkst í íslensku viðskiptalífi. Launin þykja há. Eimskip skýrir laun forstjóranna í tilkynningu.
Samruni Valitors og Tax Free ógiltur
Með ákvörðun í dag hefur Samkeppniseftirlitið ógilt samruna sem falist hefði í kaupum Valitors hf. á öllu hlutafé í Euro Refund Group North á Íslandi ehf. (Tax Free). Samkeppniseftirlitið kemst að þeirri niðurstöðu að markaðir þeir sem fyrirtækin starfa á séu nátengdir.
Þingflokksfundum Samfylkingarinnar og VG frestað
Þingflokksfundum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, sem halda átti í dag vegna stjórnarmyndunar, hefur verið frestað til morguns. Líklegt er að þeim hafi verið frestað vegna þess að framsóknarmenn hafa ekki náð niðurstöðu, segir í frétt Ríkisútvarpsins. Tilvist nýrrar stjórnar er undir stuðningi Framsóknarflokksins komin.
Áætlað að nýr Landspítali kosti 82 milljarða
Áætlaður kostnaður vegna byggingar nýs Landspítala með húsgögnum og tækjum er 82 milljarðar króna. Mikil breyting hefur orðið í íslensku efnahagslífi frá fyrstu hugmyndum um hinn nýja spítala. Næstu skref taka væntanlega verðandi fjármála- og heilbrigðisráðherra, Steingrímur J. og Ögmundur.
Biðja sýslumenn að flýta sér hægt
Hagsmunasamtök heimilanna skora á starfsfólk allra sýslumannsembætta landsins að flýta sér hægt í störfum sínum við fjárnám og nauðungasölur íbúðarhúsnæðis landsmanna. Neyðarástand ríki.
Ögmundur í frí frá BSRB vegna ráðherrastarfa
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, hefur óskað heimildar stjórnar bandalagsins til þess að draga sig í hlé fram yfir kosningar. Ögmundur er í þann mund að taka sæti í ríkisstjórn. Fyrsti og annar varaformaður bandalagsins gegna störfum Ögmundar í leyfi hans, segir mbl.is.
Lúxusvilla Asgers Jensby til sölu fyrir 370 milljónir
Nýbyggð lúxusvilla Asgers Jensby, fyrrum stjórnarformanns í danska svikafyrirtækinu IT Factory, er til sölu. Hvergi var sparað við gerð hússins í Noregi en söluverðið dugar þó ekki fyrir láninu sem Asger tók hjá Stein Bagger til byggingarinnar.
AGS: Hagvöxtur ekki minni síðan í seinna stríði
Ljóst þykir nú að alþjóðafjármálakreppan mun hafa mun djúpstæðari áhrif en áður var talið og að áhrif hennar munu vara lengur en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Aðgerðir stjórnvalda hafa hingað til ekki náð að brjóta á bak aftur þá óvissu sem fjármálakreppan hefur haft í för með sér, segir Greining Glitnis.
Framsókn sögð vilja skerpa á málefnaskrá nýrrar stjórnar
Framsóknarmenn hafa áhyggjur af gangi mála, samkvæmt heimildum RÚV, að því er fram kom í hádegisfréttum. Þeir telja að í málefnaskrána vanti að tiltekin séu brýnustu verkefni sem ný ríkisstjórn muni einbeita sér að og skýra útfærslu á því hvernig þau verði leyst.
Hrein skuldastaða ríkissjóðs mun breytast úr því að vera nánast á núlli um síðustu áramót í 563 milljarða króna neikvæða stöðu í lok þessa árs. Það er mikill viðsnúningur til hins verra en þó verður nettóstaðan í árslok ekki til muna verri en gengur og gerist í helstu iðnríkjum að jafnaði, segir Greining Glitnis.
DV hættir að koma út á mánudögum
Hlé verður gert á mánudagsútgáfu DV, að því er fram kemur á vef blaðsins. Þar segir að miklar hækkanir að undanförnu á þjónustu, prentun og aðföngum kalli á tafarlausar aðgerðir í að draga saman útgjöld.
Ráðherralisti nýrrar ríkisstjórnar
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon fara hvort um sig með tvöföld viðamikil ráðuneyti í minnihutastjórn Samfylkingarinar og VG, segir í frétt á vefmiðlinum Smugan.is. Þar segir og að tveir utanþingsmenn verði í stjórninni, Björg Thorarensen og Gylfi Magnússon.
Ólíklegt að Framsókn styðji afturköllun hvalveiðireglugerð
Formaður Framsóknarflokksins lýsti því yfir í fréttaskýringaþættinum Kastljósi í gærkvöld að ólíklegt væri að flokkurinn styddi hugmyndir Samfylkingar og VG um að afturkalla reglugerð um hvalveiðar. LÍÚ vekur athygli á ummælunum.
Aukið atvinnuleysi í evrulöndunum
Atvinnuleysi í evrulöndunum jókst milli mánaðanna nóvember og desember, frá 7,9 í 8%. Neysluverð í janúar var lægra í þessum löndum en búist hafði verið við.
Bækur IT Factory sýndu methagnað rétt fyrir hrunið
Hefðu stórfelld fjársvik Stein Baggers, forstjóra danska upplýsinga- og tæknifyrirtækisins IT Factory, ekki komist upp hefði fyrirtækið sýnt metafkomu á liðnu ári. Rannsókn svikamálsins sýnir að aðeins 1% sölu þess var raunveruleiki.
Mikil fjölgun örorkulífeyrisþega heldur áfram
Mikil fjölgun örorkulífeyrisþega á Íslandi hélt áfram á síðasta ári. Í árslok 2006 voru þeir sem fengið höfðu úrskurð um 75% örorku rúmlega 15.000 sem er rúmlega 8% af vinnafli í landinu. Í hópnum fjölgaði um 550 frá árinu áður.
Norski olíurisinn StatoilHydro hefur fundið nýjan olíubrunn í Norðursjó. Verið er að rannsaka svæðið en fyrirtækið áætlar að hefja vinnslu á svæðinu og tengja það því framleiðsluferli sem þegar er fyrir hendi.
Verður ESB-aðild banabiti sjávarútvegsins?
Bandaríska blaðið Chistian Science Monitor veltir því upp í grein í vikunni hvort áhugi Íslendinga á aðild að Evrópusambandinu muni reynast banabiti íslensks sjávarútvegs. Greinin ber yfirskriftina „Will EU lifeline sink Iceland's fishing industry.“
Jafnvægi í inn- og útflutningi á liðnu ári
Árið 2008 voru fluttar út vörur fyrir 467,1 milljarð króna en inn fyrir 472,7 milljarða króna. Halli var á vöruskiptunum við útlönd samkvæmt bráðabirgðatölum sem nam 5,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 127,5 milljarða.
Nýskráningum hlutafélaga fækkar
Nýskráð hluta- og einkahlutafélög voru 2.571 á síðasta ári og fækkaði um tæp 30% frá árinu 2007 þegar 3.674 ný félög voru skráð.
Svartnætti í japönskum efnahag
Alvarlega horfir í japönskum efnahag. Nýjar tölur sýna að iðnaðarframleiðsla féll um 9,7% í desember sem er mesta fall sem um getur þar í landi. Búist er við áframhaldandi samdrætti. Japanskur efnahagur stefnir því hraðbyri í átt að enn einu verðhjöðnunartímabilinu. Stórfyrirtæki tilkynntu um fjöldauppsagnir í morgun.
Hugað að sameiningu samgöngustofnana
Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað tvo starfshópa til að hefja athugun annars vegar á hugsanlegri sameiningu samgöngustofnana og hins vegar á sameiningu Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. Markmið þessara athugana er að auka hagkvæmni.
Gylfi Magnússon verður viðskiptaráðherra
Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, verður viðskiptaráðherra í minnihlutastjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Þá er fullyrt að hart sé lagt að Björgu Thorarensen, forseta lagadeildar HÍ, að taka við embætti dómsmálaráðherra.
Eimskip tapaði nær 97 milljörðum króna
Eimskip tapaði nær 97 milljörðum króna á síðasta ári. Afkoma ársins er verulega slæm og er fyrst og fremst skýrð með miklum gjaldfærslum og háum fjármagnsgjöldum, að sögn forstjórans. Þetta er mesta tap íslensks félags sem um getur.