| « 28. janúar |
■ 29. janúar 2009 |
» 30. janúar |
Hagnaður Amazon meiri en reiknað var með
Amazon.com Inc, stærsti smásöluaðili á netinu, skilaði nokkru meiri hagnaði á fjórða ársfjórðungi en reiknað hafði verið með. Rekrtrarhagnaður félagsins nam alls 225 milljónum dollurum eða 52 sentum á hlut en var á sama tíma fyrir ári 207 milljónir og 48 sent á hlut.
Töluverð lækkun hlutabréfa í Bandaríkjunum
Hlutabréf í Bandaríkjunum lækkuðu í dag og þar með endaði fjögurra daga gleði fjárfesta. Vonbrigði með afkomu fyrirtækja sem tilkynntu verri afkomu en reiknað var með, leiddi til lækkunar.
530 kannabisplöntur haldlagðar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haldlagt 530 kannabisplöntur í janúar. Plönturnar, sem flestar voru á lokastigi ræktunar, fundust við húsleitir á ýmsum stöðum í umdæminu.
Metþátttaka á fríráðstefnu Microsoft
Microsoft á Íslandi brást við hruni Íslendinga í símenntunarferðir til útlanda með því að blása til ráðstefnu um nýjustu strauma í upplýsingatækni. Aðgangur að ráðstefnunni var ókeypis. Um 850 tæknimenn, forritarar og stjórnendur nýttu sér þetta tækifæri.
Engin málefnaleg rök fyrir brottrekstri Davíðs
Engin málefnaleg rök eru fyrir því að reka Davíð Oddsson úr starfi að mati Hauks Arnars Birgissonar, lögfræðings hjá Ergo lögmönnum, sem bendir á að Davíð hafi í öllum atriðum fylgt lögum faglega sem Alþingi hafi sett um starfsemi bankans. Loforð um brottrekstur Davíðs sé því pólitískt sem engin lagastoð sé fyrir.
NATO: Norðurslóðir verði vettvangur friðsamlegrar samvinnu
Mikilvægt er að norðurslóðir verði vettvangur friðsamlegrar samvinnu, ekki síst í ljósi þeirra öryggisáskorana sem blasa við á svæðinu. Þetta kom fram á málstofu um öryggishorfur á norðurslóðum sem haldin var í samvinnu NATO og íslenskra stjórnvalda.
Jóhanna Sigurðardóttir, verðandi forsætisráðherra, segir að náðst hafi samkomulag um að efna til stjórnlagaþings en Framsóknarflokkurinn setur það sem skilyrði fyrir að verja ríkisstjórnina falli.
Málfundafélag Bessastaða stofnað
Stofnað hefur verið Málfundafélag Bessastaða sem hyggst standa fyrir opnum málfundum í Bessastaðahreppi. Í tilkynningu segir að vonast sé til að efla lýðræðislega umræðu um agavald og stjórnskipun í Bessastaðahreppi.
Sameiginleg rafræn sjúkraskrá fyrir allt landið
Stýrihópur um upplýsingatækni hefur skilað áfangaskýrslu sinni til heilbrigðisráðherra og hvetur eindregið til átaks í rafrænum samskiptum í heilbrigðisþjónustu.
Heilbrigðisráðuneytið: Sameining á ekki að leiða til þjónustuskerðingar
Í umræðu um fyrirhugaða sameiningu heilbrigðisstofnana hefur borið talsvert á því að gengið hefur verið út frá því að sameining sem slík leiði til skerðingar heilbrigðisþjónustu. Sú hefur þó alls ekki verið raunin þar sem heilbrigðisstofnanir hafa verið sameinaðar, segir í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins.
Útvegsmenn á Suðurnesjum fagna ákvörðun um hvalveiðikvóta
Stjórn Útvegsmannafélag Suðurnesja fagnar þeirri ákvörðun sjávarútvegsráðherra að gefa út hvalveiðikvóta til næstu fimm ára. Þeir líta á það sem mikilvægt framlag til aukinnar atvinnu- og gjaldeyrissköpunar.
Gengi íslensku krónunnar styrktist um rúm 2% í dag. Dollarinn er nú á rúmar 113 krónur, evran í tæpum 148 krónum og danska krónan er komin niður fyrir 20 krónur.
Tímabundin niðurfelling álags vegna skila á virðisaukaskatti
Fjármálaráðuneytið hefur beint þeim tilmælum til skattstjóra að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti sem á gjalddaga er 5. febrúar 2009 og gildi sú niðurfelling í átta daga eða til 13. febrúar 2009.
Vörukarfa ASÍ: Bónus hefur hækkað mest
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um allt að 35% frá því að verðlagseftirlitið hóf mælingar á körfunni í öllum helstu matvöruverslunarkeðjum í apríl í fyrra. Af þeim tíu verslunarkeðjum þar sem verð vörukörfunnar er mælt hefur verðið hækkað mest í Bónus, um 35,4%.
Mati FME á nýju bönkunum miðar vel
Mati Fjármálaeftirlitsins á eignum og skuldum nýju bankanna miðar vel áfram. Það mun hins vegar taka lengri tíma en upphaflega var áætlað.
Umfangsmikil kannabisræktun á Álftanesi stöðvuð
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði mjög umfangsmikla kannabisræktun í húsi á Álftanesi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 200 kannabisplöntu.
Ingibjörg Sólrún lagðist gegn vaxtalækkun
Samkvæmt heimildum AMX taldi Seðlabankinn rétt að lækka stýrivexti um 200 punkta eða niður í 16%. Þar með ætlaði bankastjórn bankans að stíga fyrsta skref í ferli vaxtalækkunar. Geir H. Haarde forsætisráðherra studdi þessa afstöðu bankans.
Soros segir milljarðaaðstoð við bankakerfið ranga
Milljarðapakkar ríkisstjórna víða um heim til hjálpar illa stöddum bönkum eru í eðli sínu rangir, segir milljarðamæringurinn og fjárfestirinn George Soros. Hann leggst því gegn því að bandaríska ríkið kaupi upp hin „eitruðu“ lán bankanna. Hluthafarnir eiga að borga, ekki skattgreiðendur, segir hann.
Ánægja gærdagsins að engu orðin og hlutabréfin falla
Gleði fjárfesta yfir hækkun síðustu daga er að engu orðin eftir lækkun í Bandaríkjunum. Eigendur hlutabréfa í bönkum, sem voru farnir að leyfa sér smábjartsýni, eru þungir á brún.
Tuttugu og sex sóttu um forstjórastöðu nýrrar stofnunar
Tuttugu og sex umsóknir bárust um starf forstjóra nýrrar Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Félags- og tryggingamálaráðherra skipar stofnuninni forstjóra til fimm ára í senn.
Hótelkóngur kaupir bandarískt tákn
Ítalskur hótelmógúll hefur keypt hina frægu og táknrænu Flatiron-byggingu á Fifth Avenue á Manhattan. Hann fyrirhugar að breyta byggingunni í hótel. New York-búar eru í áfalli enda stutt síðan arabískir olíusjeikar keyptu Chrysler- og GM skýjakljúfana. Flatiron var fyrsti skýjaklúfur NY.
Um 16 þúsund teknir fyrir hraðakstur með myndavélum
Alls voru skráð hraðakstursbrot um 39 þúsund á landinu á síðasta ári. Þar af voru 16 þúsund skráð með starfrænum hraðamyndamyndavélum. Þetta kemur fram í frétt á vef Lögreglunnar.
Það er heldur óskemmtileg reynsla að verða bensínlaus á miðri leið þegar farið er á milli staða. Slík tilfelli koma á borð lögreglu af og til en reynt er að greiða úr vanda fólks eins og mögulegt er. Eitt nýjasta dæmið af þessu tagi átti sér stað í Ártúnsbrekkunni á háannatíma.
Misráðið að snúa ákvörðun um hvalveiðar
Guðjón Arnar Kristjánsson segir það misráðið, ætli ný ríkisstjórn að snúa við ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að leyfa veiðar á langreyði. Þetta kom fram í viðtali á Morgunvakt Rásar 1 í morgun.
Mistök að lækka ekki stýrivexti
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) kom í veg fyrir að Seðlabanki Íslands tæki fyrsta skrefið í þá átt að lækka stýrivexti. Fá eða engin efnisleg rök virðast vera fyrir andstöðu AGS - þvert á móti bendir allt til þess að lífsnauðsynlegt sé að lækka vexti hratt.
Lífvörður Stein Bagger skotinn
Brian Sandberg, lífvörður fjársvikamannsins Stein Baggers, var skotinn tvisvar í bakið á kaffihúsi í miðbæ Kaupmannahafnar í hádeginu í dag.
Vaxtaákvarðanir voru teknar víðar en á Íslandi í dag, en í Nýja Sjálandi voru vextir lækkaðir um 1,5 prósentustig í morgun og eru nú komnir niður í 3,5%. Nýja Sjáland taldist fyrir skömmu vera ásamt Íslandi og fleiri ríkjum í hópi hávaxtaríkja en háir vextir heyra nú sögunni til þar í landi líkt og víðast hvar annars staðar að Íslandi undanskildu, segir Greining Glitnis.
Atvinnuleysi í Zimbabwe er 94%
Atvinnuleysi í Zimbabwe er hvorki meira né minna en 94%. Af 12 milljónum íbúa eru aðeins 480 þúsund manns með atvinnu. Ofsaverðbólga lamar nánast allt athafnalíf í hinu hrjáða ríki Roberts Mugabe forseta.
Stýrivextir gætu orðið 5% innan árs
Seðlabankinn telur að stýrivextir gætu verið komnir niður í 5% í lok þessa árs eða í byrjun þess næsta, gangi verðbólguspá eftir og gengi krónunnar nái að styrkjast með þeim hætti sem vonast er til. Þetta kemur fram í Peningamálum bankans, en að þessu sinni birtir bankinn ekki vaxtaspá.
Aukning atvinnuleysis í Noregi
Í janúar misstu 5500 manns vinnuna í Noregi. Atvinnuleysisaukningin er talsvert meiri en menn bjuggust við þar í landi en gert hafði verið ráð fyrir að atvinnulausum fjölgaði um 4000. Talið er atvinnulausum haldi áfram að fjölga á næstu misserum og viðsnúningur verði ekki fyrr en 2010.
AGS vildi ekki lækkun stýrivaxta
Seðlabankinn vildi hefja lækkunarferli stýrivaxta en AGS lagðist gegn því. Vegna þessa ákvað bankastjórn Seðlabankans að halda vöxtum óbreyttum í morgun eða 18%.
Sænski síma- og tæknirisinn Ericsson verður að grípa til fjöldauppsagna og annarra sparnaðarráðstafana vegna sölusamdráttar og verri afkomu. Í dag var tilkynnt um uppsagnir eitt þúsund starfsmanna í Svíþjóð en alls verður fimm þúsund manns sagt upp víða um heim.
1553 peningaþvættismál – aðeins einn dómur
Efnahagsbrotadeildum gengur víðar illa en hér á landi að koma málum sínum í gegnum dómskerfið. Á liðnu ári komu voru 1553 peningaþvættismál tekin til rannsóknar í Danmörku - en aðeins einu lauk með dómi.
Vinstri grænir nálgast Evrópusambandið
Jóhanna Sigurðardóttir, verðandi forsætisráðherra, sagði í gær, að Samfylkingin væri að færa þjóðina nær aðild að Evrópusambandinu í viðræðum við vinstri-græna en í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.
Reykjavíkurborg fjölgar matjurtagörðum í sumar
Reykjavíkurborg mun fjölga matjurtagörðum í sumar. Þetta er bæði gert vegna efnahagsástandsins og almenns áhuga á að rækta grænmeti með fjölskyldunni.
Nú hefur verið ákveðið að bjóða út að nýju verk hjá Vegagerðinni en útboð hafa legið niðri frá því í haust meðan unnið var að endurgerð fjárlaga vegna efnhaghrunsins.
Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 7,1%
Vísitala framleiðsluverðs í desember 2008 lækkaði um 7,1% frá nóvember. Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 2,1% (0,7%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 11,7% (-7,8%).
Fjöldauppsagnir hjá Starbucks og lokun kaffihúsa
Starbucks kaffihúsaskeðjan finnur fyrir kreppunni. Þúsundum starfsmanna verður því sagt upp störfum og hundruðum kaffihúsa lokað. Forstjórinn lækkar verulega í launum vegna verri horfa í rekstrinum.
Atvinnulausum í Þýskalandi fjölgar hraðar en vænst var
Atvinnulausum í Þýskalandi fjölgaði um 56 þúsund í janúar en í desember bættust 33 þúsund manns í hóp atvinnulausra þar í landi. Þetta er meiri aukning en búist hafði verið við.
Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýrivöxtum bankans nú. Þeir verða áfram 18%.
Fatakeðjan H&M skilaði hagnaði á síðasta fjórðungi liðins árs sem nam 7,1 milljarði sænskra króna eða sem svarar 105 milljörðum íslenskra króna. Þetta er 5,5% betri afkoma en búist hafði verið við. Sænska keðjan áformar að opna 225 nýjar verslanir á árinu.
SAS fær 18,8 milljarða tilboð í Spanair
SAS hefur fengið 18,8 milljarða króna tilboð í lágfargjaldaflugfélagið Spanair. Bæði félögin hafa átt í erfiðleikum. Frestur til tilboða í spænska flugfélagið rennur út á laugardaginn. Áður var talið að SAS fengi aðeins 1 evru fyrir Spanair.
Ögmundur tekur sér frí frá BSRB
Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður vinstri grænna, hefur ákveðið að taka tímabundið frí sem formaður BSRB, komi til þess að hann setjist í ráðherrastól í ríkisstjórn vinstri grænna og Samfylkingar.
Um 6000 nýta sér veflausnir fyrir fjármál heimilanna hjá Nýja Glitni
Mikill áhugi hefur verið á þeim veflausnum sem Nýi Glitnir kynnti í byrjun janúar til þess að auðvelda heimilum að setja sér markmið í fjármálum. Í frétt frá bankanum kemur fram að um sex þúsund mann hafi nýtt sér þessa þjónustu sem bankinn býður almenningi og viðskiptavinum sínum á netinu.
Seinkun á endurfjármögnun bankanna - stofnun nýs banka í athugun
Allt bendir til þess að ekki náist að endurfjármagna nýju ríkisbankanna, sem voru settir á fót á grunni gömlu bankanna sem komust í þrot í október. Á sama tíma eru aðilar í atvinnulífinu að kanna grundvöll þess að setja á fót nýja banka.
Ný tækifæri í heilbrigðisþjónustu á Íslandi?
Ráðstefna um tækifæri í heilbrigðisþjónustu á Íslandi verður haldin á vegum Heilsulausna í fundarsal Læknafélags Íslands í Hlíðarsmára 8 í Kópavogi laugardaginn 31. janúar og hefst kl. 09:00.
Umboðsmaður barna og talsmaður neytenda hafa gefið út ítarlegar leiðbeiningarreglur um aukna neytendavernd barna þar sem leitast er við að finna gott jafnvægi varðandi mörk við markaðssókn fyrirtækja gagnvart börnum og unglingum.
Orri Hlöðversson í Suðurkjördæmi með Samúel Erni
Smáfuglarnir í Framsókn eru mjög uppteknir við að raða á framboðslista, enda gera þeir sér vonir um mikla fjölgun þingmanna. Nú hefur Samúel Örn Erlingsson, sagst vera tilbúinn í Suðurkjördæmið en Orri Hlöðversson, framkvæmdastjóri Frumherja, er einnig orðaður við framboð.