amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:19
 

Miðvikudagurinn 28. janúar 2009

«
27. janúar

28. janúar 2009
»
29. janúar
Fréttir

Sex handteknir í mótmælum vegna NATO-fundar

Lög­reglan neyddist til að nota piparúða og handtaka sex mótmælendur við Hilton Nordica í kvöld. Nokkrir tugir mótmælenda voru þar saman komnir vegna fundar NATO.

Hluta­bréf hækka og Obama undirbýr stofnun vonda bankans

Hluta­bréf í Bandaríkjunum hækkuðu töluvert í dag, og þar með hélt hækkunarferli síðustu daga á alþjóðlegum mörkuðum áfram. Barack Obama, forseti hefur verið að undirbúa stofnun „vonda bankans“ sem ætlað er að taka yfir eitraðar eignir banka.

Finnst sem ég hafi elst um mörg ár á síðustu mánuðum

Þegar ég lít til baka finnst mér sem ég hafi á síðustu mánuðum elst um mörg ár. Bankahrunið og afleiðingar þess tóku af mér mikinn toll enda voru þau verkefni sem leysa þurfti úr algjörlega risavaxin, segir Björgvin G. Sigurðsson, fráfarandi viðskipta­ráðherra í viðtali við Sigurð Boga Sævarsson í Sunnlenska fréttablaðinu.

Metár í kjötsölu

Árið 2008 var metár í kjötsölu, bæði í heildarmagni og sölu á íbúa. Alls seldust 25.833 tonn af kjöti eða 81,5 kg á íbúa, 2 kg meiri en árið 2007. Sala á kindakjöti var 7.481 tonn, 7,8% meiri en 2007 og sú mesta síðan 1993.

FME sakar Kastjós um missagnir og rakalausar ásakanir

Fjármála­eftirlitið (FME) er ekki sátt við umfjöllun Kastljóss Sjónvarpsins í gærkvöld. Í tilkynningu þess segir að þar hafi komið fram alvarlegar missagnir um starfsemi FME og rakalausar ásakanir og dylgjur.

Seðlabankinn segir gjaldeyris­frétt Fréttablaðsins ranga

Seðlabankinn segir fullyrðingar í Fréttablaðinu um gjaldeyris­forða bankans rangar. Fram kemur í tilkynningu bankans að gjaldeyris­forðinn hafi í árslok numið 429,4 milljörðum króna.

Lækkun launa embættismanna

Laun forstöðumanna ríkis­stofnana sem heyra undir Kjararáð lækka um fimm til fimmtán prósent í næsta mánuði, að því er fram kom í frétt Ríkisútvarpsins.

Óttast einokun á sölu orku til rafbíla í Danmörku

Ole Vestergaard, for­stjóri Natur-Energi A/S í Danmörku, ætlar sér að koma í veg fyrir að Dong Energy, sem er í danskri ríkiseigu, nái einokun á sölu rafmagns á rafbíla þar í landi.

Olíubirgðir aukast mjög í Bandaríkjunum

Olíubirgðir í Bandaríkjunum jukust um 6,3 milljónir tunna í síðustu viku sem er miklu meira en sér­fræðingar höfðu búist við. Birgðaaukning hefur verið samfelld vikum saman. Olíuverð féll lítillega þegar nýjar tölur um birgðastöðu voru birtar.

Uppskurður hjá SPRON

Verulegar breytingar hafa verið gerðar á skipuriti SPRON og verða útibú sameinuð, stöðugildum fækkað og laun lækkuð. Í tilkynningu frá SPRON segir að markmiðið sé að auka hagræði og mæta þeim tekjusamdrætti sem fyrirsjáanlegur er.

FME staðfestir nýjar reglur Landsvaka

Fjármála­eftirlitið hefur nú staðfest nýjar reglur Landsvaka fyrir Fyrirtækja­bréf Landsbankans. Þessar reglur miða að því að tryggja jafnræði allra hlut­deildarskírteinishafa þannig að allir fái greitt hlutfallslega úr sjóðnum í samræmi við eign sína

Seðlabankinn segir rangt að gjaldeyris­forðinn sé ofmetinn

Seðlabankinn segir það rangt, sem kemur fram í Fréttablaðinu í dag, að gjaldeyris­forðinn sé stórlega ofmetinn. Í lok síðasta árs nam gjaldeyris­forðinn 429,4 milljörðum króna segir í yfirlýsingu bankans.

Samið við SÁÁ um göngu­deildarþjónustu til 2012

Sjúkratryggingar Íslands og SÁÁ hafa gert samning um göngu­deildarþjónustu fyrir þá sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða. Samningurinn gildir til áramótanna 2011-2012.

Vill breyta hlutverki eftirlits- og forvarnar­stofnana

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðis­ráðherra hefur sent út til umsagnar frumvarpsdrög til umsagnar þar sem gert er ráð fyrir að breyta í grundvallar­atriðum hlutverki og skipulagi eftirlits- og forvarna­stofnana sem ríkið rekur.

Bónus­greiðslur á Wall Street lækka um 44%

Bónus­greiðslur fjármálafyrirtækja á Wall Street lækkuðu um 44% á síðasta ári samkvæmt yfirliti sem endurskoðunar- og eftirlitsskrifstofa New York ríkis hefur tekið saman. Þrátt fyrir lækkunina er bónus­greiðslur síðasta árs þær sjöttu hæstu í sögunni.

Boeing mun segja upp 10 þúsund manns

Efnahagskreppan í heiminum hefur komið hart niður á bandarísku Boeing flugvélaverksmiðjunum. Mjög hefur dregið úr pöntunum á nýjum flugvélum. Til að bregðast við þessu ætlar félagið að segja upp 10 þúsund starfsmönnum.

Lyklaborð fyrir byrjendur

Nýtt lyklaborð, þar sem takkarnir raðast í stafrófsröð, hefur verið kynnt til sögunnar. Lyklaborðið er ætlað fyrir byrjendur í tölvunotkun en allir sem kunna stafrófið eru fljótir að læra hvar hver stafur er.

Útvegsmenn á Vestfjörðum fagna hvalveiðum

Útgerðarmenn á Vestfjörðum hafa lýst yfir stuðningi við ákvörun sjávar­útvegs­ráðherra um að heimila hvalveiðar við strendur Íslands. Stuðningur eykst nú hröðum skrefum við ákvörðun ráðherrans þrátt fyrir að andstæðingar hvalveiða hafi mótmælt ákvörðuninni.

Sigríður Friðjóns­dóttir skipuð vararíkis­saksóknari

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumála­ráðherra, skipaði í dag Sigríði Friðjónsdóttur, settan vararíkis­saksóknara, í embætti vararíkis­saksóknara frá og með 1. febrúar 2009.

Styðja hvalveiðar í atvinnuskyni heilshugar

Útvegsmanna­félag Snæfellsness styður heilshugar þá ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, sjávar­útvegs- og landbúnaðar­ráðherra, að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni í sumar.

Segir kynjakvóta katastrófu

Ef ég væri kona myndi kasta upp blóði af hneykslun ef ég væri meðhöndlaður eins og maur með drepsótt, segir danski athafnamaðurinn Matrin Thorborg sem lítur á kynjakvóta sem mismunun gagnvart konum. Hann varar við því sem Vinstri grænir vilja lögfesta hér, að því er fram kemur í viðræðum um myndun nýrrar ríkis­stjórnar.

Hvalveiðum fagnað á Austfjörðum

Ákvörðun sjávar­útvegs­ráðherra um að gefa út hvalveiðikvóta er fangað af stjórn Útvegsmanna­félags Austfjarða. Bætast Austfirðingar í hóp þeirra sem fagnað hafa ákvörðun ráðherrans. Andstæðingar hvalveiða hafa fordæmt ákvörðunina og hvatt til þess að hún verði afturkölluð.

Mikið magn e-taflna og kókaíns haldlagt á Akureyri

Síðasta mánudag handtók lög­reglan á Akureyri tvo menn á þrítugsaldri grunaða um fíkniefnamisferli og hafði annar þeirra í fórum sínum 5 grömm af kókaíni. Lög­reglan hafði hinn manninn grunaðan um að hafa stundað fíkniefnasölu á Akureyri

Í vinnuna á einni rafhleðslu nýs Opel Ampera

Drægi nýs Opels Ampera á rafgeymum einum er um 60 kílómetrar. Það dugar meðal Þjóðverja til að komast í vinnuna og heim. Tvinnbíllin er Evrópu­útgáfa af Chevrolet Volt, helstu von GM til framtíðar. Lækki á rafgeymum tekur bensín- eða dísilvél við.

Hluta­bréf banka rjúka upp

Hluta­bréf hafa hækkað töluvert í verði á helstu mörkuðum í Evrópu það sem af er dags. Hluta­bréf flestra stærstu bankanna eru á fljúgandi ferð. Helstu hluta­bréfavísitölur hækkuðu í Asíu, en fjárfestar eru varkárir.

Íslenskt hugvit nýtt til að kenna norskum rútubíl­stjórum að keyra

Eitt stærsta fólksflutninga­fyrirtæki Noregs innleiðir íslenskan hugbúnað til að draga úr eldsneytiseyðslu. Fyrirtækið nýtir íslenska flotastýringarhugbúnaðinn SAGAsystem til að meta aksturslag bíl­stjóra sinna, þ.e. hvort þeir gefi óhóflega inn eða bremsi of harkalega.

Soros veðjar ekki gegn Sterlingspundinu

George Soros, einn þekktasti kaupsýslumaður heims, segist ekki veðja lengur gegn Sterlingspundinu eftir að gengi þess komst niður í 1,40 dollara. Hann segist hvorki vera bjartsýnn eða svartsýnn á gengi pundsins, það muni halda áfram að sveiflast.

Yfir 50 milljónir manna gætu misst vinnuna í ár

Allt að 51 milljón manna á á hættu að missa vinnuna í ár í kjölfar kreppunnar í heiminum, að því er fram kemur í skýrslu Alþjóða­vinnumála­stofnunarinnar, ILO.

Misjöfn viðbrögð við hvalveiðiheimildinni

Ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar sjávar­útvegs­ráðherra um heimild til hvalveiða veldur misjöfnum viðbrögðum. LÍÚ og samtök sjómanna hafa fagnað henni en Félag fyrirtækja í hvalaskoðun og fulltrúar Samfylkingar og VG lýsa andúð sinni á ákvörðun ráðherra

Líkur á nýrri ríkis­stjórn á föstudag

Viðræður um myndun ríkis­stjórnar Samfylkingar­innar og Vinstri grænna ganga vel og er reiknað með að þeim ljúki á morgun og að stjórnin verði mynduð á föstudaginn, að því er Ríkisútvarpið greinir frá. Forsætis­ráðherraefnið, Jóhanna Sigurðar­dóttir, stýrir viðræðunum.

Stefnir á 1. sætið í Norðvestur­kjördæmi

Guðmundur Steingrímsson hefur ákveðið að sækjast eftir 1. sæti á lista Framsóknar­flokksins í Norðvestur­kjördæmi í komandi alþingis­kosningum. Guðmundur gekk nýverið í flokkinn eftir vist og varaþingmennsku í Samfylkingunni en bæði faðir hans og afi voru formenn Framsóknar­flokksins.

Fitch: Fráhvarf frá AGS hefði hrikalegar afleiðingar

Að mati Fitch Ratings mun hollusta nýrra stjórnvalda á Íslandi við aðgerða­áætlun Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins ráða mestu um framtíð lánshæfismats ríkis­sjóðs í bókum mats­fyrirtækisins næsta kastið, segir Greining Glitnis.

Atvinnulausir nær þrettán þúsund

Atvinnulausum heldur áfram að fjölga á nýju ári og á vef Vinnumála­stofnunnar eru nú 12.905 skráðir atvinnulausir. Í lok síðasta árs voru 8.982 skráðir án atvinnu og hefur þeim því fjölgað um 3.923 í þessum mánuði.

FIH segir upp nær 100 manns og leggur verðbréfa­deildina niður

Allt að 100 starfsmönnum FIH Erhvervsbank í Danmörku verður sagt upp störfum nú um mánaðamótin. FIH er í eigu íslenska ríkisins en það tók veð í honum gegn stórláni til Kaupþings rétt fyrir fall íslenska bankans í haust.

Vinstri grænir vilja kynjakvóta, kynjafjárlög og kynjaþjóðhagsreikninga

Í vinnuskjali sem vinstri grænir vinna eftir við myndun nýrrar minnihluta­stjórnar með Samfylkingunni er lögð áhersla á aðgerðir á sviði kvenfrelsis og jafnréttis. Þannig vilja vinstri grænir að lögfestir verði kynjakvóta og komið frá á kynjafjárlögum og kynjaþjóðhagsreikningum (e. gender budgeting).

Ráðinn umboðsmaður viðskiptamanna Landsbankans

Eggert Á. Sverrisson hefur verið ráðinn í starf umboðsmanns viðskiptamanna Landsbankans. Hann hefur störf í bankanum um næstu mánaðamót.

Norðmenn auka ríkisstyrki til sjávar­útvegs

Norsk stjórnvöld hafa ákveðið að stórauka framlög ríkisins til lána og ábyrgða í gegnum norska nýsköpunar­sjóðinn, Innovation Norge. þessar aðgerðir eru liður í áætlun til þess að styrkja stöðu norskra sjávar­útvegs- og fiskeldisfyrirtækja og ábyrgjast greiðslur á afurðum þeirra á erlendum mörkuðum.

Þjóðnýting fyrsta bankans í Þýskalandi íhuguð

Fyrsta þjóðnýting þýsks banka frá árinu 1931 er nú til athugunar hjá þýskum stjórnvöldum en þar er um að ræða bankann Hypo Real Estate Holding AG. Bankinn hefur verið umsvifamikill á þýskum fasteigna­markaði.

Verdens Gang: Án teppis með Icelandair til Bandaríkjanna

Neyðist þú til að taka með þér eigin kodda og teppi ætlir þú í vesturátt með Icelandair? Svo er spurt í norska blaðinu Verdens Gang (VG). Vakin er athygli á því að nú þurfi farþegar að greiða fyrir teppi og kodda sem áður hafi fengist endurgjaldslaust á leiðum félagsins.

Nóbelsverðlauna­hafi segir AGS-lán grafa undan efnahagslífi

Joseph Stiglitz, nóbelsverðlauna­hafi í hagfræði, segir að lán Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins (AGS) grafi undan hagkerfum landa og að sjóðurinn sé að gera sömu mistök og 1997 þegar barist var í fjármálakreppu í Asíu.

Kreppan hefur áhrif á Super Bowl

Þegar Pittsburgh Steelers og Arizona Cardinals mætast í úrslitaleik bandaríska ruðningsfótboltans, Super Bowl, aðfararnótt mánudags verður það í skugga kreppunnar. Veislum hefur verið aflýst, auglýsingum fækkar og í fyrsta sinn í sögunni hefur orðið að lækka miðaverð til þess að fylla völlinn.

Verðbólga komin niður í 7,1%

Verðbólga er komin niður í 7,1% sé miðað við breytingu á vísitölu neysluverðs í janúar, umreiknað til árshækkunar. Vísitalan hækkaði um 0,57% frá desember til janúar samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Toyota innkallar Yaris víða um heim

Toyota innkallar 1,35 milljónir bíla af gerðunum Yaris, Belta og Ractis, árgerðir 2005-2008 vegna galla í öryggisbeltum og hugsanlega í pústkerfi. Yaris er vinsæll smábíll víða um lönd, meðal annars hér á landi.

Kyrrsetning eigna auðmanna ekki samþykkt

Hugmyndir VG um að sett verði lög um kyrrsetningu eigna hefur mætt mikilli andstöðu og þá ekki síst meðal lögmanna. Samfylkingin hefur ekki fallist á slíka lagasetningu í viðræðum við vinstri græna um ríkis­stjórn.

Straumur-Burðarás stefnir að flutningi til London

Willian Fall, for­stjóri Straums-Burðarás fjárfestingarbanka, staðfestir í samtali við Financial Times að bankinn hafi áhuga á að flytja höfuðstöðvar sínar frá Íslandi og til London. Auðveldasta leiðin til þess er öfug yfirtaka í gegnum bresk fyrirtæki.

Hálka á Sandskeiði

Það er hálka er á Sandskeiði og hálka og éljagangur á Hellisheiði og í Þrengslum en hálka eða snjóþekja er um mestallt Suðurland. Þæfingsfærð er ofan Galtalækjar.

Fuglahvísl

Sigmundur Ernir á leið í Framsókn?

Smáfuglarnir í Framsókn eru kátir þessa dagana, enda benda kannanir til að fylgi flokksins hafi stóraukist með nýjum formanni. En nú er baráttan hafin við skipun á framboðslista. Smáfuglarnir hvísla um að sótt sé á Sigmund Erni Rúnarsson um að gefa kost á sér.

Egill Helgason í stjórnmál?

Rætt er um það innan Samfylkingar­innar að fá Egil Helgason í stjórnmál fyrir flokkinn. Er hann sagður hafa hreinan skjöld, þekkja stjórnmál betur en flestir og hafa næmt pólitískt nef auk þess að vera einn vinsælasti fjölmiðla­maður landsins.

Fyrirgefðu, Össur!

Smáfuglunum varð á í messunni, þegar þeir veltu fyrir sér súper-ráðherranum Össuri. Þeir gleymdu, að hann yrði starfandi utanríkis­ráðherra í veikindaleyfi Ingibjargar Sólrúnar.

Hrollur í menntaelítunni

Smáfuglarnir verða var við það í snjódrífunni þennan morgun, að það fer hrollur um menntaelítu Samfylkingar og vinstri-grænna. Ekki þó vegna veðursins heldur vegna þess, hve það stangast á við allt tal hennar um margra ára skeið, að fyrrverandi flugfreyja með eitt verslunarskóla­próf verði forsætis­ráðherra, þegar flokkar elítunnar taka saman höndum í fyrsta sinn til að stjórna landinu.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX