amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:38
 

Þriðjudagurinn 27. janúar 2009

«
26. janúar

27. janúar 2009
»
28. janúar
Fréttir

SUS harmar tilgangslaus stjórnar­slit

Samband ungra sjálfstæðis­manna harmar þá ömurlegu atburðarás sem orðið hefur til þess að ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokks og Samfylkingar mun fara frá völdum. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn SUS samþykkti á fundi sínum í kvöld.

Hagsmuna­samtök heimilanna vilja samstarf við nýja ríkis­stjórn

Hagsmuna­samtök heimilanna ítreka ósk sín um samstarf við stjórnvöld nú þegar ný ríkis­stjórn er í burðarliðnum. Í tilkynningu frá samtökunum segir að samtökin vænti þess að ný ríkis­stjórn beri hagsmuni heimilanna fyrir brjósti og taki strax á vandanum.

Erfitt fyrir Ögmund Jónasson að setjast í ráðherrastól

Ögmundur Jónasson, formaður þing­flokks Vinstri grænna, hefur verið orðaður við stól heilbrigðis­ráðherra í nýrri ríkis­stjórn með Samfylkingu. Slíkt getur hins vegar orðið erfitt fyrir Ögmund sem er formaður BSRB.

Áfram unnið eftir áætlun Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir að áfram verði unnið eftir áætlun Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins þótt ný ríkis­stjórn Samfylkingar og VG taki við. Rætt verði við fulltrúa sjóðsins í næsta mánuði, en kappsmál sé að lækka vexti.

VG vill kyrrsetningu eigna auðmanna

Vinstri grænir leggja áherslu á það í viðræðum um ríkis­stjórn með Samfylkingu að heimild verði sett í lög um að kyrrsetja eignir fyrrverandi eigenda og stjórnenda gömlu bankanna sem fór í þrot í október. Álfheiður Inga­dóttir lagði fram frumvarp þess efnis í nóvember.

Ráðherra heimilar hvalveiðar til 2013

Einar K. Guðfinnsson sjávar­útvegs- og landbúnaðar­ráðherra hefur í dag gefið út reglugerð um veiðar á hrefnu og langreyði á árunum 2009, 2010, 2011, 2012 og 2013. Lands­samband íslenskra útvegs­manna fagnar ákvörðun ráðherrans um hvalveiðiheimildirnar.

SA: Heimilin þola ekki skattahækkanir

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda­stjóri Samtaka atvinnulífsins, kallar eftir stefnu þeirra sem hyggjast mynda nýja ríkis­stjórn og varar eindregið við því að hækka tekjuskatt einstaklinga meira en orðið er.

Barbabrellur í peningamálum duga ekki

Víglundur Þorsteinsson, stjórnar­formaður BM Vallár og fyrrverandi formaður Félags íslenskra iðnrekenda, segir að enginn trygging sé fyrir því að „stór gjaldmiðill “ færi með sér stöðugleika í efnahagsmálum. Hann segir það „Barbabrellu“ að reyna að leysa vandann með evru.

Einar og Þorvaldur hlutu Íslensku bókmenntaverðlaunin

Einar Kárason og Þorvaldur Kristinsson hlutu í dag Íslensku bókmenntaverðlaunin. Einar hlaut þau fyrir skáldsögu sína Ofsa en Þorvaldur fyrir ævisögu Lárusar Pálssonar leikara.

Forsetarnir vilja bætt samskipti Bandaríkjanna og Rússlands

Barack Obama Bandaríkja­forseti og Dmitrij Medvedev Rússlands­forseti eru sammála um að bæta samskipti stórþjóðanna. Þeir töluðu saman í gærkvöld. Fyrsti fundur þeirra verður í London í apríl, á G20 fundinum.

Barclays lyftir pundinu

Breska pundið hjarnaði við í dag eftir sjö daga samfellda lækkun. Svo er að sjá sem fjárfestar séu ekki alveg eins áhyggjufullir vegna fjárþarfar bankanna eftir að stórbankinn Barclays tilkynnti að hann kæmist af án aðstoðar hins opinbera.

FT: Vinstri stjórn gleður varla alþjóðlega fjárfesta

Financial Times segir að þó almenningur á Íslandi muni fagna myndun vinstri stjórnar, sé ólíklegt að alþjóðlegir fjárfestar muni fagna. Blaðið bendir á að Samfylkingin og vinstri grænir séu ekki samstíga í Evrópu­málum né í afstöðunni til efnahagsaðgerða.

Sýslumaðurinn á Blönduósi innheimtir fyrir Lands­spítalann

Land­spítalinn og sýslumaðurinn á Blönduósi hafa ritað undir viljayfirlýsingu sem felur í sér að embættið tæki að sér að innheimta viðskiptakröfur spítalans.

Grunur um íkveikju á Klapparstíg - lýst eftir vitnum

Grunur leikur á að kveikt hafi verið í húsinu á Klapparstíg 17 í Reykjavík í þar síðustu viku. Um er að ræða íbúðarhús en eldur kom upp í húsinu aðfaranótt föstudagsins 16. janúar.

Nýr framkvæmda­stjóri eignastýringarsviðs Kaupþings

Margrét Sveins­dóttir hefur verið ráðin framkvæmda­stjóri eignastýringarsviðs Nýja Kaupþings banka. Margrét útskrifaðist með cand. oecon gráðu frá Háskóla Íslands árið 1986 og lauk MBA námi frá Babson College í Boston árið 1990.

Formlegar viðræður Samfylkingar og VG hafnar

Formlegar viðræður Samfylkingar­innar og vinstri grænna eru hafnar, en forseti Íslands veitti Ingibjörgu Sólrúnu Gísla­dóttir og Steingrími J. Sigfússyni formlegt umboð til myndunar nýrrar ríkis­stjórnar í morgun. Fundurinn hófst nú um kl. 14.00.

Fjöldi atvinnulausra eykst hratt

Fjöldi atvinnulausra hefur vaxið með miklum hraða undanfarna mánuði í kjölfar þrenginga í efnahagsmálum og breyttum starfs­reglum hjá Vinnumála­stofnun. Fjöldi atvinnulausra mælist nú 12.793 og er það mesti fjöldi sem mælst hefur sé horft aftur til ársins 1980. Margt veldur vexti í atvinnuleysi.

Tólf stútar teknir um helgina

Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgar­svæðinu um helgina. Tveir voru stöðvaðir á föstudagskvöld, sjö á laugardag og þrír á sunnudag.

Tvær konur handteknar vegna innbrota í hesthús

Lög­reglan hefur haldlagt yfir þrjátíu hnakka sem stolið var í fjölda innbrota í hesthús á höfuðborgar­svæðinu fyrr í mánuðinum. Í gær voru tvær konur handteknar í þágu rannsóknarinnar og hafa þær báðar játað sök.

Norskir þingmenn í heimsókn hjá LÍÚ

Um 20 manna hópur þingmanna norska Stórþingsins sótti höfuðstöðvar LÍÚ heim í morgun. Heimsóknin var hluti af dagskrá þingmannanna í ferð þeirra til Íslands.

Spáir 18,7% verðbólgu

Vísitala neysluverðs fyrir janúar birtist á morgun. Greining Glitnis spáir því að verðlag hafi hækkað um 0,7% á milli mánaða. Reynist það rétt er verðbólga undanfarinna 12 mánaða 18,7%.

Forsetinn fól Ingibjörgu Sólrúnu að stýra viðræðunum

Forseti Íslands fól Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingar­innar, að stýra þeim stjórnar­myndunarviðræðum sem nú eru að hefjast við vinstri græna með stuðningi Framsóknar­flokksins og Frjálslynda flokksins.

Ingibjörgu og Steingrími falin myndun ríkis­stjórnar

Forseti Íslands hefur falið Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingar­innar, og Steingrími J. Sigfússonar, formanni Vinstri grænna að ræða saman um myndun minnihluta­stjórnar. Gert er ráð fyrir Jóhanna Sigurðar­dóttir verði forsætis­ráðherra hennar.

Vonar að ekki verði þörf á fleiri fundum gegn ofbeldi

Gunnlaugur Jónsson, einn skipuleggjenda mótmælafundar í gær sem haldinn var til að mótmæla ofbeldi í mótmælum segist vona að ekki verði þörf á öðrum fundi. Þá segir hann hugmyndina hafa kviknað þegar honum og fleirum ofbauð umfjöllun fjölmiðla síðustu daga.

„Krónan mun verða sterk“

Krónan mun verða sterk og mjög álitlegur fjárfestingarkostur í framtíðinni. Við erum útflutningsþjóð og eigum gnótt af auðlindum. Ef auðlindamælikvarði verður lagður á krónuna er framtíð hennar björt, að mati Ágústs Þórhallssonar lög­fræðings.

ASÍ: Enn miklar hækkanir í matvöru­verslunum

Vörukarfa ASÍ hélt áfram að hækka mikið á milli verðmælinga verðlags­eftirlitsins í lok október og nýjustu mælingarinnar sem gerð var í verslunum um miðjan janúar, segir í tilkynningu Alþýðu­sambands Íslands.

Danir stefna á rafbíla og „rafstöðvar“ um land allt

Danir sjá fram á að geta skipt út bensín- og dísilbílum sínum fyrir rafbíla eftir árið 2011. Ráðist verður í gerð „rafstöðva“ um land allt til áfyllingar fyrir þessa gerð bíla sem leysa eiga bensín- og dísilbíla af hólmi.

Ingibjörg Sólrún og Steingrímur boðuð á fund forsetans

Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir, formaður Samfylkingar­innar, og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hafa verið boðuð á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands á Bessastöðum klukkan 11. Boðunin er væntanlega aðdragandi nýrrar minnihluta­stjórnar flokka þeirra.

Þýska ríkis­stjórnin samþykkir metaðstoð

Þýska ríkis­stjórnin hefur samþykkt að leggja til 50 milljarða evra í neyðaraðstoð vegna ástandsins í efnahagsamálum landsins, eða sem svarar nær 8000 milljörðum íslenskra króna. Þetta er hærri upphæð en áður hefur verið lögð til slíkra hluta í landinu.

Ágúst Ólafur hættir

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingar­innar mun ekki sækjast eftir endurkjöri í þingkosningunum í vor. Hann lætur af embætti varaformanns flokksins á næsta landsfundi hans.

Kuldi og hvirfilbylur hækka olíuverð

Kuldi í Bandaríkjunum og væntanlegur hvirfilbylur í Ástralíu hækkuðu olíuverð um 1% í morgun. Þá er búist við enn frekari samdrætti í framleiðslu OPEC-ríkjanna.

Jenið lækkar og hluta­bréf hækka

Gengi japanska jensins lækkaði gagnvart dollar og evru en eftirspurn eftir jenið hefur minnkað samhlið því sem hluta­bréf hafa hækkað. MSCI Asíu vísitalan hækkaði um 3,3% þ

Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent í dag

Íslensku bókmenntaverðlaunin verða afhent í dag. Fimm bækur eru til­nefndar í flokki fagurbókmennta og fimm í flokki fræðibóka og bóka almenns efnis. Athöfnin hefst klukkan 16 á Bessastöðum en forseti Íslands afhendir verðlaunin.

Minnihluta­stjórn Samfylkingar og VG í burðarliðnum

Minnihluta­stjórn Samfylkingar­innar og Vinstri grænna með stuðningi Framsóknar­flokksins liggur í loftinu. Búist er við að forseti Íslands veiti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur umboð til myndunar stjórnar en Jóhanna Sigurðar­dóttir verði forsætis­ráðherra.

Fuglahvísl

Súper-ráðherrann, Össur

Eins og smáfuglarnir sögðu á dögunum, boðaði Samfylkingin til funda á dögunum, án þess að Össur Skarphéðinsson, iðnaðar- byggða- ferða-, orku- og olíumála­ráðherra, væri meðal ræðumanna og var meðal annars leitað til sjálfstæðis­manns til að flytja ræðu um byggðamál, einn mála­flokka Össurar.

Ágúst Ólafur var á myndinni

Ágúst Ólafur Ágústsson, fráfarandi alþingis­maður og varaformaður Samfylkingar­innar, var í Kastljósi 26. janúar og varði stjórnar­slit Samfylkingar­innar af svo miklum þunga, að smáfuglunum var brugðið.

Búið að ákveða stjórnar­slit um síðustu helgi samkvæmt yfirlýsingu

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingar­innar, ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri. Samkvæmt yfirlýsingu hans í dag, verður ekki annað sé en að búið hafi verið að ákveða að slíta samstarfinu við Sjálfstæðis­flokkinn um helgina.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX