amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:28
 

Mánudagurinn 26. janúar 2009

«
25. janúar

26. janúar 2009
»
27. janúar
Fréttir

Ákveðnir menn stungu saman nefjum

Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, segir að ákveðnir menn hafi stungið saman nefjum í síðustu viku, en engar formlegar viðræður hafi átt sér stað milli Samfylkingar og vinstri grænna um samstarf í ríkis­stjórn.

Allt bendir til minnihluta­stjórnar Samfylkingar og vinstri grænna

Eftir atburði dagsins er allt sem bendir til þess að minnihluta­stjórn Samfylkingar og vinstri grænna verði mynduð með stuðningi Framsóknar­flokksins. Ekki er hins vegar ljóst hver verður forsætis­ráðherra, en vill Steingrímur J. Sigfússon ekki nálgast málið með þeim hætti.

Ekki varð af sölu verð­bréfamiðlunar Landsbankans í Noregi

Jon H. Nordbrekken, stofnandi Bank2, reyndi að kaupa verð­bréfamiðlun Landsbankans í Noregi rétt fyrir jól en ekki varð af kaupunum. Hann reyndi árið 2005 að kaupa verð­bréfamiðlunina Norse Securitas en Íslandsbanki, síðar Glitnir, varð hlutskarpari.

Obama vill umhverfisvænni bíla

Barack Obama Bandaríkja­forseti hefur tekið skref í þeirri baráttu að Bandaríkjamenn framleiði umhverfisvænni bíla en nú er og verði síður háðir innfluttum orkugjöfum.

Útboðsþingi frestað

Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins sem ráðgert var að halda næstkomandi föstudag hefur verið frestað. Fjármögnun opinberra framkvæmda er ekki lokið og því er ekki hægt að kynna framkvæmdaáætlanir stærstu stofnana.

Vinnumála­stofnun greiðir bætur til sprotafyrirtækja

Nú geta fyrirtæki sem vinna að nýsköpun ráðið starfsmenn af atvinnuleysisskrá og fengið greiddar atvinnuleysisbætur þeirra. Í nóvember höfðu um 50 hátækni- og sprota­fyrirtæki gert tilboð um 230 nýjar stöður yrðu hugmyndir um aðkomu atvinnuleysistrygginga­sjóðs með þessum hætti að veruleika.

Forseti veitir ekki umboð til stjórnar­myndunar í kvöld

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur veitt Geir H. Haarde lausn fyrir sig og sitt ráðuneyti en stjórn hans starfar sem starfs­stjórn. Forsetinn ræðir í kvöld við aðra flokksforingja en mun ekki veita neinum þeirra umboð til stjórnar­myndunar í dag.

Nýi Glitnir auglýsir eftir tilboðum í Árvakur

Árvakur hf., útgáfu­félag Morgunblaðsins, hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Nýja Glitnis banka hf. að annast ráðgjöf og formlegt ferli sem lýtur að öflun hlutafjár fyrir félagið. Bankinn mun á næstu dögum auglýsa eftir tilboðum í nýtt hlutafé Árvakurs.

Tóbaksfjölskylda kaupir hlut í B&O

Dönsk tóbaksfjölskylda, eigandi Færchfonden, hefur keypt 5,1% hlut í hljómtækjaframleiðandanum Bang & Olufsen. Bréf í B&O hafa fallið mjög að undanförnu og er nú innan við tíundi hluti þess sem var þegar FL Group seldi hlut sinn í félaginu.

Fulltrúum Teymis vísað úr stjórn Tals

Samkeppnis­eftirlitið hefur vikið fulltrúum Teymis í stjórn IP-fjárskipta [Tals], en ágreiningur hefur verið meðal hluthafa félagsins eftir að for­stjóra fyrirtækisins var vikið fyrirvaralaust úr starfi. Teymi er eigandi Vodafone síma­fyrirtækisins.

Ofbeldi er þjóðar­skömm

AMX ræddi við fundarmenn á Lækjartorgi í gær um mótmæli og ofbeldi. Viðmælendur fordæmdu hegðun mótmælenda að undanförnu og sögðu frið nauðsynlegan. Grímuklæddir einstaklingar sem höfðu verið með frammíköll og háhreysti á fundinum neituðu að koma í viðtal við fréttamenn.

Hafa áhuga á nýjum sæstreng milli Íslands og Ameríku

Kristján L. Möller samgöngu­ráðherra tók nýlega á móti þremur mönnum frá Bandaríkjunum sem kanna hugsanlega lagningu sæstrengs milli Íslands og Bandaríkjanna. Þeir kynntu ráðherra áform sín en engar ákvarðanir hafa verið teknar.

Verð á áfengi hefur ekki hækkað í takt við verðlag

Verð á áfengi hækkaði um 58% á árunum 1995 til 2008, en á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 91%. Þetta kemur fram í svari Árna M. Mathiesen, fjármála­ráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar.

Fjölmenni á fundi gegn ofbeldisfullum mótmælum

Í gærdag var haldinn fundur á Lækjartorgi gegn ofbeldi þar sem framsögumenn fordæmdu hegðun mótmælenda að undanförnu harðlega. Aðstandendur fundarins eru ánægðir með mætingu og segja hana til merkis um að ekki megi láta blekkjast af háværum og ofbeldisfullum mótmælum fárra.

Lehman-stjórinn seldi frúnni lúxusvilluna á 100 dollara

Richard Fuld, fyrrum for­stjóri hins fallna banka Lehman Brothers, gerði sér lítið fyrir og seldi konu sinni lúxushús þeirra hjóna fyrir 100 dollara. Slotið á Flórída keyptu þau hjónin í mars 2004 fyrir rúmlega 13 milljónir dollara.

Sjálfstæðis­flokkurinn bauð uppstokkun í Seðlabanka og FME

Sjálfstæðis­flokkurinn var tilbúinn til að stokka upp í Seðlabankanum og Fjármála­eftirlitnu og koma fram kerfisbreytingum samkvæmt heimildum AMX. Þetta lá fyrir um áramót og var ítrekað í viðræðum við forystumenn Samfylkingar­innar um helgina.

Okkar bíður að mynda nýja ríkis­stjórn, segir Steingrímur J.

Það er gott að þessu óvissuástandi er lokið, að dauðastríðið sé búið, segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, um fall ríkis­stjórnar­innar. Hann segir tvo möguleika í stöðunni, þjóð­stjórn eða stjórn til vinstri. Fela beri forseta Íslands málið.

Íslenska ríkis­stjórnin fyrsta fórnarlamb kreppunnar

Afsögn íslenska ríkis­stjórnar­innar vekur mikla athygli víða um lönd. Nefnt er sérstaklega að íslenska ríkis­stjórnin sé fyrsta ríkis­stjórnin í heiminum sem fellur beinlínis vegna alþjóðlegu fjármála- og efnahagskreppunnar.

Ingibjörg býður Jóhönnu sem forsætis­ráðherra í nýrri stjórn

Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir býður Jóhönnu Sigurðardóttur fram sem forsætis­ráðherraefni í ríkis­stjórn í samstarfi við aðra en Sjálfstæðis­flokkinn fram að kosningum. Hún spyr hvort aðir séu tilbúnir í þá vegferð með Samfylkingunni.

Ingibjörg Sólrún vildi fá Jóhönnu sem forsætis­ráðherra

Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir vildi að Jóhanna Sigurðar­dóttir, félagsmála­ráðherra yrði forsætis­ráðherra í ríkis­stjórninni fram að kosningum. Þetta staðfesti Jóhanna í samtali við Ríkisútvarpið fyrir skömmu.

Jón hættir í bankaráði Seðlabankans

Jón Sigurðsson, varaformaður bankaráðs Seðlabankans, hefur formlega óskað eftir að láta af starfi varaformanns ráðsins.

Stjórnin fallin: Þessu stjórnar­samstarfi er lokið

Geir H. Haarde, forsætis­ráðherra, sagði rétt í þessu að tími ríkis­stjórnar Sjálfstæðis­flokks og Samfylkingar sé liðinn: „Þessu stjórnar­samstarfi er lokið,“ sagði Geir eftir að hann kom út af þing­flokksfundi.

Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn til bjargar Tyrklandi

Sendi­nefnd frá Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum hefur verið í Tyrklandi undanfarnar tvær vikur til að ræða við tyrknesk stjórnvöld um mögulegt lán og aðgerða­áætlun til að koma tyrkneska hagkerfinu yfir versta hjallann.

Launalækkun hjá Árvakri

Laun starfsmanna Árvakurs, útgáfu­félags Morgunblaðsins og mbl.is, verða lækkuð um 5% um næstu mánaðamót. Jafnframt verður starfshlutfall einhverra starfsmanna minnkað. Með þessu á að vera hægt að koma í veg fyrir fjöldauppsagnir.

Ingibjörg Sólrún lítur til annars en þeirra Geirs í forsætis­ráðherrastól

Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir, formaður Samfylkingar­innar, segir þörf á öflugri starfs­stjórn fram að kosningum og öflugri forystu. Hún sækist ekki eftir forsætis­ráðherraembættinu en segir Samfylkinguna til forystu reiðubúna. Hún telur að annar komi til greina en þau Geir í forsætis­ráðherraembættið vegna veikinda þeirra.

Hverjir bera ábyrgð á fjármálakreppunni?

Breska dagblaðið The Guardian birtir lista yfir þá 25 einstaklinga sem blaðið telur að beri mesta ábyrgð á hruni fjármálakerfisins. Geir H. Haarde fjármála­ráðherra er í hópnum. Blaðið er með kosningu milli þessara 25 og eru fimm dagar til stefnu.

Spáir óbreyttum stýrivöxtum hér

Fyrsti vaxta­ákvörðunardagur Seðlabanka Íslands á árinu verður á fimmtudaginn. Greining Glitnis spáir því að bankinn haldi stýrivöxtunum óbreyttum þótt þeir séu afar háir í sögulegu og alþjóðlegu ljósi.

Þrír þingmenn á fund Evrópu­ráðsþingsins

Þrír þingmenn munu sækja fund Evrópu­ráðsþingsins í Strassborg, sem hefst í dag og er út þessa viku. Þetta kemur fram á vef Alþingis, en einn þeirra er Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna. Hins vegar er ekki ljóst hvort hann hefur ákveðið að fresta för vegna stjórnmálaástandsins.

Ágætlega heppnuð skulda­bréfaútboð

Sókn fjárfesta í ríkistryggð skulda­bréf er mikil þessa dagana, hvort sem um er að ræða skammtímapappíra eða langtíma­bréf. Sér í lagi virðist endurkoma ríkisvíxla inn á markað hafa verið vel til fundin, ef marka má viðbrögð á markaði, segir Greining Glitnis.

Neyðarpakki í Noregi

Norska ríkis­stjórnin kynnti í morgun aðgerðir til stuðnings atvinnu- og efnahagslífi þar í landi, sem svarar til rúmlega 350 milljarða íslenskra króna. Þar af er um 60 milljarða króna skattalækkun á fyrirtæki.

Barclays hækkar um 74% - hluta­bréf annarra banka hækka

Hluta­bréf í Barclays bankanum er á flugi í dag og hafa hækkað um liðlega 74% það sem af er degi. bankinn hefur greint frá því að hann muni ekki þurfa að styrkja eiginfjárstöðu sína vegna fjármálakreppunnar.

Segir samkomulag um minnihluta­stjórn

Náðst hefur samkomulag um að mynda minnihluta­stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna sem Framsóknar­flokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn munu verja vantrausti, segir í frétt á Vísi. Þar segir að Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir verði forsætis­ráðherra.

Verðfall á bandarískum fasteigna­markaði

Verð á bandarískum fasteigna­markaði lækkaði að meðaltali um 10,6% á liðnu ári. Verð hefur fallið í 34 ríkjum og mest í því stærsta, Kaliforníu, en þar lækkaði fasteignaverð um 27% á síðasta ári.

Þing­flokkar stjórnar­flokkanna funda

Þing­flokksfundir Sjálfstæðis­flokksins og Samfylkingar­innar eru hafnir í Alþingis­húsinu. Formenn flokkanna sögðu báðir í gær að tíðinda væri að vænta um stjórnar­samstarfið í dag. Það er því spenna í loftinu í þinghúsinu.

Klæðskeri Obama í þrot

Bandaríska klæðskera­fyrirtækið Hartmarx , sem hlaut heiðurinn af því að sauma bæði smókinginn sem Barack Obama Bandaríkja­forseti klæddist að kvöldi innsetningardags sem og dökkbláu jakkafötin sem hann var í á kosninganótt, er komið í þrot og hefur farið fram á greiðslustöðvun.

Philips segir upp 6 þúsund manns

Hollenski raftækjaframleiðandinn og tæknirisinn Philips tilkynnti í dag uppsagnir 6 þúsund starfsmanna fyrirtækisins víða um lönd. Uppsagnirnar koma í kjölfar samdráttar og taprekstrar en mikill viðsnúningur varð milli áranna 2007 og 2008.

SAS segir upp 200 manns í Danmörku

Norræna flug­félagið SAS hefur sagt upp 200 starfsmönnum við flugvallarþjónustu í Danmörku. Félagið grípur til þessa vegna samdráttar í flugi frá Kastrup í Kaupmannahöfn. Gert er ráð fyrir frekari uppsögnum.

Hluta­bréf Barclays bankans hækka um 36%

Hluta­bréf í Braclays bankanum hafa hækkað um 36% í fyrstu viðskiptum dagsins. Bankinn hefur tilkynnt að hann hafi afskrifað um 8 milljarða punda á síðasta ári en muni ekki þurfa að leita eftir auknu eigin fé frá hluthöfum. Bankinn hafnaði ríkisaðstoð á síðasta ári.

Kína getur valdið enn frekari lækkunarskriðu

Nouriel Roubini, hagfræðiprófessor við Stern School of Business í New York, segir að mun hægari efnahagsvöxtur í Kína en á undanförnum árum geti haft þau áhrif að hluta­bréf um allan heim lækki um 20% til viðbótar við fyrra fall. Annar sér­fræðingur spáir hræðsluútsölu hluta­bréfa.

Fimm mótmælendur handteknir

Fimm mótmælendur voru handteknir eftir að hafa klifrað upp á þak Seðlabankans í nótt. Þar unnu þeir skemmdarverk á öryggismyndavélum. Þeim hefur verið sleppt úr haldi lög­reglu.

Éljagangur á Hellisheiði og flughált á Krísuvíkurvegi og Bláfjallaleið

Á Suðurlandi er hálka og éljagangur á Hellisheiði og Þrengslum, hálka og hálkublettir á öðrum leiðum. Flughált er á Krýsuvíkurvegi, Ísólfsskálavegi og á Bláfjallavegi.

Þing­flokkar stjórnar­flokkanna koma saman fyrir hádegi

Þing­flokkar stjórnar­flokkanna koma saman kl.10:00 til að ræða stöðuna í ríkis­stjórnar­samstarfinu. Líf stjórnar­innar virðist hanga á bláþræði og ræðst framhaldið í dag.

Meirihluti landsmanna á móti aðild að Evrópu­sambandinu

Meirihluti Íslendinga er andvígur því að Ísland sæki um aðild að Evrópu­sambandinu. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem Fréttablaðið birtir í dag. Alls segjast um 60% vera andvíg aðild eða nær jafnmargir og sögðust fylgjandi aðild í nóvember síðastliðnum.

Fuglahvísl

„Almennileg vettlingatök“ framsóknar

Framsóknar­flokkurinn vill halda sig utan stjórnar fram yfir kosningar, ef marka má orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns flokksins. Hann segist þurfa umboð kjósenda til að taka á sig ábyrgð á land­stjórninni.

Forsetinn hleypur á sig!

Eins og sagt var frá í hvíslinu um stjórnlagakreppu frá Bessastöðum, fór Ólafur Ragnar Grímsson á svig við allar hefðir, þegar hann tók til við að þröngva skoðunum sínum upp á stjórnmálaleiðtoga. lagaprófessorar eru undrandi.

Stjórnlagakreppa frá Bessastöðum

Forseti Íslands reynir að knýja stjórnmálaforingjana til að taka að sér tillögur sínar um sáttmála um sam­félagsmál í áramótávarpi hans – en þessar tillögur féllu dauðar til jarðar. Nú virðist forsetinn sjá leið til að blása lífi í þær að nýju vegna stjórnar­kreppunnar.

Þjóð­stjórn sögð tímaskekkja í október

Fjölmiðlar greindu frá því í byrjun október að Davíð Oddsson, seðlabanka­stjóri hefði ráðlagt ríkis­stjórninni að mynda þjóð­stjórn. Þetta mun hafa verið gert nokkrum dögum áður en bankarnir hrundu formlega, þó ljóst væri að hverju stefndi.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX