| « 22. janúar |
■ 23. janúar 2009 |
» 24. janúar |
Flugskóli Keilis fær nýjar kennsluvélar
Samgöngu- og öryggisskóli Keilis flugakademíu á Keflavíkurflugvelli tók í dag í notkun tvær nýjar kennsluflugvélar og um leið fór fram skólasetning næsta hóps í einkaflugnámi sem fer fram með fjarkennslu. Kennsluvélarnar eru af gerðinni Diamond. Von er á þremur vélum til viðbótar á næstu misserum.
Kallar efnahagshrunið á breytingar á stjórnskipun Íslands?
Kallar efnahagshrunið á breytingar á stjórnskipun Íslands og stjórnsýslunni? Leitað verður svara við þessari spurningu á miðvikudaginn í málstofu lagadeildar Háskóla Íslands sem sem og hvort nýjar leiðir séu við skipulag framkvæmdavaldsins.
Fyrrverandi stjórn gamla Glitnis hefur ákveðið að áfrýja dómi héraðsdóms í máli Vilhjálms Bjarnasyni gegn stjórninni. Fyrr í dag féll dómur Vilhjálmi í vil þar sem stjórn bankans var talin hafa gengið gegn hagsmunum hluthafa.
Mjög hægir á í finnsku efnahagslífi á árinu. Þjóðarframleiðsla mun falla um meira en 2 prósent, segir Jyrki Katainen fjármálaráðherra. Ríkisstjórnin mun á næstu vikum kynna neyðaráætlun vegna ástandsins.
Nýherji tapaði rúmum 1200 milljónum
Tap Nýherja á síðasta ári nam 1.201 milljón króna. Rekstur og afkoma Nýherja hf. á fjórða ársfjórðungi ber merki þeirra skyndilegu sviptinga, sem urðu í rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja eftir fall bankanna í október og stórfellda lækkun á verðgildi íslensku krónunnar, segir forstjórinn.
Mótmælendur gefa löggunni blóm
Lögreglan er ánægð með hvernig mótmæli þróuðust í gær, eftir að hafa farið úr böndunum daginn áður. Á vef lögreglunnar er sagt frá því að nokkrir úr hópi mótmælenda hafi tekið sig til að fært lögreglumönnum blóm.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kom síðdegis til Íslands frá Svíþjóð þar sem hún gekkst undir aðgerð vegna heilaæxlis. Ingibjörg Sólrún er nú að ræða við fréttamenn í Leifsstöð. Báðir formenn stjórnarflokkanna stríða við alvarleg veikindi.
Loftferðasamningur milli Íslands og Singapúr
Loftferðasamningur milli Íslands og Singapúr var undirritaður í dag. Samningurinn er fyrsti loftferðasamningur sem gerður er á milli ríkjanna.
Seðlabankinn lækkar vexti óverðtryggðra lána
Frá og með 1. febrúar 2009 breytast vextir óverðtryggðra lána úr 21,0% í 20,0% og skaðabótavextir verða 13,3% en voru áður 14,0%. Vextir eru því eftirfarandi: Óverðtryggð lán 20,0%, skaðabótakröfur 13,3% og verðtryggð lán 5,9%, segir í tilkynningu Seðlabankans.
Sjálfstæðisflokkurinn og ESB – hvað er fram undan?
Styrmir Gunnarsson og Óli Björn Kárason ræða afstöðu Sjálfstæðisflokksins til ESB aðildar á opnum fundi í Kaffi Rót á sunnudaginn. Það er Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum sem boðar til fundarins.
Harmar að ofbeldishópar eyðileggi friðsamleg mótmæli
Sameiginlegur fundur miðstjórnar og þingflokks Sjálfstæðisflokks harmar að ofbeldishópar hafa reynt að eyðileggja og sundra friðsömum mótmælaaðgerðum almennings. Fundurinn lýsir fullum stuðningi við hófsamar og óhjákvæmlegar aðgerðir lögreglunnar.
Skipstjóri og vélstjóri í einum og sama manninum
Samgönguráðuneytið hefur kveðið upp úrskurð þar sem hnekkt er ákvörðun mönnunarnefndar skipa í máli Keilis ehf. frá því sl. sumar. Þar hafnaði nefndin beiðni útgerðarinnar um að sami maður fengi að gegna stöðu skipstjóra og vélstjóra eins og verið hafði frá árinu 2004.
Formannafundur ASÍ ræddi í dag beiðni SA um seinkun á framkvæmd ýmissa ákvæða núgildandi kjarasamnings vegna efnahagsástandsins. Umræður urðu miklar en fundinum lauk án niðurstöðu.
Þorgerður Katrín leysir Geir af
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, mun gegna embætti forsætisráðherra í fjarveru Geirs H. Haarde á meðan hann verður í læknismeðferð erlendis.
Nestispakkinn er kominn í tísku á ný. Kreppan hefur orðið til þess að Bandaríkjamenn passa pyngjuna betur en áður og draga úr heimsóknum á skyndibitastaði. Þetta eru góð tíðindi fyrir danska fyrirtækið Plumrose, sem framleiðir beikon, skinku og aðrar áleggstegundir.
Listahátíð í Reykjavík og Iceland Express í samstarf
Samstarfssamningur þess efnis að Iceland Express verði einn af aðalsamstarfsaðilum Listahátíðar í Reykjavík var undirritaður í morgun. Er þetta í fyrsta sinn sem Listahátíð og Iceland Express starfa saman.
Wal-Mart kaupir stærslu verslunarkeðju Chíle
Forráðamenn bandarísku verslunarkeðjunnar Wal-Mart greindu í dag frá kaupum á stærstu verslunarkeðju í Chíle, Distribucion y Servicio, D&S.
Nokkuð var um að fólk ætti erfitt með að fóta sig í hálkunni í gær, ekki síst eldri borgarar. Tvær fullorðnar konur í Kópavogi duttu í hálkunni um hádegisbil og sú þriðja í Reykjavík.
SA: Lækka verður stýrivexti strax í 12%
Ekkert fyrirtæki getur þrifist í starfsumhverfi þar sem stýrivextir eru 18% og raunvextir á bilinu 20-30%, segir á síðu Samtaka atvinnulífsins en þar kemur fram hjá Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra samtakanna, að lækka verði stýrivexti strax í 12%.
Samningar um endurskoðun ríkisbankanna
Ríkisendurskoðun hefur samið við þrjú endurskoðunarfélög um að annast endurskoðun nýju ríkisbankanna á tímabilinu 2009–2010. Einnig hefur verið gengið frá ráðningu félaga til að endurskoða stofnefnahagsreikninga tveggja banka og reikninga þeirra fyrir tímabilið frá stofnun til ársloka 2008.
Geir lætur af formennsku í Sjálfstæðisflokknum
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að láta af formennsku. Þetta gerir hann vegna veikinda en hann hefur greinst með illkynja æxli í vélinda. Landsfundi hefur verið frestað til mars og þar verður kjörinn nýr formaður. Sjálfstæðisflokkurinn vill að gengið verði til kosninga í maí næstkomandi.
Æxli Ingibjargar Sólrúnar er góðkynja
Læknar hafa staðfest að heilaæxli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra og formanns Samfylkingarinnar, sé góðkynja. Ingibjörg Sólrún kemur til landsins í dag.
Vilhjálmi dæmdar bætur vegna starfsloka Bjarna Ármannssonar
Héraðsdómur hefur dæmt fyrrverandi stjórn gamla Glitnis til að greiða Vilhjálmi Bjarnasyni bætur vegna starfsloka Bjarna Ármannssonar sem forstjóra bankans. Vilhjálmur stefni stjórninni fyrir að hafa ekki gætt jafnræðis milli hluthafa þegar hlutabréf Bjarna voru keypt á yfirverði.
Kennarar segja forsendur samstöðu í kjaramálum brotnar
Kennarasambandsins (KÍ) telur að forsendur samstöðu um kjaramál brostnar vegna þess að ríkisstjórnin hefur ekki komið að samráði samtaka launamanna og vinnuveitenda.
Steingrímur nýtur mests trausts formanna stjórnmálaflokkanna
Traust til formanna stjórnarflokkanna mælist mun minna en í desember, að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnun MMR, Markaðs- og miðlarannsókna. Steingrímur J., Sigfússon, formaður Vinstri grænna, er sá sem flestir segjast bera mikið traust til.
Samfylkingin frestar framtíðarþingi
Framtíðarþingi Samfylkingarinnar sem halda átti á morgun, laugardag, hefur verið frestað vegna stjórnmálaástandsins.
Starfshópur sérfræðinga á að skila tillögum til heilbrigðisráðherra um það hvernig best má verjast fylgifiskum efnahagskreppu á sálfélagslega sviðinu. Hópnum er m.a. ætlað að fara yfir viðbrögð finnskra heilbrigðisyfirvalda sem þau gripu til þegar efnahagkreppa reið þar yfir.
Áhyggjur af svartri vinnu í atvinnuleysinu
Miklar áhyggjur eru uppi meðal iðnmeistara af því að svört atvinnustarfsemi aukist til muna í því mikla atvinnuleysi sem er að verða meðal iðnaðarmanna í landinu. Kröfur um að tekið verði á þessum þætti eru háværar.
Hlutur kvenna í áhrifastöðum vex og minnkar
Karlar eru við stjórnvölinn í mun ríkara mæli en konur. Hlutur kvenna fer þó vaxandi í ýmsum áhrifastöðum en stendur í stað eða minnkar í öðrum. Kynjaskipting meðal stjórnarformanna og stjórnarmanna fyrirtækja var óbreytt árin 1999–2007, en konur voru þar rúmur fimmtungur.
Skeljungur bauð konum í morgun að dekra við karla sína í tilefni bóndadags með því að fylla á tankinn og fá 10 krónu afslátt á lítra. N1 svaraði með því að bjóða körlum líka tíkall í afslátt. Það er því þorrastuð á bensínstöðvunum.
Moody's telur horfur neikvæðar en lánshæfi óbreytt
Lánshæfi ríkissjóðs Íslands er óbreytt í nýrri skýrslu Moody's en horfur eru sagðar neikvæðar. Landið er enn talið í flokki fjárfestinga enda efnahagslegur styrkur í meðallagi og stofnanir samfélagsins sterkar.
Fullur skilningur forsætisráðherra á hlutskipti lögreglumanna
Mat forsætisráðherra er að lögreglan og lögreglumenn hafi sinnt sínu starfi með miklu sóma undanfarna mánuði við erfiðar aðstæður, segir eftir fund Geirs H. Haarde með formanni Landssambands lögreglumanna í kjölfar óeirðanna.
Endurskoðun KPMG á IT Factory gagnrýnd
Endurskoðunarfyrirtækið KPMG sem sá um endurskoðun á svindlfyrirtæki danska fjársvikarans Stein Baggers, IT Factory, þvær hendur sínar af svikum hans en æ fleiri sérfræðingar gagnrýna endurskoðunarfyrirtækið fyrir að taka ekki eftir augljósum hættumerkjum.
Obama fyrsti forsetinn í tölvupóstsambandi
Barack Obama mun halda BlackBerry símanum sínum og hann verður fyrsti forseti Bandaríkjanna sem verður í tölvupóstsambandi. Miklar áhyggjur hafa verið vegna notkunar Obama á farsíma og tölvupósti.
Enn er víða óveður og varað við ferðalögum
Enn er óveður í Staðarsveit og á Laxárdalsheiði en stórhríð á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er óveður á Klettshálsi, Gemlufallsheiði og á Steingrímsfjarðarheiði. Vegfarendur eru beðnir um að athuga vel akstursskilyrði áður en lagt er af stað.
Lækkunin heldur áfram á mörkuðum í Asíu
Hlutabréf lækkuðu töluvert í verði í dag og er þetta þriðja vikan í röð sem markaðir lækka. MSCI Asíu vísitalan lækkaði um 2,6% og er vikulækkunin 4,6%.