| « 21. janúar |
■ 22. janúar 2009 |
» 23. janúar |
Fjarðarheiði ófær og þungfært á Öxnadalsheiði og Mörðudalsöræfum
Nú er víða komið óveður um allt land. Vegfarendur eru beðnir um að athuga vel aksturskilyrði áður en lagt er af stað. Ófært er um Fjarðarheiði. Á Öxnadalsheiði og á Möðrudalsöræfum er þungfært og stórhríð og alls ekkert ferðaveður.
Rannveig, Agnes, Guðrún og Auður Capital hlutu viðurkenningar FKA
Rannveig Rist, forstjóri álversins í Straumsvík, hlaut FKA viðurkenninguna 2009 en Félag kvenna í atvinnurekstri afhenti í dag sínar árlegu viðurkenningar. Þá hlutu viðurkenningar Agnes Sigurðardóttir, Guðrún Birna Gísladóttir og Auður Capital.
Ráðherra ræddi útblásturskvóta við flugrekendur
Kvótakerfi verður senn lagt á útblástur í flugsamgöngum. Samgönguráðherra ræddi það og fleira við flugrekendur. Ráðherra sagði að gæta yrði þess að ekki yrðu lagðar ósanngjarnar kröfur á íslenskan flugrekstur en hann yrði þó að taka á sig eðlilegar skuldbindingar.
Ingibjörg Sólrún vill kosningar í vor
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, vill að boðað verði til alþingiskosninga í vor. Hún tekur þó fram að Samfylkingin sé enn í stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, að því er fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins.
Íslenskt bygg í baksturinn og bjórinn
Bakarameistarar hafa bundist samtökum um að hefja markvissa notkun á íslensku byggi í brauðgerð og bakstur. Sé byggmjöl notað með hveiti hentar það vel til brauðgerðar. Þá hefur bjór, bruggaður úr íslensku byggi, verið fáanlegur um skeið.
Öruggur staður fyrir þjóðargersemarnar
Hönnun er hafin að byggingu fyrir Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og íslenskuskor Háskóla Íslands. Nýbyggingunni er ætlað að vera öruggur staður fyrir þjóðargersemarnar, handritin sem geyma íslenskar fornbókmenntir, eddukvæði, sögur og fleira.
Gagnrýni á græðgi og óhóf má ekki verða til þess að drepa niður heilbrigðan metnað til þess að skipa Íslandi örugglega í fremstu röð meðal þjóða heims. Samtök atvinnulífsins leggja til leiðir í atvinnumálum sem byggja á hagsýni, framsýni og áræðni, segja SA sem hafa mótað nýja atvinnustefnu.
SA: Skapa verður tuttugu þúsund störf
Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir að skapa verði tuttugu þúsund ný störf til ársins 2015 og vinna til baka þau störf sem hafi tapast. Nauðsynlegt sé að marka leið út úr þeim ógöngum sem íslenska þjóðarbúið hafi ratað í.
Forsætisráðherra: Fjarstæða að stjórnin hafi setið aðgerðalaus
Fjarstæða er að halda því fram að ríkisstjórnin hafi setið aðgerðalaus. Þvert á móti hefur verið unnið ötullega á öllum vígstöðvum að því að draga úr neikvæðum áhrifum efnahagserfiðleikanna á hag heimilanna, sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í umræðum um efnahagsmál á þingi í dag.
Nýir fulltrúar Íslands í stjórn Norræna fjárfestingarbankans
Fjármálaráðherra hefur skipað Þorstein Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lánasjóðs sveitarfélaga, sem stjórnarmann Íslands í stjórn Norræna fjárfestingarbankans. Þá hefur ráðherrann skipað Sigurð Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðanda, sem varamann í stjórnina.
Samkeppniseftirlitið: Rannsóknin grundvölluð á gögnum
Rannsóknin er grundvölluð á upplýsingum og gögnum sem Samkeppniseftirlitið hefur aflað, segir í tilkynningu eftirlitsins vegna húsleitar sem gerð var hjá Fóðurblöndunni og Mjólkurfélagi Reykjavíkur í dag.
Lögreglumenn fordæma ofbeldisseggi
Landssamband lögreglumanna fordæmir í yfirlýsingu framgöngu tiltekinna einstaklinga sem beita lögreglumenn alvarlegu ofbeldi en stór hópur lögreglumanna er slasaður eftir atburði undanfarinna daga og einkum eftir nóttina.
Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur tekið til óspilltra málanna fyrstu dagana í embætti. Hann hikar hvergi og hjólar þegar í Kínverja vegna skráningar gengis kínverska gjaldmiðilsins. Forsetinn vill að risaveldið í austri skrái júaninn rétt.
Brot 431 ökumanns var myndað á Sæbraut á þriðjudag eða á tæplega 10 klukkustundum. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, þ.e. yfir gatnamót Sæbrautar og Langholtsvegar.
Microsoft segir 5 þúsund manns upp störfum
Hugbúnaðarrisinn Microsoft neyðist til þess að grípa til verulegra sparnaðar- og aðhaldsgerða. Þær kosta m.a. 5 þúsund starfsmenn fyrirtækisins starfið. Hagnaður eftir annan fjórðung var minni en vænst hafði verið.
Það sem af er árinu hefur verið brotist inn í á annan tug hesthúsa á höfuðborgarsvæðinu. Úr þeim flestum hefur hnökkum verið stolið og lætur nærri að fimmtíu slíkir hafa horfið undanfarið.
Sjö lögreglumenn slösuðust þegar mótmæli í miðborginni fóru úr böndunum annan daginn í röð. Líkt og á þriðjudag rigndi grjóti og glerflöskum yfir lögregluna um tíma.
Enn lækkar meðalverð á greiðslumarki mjólkur
Meðalverð á greiðslumarki mjólkur lækkar enn, að því er fram kemur hjá Bændasamtökum Íslands. Meðalverð frá upphafi verðlagsársins hefur lækkað um 27,3%.
Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum opnar í dag, fimmtudag kl. 17:00 skrifstofu í húsinu Nýhöfn í Hafnarstræti 18, 2 hæð. Við sama tækifæri verður ný heimasíða samtakanna opnuð á slóðinni www.heimssyn.is.
Greiðslustöðvun Stoða framlengd til 6. apríl
Stoðir, áður FL Group, fá greiðslustöðvun framlengda til 6. apríl, samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Félagið, sem hefur verið í greiðslustðvun frá því í haust, hafði farið fram á að hún næði til 20. apríl.
Rangtúlkar Geir skilaboðin frá Ingibjörgu Sólrúnu?
Vísir.is segir að Geir H. Haarde forsætisráðherra rangtúlki skilaboð sem hann hefur fengið í samskiptum við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur um framhald ríkisstjórnarinnar. Að sögn visis.is hefur Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarkona Ingibjargar, fullyrt þetta.
Samkeppniseftirlitið gerði í morgun húsleit á skrifstofu Fóðurblöndunnar hf. vegna gruns um að Fóðurblandan og Mjólkurfélag Reykjavíkur/Lífland hafi viðhaft viðvarandi verðsamráð og að Fóðurblandan ásamt öðrum keppinautum í áburðarsölu, þ.e. Sláturfélags Suðurlands svf. og Skeljungur hf., hafi haft með sér verðsamráð á áburðarmarkaði síðast liðið ár. Fóðurblandan vísar ávirðingunum á bug.
Staða Íslands til að greiða niður skuldir sterk
Í átökum sínum við bankahrunið hér á landi býr ríkisstjórnin afar vel af því að hluti afrakstrar mikils hagvaxtar síðustu ára hefur verið nýttur til að greiða niður skuldir. Geta ríkisins til að greiða niður skuldir á næstu árum er líka nokkuð góð. Með markvissum aðgerðum ætti að vera að hægt að greiða skuldirnar nokkuð hratt niður, segir Greining Glitnis.
Greining Glitnis spáir aukinni verðbólgu í janúar
Við teljum að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,7% í janúar. Ef spá okkar gengur eftir mun ársverðbólga aukast úr 18,1% í 18,7%. Eins og jafnan í janúar togast nú á áhrif af útsölum og verðskrárhækkanir, en til viðbótar eru áhrif af gengisfalli krónu á seinni hluta síðasta árs, sem enn er að ýta upp verðlagi, segir Greining Glitnis.
Fjölskyldum lögreglumanna ógnað
Víða um bloggheima eru nú birtar myndir, upplýsingar um nöfn og heimilisföng auk nákvæmra korta af heimilum lögreglumanna sem starfað hafa í óeirðasveit lögreglunnar undanfarna daga. Þá er fólk hvatt til að fara heim til þeirra að að næturlagi.
Örlög Bretlands geta orðið sömu og Íslands
Örlög Stóra-Bretlands geta orðið þau sömu og Íslands. Óttinn við þjóðnýtingu fleiri banka og að þjóðarskuldir Breta verði meiri en nokkru sinni valda því að pundið fellur eins og steinn. Það gæti því brátt komið að því að Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, verði að feta í fótspor starfsbróður síns á Íslandi, Geirs H. Haarde, og leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um aðstoð.
Starfsleyfi Sementsverksmiðjunnar ekki háð umhverfismati
Starfsleyfi Sementsverksmiðjunnar á Akranesi hefur verið endurnýjað og felur það meðal annars í sér heimildir fyrir verksmiðjuna að auka framleiðsluna. Að mati Skipulagsstofnunar eru breytingarnar sem felast í nýju starfsleyfi ekki líklegar til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og eru því ekki háðar mati á umhverfisáhrifum.
Sigmundi Erni Rúnarssyni var í morgun sagt upp störfum á Stöð 2. Eiginkonu hans, Elínu Sveinsdóttur útsendingarstjóra stöðvarinnar var einnig sagt upp. „Þetta eru þakkirnar til okkar hjóna eftir öll þessi ár,“ segir Sigmundur Ernir.
Sjö ungmenni handtekin vegna innbrota í Árnessýslu
Lögreglan á Selfossi handtók sjö ungmenni í gær vegna innbrots og þjófnaðar í Laugarási í Biskupstungum. Lögreglu barst tilkynning um grunsamlegar ferðir manna á jeppabifreið í gróðurhúsahverfi í Laugarási rétt fyrir miðnætti síðastliðins þriðjudags.
Framsókn þrefaldar fylgið en Samfylking hrynur
Stuðningur við Framsóknarflokkinn eykst mikið samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR, Markaðs- og miðlarannsókna ehf., meira en þrefaldast miðað við síðustu könnun og verður sú breyting ekki tengd öðru en nýáfstöðnu landsþingi flokksins og kjöri nýrrar forystu.
Hærri laun en minni kaupmáttur
Laun hækkuðu um 0,7% í desember frá fyrri mánuði. Launavísitala síðustu tólf mánuði hefur hækkað um 8,3%. Kaupmáttur dróst hins vegar saman um 8,2% á sama tímabili.
Upphaf útboðsferils olíuleitar á Drekasvæði
Iðnaðarráðherra opnar í dag vefsíðu vegna olíuleitar á Drekasvæði. Þar með markast upphaf fyrsta útboðs vegna leyfa til rannsókna og vinnslu kolvetna á landgrunni Íslands.
Bréf hækkuðu í Apple í kjölfar góðrar afkomu
Bréf í Apple hækkuðu um 9% á eftirmarkaði í gær í kjölfar góðrar útkomu hátæknirisans. Afkoma fyrsta fjórðungs reikningsárs félagsins var betri en spáð hafði verið.
Segir vanhæfi forstjóra Hafró til veiðiráðgjafar algert
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að eftir yfirlýsingar forstjóra Hafrannsóknarstofnunar sé vanhæfi hans algert til að koma að veiðiráðgjöf næstu ára í þorski, að því er fram kemur í grein í Fiskifréttum.
Pundið ekki lægra í 23 ár gagnvart dollar
Sterlingspundið hélt áfram að falla í verði gagnvart helstu gjaldmiðlum í gær. Gengi pundsins hefur ekki verið lægra gagnvart dollar í 23 ár. Það sem af vikunnar hefur gengi pundsins lækkað um 8%.
Erlendir fjárfestar vilja Moggann
Tveir erlendir fjárfestar hafa gert formlegt tilboð í Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, að því er blaðið greinir sjálft frá í morgun. Annar þeirra segir í samtali við blaðið að Árvakur sé ein margra fjárfestinga sem þeir hafi áhuga á hér á landi.
Á Suðurlandi eru hálkublettir á Sandskeiði, hálka á Hellisheiði og í Þrengslunum. En er flughált á Krísuvíkurleið. Éljagangur er á felstum leiðum á Norðurlandi samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.
Lögreglan beitti táragasi - tveir lögreglumenn slasaðir
Í fyrsta skipti í sextíu ár, eða frá mótmælunum á Austurvelli 1949, notaði lögreglan táragas gegn mótmælendum í nótt. Líkt 1949 var það gert til að dreifa mannfjölda sem safnaðist saman fyrir fram Alþingishúsið. Tveir lögreglumenn eru alvarlega slasaðir eftir árás í óeirðunum.
Ber Ágúst Ólafur ábyrgð á fylgishruni Samfylkingar?
Hástökk Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í pólitík er einstakt. Fyrst glæstur sigur í formannskjöri og svo að þrefalda fylgi flokksins á viku! Geri aðrir betur.