| « 20. janúar |
■ 21. janúar 2009 |
» 22. janúar |
Samfylkingin í Reykjavík vill stjórnarslit og kosningar
Fundur í Samfylkingarfélaginu í Reykjavík samþykkti tillögu um að stjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn verði slitið tafarlaust og boðað til kosninga. Stjórn félagsins lagði fram tillögu sem miðaði við að kosið yrði í vor, en fundurinn ákvað að ganga lengra.
Kosningar gætu orðið næsta vetur
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að vel komi til greina að ganga til kosninga næsta vetur. Í viðtali við Kastljós sagði Geir að heppilegast sé að rannsóknaskýrsla um aðdraganda og ástæður bankahrunsins liggi fyrir, þegar gengið sé að kjörborði.
Loft er lævi blandið og veikindi flækja stöðuna
„Það held ég nú ekki en loft en lævi blandið,“ sagði Geir H. Haarde, forsætisráðherra í viðtali við Ísland í dag á Stöð 2 nú fyrir skömmu þegar hann var spurður um hvort lífdagar ríkisstjórnarinnar væru taldir.
Edward Kennedy útskrifaður af sjúkrahúsi
Edward Kennedy, öldungadeildarþingmaður demókrata, var útskrifaður af sjúkrahúsi í Washington í dag en hann fékk áfall í veislu Baracks Obama, hins nýja forseta Bandaríkjanna í gær.
Ungir jafnaðarmenn vilja kosningar og vinstri stjórn
Ungir jafnaðarmenn krefjast þess í ályktun að ríkisstjórnin boði til kosninga í vor. Að öðrum kosti eigi Samfylkingin að slíta stjórnarsamstarfinu og mynda minnihlutastjórn með VG og Framsóknarflokknum.
Moody's áfram svartsýnt á danska banka
Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's er svartsýnt á stöðu danskra banka eins og fyrirtækið var áður, þrátt fyrir að dönsk stjórnvöld hafi kynnt annan björgunarpakka sinn fyrr í vikunni.
Hæstaréttarforsetinn klúðraði eiðnum – ekki Obama
Athygli vakti þegar Barack Obama var settur inn í embætti Bandaríkjaforseta í gær að hann ruglaðist þegar hann fór með eiðstafinn. Nú hefur komið í ljós að þetta var ekki Obama að kenna heldur John Roberts, forseta Hæstaréttar Bandaríkjanna. Hann fór rangt með eiðstafinn sem varð til þess að Obama stoppaði.
Kosningar ekki fyrirhugaðar segir forsætisráðherra
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að engin áform séu uppi um að efna til kosninga. Í samtali við blaðamenn sagði Geir að hann hefði átt samtal við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra og að þau væru samstíga í þessu.
Ingibjörg Sólrún heim í vikulok en fer á Landsspítalann
Ingibjörg Sólrún er væntanleg heim í vikulokin og mun þá verða lögð inná Landspítala háskólasjúkrahús þar sem læknar munu taka ákvörðun um framhaldið.
Framsókn tilbúin að verja vinstri minnihlutastjórn falli
Á fundi þingflokks framsóknarmanna nú síðdegis veitti þingflokkurinn formanni Framsóknarflokksins fullt umboð til að bjóða forsvarsmönnum Samfylkingarinnar og VG að mynda minnihlutaríkisstjórn flokkanna tveggja sem varin yrði vantrausti af hálfu Framsóknarflokksins á meðan alþingiskosningar verða undirbúnar.
Mótmælin við Alþingi hafin á ný
Mótmælin á Austurvelli eru hafin á nýjan leik, og mótmælir fólk af fullum krafti. Mikil hávaði er á svæðinu enda slá mótmælendur í potta og pönnur líkt og í gær. Hrópað er að ríkisstjórninni.
Fjármálakreppan kemur í veg fyrir sölu á snekkju Saddams
Ocean Breeze, snekkja sem var í eigu Saddams Husseins fyrrum Íraksforseta, selst ekki. Í miðri fjármálakreppunni eru menn ekki tilbúnir til að borga 3,9 milljarða fyrir glæsifleyið, jafnvel þótt kranar baðherbergja séu gulli slegnir.
Hlutabréf hækka í Bandaríkjunum
Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum hafa tekið við sér og helstu vísitölur hækkað, það sem af er dags. Hlutabréf banka hafa leitt hækkunina. Þannig hafa bréf í Banka of America hækkað um 11% og Citigroup um liðlega 12%.
Mótmælendur umkringdu forsætisráðherrabílinn
Mótælendur umkringdu ráðherrabíl Geirs H. Haarde forsætisráðherra fyrir stundu. Forsætisráðherra var í bílnum. Sérsveit lögreglunnar var nokkrar mínútur að ryðja mótmælendum úr vegi svo ráðherrabíllinn kæmist á brott, að því er mbl.is segir.
AIG hættir að auglýsa á Manchester United búningnum
Styrktar- og auglýsingasamningurinn milli bandaríska tryggingarfélagsins AIG og enska knattspyrnuliðsins Manchester United rennur út í maí árið 2010. Tryggingarfélaginu var bjargað frá gjaldþroti í fyrra. Knattspyrnuliðið fræga leitar nú að nýjum styrktaraðila.
Nú er röðin komin að Barclays þar sem hlutabréfin falla
Hlutabréf Barclays bankans hafa haldið áfram að falla í verði sjöunda daginn í röð. Síðustu viku hefur gengið fallið um 58,9%. Áhyggjur fjárfesta af stöðu banka hefur þrýst genginu niður og óttast margir að þeir verði þjóðnýttir. Bréf í Royal Bank of Scotland hafa hækkað.
Mesti samdráttur í Þýskalandi frá stríðslokum
Þýska ríkisstjórnin, með Angelu Merkel kanslara í fararbroddi, væntir þess að samdráttur í þessu stærsta hagkerfi Evrópu verði 2,25% í ár og þar með sá mesti frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Óeirðirnar við Alþingishúsið vekja athygli ytra. Helstu fréttastofur heims segja frá atburðum hér og birta myndir af grímuklæddum íslenskum mótmælendum andspænis sérsveit íslensku lögreglunnar.
Tuttugu handteknir í mótmælum í gær
Um tuttugu manns voru færðir á lögreglustöð til skýrslutöku eftir að mótmæli við Alþingishúsið í gær fóru úr böndunum, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Lögreglumenn voru grýttir grjóti, glerflöskum, matvælum, mold og drullu.
Öll hagkerfi Norðurlandanna dragast saman
Reiknað má með samdrætti á öllum Norðurlöndunum í ár samkvæmt spá norræna bankans Nordea. Ísland er því ekki eitt á báti í samdrættinum. Hin alþjóðlega fjármálakreppa er að koma illa niður á öllum þessum löndum, segir Greining Glitnis.
Aukin útgáfa ríkistryggðra skuldabréfa
Ríkissjóður áætlar að auka framboð ríkistryggðra skuldabréfa á markaði um 45 milljarða króna á yfirstandandi ári til að koma til móts við 145 milljarða króna hreina fjárþörf vegna mikils halla á fjárlögum þessa árs, segir Greining Glitnis.
Raungengi krónunnar 30% undir langtímameðaltali
Raungengi krónunnar er nú um 30% undir meðaltali síðustu áratuga. Raungengi krónunnar hefur lækkað mikið eða um ríflega 40% frá miðju ári 2007, þegar hin alþjóðlega fjármálakreppa fór að gera vart við sig hér á landi, segir Greining Glitnis.
Þingfundur, sem hefjast átti kl. 13.30 í dag hefur verið felldur niður. Þetta kemur fram á vef Alþingis, en engar ástæður eru gefnar. Þeir sem stóðu að mótmælum í gær og fram á nótt hafa boðað til mótmælastöðu við þingið í dag.
SA: Vottun jafnra launa mikilvæg
Samtök atvinnulífsins vænta mikils af samstarfsverkefni SA, ASÍ og félags- og tryggingamálaráðuneytis um að fyrirtækjum og stofnunum verði gert kleift að fá vottun þess að jafnlaunastefna sé virk.
Það er ekki til „súperaðild“ að ESB þar sem öllum sérhagsmunum okkar væri fullnægt og við nytum allra kosta aðildar, segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, í leiðara Bændablaðsins.
Viðskiptaráðherra hefur undirritað reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar. Kjarni hennar er að sett er þak á þá fjárhæð sem krefja má skuldara um við innheimtu gjaldfallinna peningakrafna fyrir aðra eða vegna eigin starfsemi.
Evran gerir ástandið verra og eina leiðin er að lækka launin
Paul Krugman, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, telur að evran geri ástand efnahagsmála í nokkrum löndum evrusvæðisins verri en ella. Sveigjanleiki ríkjanna sé lítill og því eigi ríkisstjórnir landanna ekki aðra möguleika en að skerða laun almennings.
Staða pundsins versnar stöðugt
Pundið hefur ekki verið lægra gagnvart dollar frá árinu 2001. Það hefur fallið gagnvart evru fjóra daga í röð. Ef litið er aftur til 1. janúar 2008 hefur pundið fallið um 21.6% gagnvart danskri krónu.
Ómar framkvæmdastjóri SmartLynx
Ómar Benediktsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri flugfélagsins SmartLynx í Lettlandi, en það er dótturfélag Icelandair Group. SmartLynx er leiguflugfélag með starfsemi víða um heim, en höfuðstöðvar í Riga í Lettlandi.
Það dregur úr áhuga Dana að taka upp evru í stað krónu. Danske Bank telur ástæðuna vera að dregið hefur úr vaxtamun milli Danmerkur og evrulandanna. Kosningar um evru gætu farið fram síðar á þessu ári eða því næsta.
Englandsbanki kaupir skuldabréf fyrir 50 milljarða punda
Englandsbanki mun inn fárra vikna byrja að kaupa skuldabréf fyrirtækja af bönkum til að auka lausafé þeirra og styrkja þar með útlánagetu bankanna til einstaklinga og fyrirtækja. Lægstu stýrivexti frá 1694 koma ekki í veg fyrir samdrátt efnahagslífsins.
Finnair ekki andvígt sameiningu við SAS
Finnska flugfélagið Finnair hefur opnað möguleika á sameiningu við flugfélagið SAS. Ljóst þykir að flugfélög standi frammi fyrir miklum vanda og bæði þessi norrænu flugfélög hefðu mikinn hag að sameiningu.
Franska ríkið kemur bílaframleiðendum til bjargar
Franskir bílaframleiðendur munu fá um sex milljarða evra í aðstoð frá franska ríkinu til að bjarga þeim frá gjaldþroti. En áður en verksmiðjurnar geta fengið aðstoð ríkisins verður framkvæmdanefnd Evrópusambandsins að samþykkja áætlun franska ríkisins.
Glitnir í Noregi seldur langt undir raunvirði
Glitnir Bank ASA, dótturfélag gamla Glitnis, var seldur langt undir raunvirði eða á 300 milljónir norskra króna. Bankinn er metinn nú á 2.000 milljónir. Morgunblaðið greinir frá því að söluverð bankans hafi aðeins verið 10% af bókfærðu eigin fé.
Nýi Glitnir hefur ákveðið að lækka útláns- og innlánsvexti bankans frá og með deginum í dag. Með þessu hafa kjörvextir óverðtryggðra skuldabréfa hjá Glitni lækkað um 2,85% eða úr 21,85% í 19% frá 28. október síðastliðnum.
Mótmælin héldu áfram fram á nótt
Mótmælin við Alþingishúsið héldu áfram fram á nótt. Kveikt var bál fyrir utan húsið og hjá styttur Jóns Sigurðssonar og náðu mótmælendur í eldsmat víða. Bekkir á Austurvelli voru dregnir á bálkost og kveikt í þeim.
Enn er sumstaðar flughált, einkum á Vestfjörðum, Vesturlandi og Norðaustur- og Austurlandi. Á Suðurlandi er hálka á Sandskeiði og hálka og éljagangur á Hellisheiði og í Þrengslum, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.
Valdataka Dags B. Eggertssonar undirbúin
Hafinn er undirbúningur að valdatöku Dags B. Eggertssonar sem formanns Samfylkingarinnar. Stuðningsmenn Dags er sannfærðir um að Ingibjörg Sólrún muni ekki snúa aftur á vetttvang stjórnmálanna og því sé „hans tími kominn“.