| « 19. janúar |
■ 20. janúar 2009 |
» 21. janúar |
Ted Kennedy hné niður í veislumat með Obama
Ted Kennedy, öldungadeildarþingmaður demókrata, hné niður í hátíðarhádegisverði með Barack Obama, hinum nýja forseta Bandaríkjanna.
Hlutabréf falla þrátt fyrir embættistöku Obama
Hlutabréf féllu almennt í verði í Bandaríkjunum í dag, þrátt fyrir þær vonir sem flestir binda við Barack Obama sem tók við forsetaembættinu í dag. S&P 500 vísitalan lækkaði um 5,3% og Dow Jones um 4%.
Bush-hjónin á leið á búgarð sinn í Texas
Eftir átta umbrotaár í embætti Bandaríkjaforseta er George W. Bush á leið á búgarð sinn í Texas. Hinn nýi Bandaríkjaforseti, Barack Obama, fylgdi forvera sínum að þyrlu sem flutti Bush og Lauru konu hans á Andrews-herflugvöllinn í Maryland. Þaðan héldu forsetahjónin fyrrverandi áfram för sinni til Texas.
111 ökumenn myndaðir vegna hraðaksturs
Brot 111 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í norðurátt, að Sigtúni.
Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í húsi í Laugardalshverfinu um miðjan dag í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 10 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar.
Rafrænar kosningar í tveimur sveitarfélögum 2010
Unnið er að undirbúningi tilraunar með rafrænar sveitastjórnarkosningar árið 2010. Tilraunina skal binda við tvö sveitarfélög. Rafrænar kosningar hafa farið fram erlendis og hefur upplýsinga verið aflað um tilhögun og reynslu meðal annars í Eistlandi og Kanada.
Tími enduruppbyggingar er hafinn, segir Obama
Barack Obama sór embættiseið forseta Bandaríkjanna, með hægri hönd á biblíu sem einn sinn var notuð af Abraham Lincoln. Biblían er í vörslu Bókasafns þingsins, sem er eitt stærsta bókasafn heims.
Synda framhaldsskólanemendur 10 hringi í kringum Ísland?
Allir nemendur framhaldsskólanna, alls tæplega 20.000, hafa fengið afhent sundkort og syndi hver þeirra 200 metra á dag í eina viku leggja þeir 28 milljón metra að baki. Það eru 28.000 km sem samsvarar því að nemendur myndu synda 10 hringi í kringum Ísland.
Obama tekinn við sem Bandaríkjaforseti
Barack Obama hefur svarið embættiseið sem forseti Bandaríkjanna. Hann flytur nú ávarp sitt til þjóðarinnar og raunar heimsbyggðarinnar allrar því sýnt er beint frá embættistökunni um allan heim.
Metanólframleiðsla hjá Carbon Recycling International
Nýsköpunarfyrirtækið Carbon Recycling International hefur þróað tækni til framleiðslu á metanóli úr koltvíoxíði. Fyrirtækið hefur smíðað vél sem getur breytt útblæstri í orku sem getur knúið bifreiðar. Iðnaðarráðherra kynnti sér framleiðsluna.
Stýrivextir aldrei lægri í Kanada
Seðlabanki Kanada, Bank of Canada, lækkaði stýrivexti í dag um 50 punkta, 0,5%, niður í 1,0%. Vextir hafa ekki verið lægri í Kanada frá stofnun bankans árið 1934.
Þingfundi frestað vegna átakanna
Fundi Alþingis var fyrir skömmu frestað til klukkan 15.30. Mikil átök hafa verið utan við þinghúsið frá þingsetningu kl. 13.30 Lögrega hefur beitt gasi og handtekið nokkra. Þingmönnum var ráðlagt að halda sig frá gluggum þinghússins.
Gangur í viðræðum um sparisjóðasameiningu
Viðræður um sameiningu Sparisjóðsins í Keflavík, Byrs og SPRON hafa staðið yfir frá því í byrjun desember og hafa samningsaðilar kannað hvort grundvöllur er fyrir sameiningu sparisjóðanna. Viðræðurnar hafa gengið vel.
LÍ: Leiðbeiningar um aðgerðir vegna greiðsluerfiðleika fyrirtækja
Bankaráð Landsbankans, NBI hf. hefur samþykkt leiðbeiningar um aðgerðir vegna greiðsluerfiðleika fyrirtækja. Leiðbeiningarnar taka til þess hvernig staðið skuli að endurskipulagningu fjárhags fyrirtækja sem eru í viðskiptum við bankann.
Umsátursástand er nú við Alþingi en þing átti að hefjast á nýjan leik kl. 13.30 eftir jólahlé. Fjöldi mótmælenda er allt í kringum húsið. Menn hafa barið glugga hússins og hávaði er mikill. Óeirðasveit lögreglunnar er komin á vettvang og hefur hafist handa við að rýma svæðið umhverfis þinghúsið.
Flughált er víða og aksturskilyrði eru slæm
Flughált er nú víða um allt land og því mjög slæm aksturskilyrði. Ófært er á Fjarðarheiði og á Vatnskarði eystra vegna óveðurs.
Gengið hefur verið frá samningi um sölu á Nemi, dótturfélags Tryggingamiðstöðvarinnar hf. í Noregi, til norska tryggingafélagsins Protector Forsikring ASA.
Sparisjóðurinn í Keflavík selur Íbúðalánasjóði fasteignalán
Sparisjóðurinn í Keflavík og Íbúðalánasjóður hafa að undanförnu átt viðræður um sölu íbúðalána Sparisjóðsins, að verðmæti um 9,7 milljarðar, til Íbúðalánasjóðs.
Munur á byggingarkostnaði og markaðsverði minnkar
Verulega hefur dregið saman með byggingarkostnaði fjölbýlis og markaðsverði undanfarið, en þar virðist þó enn vera talsvert meiri munur á en raunin var fyrir fimm árum, segir Greining Glitnis.
Lánin til að styrkja Kaupþing og hugmyndin frá Deutche bank
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings banka, segir að engar reglur eða lög hafi verið brotin í tengslum við lán til viðskiptavina bankans sem veitt voru í ágúst og september á liðnu ári. Hugmyndin að viðskiptunum kom frá Deutche Bank
Slæm staða breska hagkerfisins kemur sér illa fyrir hið íslenska
Slæm staða breska hagkerfisins kemur sér illa fyrir hið íslenska. Bretland er afar mikilvægur útflutningsmarkaður fyrir íslenskar sjávarafurðir. Af gjaldeyristekjum af vöruútflutningi kom ríflega 12% frá Bretlandi í fyrra, segir Greining Glitnis.
Hæstiréttur vísar skattamáli Jóns Ólafssonar frá
Hæstiréttur hefur vísað frá dómi kæru saksóknara á hendur Jóni Ólafssyni, Hreggviði Jónssyni og Ragnari Birgissyni, vegna meintra brota á skattalögum. Héraðsdómur hafði áður vísað máli frá dómi en saksóknari áfrýjaði þeirri ákvörðun til Hæstaréttar.
Dökkar framtíðarhorfur í Þýskalandi
Þýskir sérfræðingar eru svartsýnir á efnahagsþróun í Þýskalandi. Svokölluð ZEW vísitala mælir sýn sérfræðinga á nánustu framtíð og hún er neikvæð. Þýskaland byggir á miklum útflutningi og því hefur ástand í öðrum löndum mikil áhrif.
Sýslumaður endurskoðar ákvörðun vegna tilmæla dómsmálaráðherra
Sýslumaðurinn á Selfossi hefur endurskoðað ákvörðun sína um að gefa út skipun um að handtaka 370 þar sem þeir hefðu ekki skilað sér í fjárnám hjá embætti hans. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra gerði athugasemdir við sýslumanninn þar sem hann hafi ekki gætt að reglum um jafnræði og meðalhóf.
Mikill hluti framleiðslu Saab bíla gæti flust heim til Svíþjóðar frá Þýskalandi og Austurríki takist samningar milli sænsku ríkisstjórnarinnar og bandaríska bílarisans General Motors, sem á Saab.
BMW styttir vinnutíma starfsmanna
Þýsku bílaverksmiðjurnar BMW horfa fram á samdrátt í sölu og slæmar markaðshorfur. Til að mæta þessu verður vinnutími 26 þúsund starfsmanna styttur í febrúar og mars og dregið úr bílaframleiðslu.
Íkveikja í Tryggvagötu - áframhaldandi gæsluvarðhald
Karlmaður um fimmtugt hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 16. febrúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna.
Verðbólguþrýstingur í Bretlandi
Kreppan harðnar í Bretlandi og þrýstir verðbólgu upp. Verðbólgutölur í nóvember og desember voru mun hærri en í sömu mánuðum ári fyrr. Í nýrri skýrslu Evrópuráðsins segir að horfur í Bretlandi séu verri en í flestum öðrum löndum Evrópusambandsins.
Efnahagssamdrátturinn verður 9,6% á þessu ári
Gert er ráð fyrir að samdráttur vergrar landsframleiðslu á þessu ári verði 9,6% að raunvirði. Samdráttur einkaneyslu verðu mun meiri eða 24,1%. Þetta kemur fram í endurskoðaðri þjóðhagsspá sem fjármálaráðuneytið hefur gefið út.
Olíu skvett á skrifstofu sýslumannsins í Keflavík
Aðalinngangur á skrifstofum Sýslumannsins í Keflavík var löðrandi í smurolíu þegar starfsfólk mætti til vinnu í morgun. Þetta kemur fram í frétt á vef Víkurfrétta, vf.is.
Lið frá Háskóla Íslands komst í aðra umferð samkeppni sem Airbus efndi til þar sem háskólanemar víða um heim voru hvattir til að koma með hugmyndir til að móta framtíð flugiðnaðarins og efla vistvirkni hans. Hugmynd HÍ er að setja sólarsellur utan á flugvélar til orkuöflunar.
Kristín Baldursdóttir innri endurskoðandi Landsbankans
Landsbankinn, NBI hf. hefur ráðið Kristínu Baldursdóttir í starf innri endurskoðanda Landsbankans. Hún tekur við starfinu af Brynjólfi helgasyni, sem sagði starfi sínu lausu fyrir áramótin. Kristín mun hefja störf í bankanum í byrjun febrúar.
Buffett: Ekki hægt að finna betri mann í forsetaembættið
Warren Buffett, ríkasti maður heims, segir að Bandaríkin verði í góðum höndum þegar Barack Obama tekur við embætti forseta Bandaríkjanna. „Það hefði ekki verið hægt að finna betri mann í starfið,“ segir hann.
Hlutabréf banka hækka í kauphöllinni í London
Hlutabréf banka hefur hækkað töluvert í kauphöllinni í London. Royal Bank of Scotland, sem var í frjálsu falli í gær, hefur hækkað um liðlega 17% í fyrstu viðskiptum dagsins.
Lítil hækkun byggingarkostnaðar milli mánaða
Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði um 0,1% frá fyrra mánuði. Hækkunin er hins vegar miklu meiri sé litið til síðustu tólf mánaða en á því tímabili hækkaði vísitala byggingarkostnaðar um 28,6%.
Hlutfall innflytjenda svipað hér á landi og í Noregi og Danmörku
Í ársbyrjun 2008 voru innflytjendur á Íslandi 25.265 talsins, eða 8,6% mannfjöldans. Það er mikil aukning frá árinu 1996 þegar innflytjendur voru einungis 2% landsmanna, eða 5.356 talsins. Hlutfall innflytjenda hér á landi er nú álíka hátt og í Noregi og Danmörku.
Aiko Toyoda hefur verið valinn forstjóri Toyota bílaverksmiðjanna, stærsta bílaframleiðanda í heimi. Hann tekur við á viðsjárverðum tímum samdráttar og uppsagna. Hann er barnabarn stofnanda Toyota en fjölskyldumeðlimur hefur ekki stýrt risafyrirtækinu undanfarin 14 ár.
Evran í vörn gagnvart dollar og jeni en pundið er í verri stöðu
Evran féll í verði gagnvart dollar og japönsku jeni í gær, eftir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, opinberaði verri hagvaxtarspá fyrir evrusvæðið en áður. Þá setti lægri lánshæfiseinkunn Spánar aukin þrýsting á gengi evrunnar.
Heimskreppuótti lækkar olíuverð
Verð á amerískri hráolíu féll hratt á markaði í New York en verð á tunnu lækkaði um dollar, niður í 33,62 dollara. Ástæða lækkunarinnar er talin vera ótti um að heimskreppan sé komin til að vera. Þar réð mestu versnandi ástand í Bretlandi.
Ítalski bílaframleiðandinn Fiat á í viðræðum við forráðamenn Chrysler verksmiðjurnar í Bandaríkjunum um kaup á stórum hlut í bankaríska fyrirtækinu. Svo gæti farið að Fiat myndi eignast meirihlutann í Chrysler.
Obama tekur við - þáttaskil í Bandaríkjunum
Barack Obama sver embættiseið sem 44. forseti Bandaríkjanna í dag, fyrstur þeldökkra stjórnmálamanna. Á innan við fimm árum hefur Obama markað þáttaskil í bandarískri stjórnmálasögu. Farið er yfir ævi hans og stjórnmálaferil.
Alþingi kemur fram í dag eftir jólaleyfi. Þingfundur hefst kl. 13.30 og er óundirbúinn fyrirspurnartími á dagskrá. Raddir fólksins hafa boðað til mótmætafundar við Alþingishúsið.
Flughált á Vestfjörðum og víða á Austfjörðum
Flughálka er í Ísafjarðardjúp og víða á Vestfjörðum. Á Austurlandi er einnig flughálka á Sandvíkurheiði, Hárekstaðaleið og víðar. Ófært er um Fjarðarheiði vegna óveðurs, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.
Útvaldir fengu milljarðalán án áhættu
Morgunblaðið greinir frá því í dag að útvaldir viðskiptavinir Kaupþings, þar á meðal Ólafur Ólafsson, hafi fengið milljarða króna að láni til að gera samninga sem þeir gátu ekki tapað á. Alls er um 84 milljarða króna að ræða til erlenda félaga í eigu viðskiptavina.
Þingmenn sögðu smáfuglunum, að furðulegt hefði verið verið að fylgjast með þingmönnum vinstri-grænna þriðjudaginn 20. janúar, þegar mótmælendur reyndu að trufla störf Alþingis með mótmælum undir merkjum Radda fólksins.
Það er ekki eins og heimilin og fyrirtækin brenni!
Alþingi kemur saman í dag eftir langt og gott jólafrí þingmanna. Þeir ættu að vera úthvíldir og fullir af þreki til að takast á við erfið mál. Á dagskrá eru meðal annars andstaða við eldflaugavarnarkerfi, tóbaksvarnir og embætti prófessors á sviði byggðasafna og byggðafræða.