| « 18. janúar |
■ 19. janúar 2009 |
» 20. janúar |
Hlutabréf í stærstu bönkum Bretlands féllu verulega í verði í dag. Mest var fall bréfa í Royal Bank of Scotland (RBS) sem voru í frjálsu falli í dag. Hlutabréf Lloyds Banking Group, féllu um 34% og bréf í HSBC lækkuðu um 6,5%.
Á yfir 100 km hraða í gegnum Hvalfjarðargöng
Langflestir þeirra sem fara í gegnum Hvalfjarðargöng fara á löglegum hraða, raunar eru þeir sárafáir sem brjóta lögin. En þeir eru þó til sem hafa áhuga á að láta taka mynd af sér, en hraðamyndavélar eru víða í göngunum.
Höfða mál vegna rýrnunar peningarmarkaðssjóðs LÍ
Á annan tug manna hefur höfðað mál á hendur Landsbanka Íslands vegna rýrnunar peningamarkaðsjóðs bankans í aðdraganda bankahrunsins, segir í frétt Vísis en þar kemur fram að um 56-57 milljarðar króna hafi verið leystar út úr honum á dagana fyrir lokun.
Danskir lífeyrissjóðir íhuga aðkomu að „bankapakka“ ríkisins
Danska ríkisstjórnin tilkynnti í gær um 100 milljarða danskra króna viðbótaraðstoð við hart leikið danskt bankakerfi, eða sem svarar 2270 milljörðum íslenskra króna. Í bankapakka II er opnað fyrir þann möguleika að aðrir komi að aðstoðinni en ríkið og það íhuga dönsku lífeyrissjóðirnir.
Mikil verðlækkun á greiðslumarki mjólkur
Samkvæmt meðalverði á síðustu 500.000 lítrum á greiðslumarki mjólkur sem skipt hafa um eigendur, hefur orðið um 50 króna lækkun á lítra frá 1. desember 2008.
Hert eftirlit með lyfjaávísunum
Með tilkomu lyfjagagnagrunns Landlæknis hefur eftirlit með lyfjaávísunum verið hert. Mjög hefur t.d. dregið úr notkun Contalgins (morfíns) hjá notendum yngri en fertugum.
Um 7,6 milljarðar í geðheilbrigði
Tæpur þriðjungur samskipta heimilislækna við sjúklinga tengist geðrænum einkennum. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifdóttur.
Fjórði hver mun leita sér að vinnu erlendis í atvinnuleysi
Tæplega 27% þeirra sem eru í launaðri vinnu munu reyna að finna sér atvinnu í öðrum löndum ef þeir verða atvinnulausir. Meirihlutinn myndi þó byrja á að leita sér að vinnu hérlendis eða liðlega 53%.
Frummatsskýrsla fyrir mislæg gatnamót liggur fyrir
VSÓ Ráðgjöf hefur nú lokið við gerð frummatsskýrslu vegna mats á umhverfisáhrifum fyrir framkvæmdir vegna Hallsvegar, Úlfarsfellsvegar og mislægra gatnamóta við Vesturlandsveg.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði nýlega hald á verkfæri. Mörgum þeirra hefur þegar verið komið til skila, en eftir stendur þessi jarðvegsþjappa.
Hlutabréf Royal Bank of Scotland halda áfram að falla
Lítil fyrirstaða virðist vera í lágmarksverði á hlutabréfum í Royal Bank of Scotland. Þegar þetta er skrifað hafa bréfin fallið um 65,4% í dag. Bankinn hefur gefið út að tap á síðasta ári verði allt að 28 milljarðar punda.
Finnur Sveinbjörnsson ráðinn til loka þessa árs
Stjórn Nýja Kaupþings hefur ákveðið að framlengja ráðningarsamning Finns Sveinbjörnssonar, sem bankastjóra bankans, til loka þessa árs. Jafnframt hefur stjórn bankans ákveðið að auglýsa starf bankastjóra undir lok ársins.
Styrkur til náms í japönskum fræðum
Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrk til ungs fólks í japönskunámi sem hyggur á háskólanám í japönsku eða japönskum fræðum við háskóla í Japan.
Helmingur útskriftarnema HR hefur þegar fengið vinnu
Brautskráning frá Háskólanum í Reykjavík fór fram í Háskólabíói á laugardaginn en alls voru 193 nemendur brautskráðir frá skólanum. Helmingur þeirra nemenda sem útskrifuðust í dag hafa nú þegar fengið vinnu.
Lánshæfismat Spánar lækkað - annað evrulandið á viku
Standars & Poor's, matsfyrirtækið, hefur lækkað lánshæfismat Spánar úr AAA í AA vegna stöðu opinberra fjármála. Spánn er annað evrulandið á fimm dögum sem verður fyrir því að lánshæfi er lækkað.
Hlutabréf í Royal Bank of Scotland falla um 58%
Hlutabréf Royal Bank of Scotland hafa verið í frjálsu falli það sem af er dag, en bankinn hefur tilkynnt um gríðarlegt tap á síðasta ári. Fyrir stundu höfðu hlutabréf bankans lækkað um liðlega 58%.
SAS fær allt flug fyrir StatoilHydro næstu þrjú árin
Norræna flugfélagið SAS hefur samið við norska risafélagið StatoilHydro um flutning starfsmanna þess næstu þrjú árin. Það hljóp því á snærið hjá hinu aðþrengda flugfélagi. Starfsmenn StatoilHydro eru nær 30 þúsund, dreifiðir víða um lönd.
Fimm stjórnarmenn írska stórbankans Anglo Irish Bank hafa sagt sig úr stjórn bankans. Með því auðvelda þeir írskum stjórnvöldum tilnefningu nýrra stjórnarmeðlima eftir að bankinn var yfirtekinn af ríkinu. Þá hættir bankastjóri Bank of Ireland.
Segir enga fjármuni hafa farið með óeðlilegum hætti úr Kaupþingi
Ég vil undirstrika að engir fjármunir hafa verið færðir með óeðlilegum eða ólögmætum hætti úr sjóðum bankans, hvorki til eigenda hans né annarra. Enginn hagnaður hefur orðið til vegna sérstakra samninga við valinn hóp viðskiptavina bankans eða eigenda, segir Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, í yfirlýsingu.
„Engar þóknanir, greiðslur, eða hagnaður til Ólafs Ólafssonar“
Ólafur Ólafsson í Samskipum segir í yfirlýsingu að hann hafi átt félag sem kom að viðskiptum kaupsýslumanns frá Katar með 5 prósenta hlut í Kaupþingi. Hann hafi ekki þegið þóknun og ekki hagnast á viðskiptunum.
Búið í haginn fyrir afnám gjaldeyrishaftanna
Áform eru uppi um að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans frekar, bæði með auknum lántökum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og lánum frá fleiri aðilum. Með styrkingu forðans er búið í haginn fyrir afnám gjaldeyrishaftanna sem hér hafa verið við lýði frá hruni bankanna, segir Greining Glitnis.
Líf í útgáfu verðtryggðra skuldabréfa
Gera má ráð fyrir töluverðu framboði af verðtryggðum skuldabréfum næsta kastið. Auk Íbúðalánasjóðs og Lánasjóðs sveitarfélaga hafa ýmis sveitarfélög slíka útgáfu á prjónunum og nokkuð líklegt er að aðrir opinberir aðilar á borð við veitufyrirtækin sláist einnig í hópinn, segir Greining Glitnis.
Fjöldi sumarhúsa á söluskrá hefur þrefaldast á einu ári
Aukið framboð sumarhúsa samhliða minnkandi eftirspurn vegna efnahagsástandsins mun óhjákvæmilega verða til þess að verð á sumarhúsum mun fara lækkandi á næstu misserum, segir Greining Glitnis.
Efnahagssamdrátturinn 1,9% í evrulöndum
Efnahagur evrulanda mun dragast saman um 1,9% á þessu ári og líklega verður hagvöxtur aðeins 0,4% á næsta ári. Atvinnuleysi verður 10% á næsta ári gangi efnahagsspár eftir.
Hlutfall sóknarbarna í Þjóðkirkjunni komið niður fyrir 80%
Hlutfallslega hefur orðið fækkun í Þjóðkirkjunni úr 80,1% í 78,6% af öllum 16 ára og eldri. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta hlutfall fer niður fyrir 80%, segir í skýrslu Hagstofu Íslands um mannfjölda eftir trúfélögum.
Fjármálaeftirlitið hefur tilkynnt Kauphöll Íslands um framlengingu á banni við skortsölu en það var sett á 7. október síðastliðinn. Þessi takmörkun á skortsölu fjármálagerninga gildir til og með 31. janúar næstkomandi.
Óbreyttir vextir Íbúðalánasjóðs
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,9% en 5,4% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.
Sænski pappírsframleiðandinn Stora Enso í vanda
Stora Enso, sænski pappírsframleiðandinn, þurfti að afskrifa trjálager og fleira fyrir 113 milljarða króna á síðasta fjórðungi liðins árs. Framleiðslusamdráttur heldur áfram á nýju ári. Fimm þúsund störf eru í hættu.
„Evran sem myntbandalag mun liðast í sundur“
Ekki ætti nokkrum manni að detta í hug að evran muni bjarga þessum ríkjum fyrir horn (Portúgal, Ítalíu, Grikklandi, Spáni (og Írlandi), þvert á móti bendir allt til þess að evran muni í besta falli fresta vandamálunum um nokkra mánuði áður en allt fellur saman í þessum hagkerfum, segir Ágúst Þórhallsson.
Stöðva á fjárnám og uppboð á íbúðarhúsnæði
Framtíð íslensks samfélags ræðst af því hvernig stjórnvöld bregðast við núna gagnvart heimilunum og er tíminn til aðgerða mjög naumur, segir í ályktun stofnfundar Hagsmunasamtaka heimilanna.
Gríðarlegt tap Royal Bank of Scotland og ríkið eignast 70%
Royal Bank of Scotland (RBS) hefur gefið til kynna að tap bankans á liðnu ári verðir 7-8 milljarða punda. Þá á bankinn eftir að niðurfæra viðskiptavild. Í heild gæti tapið orðið 28 milljarðar pund. Eignarhlutur breska ríkisins er kominn í 70%.
Víða hálka og þungfært í Skagafirði
Á Suðurlandi er víða hálka eða hálkublettir. Það er hálka og éljagangur á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Norðurlandi er víða þungfært í Skagafirði en verið er að moka helstu leiðir samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.
Hætta í ESB eða verða gjaldþrota segir írskur hagfræðingur
Virtur írskur hagfræðingur segir að Írland hafi tvo kosti. Þann fyrri að draga sig út úr ESB og þar með hætta að nota evruna og þann síðari að fara á hausinn. Möguleikar Írlands til endurreisnar í efnahagsmálum eru stórlega skertir sökum evrunnar segir hagfræðingurinn
Össkur Skarphéðinsson virðist pirraður í garð framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar, eins og Smáfuglarnir hvíslu um í morgun. Ástæðan verður skýrari þegar heilsíðuauglýsing Samfylkingarinnar í Fréttablaðinu í morgun er lesin.