| « 17. janúar |
■ 18. janúar 2009 |
» 19. janúar |
Segir olíuverð geta farið niður í 10 dollara á tunnu
Olíuverð hefur lækkað um meira en 110 dollara á tunnu frá því í sumar. Ýmsir hafa spáð því að það fari í 25 dollara á tunnu en nú sér bandarískur sérfræðingur fyrir sér að það geti hrapað alveg niður í 10 dollara á tunnu.
Segir kaup Katarsjeiksins hafa kostað Kaupþing 37,5 milljarða
Kaup hins konungsborna Al-Thani frá Katar á tuttugu og fimm milljarða króna hlut í Kaupþingi kostuðu bankann sjálfan 37,5 milljarða, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Eygló Harðardóttir ritari Framsóknarflokksins
Eygló Harðardóttir alþingismaður var kjörin ritari Framsóknarflokksins með tæplega 73% atkvæða eða miklum meirihluta. Sæunn Stefánsdóttir sóttist eftir endurkjöri í ritarastarfið en varð að láta í minnipokann.
Birkir Jón Jónsson varaformaður Framsóknarflokksins
Birkir Jón Jónsson alþingismaður var kjörinn nýr varaformaður Framsóknarflokksins. Hann hlaut 59% atkvæða en Siv Friðleifsdóttir alþingismaður fékk 38,33% atkvæða.
Birkir Jón og Siv í aðra umferð í varaformannskjöri
Fara þarf í aðra umferð í varaformannskjöri Framsóknarflokksins þar sem enginn hlaut meirihluta atkæða í fyrri umferð. Birkir Jón Jónsson alþingismaður hlaut 48.7% atkvæða og Siv Friðleifsdóttir alþingismaður hlaut 39,6%.
Vilji til algerrar endurnýjunar, segir nýr formaður Framsóknarflokksins
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins, segir kjörið sýna að vilja flokksmanna til algerrar endurnýjunar - en byggt verði á gildum flokksins. Hann segir bráðaþörf á að vinna úr vanda heimilanna og býður ríkisstjórninni aðstoð flokksins við þá vinnu.
Sigmundur Davíð formaður Framsóknar - ekki Höskuldur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var kosinn formaður Framsóknarflokksins en ekki Höskuldur Þórhallsson eins og tilkynnt hafði verið á flokksþinginu. Tölur víxluðust. Sigmundur Davíð fékk 449 atkvæði en Höskuldur 340.
Sigmundur Davíð efstur - kosið milli hans og Höskuldar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fékk flest atkvæði í formannskosningu Framsóknarflokksins, 351. Í öðru sæti varð Höskuldur Þórhallsson. Hann fékk 325 atkvæði. Í þriðja sæti varð Páll Magnússon. Hann fékk 162 atkvæði. Kjósa þarf á ný milli Sigmundar Davíðs og Höskuldar.
Valgerður hlaut jafnréttisverðlaun Framsóknarflokksins
Valgerður Sverrisdóttir, fráfarandi formaður Framsóknarflokksins, hlaut jafnréttisverðlaun flokksins. Hún varð fyrst kvenna varaformaður og formaður Framsóknarflokksins og settist einnig fyrst kvenna í stól iðnaðar- og viðskiptaráðherra og utanríkisráðherra.
Fjárfestingafélagið Kcaj, sem er dótturfélag Milestone, gæti farið í greiðslustöðvun takist ekki að selja hluta af eignum eða fá nýtt inn hlutafé. Félagið á hlut í nokkrum hátískuverslunarkeðjum eins og Cruise, Duchamp, Aspinal of London, Jones Bootmaker og Mountain Warehouse.
Formannskosningar Framsóknarflokksins í hádeginu
Gengið verður til formannskosningar í Famsóknarflokknum klukkan tólf á hádegi. Fimm eru í framboði en slagurinn stendur milli þriggja, Höskuldar Þórhallssonar, Páls Magnússonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Skíðasvæðið í Bláfjöllum er opið frá kl. 10-17 í dag. Tilvalið er því að drífa sig í fjöllin, teygja á stirðum vöðvum og anda að sér fjallaloftinu. Liftur eru í gangi í Kóngsgili og göngubraut hefur verið lögð.
Hálka syðra og vestra en snjókoma fyrir norðan og austan
Hálka er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka er einnig víða á Suðurlandi, Vesturlandi og á flestum leiðum bæði á Vestfjörðum og á Norðurlandi. Það snjóar á Norðaustur- og Austurlandi og þar er ýmist hálka eða snjóþekja.