| « 16. janúar |
■ 17. janúar 2009 |
» 18. janúar |
Flugferill US Airways þotunnar gefinn út
Bandarísk flugmálayfirvöld hafa gefið út flugleið þotunnar sem nauðlenti í Hudson ánni í New York á fimmtudag. Athygli vekur að flugmaður velur strax að fljúga meðfram Hudson ánni meðan hann íhugaði möguleika sína.
Ekki allar nauðlendingar í vatni enda vel
Í kjölfar nauðlendingar farþegaflugvélar á Hudson á í New York hafa spunnist umræður í flugheimi um hvernig best sé að nauðlenda flugvélum á vatni. Myndbönd af öðrum slysum sýna að miklu skiptir hvernig að málum er staðið.
Myndband af nauðlendingu farþegaþotu á Hudson ánni
Komin eru fram myndbönd af því þegar farþegaþota á vegum US Airways með 150 farþega innanborðs nauðlendir á Hudson ánni sem rennur meðfram Manhattan eyju í New York borg. AMX birtir hér myndband af atvikinu.
Engin viðskipti vegna svikamyllu Madoffs
Rannsóknarnefnd um svikamyllu Bernards Madoff hefur ekki fundið nein ummerki um að félagið hafi nokkurn tíma stundað verðbréfaviðskipti með peninga frá fjárfestum.
Tölvuveira smitar þrjár milljónir tölva
Tölvuveira, sem fyrst uppgötvaðist í október, hefur nú smitað þrjár milljónir tölva sem innihalda Windows stýrikerfið. Notendur þess eru hvattir til að setja inn nýjustu öryggisviðbætur og ganga úr skugga um að vírusvörnin uppfærist reglulega.
Hálka er á vegum víða um land, m.a. á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er hálka á Austurlandi og Vestfjörðum en snjóþekja á Vesturlandi.
Björgunarpakki breska ríkisins nálgast eina billjón punda
Breska ríkisstjórnin undirbýr enn meiri björgunaraðgerðir vegna stöðu bankakerfisins. Þetta þýðir að ríkissjóður hefur lagt nær eina billjón punda fram vegna fjármálakreppunnar sem jafngildir um 33 þúsund pundum á hvern skattgreiðenda
Sala Alfesca dregst saman og búist við frekari samdrætti
Sala Alfesca á öðrum ársfjórðungi reikningsárs fyrirtækisins, dróst saman um 3,4% miðað við sama tíma fyrir ári. Forráðamenn fyrirtækisins búast við erfiðleikar í efnahagslífi hafi áhrif á reksturinn á komandi mánuðum.
Obama líklegur til að auka stuðning við banka
Hugsanlegt er að stofnaður verði „vondur“ banki til að kaupa „eitraðar“ eignir bandarískra fjármálafyrirtækja. Samhliða verði tryggt að fjármálafyrirtæki fái nýtt fé til að styrkja efnahagsreikninginn. Ríkið hefur þegar veitt ábyrgðir upp á mörg hundruð milljarða dollara.
Það er stórhríð á Fróðárheiði og beðið með mokstur. Annars er víða krap eða snjóþekja á Snæfellsnesi og við Faxaflóa en hálka í Dölunum. Skafrenningur er á Holtavörðuheiði samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.
Kappræður milli formannsefna á flokksþingi Framsóknarflokksins
Um 700 þingfulltrúar hafa skráð sig til þátttöku og greitt þinggjöld á flokksþingi framsóknarmanna sem var sett í gær, föstudag. Í tilkynningu frá Framsóknarflokknum segir að búast megi við að nokkuð bætist við hópinn í dag.