| « 15. janúar |
■ 16. janúar 2009 |
» 17. janúar |
Dönsku fríblöðin metroXpress og 24timer fá opinbera styrki
Fríblöðin tvö í Danmörku, metroXpress og 24timer fá í fyrsta skipti á opinberan styrk nú árið 2009. Blöðin voru harðir keppinautar Nyhedsavisen, fríblaðsins sem Íslendingar stofnuðu í Danmörku árið 2006. Það naut ekki styrkja og varð gjaldþrota í haust.
Nokia hefur kynnt nýjan síma, Nokia N79 Active, sem sérstaklega er ætlaður íþróttamönnum. Síminn tengist hjartsláttarmæli og inniheldur GPS tæki sem mælir vegalengdir og skráir leiðir.
Framsókn vill viðræður við Evrópusambandið
Flokksþing Framsóknarflokksins hefur samþykkt ályktun um að Ísland gangi til viðræðna við Evrópusambandið um hugsanlega aðild, en með vissum skilyrðum. Meðal annars eru skilyrði hvað varðar sjávarútveg og landbúnað.
Hringdans Valgerðar í Evrópumálum
Erfitt er að átta sig á stefnu Valgerðar Sverrisdóttur í Evrópumálum. Í einu orði segist hún hlynnt því að sótt sé um aðild að Evrópusambandinu, en í hinu telur hún að tryggja þurfi sérréttindi sem vitað er að aldrei verður fallist á af hálfu Evrópusambandsins.
Stjórn LÍÚ fagnar ákvörðun sjávarútvegsráðherra
Stjórn LÍÚ fagnar þeirri ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að auka heildaraflamark í þorski á yfirstandandi fiskveiði ári um 30.000 tonn. Stjórnin áætlar að aflaukningin geti numið 10 milljörðum króna í útflutningstekjum.
Allir bankastjórarnir stóðust hæfismat FME
Bankastjórar nýju bankanna hafa farið í gegnum hæfismat Fjármálaeftirlitsins og hefur þeim verið tilkynnt að þeir hafi staðist matið. Frá því var greint í dag að Glitnir ætli að láta alla helstu stjórnendur bankans fara í gegnum sérstakt hæfismat.
Forstjóri Hafró gagnrýnir ákvörðun ráðherra um þorskkvótaaukningu
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, gagnrýnir þá ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að auka þorskkvótann um 30 þúsund tonn. Forstjórinn telur að bíða hefði átt niðurstaðna mælinga á þorskstofninum.
Lífslíkur krabba- meinssjúklinga mestar á Íslandi og Svíþjóð
Lífslíkur þeirra sem greinast með krabbamein eru mestar á Íslandi og í Svíþjóð. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem unnin var fyrir samtök lyfjafyrirtækja í Evrópu. Lífslíkur sjúklinga í Tékklandi eru mun lakari.
Sporlausar hótunargreiðslur Baggers
Bústjóri þrotabús danska fjársvikarans Stein Baggers segist hvergi finna merki um peningagreiðslur til þeirra sem svikarinn segir hafa hótað sér margoft undanfarin ár. Ekki sé þó útilokað að slíkt hafi verið greitt af erlendum reikningum.
Hertz segir 4 þúsund manns upp störfum
Bandaríska bílaleigan Hertz hefur tilkynnt um uppsagnir 4000 starfsmanna. Ástæðan er mikill samdráttur í eftirspurn eftir bílaleigubílum.
Sala hluta íbúðalána SPRON til Íbúðalánasjóðs á lokastigi
Viðræður við Íbúðalánasjóð um sölu á hluta af íbúðalánum SPRON að verðmæti 20 milljarða króna eru á lokastigi. Heildarútlán SPRON við níu mánaða uppgjör félagsins árið 2008 námu 206,5 milljörðum króna.
Mótmælafundur í Háskólabíó vegna Gaza
Fjölmörg félagasamtök, stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök gangast fyrir mótmælafundi í Háskólabíói á sunnudaginn undir kjörorðinu: Þjoðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza.
Genís vinnur að tímamótaverkefni í bæklunarlækningum
Líftæknifyrirtækið Genís vinnur nú að verkefni með framleiðslu á kítínafleiðum sem unnar eru úr rækjuskel. Þróun verkefnisins miðar að vörum til notkunar við bæklunarskurðlækningar með ígræðslu í beinvef. Framkvæmdastjórinn telur að um tímamótaverkefni sé að ræða, gangi allt eftir.
Konur skipa meirihluta Umferðarráðs í fyrsta sinn
Konur skipa nú í fyrsta skipti meirihluta í Umferðrráði. Af 23 aðalfulltrúum eru 13 konur. Karl V. Matthíasson alþingismaður er formaður og Birna Hreiðarsdóttir, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu, er varaformaður.
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Markaðarins, viðskiptablaðs Fréttablaðsins, er hættur störfum á blaðinu. Fréttablaðið þarf, eins og aðrir fjölmiðlar, að rifa seglin og fækka fólki, segir hann. Þessi hafi því orðið niðurstaða sín og stjórnenda blaðsins.
100.000.000.000.000 seðill í Zimbawe
Nýjasti peningaseðillinn í Zimbabwe segir allt um ástand efnahagsmála þar. Á honum er talan 100.000.000.000.000 dollarar, eða eitt hundrað þúsund milljarðar Zimbawedollarar, eða 100 billjónir. Þegar Mugabe, forseti landsins, komst til valda árið 1980 var einn Zimbabwedollar jafngildur einu bresku pundi.
Lykilstjórnendur Nýja Glitnis gangast undir hæfismat
Lögfræði- og regluvörslusvið Nýja Glitnis hefur, að beiðni bankastjóra og undir stjórn regluvarðar, sett á fót sérstaka fræðslu fyrir framkvæmdastjóra og lykilstarfsmenn bankans um laga- og regluumhverfi á fjármálamarkaði.
Aulaskapur, aðgerðaleysi og taumlaus græðgi
Valgerður Sverrisdóttir, fráfarandi formaður Framsóknarflokksins, segir framsóknarmenn verðir að móta stefnu sem getur vísað þjóðinni veginn út úr þeim vanda sem við blasir í kjölfar þess að alþjóðleg fjármálakreppa varð að íslensku efnahagshruni, ásamt aulaskap og aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar og taumlausri græðgi og fífldirfsku fjármálageirans.
Óvinsæli stríðsforsetinn yfirgefur sviðið
Komið er að leiðarlokum á stjórnmálaferli George W. Bush, 43. forseta Bandaríkjanna, eins umdeildasta stjórnmálamanns í sögu Bandaríkjanna. Við forsetakjörið 2000 var Bush algjörlega óreyndur í utanríkismálum en hann fer í sögubækurnar sem stríðsforseti á umbrotatímum og í umdeildum ákvörðunum í alþjóðastjórnmálum eru örlög stjórnmálaferils hans mörkuð. Stefán Friðrik Stefánsson fer í fréttaskýringu yfir forsetaferil stríðsforsetans frá Texas.
Þriðji stærsti banki Írlands þjóðnýttur
Írsk stjórnvöld tilkynntu í gærkvöld að Anglo Irish bankinn, sem er þriðji stærsti banki landsins, hefði verið þjóðnýttur. Írland hefur ekki farið varhluta af þeim hamförum sem geisað hafa á alþjóðlegum fjármálamörkuðum en landið er gjarnan borið saman við Ísland þegar um það er fjallað, segir Greining Glitnis.
Íbúðaverð lækkar á höfuðborgarsvæðinu
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,3% á milli nóvember og desember síðastliðinn samkvæmt upplýsingum sem Fasteignskrá Íslands birti í gær. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 2,5% að nafnverði á síðasta ári og um tæplega 18% að raunvirði, segir Grerining Glitnis.
Laun forsetans lækka í samræmi við laun forsætisráðherra
Laun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, verða lækkuð á sama hátt og laun forsætisráherra. Forsetinn óskaði eftir þessu eftir að Kjararáð úrskurðaði að það hefði ekki heimild til að lækka laun forsetans.
FME veitir fjórum fyrirtækjum innheimtuleyfi
Fjármálaeftirlitið hefur veitt fjórum fyrirtækjum innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum. Þau eru Alskil, SPRON Factoring, Veita innheimtuþjónusta og Intrum á Íslandi.
Ráðherra íhugar lagasetningu um kynjakvóta
Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra hallast æ meir að notkun kynjakvóta til þess að uppfylla ákvæði stjórnarskrárinnar um jafnan rétt kvenna og karla og vill skoða alvarlega setningu laga í því skyni.
Þorskkvótinn aukinn í 160 þúsund tonn
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð þar sem hámarksafli í þorski er aukinn um 30 þúsund tonn. Heildaraflamark verður því 160 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári, í stað 130 þúsund tonna.
Flugstjórinn hylltur sem hetja
Nær fjörutíu ára reynsla nýttist þegar Chesley B. Sullenberger, einnig kallaður Sully, nauðlenti Airbus 320 þotu US Airways á Hudson ánni eftir flugtak í New York í gærkvöld. Á hljóðupptöku úr flugstjórnarklefanum heyrist að flugstjórinn hélt ró sinni og nauðlenti vélinni meistaralega við afar erfiðar aðstæður.
Kjararáð leggur það í hendur forseta að afsala sér hluta launa
Kjararáð hefur hafnað því að lækka laun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Í niðurstöðu þess felst hins vegar ekki afstaða til þess, hvort sá sem gegnir embættinu geti sjálfur afsalað sér hluta launa sinna, eða þeim öllum, tímabundið eða varanlega.
Borgaryfirvöld í Washington búa sig undir gríðarlega fólksmergð í borginni vegna innsetningar Baracks Obama, hins nýja forseta. Gert er ráð fyrir allt að fjórum milljónum gesta. Minjagripir tengdir Obama, jafnvel sósur, seljast gríðarvel. Það er Obama-æði.
Honda segir upp 3100 starfsmönnum
Japanski bílaframleiðandinn Honda hefur tilkynnt að 3100 starfsmönnum fyrirtækisins verði sagt upp störfum. Uppsagnirnar koma í kjölfar minni eftirspurnar. Við því bregst fyrirtækið með því að draga úr framleiðslu.
Skipting kynja meðal forstöðumanna ríkisstofnana var í janúar 2007 þannig að af 210 forstöðumönnum voru 162 þeirra karlar (77%) en 48 konur(23%). Þetta kemur m.a. fram í skýrslu félags- og tryggingamálaráðherra sem kynnt er á jafnréttisþingi sem hófst í morgun.
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 79,7 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2008 samanborið við 68,9 milljarða á sama tímabili árið 2007. Aflaverðmæti hefur aukist um 10,7 milljarða eða 15,6% á milli ára.
Tap sænsk-japanska farsímarisans SonyEricsson nam 261 milljón evra á síðasta fjórðungi liðins árs, eða um 44 milljörðum króna, sem er mun meira en búist hafði verið við. Velta var minni og færri farsímar seldust en árið áður.
Bank of America bjargað fyrir horn með 138 milljörðum dollara
Bank of America mun fá 20 milljarða dollara frá alríkinu og jafnvirði 118 milljarða dollara ábyrgðir vegna áhættusamra eigna. Með þessu er reynt að vinna upp fyrirsjáanlegt tap bankans vegna yfirtökunnar á Merrill Lynch.
N1 hækkaði í gær verð á bensíni um sex krónur og dísilolíu um fjórar krónur. Skeljungur hækkaði bensín um fjórar krónur. Olís hefur ekki hækkað verð þegar þetta er skrifað og er bensín lítrinn fjórum til sex krónum ódýrari þar en hjá N1 og Skeljungi.
Eimskip semur við skuldabréfaeigendur
Eimskip hefur samið við eigendur 90% að virði skuldabréfa í flokknum HFEIM081, útgefinn að verðmæti 1.610 milljóna króna. Forráðamenn félagsins vinna að því að ná samskonar samkomulagi við eigendur annarra skuldabréfaflokka sem félagið hefur gefið út.
Asía réttir úr kútnum eftir lítilsháttar hækkun í Bandaríkjunum
Hlutabréf í Asíu hækkuðu í verði í kjölfar veikingar á jeni og væntinga um að kínversk stjórnvöld muni grípa til frekari ráðstafana í efnahagsmálum. Helstu hlutabréfavísitölur hækkuðu í Bandaríkjunum í gær, en gríðarleg lækkun varð að gengi hlutabréfa í stærstu bönkum.
Þrír á slysadeild eftir bruna á Klapparstíg
Þrír voru fluttir á slysadeild vegna reykeitrunar, eftir að hús við Klapparstíg 17 í Reykjavík brann í nótt. Níu íbúar voru í húsinu. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á vettvang og tókst að verja nærliggjandi hús, sem voru rýmd.