amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:01
 

Fimmtudagurinn 15. janúar 2009

«
14. janúar

15. janúar 2009
»
16. janúar
Fréttir

Flugslys í New York - allir björguðust

Airbus A320 farþegaþota frá US Airways flug­félaginu hrapaði í Hudson ánna sem rennur í gegnum New York. Að minnsta kosti 150 farþegar voru um borð. Björgunarsveitir hafa hafa unnið að björgun og er talið að allir hafi komist lífs af.

Um raunveruleg kaup að ræða á hlutum í Kaupþingi

Telma Halldórs­dóttir, lögmaður og stjórnar­maður í íslensku fjárfestingar­félagi Sheiks Al-Thani frá Katar, segir að kaupin á hlutum í Kaupþingi hafi ekki verið blekking, líkt og haldið hefur verið fram.

Útskrift úr framhaldsnámi Stóriðjuskóla ISAL

Ellefu nemendur voru í dag útskrifaðir úr framhaldsnámi Stóriðjuskóla ISAL og er það í annað sinn sem útskrifað er úr framhaldsnáminu. Stóriðjuskólinn hefur verið starfræktur við álverið í Straumsvík í hart nær ellefu ár.

Google lokar þjónustum og skrifstofum

Hugbúnaðarrisinn Google, sem þekktastur er fyrir sam­nefnda vefleitarvél, tilkynnti í gær að nokkrum af þjónustum fyrirtækisins yrði lokað. Einnig verður þremur skrifstofum fyrirtækisins lokað og hægt verulega á ráðningum nýs fólks.

Billundflugvöllur líður fyrir gjaldþrot Sterling

Billundflugvöllur á Jótlandi í Danmörku, næst stærsti flugvöllurinn þar í landi, missti spón úr aski sínum er flug­félagið Sterling varð gjaldþrota. Farþegamet var slegið áður en félagið fór í þrot en nú er búist við fækkun, jafnvel næstu árin.

Endurreisn hlutabréfa­markaðar mikilvæg

Endurreisn hlutabréfa­markaðar á Íslandi er lykilþáttur í uppbyggingarstarfi í íslenskum þjóðar­búskap á næstu misserum. Íslenskur hlutabréfa­markaður varð fyrir miklu áfalli við hrun viðskiptabankanna þriggja, segir á síðu Samtaka atvinnulífsins.

Hluta­bréf Bank of America og Citigroup í frjálsu falli

Hluta­bréf Banka of America, sem er stærsti banki Bandaríkjanna, snarféllu í verði um allt að 28%. Síðustu sjö viðskiptadaga hafa hluta­bréf bankans fallið um nær 44%. Citigroup er einnig í frjálsu falli. Síðustu sjö viðskiptadaga hafa bréfin lækkað um 46%.

Fjárfestinga­sjóður Íslands - 75 milljarða fjárfestingargeta

Samtök atvinnulífsins og Alþýðu­samband Íslands hafa beitt sér fyrir því á vettvangi lífeyris­sjóðanna að stofnaður verði á þeirra vegum Fjárfestinga­sjóður Íslands í því skyni að taka þátt í endurreisn atvinnulífsins. Þessi sjóður verður öflugur með 75 milljarða króna fjárfestingagetu á þremur árum.

SA: Háir vextir uppskrift að nýju hruni

Lækka verður vextina til þess að minnka vandann því að fyrirsjáanleg útlánatöp með þessum háu vöxtum er ekkert annað en uppskrift að hruni nýju bankanna þá loksins þegar og ef þeir komast af stað, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda­stjóri Samtaka atvinnulífsins.

Fjöldi sækir jafnréttisþing

Hátt í fimm hundruð manns hafa skráð sig til þátttöku á jafnréttisþingi sem fram fer á Nordica Hilton í Reykjavík á morgun, föstudag. Jóhanna Sigurðar­dóttir félags- og tryggingamála­ráðherra boðar til þingsins.

Samstarfssamningur um viðskipti við Bandaríkin

Undirritaður var í dag rammasamningur um samstarf um viðskipti og fjárfestingar á milli Íslands og Bandaríkjanna. Viðskipti landanna árið 2007 námu sem svarar til 100 milljörðum íslenskra króna, þar af nam innflutningur frá Bandaríkjunum 75 milljörðum íslenskra króna.

Fiskveiðisamningur Íslands og Færeyja

Færeysk skip fá heimild til að veiða 30 þúsund lestir af loðnu við Ísland á loðnuvertíðinni 2009/2010 svo fremi að útgefinn kvóti verði a.m.k. 500 þúsund lestir. Botnfiskveiðiheimildir Færeyinga við Ísland verða óbreyttar á árinu 2009.

Sænska krónan gefur eftir

Sænskt efnhagslíf er í kreppu og það versnaði enn í dag. Það er alþjóðlega kreppan sem leikur Svía grátt enda eru Svíar mikið útflutningsríki. Sænska krónan hefur ekki staðið verr gagnvart dollar í fimm ár.

Styttist í upptöku evru í Póllandi

Samningar Seðlabanka Evrópu og Evrópu­ráðsins við pólsk stjórnvöld um upptöku evru í landinu lýkur væntanlega í þessum mánuði eða þeim næsta. Gengi hins pólska zloty verður síðan bundið við evruna í tvö ár en gert er ráð fyrir evruupptöku í Póllandi 2012.

Játar íkveikju

Karlmaður um fimmtugt hefur játað að hafa kveikt í húsi við Tryggvagötu í Reykjavík eftir hádegi í gær. Hann var handtekinn annars staðar í borginni nokkru síðar.

Skuldir sveitar­félaga um 230 milljarðar

Skuldir sveitar­félaga eru að líkindum um eða yfir 230 milljarðar króna. Skuldir án lífeyrisskuldbindinga og skuldbindinga utan efnahags eru áætlaðar 130 milljarðar króna samkvæmt Hag- og upplýsinga­deild Samtaka íslenskra sveitar­félaga.

Kreppan breytir matarvenjum Norðmanna

Norðmenn sjá fram á breyttar matarvenjur. Tekjur margra minnka á árinu 2009. Það verður til þess að frosin matvara kemur í auknum mæli í stað hinnar fersku. Fólk borðar fremur heima en á dýrum veitingastöðum.

Danski seðlabankinn lækkar stýrivexti um 0,75%

Seðlabanki Danmerkur lækkaði stýrivexti um 75 punkta, 0,75%, úr 3,75 í 3% og gengur þannig skrefinu lengra en Seðlabanki Evrópu sem fyrr í dag lækkaði vexti um 0,5%.

Kröfum Jóns Ásgeirs vísað frá héraðsdómi

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá dómi kröfum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um að úrskurða eigi rannsókn ríkislögreglu­stjóra á meintum skattalagabrotum ólögmæta. Sama gildir um mál Kristínar systur hans.

Kannabisræktun í Mosfellsbæ

Lög­reglan stöðvaði kannabisræktun í húsi í Mosfellsbæ í gær. Við húsleit á áður­nefndum stað fundust um 50 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar.

Spáð í framtíð evrunnar

Munur á langtímavöxtum ríkja á evru­svæðinu hefur aukist verulega á undanförnum vikum og mánuðum, og hefur það hleypt vindi í segl vangaveltna um það hvort hin tíu ára gamla mynt, evran, eigi framtíð fyrir sér, segir Greining Glitnis.

Tveir teknir fyrir ölvunarakstur

Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgar­svæðinu í gærkvöld. Fyrst var karl um fertugt tekinn fyrir þessar sakir og síðan karl á sextugsaldri.

Seðlabanki Evrópu lækkar stýrivexti í 2%

Það fór eins og flestir spáðu. Seðlabanki Evrópu hefur tilkynnt um 0,5% vaxta­lækkun, úr 2,5% í 2%. Reiknað er með því að bankinn haldi áfram á sömu braut og lækki vexti aftur í vor og fari með þá í 1,5%.

Innbrot og þjófnaðir

Sjö innbrot í bíla voru tilkynnt til lög­reglunnar á höfuðborgar­svæðinu í gær en tölvum var stolið úr þremur þeirra. Tölvu var sömuleiðis stolið úr verslun í Kópavogi og í miðborginni gekk innbrotsþjófur í flasið á húsráðanda.

Krónan hefur styrkst

Því verður ekki neitað að markmiðið um að styrkja krónuna hefur náðst. Styrkingin er 12% gagnvart evru og 17% gagnvart dollaranum. Krónan er hins vegar enn veik í sögulegu ljósi, segir Greining Glitnis.

Vaxta­ákvörðunar á evru­svæðinu beðið

Seðlabanki Evrópu tilkynnir um vaxta­ákvörðun sína rétt eftir hádegið í dag. Vextir á evru­svæðinu standa nú í 2,5% eftir að hafa verið lækkaðir hratt á haustmánuðum. Langflestir greinendur ráð fyrir að vextir verði lækkaðir um 0,50 prósentustig, segir Greining Glitnis

Spá falli punds og dollars

Sér­fræðingar norska bankans DnB Nor spá hruni pundsins þegar líður á árið. Hið sama muni eiga við um dollarann þótt hann verði sterkur gagnvart evru enn um sinn. Slæmt efnahagsástand í Bretlandi og Bandaríkjunum ráði þessari þróun.

Heimkoma utanríkis­ráðherra tefst

Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir utanríkis­ráðherra verður lengur undir læknishendi í Svíþjóð en ráð var fyrir gert vegna þess höfuðmeins sem hún kenndi sér fyrst í september. Frekari sýnataka fer fram áður en til geislameðferðar kemur.

Danskir bankar með milljarðakröfur á Madoff

Viðskiptavinir danskra banka og sjóða eru meðal þeirra sem töpuðu stórupphæðum á hinum viðamiklu fjármálasvikum bandaríska fjárfestisins Bernard Madoffs.

Félögum í Ísland-Palestína fjölgar

Rúmlega sjötíu manns hafa skráð sig í Félagið Ísland-Palestína síðustu daga gegnum heimasíðu félagsins, www.palestina.is, segir í frétt frá félaginu.

Iceland Express með „rýmingarsölu“

Iceland Express stendur í dag fyrir rýmingarsölu á flugmiðum til fjögurra vinsælustu áfangastaða sinna.

Umfangsmikil rannsóknaraðgerð vegna innbrota í Árnessýslu

Lög­reglan á Selfossi handtók í gær sextán aðila í tengslum við rannsókn á innbrotum og þjófnuðum í gróðurhús og sumarbústaði í umdæmi lög­reglunnar á Selfossi. Aðgerðin beindist einnig að meintum fíkniefnabrotum.

Aðgerðaleysið stappaði nærri landráðum

Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknar­flokksins, segir viðbragðaleysi íslenskra stjórnvalda gegn hryðjuverkalagaárás Breta í haust stappa nærri landráðum, trúlega þó af vangá eða hugsunarleysi. Málstaður Íslands hafi tapast í ódrengilegustu aðför stórþjóðar gagnvart vopnlausri vinaþjóð.

Fyrrverandi njósnari KBG vill kaupa breskt dagblað

Svo gæti farið að fyrrverandi sendimaður KGB yrði eigandi að Evening Standard, síðdegisblaðinu. Hann nýtti sér blaðið sem uppsprettu upplýsinga þegar hann starfaði sem njósnari fyrir KGB í London.

Guðni Ágústsson: Innan­flokksátök og óheilindi lituðu flokksstarfið

Ég fann að sú sáttaleið sem ég boðaði og samstarfið með þingmönnum og ýmsum lykilmönnum í flokknum var að snúast upp í andhverfu sína Samstaðan var rofin og að baki því stóð skipulagður hópur fólks. Ég varð fyrir tæpum þremur árum skotspónn þessa sama hóps þegar átti að koma mér út úr pólitík þegar Halldór Ásgrímsson var á förum, segir Guðni Ágústsson, fyrrum formaður Framsóknar­flokksins, sem gerir upp brotthvarfið úr flokknum í Sunnlenska fréttablaðinu.

Steve Jobes tekur veikindaleyfi og hluta­bréf Apple lækka

Veikindi Steve Jobs, for­stjóra og leiðtoga Apple, eru alvarlegri en áður hefur verið gefið í skyn. Hann þarf að taka sér leyfi frá störfum a.m.k. fram í júní. Hluta­bréf í Apple féllu um 7% þegar fréttirnar bárust.

Hluta­bréf í Asíu og Bandaríkjunum snarfalla

Hluta­bréf á helstu mörkuðum í Asíu snarféllu í verði í dag en í gær varð veruleg lækkun í Bandaríkjunum. Samdráttur í smásölu varð helmingi meiri í desember en reiknað var með. Fjármála­fyrirtæki urðu verst úti í verðfallinu, en hluta­bréf Citigroup lækkuðu um 23%.

Flughálka víða á Vestfjörðum og Norðurlandi

Sumstaðar er flughálka á Vestfjörðum og á Norðurlandi. Á Suðurlandi er hálka og hálkublettir. Hálkublettir eru á Sandskeiði, snjóþekja á Hellisheiði og hálka í Þrengslum.

Fuglahvísl

Vinátta og fræðimennska

Robert Wade, prófessor í stjórnmálahagfræði, hefur komið eins og stormsveipur inn í þjóð­félags­umræðuna síðustu daga. Wade er í nánu vinfengi við Íslendinga.

Að loka eða loka ekki BT verslunum, það er spurningin

Á stundum virðist sem forráðamenn fyrirtækja haldi að almenningur sé hópur einfaldra kjána. Sverrir Berg Steinarsson, eigandi Árdegis sem átti BT verslanirnar, telur að hægt sé að segja hvað sem er til rétta sinn hlut.

Jón Ásgeir réði ferðinni í Glitni

Fyrir fall bankanna var Jón Ásgeir Jóhannesson ráðandi hluthafi í Glitni í gegnum FL Gorup (Stoðir). Það var því ekki óeðlilegt að Bjarni Ármannsson ræddi beint við hann en ekki stjórn bankans um starfslok. Jón Ásgeir sat ekki í stjórninni en hafði bein áhrif á allar meiriháttar ákvarðanir bankans þegar hann vildi.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX