amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:23
 

Miðvikudagurinn 14. janúar 2009

«
13. janúar

14. janúar 2009
»
15. janúar
Fréttir

Framsóknar­flokkur vill aðildar­viðræður og stjórnlagaþing

Framsóknar­flokkurinn leggur til að hafnar verði aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið samkvæmt drögum að ályktun fyrir landsþings flokksins. Þá er einnig lagt til að stjórnskipun Íslands verði endurskoðuð á sérstöku stjórnlagaþingi.

Hafa 25 milljarðar týnst?

Yfirvöld eru að rannsaka hvað orðið hafi að 25,5 milljörðum króna sem Sheik Mohamed bin Khalifa Al-Thani, bróðir emírsins í Katar, greiddi fyrir 5,1% hlut í Kaupþingi. Peningarnir finnast ekki og því er spurt hvernig að kaupunum hafi verið staðið.

Uppsagnir boðaðar hjá Landhelgisgæslunni

Tilkynnt verður um uppsagnir hjá Landhelgisgæslunni á morgun en þá hefur verið boðað til starfsmannafundar. Vísir telur að um 20 manns verði sagt upp störfum.

Chevrolet seldi yfir hálfa milljón bíla í Evrópu

Chevrolet seldi fleiri bíla í Evrópu á liðnu ári en nokkru sinni fyrr, yfir hálfa milljón bíla. Aukningin nam 11% milli ára þótt almennt drægi úr bílasölu í álfunni. Chevrolet Cruze verður nýr valkostur framleiðandans í vor.

Eigið fé Eimskips neikvætt um 25 milljarða króna

Ljóst er að Eimskip þarf að afskrifa eignir mun meira en reiknað var með þegar félagið sendi frá sér afkomuviðvörun í desember síðastliðnum. Niðurfæra þarf viðskiptavild, sem og aðrar eignir. Eigið fé er neikvætt um 150 milljónir evra eða 25 milljarða.

Hamas fellst á vopnahlé

Hamas­samtökin eru sögð hafa fallist á tillögu Egyptalands um vopnahlé í átökum við Ísrael á Gazaströndinni. Ísraels­stjórn íhugar nú tillögu Egypta og svarar á morgun

Sigmundur Davíð: Ríkinu ber ekki að ábyrgjast Icesave

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, einn þeirra sem boðið hafa sig fram í formannsembætti í Framsóknar­flokknum, birtir á bloggsíðu sinni upplýsingar sem hann segir staðfesta þá túlkun íslenskra og breskra lögmanna, á tilskipun ESB um innistæðutryggingar, að íslenska ríkinu beri ekki að ábyrgjast Icesave-skuldbingingarnar.

Íslenskur hugbúnaður í verðlauna­sæti

Innri vefur Kaupþings sem keyrður er í vefumsjónarkerfinu LiSa frá Eskli hefur verið valinn einn af 10 bestu í heimi af Nielsen Norman Group. Niðurstaðan er mikil viðurkenning fyrir Kaupþing og staðfestir að vefurinn er á heimsmælikvarða, segir á vef bankans.

Ístak leitar verkefna í Grænlandi, Færeyjum og Noregi

Verktaka­fyrirtækið Ístak leitar nú verkefna í auknum mæli á erlendri grundu, á Grænlandi, í Noregi og Færeyjum. Loftur Árnason, framkvæmda­stjóri Ístaks, segir markaðinn hér á landi algjörlega dauðan.

Hluta­bréf lækka verulega í Bandaríkjunum og Evrópu

Hluta­bréf hafa lækkað verulega í verði á mörkuðum í Bandaríkjunum það sem af er degi. Lækkunin var enn meiri í Evrópu. FTSE 100 vísitalan lækkaði um 5,2% og hluta­bréf í Royal Bank of Scotland voru í frjálsu falli. Citigroup hefur fallið um 16%.

Segir olíu­sjóðinn mesta fjármálaslys Noregs

Fjárfestirinn Øystein Stray Spetalen segir norska olíu­sjóðinn, lífeyris­sjóð landsmanna, hafa tapað 8900 milljörðum króna á fjárfestingum frá árinu 1996. Því sé sjóðurinn og fjárfestingar hans mesta fjármálaslys í norskri sögu.

Samsung kynnir 50 tommu snertiskjá

Samsung hefur kynnt til sögunnar snertiskjá sem skynjar snertingar á mörgum stöðum í einu, svipað skjánum sem iPhone símarnir frá Apple notar. Þessi skjár er hins vegar 50 tommur að stærð.

Met einkaleyfa hjá IBM

Þráðlaust kerfi til að vakta barn í bílstól og aðferð til þess að aðstoða blinda í bæjarumferð með útvarpssendingu eru meðal nýjunga sem tæknirisinn IBM fékk einkaleyfi fyrir á liðnu ári. Fyrirtækið varð fyrst bandarískra fyrirtækja til þess að tryggja sér meira en 4000 einkaleyfi á einu ári.

Jólatrénu hent niður af svölunum og beint á bíl nágrannans

Ekki eru allir jafn duglegir að koma jólatrjám í hendur sorphirðumanna en víða á höfuðborgar­svæðinu hefur verið hægt að setja trén út við lóðarmörk.

Meintur brennuvargur í Tryggvagötu handtekinn

Lög­reglan á höfuðborgar­svæðinu hefur handtekið karlmann sem er grunaður um að hafa kveikt í húsinu við Tryggvagötu 10, að því er fram kemur á mbl.is. Tilkynnt var um brunann í morgun og var allt tiltækt slökkvilið kallað á staðinn.

Íslendingar gera milljarðakröfur í bú Mortens Lund

Kröfur í persónulegt bú Morten Lund, fyrrum aðal­eiganda fríblaðsins Nyhedsavisen, nema um 2,7 milljörðum króna. Þar af eru Baugur Group, Straumur og Glitnir með 1,7 milljarða króna kröfur. Íslendingar settu blaðið á laggirnar en það varð gjaldþrota í haustbyrjun.

Köttur til vandræða

Eins og flestir vita eru verkefni lög­reglunnar af ýmsum toga. Þeim þarf að forgangsraða og ekki er hægt að bregðast samstundis við öllum tilkynningum. Flestir sýna því skilning líkt og maðurinn í Hafnarfirði, sem hringdi í lög­regluna á dögunum.

Írland leitar til AGS ef opinberir starfsmenn lækka ekki launin

Írska ríkis­stjórnin hefur tilkynnt verkalýðsleiðtogum að hugsanlegt sé að Írland neyðist til að leita aðstoðar Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins, ef ekki tekst að ná samkomulagi um lækkun launa opinberra starfsmanna.

Kaupið gull og jörð úti á landi

Marc Faber, sér­fræðingur í fjárfestingum, ráðleggur fjárfestum að kaupa gull þótt hann óttist að stjórnvöld í Bandaríkjunum muni taka gull eignar­námi. Öruggast er síðan að kaupa sér jörð og læra á traktor, segir sér­fræðingurinn.

Nýnemar í Lög­regluskóla ríkisins 29 talsins

Þann 13. janúar s.l. hófu 29 nýnemar nám á fyrstu önn grunnnáms­deildar Lög­regluskóla ríkisins. Námið á önninni tekur um fjóra mánuði og í september 2009 fara nemendurnir í fjögurra mánaða starfsþjálfun í lög­reglunni.

Olíuleitarleyfi á Dreka­svæðinu boðin út

Auglýst verður eftir tilboðum í olíuleitarleyfi á Dreka­svæðinu á morgun. Fýsilegt er að byggja upp stóra skipahöfn og birgðastöð í Gunnólfsvík á suðaustanverðu Langanesi ef olía og gas finnast.

Á tólfta þúsund án vinnu

Samkvæmt tölum Vinnumála­stofnunar eru 11.102 án vinnu. Síðasta sólarhringinn hefur þeim fjölgað um 252 sem eru atvinnulausir.

Snarpasti samdráttur einkaneyslu frá því að mælingar hófust

Mikill samdráttur í kortaveltu undanfarið er til marks um hversu hratt heimilin hafa hert beltið eftir að fjármálakreppan brast á síðasta haust. Tölur um veltu í smásölu­verslun segja svipaða sögu, segir Greining Glitnis.

Skuldir fyrirtækja við lánakerfið fjórföld landsframleiðsla

Útlán lánakerfisins til atvinnuveganna námu 5.518 milljörðum króna í lok september síðastliðnum eða rétt fyrir hrun bankanna. Þetta er um fjórföld áætluð landsframleiðsla síðasta árs. Skuldir fyrirtækjanna höfðu þá aukist um 44% frá upphafi árs og mun meira en skuldir heimilanna, segir Greining Glitnis

Styrkir vegna jarðskjálftatjóns greiddir út

Forsætis­ráðuneyti og fjármála­ráðuneyti munu nú hefjast handa um að greiða út styrki vegna tjóns af völdum Suðurlandsskjálftans síðastliðið vor . Þeir styrkir sem greiddir verða á næstunni eru vegna niðurrifs, endurmats á brunabótamati, tjóns á innbúum og fleira.

Gríðarlegt tap Deutsche Bank

Tap þýska stórbankans Deutsche Bank á síðasta fjórðungi liðins árs var gríðarlegt, 4,8 milljarðar evra eða sem svarar rúmum 800 milljörðum íslenskra króna. Tap ársins í heild var þó heldur minna eða rúmir 650 milljarðar króna.

Olíuverðið upp annan daginn í röð

OPEC-olíuframleiðsluríkin hafa enn hótað að draga úr olíuframleiðslu og það hefur haft þau áhrif sem þau vonuðust eftir, olíuverð hækkar annan daginn í röð. Hugsanlegt er að þau minnki framleiðslu um 2-4 milljónir olíutunna á dag til viðbótar við fyrri samdrátt.

Vöruskiptin hagstæð um 45,7 milljarða frá september

Vöruskiptin við útlönd hafa verið jákvæð síðustu fjóra mánuði eða frá því í september síðastliðnum. Það hefur ekki gerst frá árinu 2002 að verðmæti útflutnings sé meira en innflutnings samfellt í fjóra mánuði.

Breska ríkið veitir fyrirtækjum ábyrgðir

Breska ríkis­stjórnin hefur ákveðið að veita litlum og meðalstórum fyrirtækjum sérstaka ríkisábyrgð. Með þessu er reynt að tryggja aðgang fyrirtækjanna að lánsfé og um leið að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot vegna erfiðleika á lánamörkuðum.

Atvinnuleysi 4%

Á fjórða ársfjórðungi 2008 voru að meðaltali 7.400 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 4% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 5,1% hjá körlum og 2,9% hjá konum. Atvinnuleysi á sama tíma fyrir ári var 1,9%.

Bjóðast til að safna upp í skemmdir

Ábyrgir mótmælendur hafa sent frá sér tilkynningu þar sem boðist er til að safna fé vegna skemmda sem urðu á tækjabúnaði Stöðvar 2 þegar mótmælt var við Hótel Borg á gamlársdag þegar stöðin tók upp umræðuþátt með stjórnmálaleiðtogum.

Aukinn afli í desember

Heildarafli íslenskra skipa í desember, metinn á föstu verði, var 10,0% meiri en í desember 2007. Árið 2008 dróst fiskaflinn saman um 2,6% miðað við árið 2007, sé hann metinn á föstu verði.

Met­afgangur af vöruskiptum við útlönd

Aldrei hefur verið meiri afgangur af vöruskiptum við útlönd eins og í desember síðastliðnum, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Vöruskiptin voru hagstæð um 24,1 milljarð. Þetta þýðir að hallinn var aðeins 4,8 milljarðar á síðasta ári.

Hluta­bréf í Asíu hækka í fyrsta sinn á fimm dögum

Hluta­bréf hækkuðu almennt á mörkuðum í Asíu í fyrsta skipti í fimm daga. MSCI vísitalan hafði lækkað um 7% á fjórum dögum. Orku­fyrirtæki og hátækni­fyrirtæki leiddu hækkun hluta­bréfaverðs.

Traust Breta á bankakerfinu minna en Íslendinga

Traust Breta á eigin bankakerfi er minna en traust Íslendinga á hérlendum bönkum. Þetta er meðal annars niðurstaða alþjóðlegrar könnunar í 17 löndum sem gerð var frá nóvember til desember.

HÍ grípur til sparnaðar og pófessorar eru ósáttir

Háskóli Íslands hefur ákveðið að auka kennsluskyldu kennara og minnka rannsóknarskyldu þeirra. Markmið skólans er að spara 120 milljónir króna á þessu ári. Prófessorar ætla að kanna hvort lög hafi verið brotin.

Hálka á Suður- og Norðurlandi

Á Suðurlandi er hálka, snjóþekja og hálkublettir eru í uppsveitum. Hálka og éljagangur á Hellisheiði og Þrengslum. Á Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir á öllum leiðum. Á Norðurlandi er hálka.

Fuglahvísl

Breyttur tónn þegar „sökudólgurinn“ reyndist Ingibjörg Sólrún

Tónninn í allri umfjöllun um meintar hótanir ónefnds ráðherra við Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur, breyttist þegar í ljós kom að Guðlaugur Þór Þórðarson sat saklaus undir ásökunum um að beita hótunum.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX