amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:07
 

Þriðjudagurinn 13. janúar 2009

«
12. janúar

13. janúar 2009
»
14. janúar
Fréttir

Mesti samdráttur á útflutningi frá Kína í áratug

Útflutningur Kína dróst saman um 2,8% í desember frá sama mánuði fyrir ári og er þetta mesti samdráttur í áratug. En þrátt fyrir þetta var met­afgangur af utanríkis­viðskiptum í nóvember og desember.

Allar stöður banka­stjóra auglýstar

Banka­stjórastöður allra ríkisbankanna þriggja verða auglýstar lausar til umsóknar á næstunni. Fjármála­ráðherra og viðskipta­ráðherra ræddu málið við formenn bankaráðanna í dag.

Metfé lífeyris­sjóða í bönkum

158 milljarðar króna af eignum lífeyris­sjóðanna eru á innlánsreikningum í bönkunum eða 9,2% af heildareign sjóðanna. Sjóðirnir hafa aldrei átt jafn háar fjárhæðir á innlánsreikningum í bönkunum, segir í frétt Ríkisútvarpsins.

Elín hættir sem banka­stjóri Landsbankans

Bankaráð NBI, Landsbankans, hefur ákveðið að auglýsa stöðu banka­stjóra og verður hún birt á næstu dögum. Elín Sigfús­dóttir hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún segist ekki muni sækja um starfið.

Flottustu sendiherrabústaðirnir seldir

Utanríkis­ráðuneytið undirbýr nú sölu á fjórum sendiherrabústöðum austanhafs og vestan. Gert er ráð fyrir að ríkis­sjóður gæti hagnast um allt að milljarð króna á sölu þessara fasteigna. Um er að ræða bústaðina í New York, Washington, Lundúnum og Ósló, segir í frétt Ríkisútvarpsins.

Norwegian seldi yfir 100 þúsund farseðla á einum degi

Norska lággjaldaflug­félagið Norwegian fékk „fljúgandi start“ í nýársherferð sinni. Félagið seldi yfir 100 þúsund farseðla á fyrsta degi. Þetta er tvöfalt meiri sala en var á fyrsta degi sams konar söluherferðar í fyrra. Lægsta fargjaldið er 4.400 krónur íslenskar.

Norðursjávar­olía komin yfir 45 dollara

Olía hækkaði hratt á mörkuðum í dag, einkum Norðursjávar­olía. Hún hækkaði um 3,5 dollara, úr 42 í 45,5 dollara. Ástæðan er aukinn samdráttur í olíuframleiðslu Sádi-Arabíu. Sér­fræðingar efast þó um að slíkt dugi til að halda verðinu uppi.

Samgönguhópur SA tekur til starfa

Samtök atvinnulífsins hafa ákveðið að setja á laggirnar starfshóp um samgöngumál. Tilgangurinn er annars vegar að móta almenna stefnu um samgöngumál og hins vegar að annast samráð af hálfu atvinnulífsins við samgönguráð vegna mótunar samgöngu­áætlunar 2011 - 2022.

Nýr framkvæmda­stjóri dóttur­félags Marels

Roy Mercer hefur verið ráðinn framkvæmda­stjóri AEW Delford Systems, dóttur­fyrirtækis Marel Food Systems í Bretlandi. Roy hefur mjög víðtæka reynslu í iðnaðinum, bæði á sviði sölu og þjónustu, sem og í almennum rekstri.

Norskir framsóknar­menn kíkja á bændur

Tveir fulltrúar norska Mið­flokksins komu í heimsókn til Bænda­samtaka Íslands í dag. Tilgangurinn var að kynna sér hvernig fjármálakreppan kæmi niður á íslenskum bændum og heyra skoðanir samtakanna á hugsanlegri aðild að ESB. Mið­flokkurinn er systur­flokkur Framsóknar­flokksins.

Tíu sækja um skóla­meistarastöðu Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Tíu sækja um stöðu skóla­meistara við Fjölbrautaskóla Snæfellinga, fimm konur og fimm karlar, en umsóknarfrestur rann út á föstudaginn. Menntamála­ráðherra skipar í stöðuna til fimm ára.

Ólafur Þór Hauksson verður sérstakur saksóknari

Ólafur Þór Hauksson, sýslumaður á Akranesi, hefur verið skipaður í embætti sérstaks saksóknara. Rannsaka á grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda, tengslum við og í kjölfar bankahrunsins, hvort sem það tengist starfsemi fjármálafyrirtækja, annarra lögaðila eða einstaklinga.

Aukið atvinnuleysi víða um heim

Atvinnuleysi hefur verið að aukast hröðum skrefum í nálægum löndum enda hafa áhrif alþjóðlegu fjármálakreppunnar síast rækilega inn í raunhagkerfið og tímabil samdráttar blasir við víðast hvar, segir Greining Glitnis.

Búist við líflegri útgáfu ríkistryggðra skulda­bréfa

Líklegt er að útgáfa ríkistryggðra skulda­bréfa verði lífleg á árinu, en þó á ríkis­sjóður að öllum líkindum enn talsvert lausafé í handraðanum til að mæta ört vaxandi fjármögnunarþörf, segir Greining Glitnis.

Daufur íbúða­markaður

Velta á íbúða­markaði hefur dregist saman um 65% á milli ára. Viðsnúningur varð á síðasta ári eftir mikla uppsveiflu, umsvif og verðhækkanir undangenginna ára. Eftir miklar verðhækkanir undanfarinna ára lækkaði íbúðaverð um 3% að nafnverði á síðasta ári og um tæplega 18% að raunvirði, segir Greining Glitnis.

Samdráttur í jóla­verslun

Velta í dagvöru­verslun dróst saman um 10,4% á föstu verðlagi í desember miðað við sama mánuð árið áður. Á breytilegu verðlagi jókst veltan um 18,2% á sama tímabili. Í þessu felst að jóla­verslunin minnkaði að raunvirði þó neytendur hafi varið fleiri krónum til innkaupanna en árið áður, segir Rannsóknarsetur verslunarinnar.

Aðgerðir í ríkisfjármálum duga ekki segir Bernanke

Ben S. Bernanke, seðlabanka­stjóri Bandaríkjanna, varar við því að þær efnahagsaðgerðir sem þegar hefur verið gripið til í Bandaríkjunum, dugi ekki til að tryggja að bati náist í efnahag landsins. Hann hefur mestar áhyggjur af fjármála­markaðinum.

Morten Lund, fyrrum eigandi Nyhedsavisen, gjaldþrota

Morten Lund, fyrrum aðal­eigandi danska fríblaðsins Nyhedsavisen, hefur verið úrskurðaður persónulega gjaldþrota. Íslendingar stofnuðu þetta danska fríblað haustið 2006 en það varð gjaldþrota um mánaðamótin ágúst-september.

Ellefu stútar undir stýri

Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgar­svæðinu um helgina. Sex voru stöðvaðir á laugardag, fjórir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Tíu voru teknir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði.

Atvinnuleysi ekki meira í 12 ár og eykst hratt

Skráð atvinnuleysi í desember var 4,8% samkvæmt tölum Vinnumála­stofnunar. Þetta jafngildir því að 7.902 hafi verið án vinnu að meðaltali. Samkvæmt nýjustu tölum stofnunarinnar eru 10.850 á vinnu þannig að fjöldi atvinnulausra vex hratt

Nýr framkvæmda­stjóri hjá dóttur­félagi Marels

Roy Mercer hefur verið ráðinn framkvæmda­stjóri AEW Delford Systems, dóttur­fyrirtækis Marel Food Systems í Bretlandi, frá og með 1. febrúar n.k. Hann tekur við að Ásgeiri Ásgeirssyni.

Gunnar Bragi í ritara Framsóknar­flokksins

Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti Framsóknar­flokksins í Skagafirði, hefur ákveðið að bjóða sig fram í embætti ritara flokksins. Hann býður sig fram gegn sitjandi ritara, Sæunni Stefánsdóttur. Kosið verður um öll helstu embætti flokksins á komandi flokkþingi.

Ríkis­sjóður skuldar rúma 653 milljarða króna

Ríkis­sjóður skuldar nú 653,3 milljarða króna, og skiptast nær jafnt á milli innlendra og erlendra skulda. Skuldir ríkis­sjóðs í evrum nema 270,9 milljörðum króna af um 318 milljarða skuldum í erlendri mynt.

HR velur tæknilausnir frá Sense

Háskólinn í Reykjavík hefur samið við Sense ehf. um kaup, hönnun og uppsetningu á tækja- og stjórnbúnaði fyrir nýbyggingu skólans í Öskjuhlíð sem verður tekinn í notkun fyrir næsta skólaár.

Áhugi Lufthansa á SAS endurvakinn

Áhugi þýska flug­félagsins Lufthansa á yfirtöku á norræna flug­félaginu SAS hefur verið endurvakinn, ekki síst eftir að viðræður um yfirtöku Lufthansa á ítalska flug­félaginu Alitalia fóru út um þúfur. SAS hefur straumlínulagað rekstur sinn en ákvörðun um sölu hefur þó ekki verið tekin.

GM íhugar að leggja Saab niður

Forráðamenn General Motors segja það koma til greina að leggja Saab niður enda sé hið fornfræga sænska bílamerki nánast eins og sjúklingur sem ekki verði bjargað. Þessu er for­stjóri Saab Automobiles ósammála og bindur vonir við nýjar gerðir.

Fjárfestingar­sjóður Milestone á Bretlandi í greiðslustöðvun

Fjárfestingar­sjóðurinn Kcaj, sem er í meirihluta­eigu Milestone, er á leið í greiðslustöðvun. Sjóðurinn hefur fjárfest í breskum smásölu­verslunum á undanförnum árum. Tvö fyrirtækja Kcaj, Hardy Amies og Ghost, hafa þegar fengið greiðslustöðvun. Þetta kemur fram í frétta Financial Times í dag.

Ísland fær 50 tonn af bláuggatúnfiski

Sjávar­útvegs­ráðuneytið hefur auglýst úthlutun aflaheimilda fyrir árið 2009 úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks. Tæp 50 tonn koma í hlut Íslands skv. ákvörðun Atlantshafs túnfiskveiðiráðsins sem Ísland hefur verið aðili að frá árinu 2002.

Metár hjá Lamborghini

Það er ekki allt dauði og djöfull í viðskiptum og ekki þurfa allir bílaframleiðendur að kvarta. Ítalski sportbílaframleiðandinn Automobili Lamborghini SpA, hefur aldrei selt fleiri bíla en á síðasta ári. Sá ódýrasti kostar yfir 25 milljónir króna.

Látin móðir fæðir barn

Fyrrum skauta­drottning, sem úrskurðuð var látin, eignaðist barn tveimur dögum eftir dauðann. Það er mjög óalgengt að börn fæðist eftir að mæður þeirra hafa verið úrskurðaðar látnar, en þess eru þó nokkur dæmi.

Hluta­bréf í Asíu lækka verulega

Hluta­bréf í Asíu lækkuðu töluvert í verði. Hátt gengi japanska jensins hefur dregið úr væntingum um afkomu þarlendra bifreiðaframleiðenda og tæknifyrirtækja. Nikkei 225 vísitalan lækkaði um 4,5% en jenið hækkaði gagnvart dollar.

Ríkið vill kaupa 100 nýja bíla

Ríkiskaup hefur auglýst útboð, fyrir hönd stofnana og ríkisfyrirtækja, á um 100 nýjum bílum til kaups eða leigu. Um er að ræða bílar af ýmsum stærðum og gerðum. Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum 27. febrúar næstkomandi.

Góð færð en víða hálkublettir

Á Suðurlandi er snjóþekja frá Selfossi og að Vík. Hálkublettir og snjóþekja er í uppsveitum. Á Vesturlandi er víða auðir við Faxaflóa en hálka og hálkublettir á öðrum leiðum. Hálka er á Holtavöðuheiði samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.

Fuglahvísl

Agavald Ingibjargar Sólrúnar

Hugmyndir álitsgjafa um að Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis­ráðherra, hafi lagt Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur framsögukonu á fundi Harðar Torfasonar lífs­reglurnar eru að mati smáfuglanna mikill misskilningur. Hinn ónafngreindi ráðherra sé Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX