| « 11. janúar |
■ 12. janúar 2009 |
» 13. janúar |
Auknar aðgerðir til að örva þýskt efnahagslíf
Þýska ríkisstjórnin hefur ákveðið efnahagsaðgerðir upp á 50 milljarða evra. Aðgerðirnar verða kynntar síðar en þeir miða m.a. annars að því að auka verklegar framkvæmdir. Auk þess er gripið til skattalegra aðgerða.
Alcoa rekið með tapi í fyrsta skipti í sex ár
Alcoa Inc var rekið með 1,2 milljarða dollara tapi á fjórða ársfjórðungi og er þetta í fyrsta skipti í sex ár fyrirtækið, sem meðal annars rekur Fjarðarál, skilar tapi. Á sama tíma 2007 nam hagnaður fyrirtækisins 632 milljónum dollara.
Spákaupmenn veðja á krónurnar - en aðeins á sænska og norska
Helstu gjaldeyriskaupmenn heims hafa tekið stöðu með sænsku og norsku krónunni á undanförnum dögum. OECD telur að hagkerfi landanna muni koma betur úr úr efnahagsþrengingum en flest önnur og að greiðslujöfnuður verði góður.
Ríkið kaupir bankakröfur Seðlabankans
Seðlabanki Íslands hefur framselt ríkissjóði kröfur á fjármálafyrirtæki að fjárhæð 345 milljarðar króna. Gegn yfirtöku krafnanna greiðir ríkissjóður 270 milljarða króna.
SP Fjármögnun leitar til hluthafa eftir auknu hlutafé
SP Fjármögnun glímir nú við erfiða fjárhagsstöðu í kjölfar á falli bankanna og erfiðleika viðskiptavina félagsins. Fyrirtækið hefur orðið fyrir búsifjum á undanförnum mánuðum vegna gjaldþrota og greiðsluerfiðleika viðskiptavina.
Launaskerðing hjá 14% og lægra starfshlutfall hjá 7%
14% þeirra sem eru í launaðri vinnu hafa lent í beinni launalækkun frá bankahruninu í byrjun október og starfshlutfall hefur verið lækkað hjá 7% aðspurðra. Mun fleiri karlar en konur hafa þurft að taka þessar skerðingar á sig, kemur fram í nýrri könnun sem var unnin fyrir ASÍ.
Fresta birtingu efnahags Seðlabankans
Ákveðið hefur verið að fresta næstu reglulegu birtingu úr efnahag Seðlabanka Íslands um tvo daga. Birta átti upplýsingar í dag samkvæmt birtingaráætlun, en í staðinn hefur verið ákveðið að birta nýjustu upplýsingar miðvikudaginn 14. janúar næstkomandi.
Financial Times mun segja upp 80 manns vegna þrenginga í kjölfar fjármálakreppunnar, að því er The Guardian segir. Kreppan er því ekki aðeins fréttaefni blaðsins heldur snertir það beint.
Sunnudagsútgáfa Fréttablaðsins hættir
Útgáfa Fréttablaðsins á sunnudögum verður hætt og mun síðasta blaðið hafa komið út í gær, sunnudag 11. janúar. Samkvæmt heimildum AMX verður sérstök helgarútgáfa Fréttablaðsins, gefin út hér eftir.
Utanríkisstefna Íslands og friðarferlið í Mið-Austurlöndum
Í aðgerðaráætlun utanríkisráðuneytisins fyrir Mið-Austurlönd fyrir árið 2008 er gert ráð fyrir þremur áherslumálum; aukinni mannúðar- og þróunaraðstoð á herteknu svæðunum, þ.m.t. Gaza og Vesturbakkanum, sérstakri aðstoð vegna flóttamannavanda Íraka og eflingu diplómatískra tengsla Íslands við svæðið og markvissri stefnu á alþjóðavettvangi.
Evrópuskýrslur milli gólfs og lofts án nokkurrar niðurstöðu
Umræður, rannsóknir, skýrslur og álitsgerðir um Evrópumál nægja til þess fylla upp í loftrými lofts og gólfs í flestum venjulegum híbýlum - án þess að við séum nær niðurstöðu, segir Einar K. Guðfinnsson landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra.
Rafræna ferðaheimild þarf fyrir Bandaríkjaför
Frá og með deginum í dag þurfa þeir sem hyggja á för til Bandaríkjanna að sækja um rafræna ferðaheimild. Hún kemur í stað eyðublaðs sem fram til þessa hefur verið afhent í flugvélum á leið til Bandaríkjanna.
Útsvarið óbreytt í Garði og skólagjöld hækka ekki þriðja árið í röð
Útsvar mun verða óbreytt í Garði eða 13,03%. Þá verða fasteignaskattar óbreyttir samkvæmt ákvörðun bæjarstjórar á fundi í liðinni viku.
Rússar tilbúnir til að skrúfa frá gasinu í fyrramálið
Rússar munu skrúfa frá gasinu til Evrópu klukkan 9 í fyrramálið, fullyrðir orkustjóri Evrópusambandsins. Gasdeila Rússa og Úkraínumanna hefur valdið mörgum Evrópuríkjum miklum vandræðum.
Samningur VR við Flugfélag Íslands samþykktur
Kjarasamningur VR við Flugfélag Íslands, sem undirritaður var 17. desember, var samþykktur af starfsmönnum fyrirtækisins með miklum meirihluta atkvæða.
Straumur yfirtekur dönsku húsgagnakeðjuna Biva
Fjárfestingabankinn Straumur hefur yfirtekið dönsku húsgagnakeðjuna Biva. Verslunin rekur 57 verslanir víða um landið. Eigendaskiptin urðu eftir að rekstrarfélagið Biva Møbler Odense A/S hætti greiðslum um áramót og setti framtíð 350 starfsmanna í uppnám.
Norwegian segir upp 30 flugmönnum
Norska lággjaldaflugfélagið Norwegian finnur fyrir samdrætti á ferðamarkaði. Félagið þarf að hagræða og bregst við með því að segja upp 30 flugmönnum, skrifstofufólki og leggja flugvélum.
SUS styður heilbrigðisráðherra
Samband ungra sjálfstæðismanna fagnar þeim breytingum sem Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur lagt til á sviði heilbrigðismála. Með tillögunum er gerð tilraun til þess að ná fram varanlegum umbótum á rekstri heilbrigðisstofnana á Íslandi í því skyni að auka skilvirkni og hagræði.
Bókafélagið Ugla hefur gefið út bókina Hvað er Íslandi fyrir bestu? eftir Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra. Við þessar spurningar og margar fleiri glímir Björn Bjarnason í þessari þörfu bók sem geymir valdar greinar hans frá síðustu árum.
Starfshópur um leiðir til að sporna gegn atvinnuleysi
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað starfshóp um vinnumarkaðsaðgerðir með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaganna, fjármálaráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins til að móta tillögur um aðgerðir til að sporna gegn atvinnuleysi.
Lánshæfi ríkisins mun lakara en áður
Fyrir fall bankanna var lánshæfi íslenska ríkisins talið gott enda skuldir meðal þess lægsta sem þekkist. Nú segja lánshæfismatsfyrirtækin það mun lakara enda skuldahlutfallið allt annað en var enda er íslenska ríkið nú meðal þeirra skuldugustu í heiminum, segir Greining Glitnis.
Hrein eign lífeyriskerfisins rýrnaði um 11%
Hrein eign lífeyriskerfisins rýrnaði um 11% að raungildi á frá upphafi síðasta árs til nóvemberloka. Eignastaðan batnaði þó heldur í nóvembermánuði, þótt stærstur hluti nafnaukningar eigna hafi verið vegna þess hve gengi krónu var lágt í nóvemberlok, segir Greining Glitnis.
Skuldabréf Landic á Athugunarlista
Skuldabréf útgefin af Landic Property hf., hafa verið færð á Athugunarlista Kauphallar Íslands með vísan til tilkynningar frá félaginu um greiðsluerfiðleika félagsins.
SAS samsteypan flutti 2,23 milljónir farþega í desember en það er 12,9% fækkun milli ára. Það bætir ekki stöðu samsteypunnar sem strítt hefur við mikla rekstrarörðguleika.
Óskað eftir upplýsingum um afslætti á fasteignasköttum
Samgönguráðuneytið hefur óskað eftir því við sveitarfélög landsins að þau upplýsi ráðuneytið um reglur þeirra varðandi afslátt á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega og hvernig háttað sé birtingu þeirra.
LÍÚ opnar vefsvæði um sjávarútveg og ESB
Landssamband íslenskra útgerðarmanna hefur opnað sérstakt vefsvæði þar sem teknar eru saman upplýsingar úr ýmsum áttum um íslenskan sjávarútveg og Evrópusambandið. Birtar eru skýrslur sem unnar hafa verið um fiskveiðistefnu ESB og tengsl sjávarútveg Noregs og Ísland við ESB .
Renault vantar 9 milljarða evra
Renault, annar stærsti bílaframleiðandi í Frakklandi, hefur þörf fyrir 9 milljarða evra framlag í ár til þess að halda starfseminni í sama horfi og verið hefur. Í fyrstu mun fyrirtækið leita til banka en hugsanlegt er að það fari fram á aðstoð frá franska ríkinu.
Verðbólga í Danmörku tvöfaldaðist milli ára
Verðbólga í Danmörku tvöfaldaðist í fyrra miðað við árið á undan. Síðustu tólf mánuði hefur verð hækkað mest á veitingastöðum og hótelum, áfengum drykkjum og tóbaki ásamt matvælum og almennri drykkjarvöru.
Kristinn Örn Jóhannesson, flugrekstrarfræðingur, hefur tilkynnt um framboð til formanns VR. Í tilkynningu frá honum segir að nýjar og verri aðstæður kalli eftir nýju fólki með ný viðhorf til að byggja upp Ísland.
Olíuverð aftur undir 40 dollara
Þrátt fyrir orðróm um enn meiri samdrátt í olíuframleiðslu Sádi-Arabíu og gasdeilu Rússa og Úkraínumanna fór olíuverð aftur niður fyrir 40 dollara á tunnu á mörkuðum í morgun. Bandarísk olía seldist á 39,78 dollara tunnan en sú breska á 44.10.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn þarf 150 milljarða dollara
Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn (AGS) kann að þurfa 150 milljarða dollara framlag frá stærstum aðildarríkjum sjóðsins. Strauss-Kahn forstjóri sjóðsins segir að áhrif efnahagskreppunnar hafi enn ekki komið að fullu fram í Vestur-Evrópu og að efnahagsaðgerðir stjórnvalda sýni að þau vanmeti þörfina á róttækum aðgerðum til að örva efnahagslífið.
Lögregluþjónar handtóku hver annan
Lögregluþjónar í Berlín sem mættu á vettvang búðarráns handtóku óeinkennisklædda starfsfélaga sína fyrir misskilning á meðan hinir sönnu glæpamenn komust hlægjandi undan. Mjög vandræðalegt segir lögreglustjóri.
Víða hálka en vegir auðir við Faxaflóa
Það eru hálkublettir bæði á Hellisheiði og í Þrengslum líkt og víða Suðurlandi, einkum þó á útvegum. Vegir eru víðast auðir við Faxaflóa þótt sumstaðar séu hálkublettir en aftur á móti er hálka á flestum leiðum við Breiðafjörð.