amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 17:56
 

Sunnudagurinn 11. janúar 2009

«
10. janúar

11. janúar 2009
»
12. janúar
Fréttir

Á Sjálfstæðis­félagið á Álftanesi samleið með Sjálfstæðis­flokknum?

Guðmundur G. Gunnarsson, oddviti sjálfstæðis­manna í bæjar­stjórn Álftaness, hefur efasemdir um að Sjálfstæðis­félag Álftaness eigi samleið með Sjálfstæðis­flokknum. Hann segir að þingmenn flokksins verði að skilgreina markmið sín á ný.

Rannsaka ber gjaldmiðlaskiptasamninga

Gjaldmiðlasamningar þar sem veðjað var á veikingu krónunnar áttu sinn þátt í bankahruninu, að mati Vilhjálms Bjarnasonar, lektors í fjármálum við Háskóla Íslands. Hann segir nauðsyn að rannsaka slíka samninga, að því er fram kom í frétt Ríkisútvarpsins

Segir uppstokkun í ríkis­stjórninni í bígerð

Uppstokkun á ríkis­stjórninni er talin í bígerð, að því er sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2. Þar sagði að í þingliði stjórnar­innar væri rætt um að flokkarnir víxluðu á utanríkis- og fjármála­ráðuneyti, og jafnvel fleiri ráðuneytum, og að Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir færi í menntamálin frekar en fjármálin.

Metár hjá Volkswagen

Metsala var á bílum Volkswagen samsteypunnar á síðasta ári, þrátt fyrir fjármálakreppu. Volkswagen, Skoda og Lamborghini seldust betur en áður en samdráttur varð hins vegar í sölu hins sænska Seat.

Sjálfstæðis­flokkurinn ótrúverðugur að einblína á Evrópu­sambandið

Björn Bjarnason, dómsmála­ráðherra, segir að Sjálfstæðis­flokkurinn verði ótrúverðugur ef hann léti við það eitt sitja að binda trúss sitt við Evrópu­sambandið. Með því myndi flokkurinn bregðast sínu sögulega hlutverki.

Stútur keyrir á lög­reglubíl

Lög­reglan á Suðurnesjum handók snemma í morgun mjög ölvaðan ökumann eftir nokkra eftirför um götur Reykjanesbæjar, að því er fram kemur á fréttavef Víkurfrétta.

Takmarkanir á eignar­haldi fjölmiðla

Fjölmiðla­nefnd menntamála­ráðherra vinnur nú að samningu laga­frumvarps um fjölmiðla þar sem búist er við að takmarkanir verði settar á eignar­hald fjölmiðla. Stefnt er að því að frumvarpið nái fram að ganga samhliða því sem takmarkanir eru settar á auglýsingar í Ríkisútvarpinu.

Tæplega 64% Breta vilja minnka eða slíta tengsl við ESB

Sextán prósent breskra kjósenda vilja rjúfa með öllu tengsl landsins við ESB og 48% vilja minnka tengslin verulega. Þá er mikil andstaða við upptöku evru þrátt fyrir gengisfall breksa pundsins. Þetta kemur fram í könnun sem The Sunday Telegraph birtir í morgun.

Snjóþekja, hálka, skafrenningur á Norðurlandi

Á Suðurlandi eru hálkublettir og éljagangur á Sandskeiði í Þrengslum og á Hellisheiði. Víða í uppsveitum eru hálkublettir og éljagangur. Á Norðurlandi er snjóþekja, hálka, skafrenningur og éljagangur.

Kannabisræktun í Grafarholti

Lög­reglan á höfuðborgar­svæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Grafarholti í gær. Við húsleit á áður­nefndum stað fundust um 70 kannabisplöntur.

Gas loks til Evrópu

Reiknað er með því að skrúfað verði frá gasleiðslunum sem liggja frá Rússlandi til Evrópu gegnum Úkraínu í dag. Stöðvunin hefur valdið miklum vandræðum í mörgum Evrópu­löndum.

Guðlaugur Þór keppir við Hörð

Samkvæmt fréttum sjónvarps að kvöldi 10. janúar mátti deila um, hvor kallaði fleiri til mótmælafundar Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis­ráðherra, eða Hörður Torfason, atvinnumótmælandi.

Fuglahvísl

Hættir Björn Bjarnason eftir landsfund?

Vangaveltur um hvort Björn Bjarnason ætli sér að sitja áfram í ráðuneyti dóms- og kirkjumála hafa orðið háværari. Smáfuglarnir hvísla um að Björn, sem fyrir löngu sagðist ekki ætla að gegna ráðherraembætti allt kjörtímabilið, muni taka virkan þátt í mótun stefnunnar í utanríkis­málum og þá sérstaklega í Evrópu­málum.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX