| « 9. janúar |
■ 10. janúar 2009 |
» 11. janúar |
Ísrael herðir sókn sína gegn Hamas
Ísraelsher hefur dreift skilaboðum til Palestínumanna á Gaza svæðinu í stórum stíl þess efnis að aukin sókn sé væntanleg í hernaði gegn hryðjuverkasamtökunum Hamas að því fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins. Hvetur herinn almenna borgara til að halda sig frá starfsstöðvum, skotpöllum og vopnageymslum Hamas.
Exista ekki í stöðutöku gegn krónunni
Exista hefur ekki stundað spákaupmennsku gegn íslensku krónunni. Áhætta í reikningum félagsins hefur verið með krónunni og því ekki í hag að hún veiktist, segir í yfirlýsingu frá félaginu.
Obama skýrir efnahagsáætlun í skugga vaxandi gagnrýni
Barack Obama leggur ofuráherslu á að gripið verði til umfangsmikilla efnahagsráðstafana til að vinna bandarískt efnahagslíf út úr erfiðleikunum. Hann hefur opinberað ítarlega greinargerð þar sem tillögur hans eru kynnar. Aðgerðirnar eru sagðar ígilda 775 milljarða innspýtingu í efnahagslífið.
Um 200 innistæðueigendur Kaupþing Edge mótmæltu við íslenska sendiráðið í Brussel í dag. Í viðtali mbl.is við Stefán Hauk Jóhannesson sendiherra kemur fram að mótmælin hafi verið friðsamleg en hvatt til lausnar sem fyrst.
Flughált er á Reykjanesbraut. Rétt fyrir klukkan tvö valt bifreið við Kúagerði og var par með ungt barn í bílnum.
Veður og færð versna á Norðurlandi
Veður fer versnandi á Norðurlandi frá Skagafirði austur að Melrakkasléttu. Spáð er vaxandi ofanhríð og skafrenningi og afar takmörkuðu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum. Dregur úr ofanhríð og vindi undir kvöldið.
Erlendir aðilar stjórni Seðlabanka og Fjármálaeftirlitinu
Fyrrverandi aðalhagfræðingur Danske bank, telur nauðsynlegt að erlendar stofnanir taki yfir stjórnun Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. Þetta telur hann nauðsynlegt til að tryggja sjálfstæði þessara stofnana.
Úrvinnsla hafin í FME á bankarannsókninni
Úrvinnsla er hafin í Fjármálaeftirlitinu vegna rannsóknar á bönkunum sem sneri m.a. að óeðlilegum fjármagnshreyfingum innan samstæðu eða milli landa, skilmálabreytingum lánasamninga, breytingum á tryggingum og veðum, meðferð afleiðusamninga, viðskiptum með verðbréf og fleira.
Yfir 100 milljarða tap lífeyrissjóða og útgerðar vegna krónunnar
Lífeyrissjóðir, útgerðarfyrirtæki og iðnfyrirtæki í útflutningi urðu fyrir a.m.k. 100 milljarða króna tapi vegna stöðutöku annarra gegn íslensku krónunni. Fréttastofa Ríkisútvarpsins fullyrti þetta í hádegisfréttum.
Sex ára, of seinn í skólann og því gefið í á bílnum hans pabba
Hvað gerir þú ef þú ert sex ára og orðinn of seinn í skólann. Jú þú nærð í bíllyklana og sest undir stýri og keyrir af stað. Það skiptir mestu að mæta á réttum tíma enda boðið upp á góða morgunverð í skólanum sem þú villt ekki missa af.
Mesti samdráttur í 30 ár á Bretlandseyjum
Efnahagslífið í Bretlandi hefur ekki drengist meira saman í 30 ár miðað við tölur um efnahag á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Aðeins fimm sinnum frá árinu 1955 hefur samdráttur í einum ársfjórðungi verið meiri.
Á Suðurlandi er hálka og hálkublettir. Hálka er á Reykjanesbraut. Snjóþekja er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum.
Skotleyfi Moggans á Styrmi Gunnarsson
Nú er ritstjóri Morgunblaðsins, Ólafur Stephensen, búinn að veita blaðamönnum sínum skotleyfi á Styrmi Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóra blaðsins. Kolbrún Bergþórsdóttir, sem Ólafur réði sérstaklega á Moggann, nýtir sér slíkt leyfi með þeim hætti að eftir er tekið.