amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:08
 

Föstudagurinn 9. janúar 2009

«
8. janúar

9. janúar 2009
»
10. janúar
Fréttir

Amishfólkið fetar sig yfir í nútímann

Amishfólkið í Bandaríkjunum er að feta sig inn í nútímann. Mikil fjölgun meðal þess þýðir að ekki er nóg jarðnæði. Unga fólkið hverfur því úr einangrun sveitarinnar og leitar í aðra vinnu. Þar er samkeppnisumhverfi og ný tækni.

Tryggvi Jónsson neitar ásökunum um afskipti af sölu fyrirtækja

Fréttastofa Ríkisútvarpsins heldur því fram að Tryggvi Jónsson hafi haft bein afskipti, þegar hann var í vinnu hjá Landsbankanum, af sölu tveggja fyrirtækja til fyrirtækja sem eru í eigu Baugs eða tengdra aðila. Þessu neitar Tryggvi alfarið.

Útlán Íbúðaarlána­sjóðs 6,7 milljarðar í desember

Alls námu heildarútlán Íbúðalána­sjóðs tæplega 6,7 milljörðum króna í desember. Þar af voru rúmlega 4,2 milljarðar vegna almennra lána og tæpir 2,5 milljarðar vegna leiguíbúðalána. Alls lánaði sjóðurinn um 17,0 milljarða á fjórða ársfjórðungi.

Einkaflugmaður missir sjónina í 5.500 feta hæð

Breskur einkaflugmaður fékk heilablóðfall sem svipti hann sjón á báðum augum í miðju flugi einn síns liðs. Flugmaður breska flughersins flaug upp að hlið hans og leiðbeindi honum inn til lendingar. Ekki er vitað til þess að nokkuð sambærilegt hafi áður tekist.

Enn dregur úr veltu á fasteigna­markaði

Velta á fasteigna­markaði á höfuðborgar­svæðinu heldur áfram að dragast saman. Síðustu vikurnar var veltan 953 milljónir króna en meðaltal síðustu 12 vikna er 1.123 milljónir.

Iceland kaupir 51 Woolworths verslun

Iceland verslunarkeðjan hefur keypt 51 verslun sem áður störfuðu undir hatti Woolworths, sem nú er gjaldþrota. Iceland er að stærstum hluta í eigu Baugs Group.

Jóhanna Sigurðar­dóttir hlaut hvatningarverðlaunin Rósina

Jóhanna Sigurðar­dóttir félagsmála­ráðherra hlaut í dag Rósina, hvatningarverðlaun sem fjölskylda Ástu B. Þorsteinsdóttur og Lands­samtökin Þroskahjálp veita árlega.Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi störf sem stuðla að þátttöku fatlaðs fólks í sam­félaginu til jafns við aðra.

Mótmælendur slettu rauðri málningu á utanríkis­ráðuneytið

Hópur mótmælenda, margir með klúta fyrir andlitinu, kastaði nú síðdegis blöðrum með rauðri málningu á hús utanríkis­ráðuneytisins í Reykjavík.

Hag­fræðingur SI: Rök um háa vexti standast ekki

Nú eru kjöraðstæður til að lækka vexti mjög myndarlega, segir Bjarni Már Gylfason, hag­fræðingur Samtaka iðnaðarins. Hann segir að rök Seðlabankans og Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins um nauðsyn þess að halda vöxtum háum þrátt fyrir erfiðleika í efnahagslífinu standist ekki.

Nýr atvinnu og nýsköpunarráðgjafi bænda

Guðbjörg Helga Jóhannes­dóttir hóf störf hjá BÍ sem atvinnu- og nýsköpunarráðgjafi 1. janúar síðastliðinn. Meginviðfangsefni hennar í nýju starfi verður alhliða ráðgjöf um nýsköpun og atvinnusköpun á bújörðum.

Olíuverð snarféll við birtingu atvinnuleysistalna í Bandaríkjunum

Olíuverðið snarféll eftir að atvinnuleysistölur birtust í Bandaríkjunum en þær sýndu mesta atvinnuleysi frá lokum seinni heimstyrjaldar.Verðið féll um 4,8% og fór niður fyrir 40 dollara á tunnu. Verðið fór lægst í 35,35 dollara í desember.

Ný veðurstofa tekin til starfa

Ný stofnun, Veðurstofa Íslands, tók til starfa um áramótin. Magnús Jónsson, sem verið hefur veðurstofu­stjóri frá 1994, hefur látið af störfum en við starfi for­stjóra Veðurstofu Íslands tók Árni Snorrason, sem áður var forstöðumaður Vatnamælinga.

Guðmundur Árnason aðstoðar ríkis­stjórnina

Guðmundur Árnason, ráðuneytis­stjóri í menntamála­ráðuneytinu, hefur fengið 6 mánaða leyfi frá störfum til að sinna verkefnum fyrir ríkis­stjórnina.

Blekktu bankarnir sjávar­útvegs­fyrirtækin, lífeyris­sjóðina og þjóðina?

Hvöttu eigendur stóru viðskiptabankanna starfsfólk sitt vísvitandi til þess að selja útflutningsatvinnuvegunum og lífeyris­sjóðum í landinu gjaldeyris­skiptasamninga, þar sem staða var tekin með með krónunni? Að þessu spyr Eiríkur Tómasson, framkvæmda­stjóri Þorbjarnar í Grindavík.

Spánarsnigillinn í evrópskri rannsókn

Umhverfis­stofnun Evrópu hefur gefið út skýrslu um átta mikilvæg verkefni á vettvangi umhverfismála í Evrópu um þessar mundir. Meðal þess sem fjallað er um er framrás hins svokallaða Spánarsnigils en kvikindi það nam land hér árið 2003.

Hryðjuverkaaðgerðin: Samantekt bresku lögmannsstofunnar

Forsætis­ráðuneytið hefur birt yfirlit yfir helstu atriði álitsgerðar bresku lögfræðistofunnar Lovells LLP en hún veitti íslensku ríkis­stjórninni ráðgjöf varðandi hugsanlega málssókn á hendur breska ríkinu vegna beitingar hryðjuverkalaga gegn Landsbankanum.

Fórnarlömb Madoffs sjá fram á 98% tap eigna sinna

Talið er að kröfuhafar í þrotabú bandaríska fjársvikarans Bernard Madoffs fái aðeins um 2% upp í kröfur sínar. Í gær fundust í búinu 100 ávísanir upp á 173 milljónir dollara, stílaðar á vini og fjölskyldu Madoffs.

Rannsóknar­nefndin tekin til starfa

Rannsókna­nefnd Alþingis, vegna bankahrunsins, hefur haldið fundi með skila­nefndum bankanna, Fjármála­eftirlitinu, Kauphöllinni og Seðlabankanum. Með því hefur verður lagður grunnur að gagnaöflun.

Atvinnuleysi í Bandaríkjunum hið mesta frá stríðslokum

Í nýliðnum desember misstu 524 þúsund Bandaríkjamenn atvinnu. Atvinnuleysi þar í landi er nú 7,2%, hið mesta frá lokum seinni heimstyrjaldarinnar. Atvinnuleysið þykir undirstrika efnahagskreppuna í landinu.

Beiting hryðjuverkalaganna til meðferðar hjá Evrópu­ráðsþinginu

Framkvæmda­stjórn Evrópu­ráðsþingsins hefur samþykkt beiðni Íslands um að sú aðgerð breskra stjórnvalda að beita hryðjuverkalögum til að frysta eigur Landsbankans í Bretlandi 8. október sl. verði tekin til meðferðar bæði í laga- og mannréttinda­nefnd og efnahags­nefnd Evrópu­ráðsþingsins.

Rússar tilbúnir til að skrúfa frá gasinu á ný

Rússneska gas­fyrirtækið Gazprom mun síðar í dag opna fyrir gasleiðslur þær sem liggja til Evrópu­sambandslandanna í gegnum Úkraínu, svo fremi að undirritað verði samkomulag þjóðanna um eftirlit Evrópu­sambandsins á landamærum þeirra.

Seðlabankar í klemmu

Búist er við að Seðlabanki Evrópu lækki stýrivexti í næstu viku og fylgi þannig í kjölfar Englandsbanka. Seðlabankar stærstu hagkerfa heims gætu þurft að hugsa líkt og gert var í Japan þegar þar var verðhjöðnun, segir Greining Glitnis.

Straumur í frjálsu falli og hluturinn undir krónu

Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki er í frjálsu falli í Kauphöllinni það sem af er dags. Hluta­bréf bankans hafa lækkað um tæp 31% og er hluturinn kominn niður fyrir eina krónu.

Hagstæð utanríkis­viðskipti hafa ekki styrkt krónuna

Verulegur afgangur af utanríkis­viðskiptum virðist ekki skila sér í styrkingu krónu enn sem komið er. Það hlýtur að vera Seðlabanka og Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum nokkurt áhyggjuefni að jafn myndarlegur afgangur á utanríkis­viðskiptum skuli ekki skila styrkingu krónu á hinum skilyrta gjaldeyris­markaði, segir Greining Glitnis

Styttist í fyrstu endurskoðun Alþjóða- gjaldeyris­sjóðsins

Nú styttist í fyrstu endurskoðun Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins hér í framhaldi af lánveitingu hans. Ekki kemur til viðbótar­greiðslu lánsins nema endurskoðunin leiði til niðurstöðu sem er sjóðnu að skapi, segir Greining Glitnis.

Lufthansa útilokar ekki tilboð í Alitalia

Þýska flug­félagið Lufthansa útilokar ekki að það geri tilboð í ítalska flug­félagið Alitalia. Ítalska félagið hefur strítt við mikla fjárhagsörðugleika. Lufthansa hefur einnig átt í viðræðum við SAS um kaup á norræna félaginu.

Rolls-Royce á móti straumnum

Bílaverksmiðjur ramba á barmi gjaldþrots víða um heim enda var árið 2008 eitt hið versta í sögu bílaiðnaðarins. Það á þó ekki við um sölu Rolls-Royce lúxusbílanna. Söluaukning verksmiðjanna nam 20% á liðnu ári.

Sjómanna­sambandið samþykkir samning við LÍÚ

Nýgerður kjarasamningur Sjómanna­sambands Íslands og Lands­sambands íslenskra útvegs­manna var samþykktur með afgerandi meirihluta atkvæða innan SSÍ.

Lágir vextir í Bretlandi geta skaðað bankana

Mjög lágir vextir geta haft alvarleg áhrif á bresku bankana vegna þess að þeir fæla sparifjár­eigendur frá því að legga fé sitt inn. Spari­sjóðsvextir meirihluta breskra banka eru nú 1% eftir stýrivaxta­lækkun Englandsbanka í gær í 1,5%.

Samdráttur í Þýskalandi meiri en áður var talið

Axel Weber, seðlabanka­stjóri Þýskalands, segir að líklegt sé að þýskt efnahagslíf muni dragast meira saman á yfirstandandi ári, en áður hafi verið spáð. Síðasti fjórðungur liðins árs reyndist Þýskalandi erfiðari en búist var við.

Ísrael þrýstir olíuverðinu upp

Öryggisráð sameinuðu þjóðanna krefst tafarlauss vopnahlés á Gaza. Ísrael hefur þrátt fyrir það haldið áfram árásum á svæðið í morgun. Það hefur leitt til þess að olíuverð hækkar enda gæti ástandið haft áhrif á olíuútflutning, t.d. frá Íran.

Verðstríð á flugmiðum sumarsins

Verðstríð á flugmiðum frá Kaupmannahöfn til suðrænna landa er fyrirsjáanlegt í sumar. Þrátt fyrir minni eftirspurn í kjölfar kreppunnar bjóða flugfélögin 50 þúsund fleiri sæti í vor og sumar en var fyrir gjaldþrot Sterling flug­félagsins.

Alvarlegt umferðarslys við Grundarhverfi á Kjalarnesi

UPPFÆRT: Búið er að opna Vesturlandsveg eftir umferðarslys. Fimm voru fluttir á sjúkrahús, en enginn er talin alvarlega slasaður.

Ökutæki fyrst skoðuð á fjórða ári

Ökutæki skal fyrst skoðað á 4. ári eftir skráningu að skráningarári frátöldu, síðan á tveggja ára fresti þar til ökutækið er 8 ára og árlega eftir það, samkvæmt nýrri reglugerð samgöngu­ráðherra sem tekur gildi í dag.

Villandi og rangar fréttir um stofnun Heilbrigði­stofnunar Norðurlands

Halldór Jónsson, for­stjóri FSA, segir að fréttir um stofnun Heilbrigði­stofnunar Norðurlands hafi verið villandi og rangar. Vegna þessa hefur hann sent frá sér sérstaka yfirlýsingu.

Neyðarsöfnun fyrir Gaza

Félagið Ísland Palestína hefur hafið neyðarsöfnun vegna ástandsins á Gaza. Í frétt frá félaginu segir að níðst sé á varnarlausum palestínskum íbúum sem séu lokaðir inni og geti hvergi flúið.

ASÍ mótmælir hækkunum á greiðsluþátttöku sjúklinga

Alþýðu­samband Íslands mótmælir harðlega þeim hækkunum sem urðu á greiðsluþátttöku sjúklinga nú um áramótin. Bent er á að ekki séu settar reglur um hámarks greiðsluþátttöku. Aukin gjaldtaka er að mati ASÍ aðför að velferðarkerfinu.

Hálka og éljagangur

Á Suðurlandi er hálka og éljagangur á Hellisheiði og hálkublettir á flestum öðrum leiðum. Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir á mörgum leiðum. Snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiði samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.

Um 3.500 fyrirtæki gætu farið í þrot

Samkævmt útreikningum Creditinfo á Íslandi eiga um 3.500 fyrirtæki það á hættu að komast í þrot á næstu tólf mánuðum. Áberandi eru bygginga­fyrirtæki en einnig fyrirtæki í verslun og þjónustu.

Fuglahvísl

Sjálfstæðis­menn farnir að ranka við sér?

Smáfuglarnir voru farnir að örvænta um að sjálfstæðis­menn ætluðu sér að mæta til landsfundar, án þess að móta stefnu flokksins í helstu málum sem brenna á þjóðinni. Síðustu vikur hafa þeir verið of uppteknir af Evrópu­málum.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX