| « 7. janúar |
■ 8. janúar 2009 |
» 9. janúar |
Í hádeginu á morgun, föstudag verður þögull mótmælafundur á Selfossi þar sem gengið verður milli banka bæjarins.
Í raun er það þannig að seðlabankar eru ekki lánveitendur til þrautavara. Ríkissjóðir í hverju landi hefur tekið yfir þetta hlutverk. Á þetta benda tveir hagfræðingar í blaðagrein í dag.
Ekki tekin afstaða til ESB á landsfundi
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, telur að ekki verði tekin afstaða til aðildar Íslands á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Fundurinn hefst 29. janúar næstkomandi.
Uppboðsverð Actavis gæti verið um 6 milljarðar dollara
Eignarhaldsfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, Novator, mun lítið sem ekkert hagnast á sölu Actavis sem stendur fyrir dyrum, segir Reuters. Framkvæmdastjóri Novator Healthcare segir því fara fjarri að söluferli sé hafið.
Kauphöllin áminnir Ríkisútvarpið
Kauphöll Íslands hefur ákveðið að áminna Ríkisútvarpið ohf., áður Ríkisútvarpið (RÚV), opinberlega fyrir að birta ársreikninga of seint.
Innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu
Nokkuð er um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu en sex slíkar tilkynningar bárust lögreglunni í gær. Fjórir bílanna voru í Reykjavík en tveir í Kópavogi.
Fíkniefni fundust við húsleit í Norðlingaholti í gærkvöld. Um var að ræða amfetamín, hass og marijúana. Karl og kona voru handtekin í þágu rannsóknar málsins.
Fitch hættir að meta gamla Glitni og gamla Landsbankann
Matsfyrirtækið Fitch tilkynnti í dag að fyrirtækið myndi framvegis hætta að leggja mat á gamla Glitni banka og gamla Landsbankann.
Commerzbank þjóðnýttur að hluta
Commerzbank, annar stærsti banki Þýskalands, verður þjóðnýttur að hluta. Banki þessi kom talsvert við íslenska viðskiptasögu árin 2007 og 2008 þegar FL Group eignaðist hlut í honum - og seldi síðan með umtalsverðu tapi.
Skipuð í embætti framkvæmdastjóra LÍN
Guðrún Ragnarsdóttir hefur verið skipuð í embætti framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Þrjátíu og fjórar umsóknir bárust um starfið.
Klámiðnaðurinn í Bandaríkjunum er hart leikinn ekki síður en bílaiðnaðurinn. Því hafa klámkóngar vestra, með Larry Flynt, útgefanda Hustler, í fararbroddi sent Bandaríkjaþingi beiðni um 5 milljarða dollara neyðarlán.
Segir reglu ESB um hlutfallslegan stöðguleika ekki tryggingu
Eiríkur Tómasson, varaformaður LÍÚ, segir ljóst að ekki sé hægt að treysta því að ekki verði hróflað við reglunni um hlutfallslegan stöðugleika, einni meginreglu hinnar sameiginlegu sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.
Ríkustu eigendur enskra knattspyrnuliða
Rússinn Roman Abramovich hefur lengi verið ríkastur allra þeirra sem að ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu koma. En ekki lengur. Fjármálakreppna hefur leikið Abramovich grátt. Því hafa eigendur Manchester City og QPR skotist fram úr honum. Björgólfur Guðmundsson, eigandi West Ham, kemst ekki lengur á blað.
Nefnd fer yfir reglur barnalaga
Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað nefnd til að fara yfir reglur barnalaga um forsjá barna, búsetu og umgengni. Nefndinni ber meðal annars að skoða hvort veita skuli dómurum heimild til að ákveða að foreldrar skuli fara sameiginlega með forsjá barns þrátt fyrir að annað foreldri sé því andvígt.
Engin kreppa hjá Audi heldur sölumet
Þýski bílaframleiðandinn Audi skellir skollaeyrum við öllu krepputali og vandræðagangi bílaframleiðenda víða um heim. Verksmiðjurnar settu sölumet og seldu yfir milljón bíla á nýliðnu ári. Það er þrettánda árið í röð sem Audi setur slíkt met.
Innflutningur dregst enn saman
Samkvæmt bráðabirgðatölum fjármálaráðuneytisins var verðmæti innfluttrar vöru í desember 32,5 ma.kr. sem er nokkuð minni innflutningur en í nóvember þegar hann nam 40,6 ma.kr. Fyrstu vísbendingar eru um að útflutningur vöru hafi aukist töluvert í desember en hann nam 43,2 ma.kr. í nóvember.
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs eftir fyrstu ellefu mánuði ársins 2008 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu nam handbært fé frá rekstri 7,3 milljörðum króna innan ársins, sem er 46,2 milljörðum króna verri útkoma en á sama tíma fyrra árs.
Fjöldi atvinnulausra yfir tíu þúsund
Fjöldi þeirra sem er án atvinnu er kominn yfir tíu þúsund samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar. Um hádegisbilið voru 10.056 atvinnulausir og er meirihluti þeirra karlar eða 6.329.
Ólafur Ólafsson reynir að verja vígin
Líkt og margir aðrir sem átt hafa velgengni að fagna á undanförnum árum og efnast gríðarlega, glímir Ólafur Ólafsson eða eignarhaldsfélög hans við gríðarlegan fjárhagslegan vanda. Eignir hafa gufað upp en skuldir hafa haldið áfram að hækka í takt við gengi íslensku krónuna líkt og hjá mörgum öðrum, fyrirtækjum og einstaklingum.
Lækkandi verðbólguálag á markaði
Ávöxtunarkrafa á ríkisbréfum hefur lækkað mikið undanfarinn mánuð. Samhliða hefur verðbólguálag á skuldabréfamarkaði minnkað jafnt og þétt, þar sem mun minni breytingar hafi orðið á ávöxtunarkröfu verðtryggðra íbúðabréfa.
Utanlandsferðum hefur fækkað um helming eftir hrun
Frá því að kreppan braust út í byrjun október hefur utanlandsferðum Íslendinga fækkað um tæplega helming. Alls fóru 45 þúsund Íslendingar að utan um Leifsstöð í október og nóvember á þessu ári, en til samanburðar var þessi fjöldi 83 þúsund á sama tímabili fyrir ári.
Veik staða krónunnar ástæða hárra stýrivaxta hér
Meginástæða hárra stýrivaxta hér á landi er veik staða krónunnar og hin brýna þörf á að forða henni frá frekara hruni. Á sama tíma og stýrivextir Seðlabanka Íslands eru í sögulegu hámarki eru stýrivextir banka helstu hagkerfa heims í eða nálægt söguleg lágmarki.
Engin banaslys í siglingum eða flugi 2008
Hvorki urðu banaslys í siglingum né flugi á nýliðnu ári. Engir hafa farist í slysum í loftförum skráðum á Íslandi allt frá árinu 2000. Tólf fórust í umferðarslysum á árinu. Aðeins tvisvar áður hafa færri farist í umferðinni.
Lægstu vextir í 300 ára sögu Englandsbanka
Englandsbanki hefur lækkað stýrivexti um 0,5%. Vextirnir eru eftir lækkunina 1,5%. Búist hafði verið við þessari vaxtalækkun. Þetta er lægsta vaxtastig sem nokkru sinni hefur verið í 300 ára sögu bankans.
Vestfirðir: Aukning í fíkniefnum
Lögreglan á Vestfjörðum lagði hald á mun meira magn fíkniefna á nýliðnu ári samanborið við s.l. fimm ár. Lögreglan lagði hald á rúmlega 800 grömm af fíkniefnum.
Gróðurhúsalömpum stolið í nótt úr gróðurhúsi í Laugarási
Í nótt var brotist inn í gróðurhús að Heiðmörk í Laugarási í Biskupstungum og þaðan stolið 21 gróðurhúsalampa.
Slegist um að skrifa og gefa út bók um stórsvindlarann Bagger
Mikil barátta er hafin um það hver skrifar bók um danska fjársvikarann Stein Bagger og fyrirtæki hans IT-Factory þar sem nánast allt var sýndarmennska og svindl. Þá berjast dönsku bókaforlögin um útgáfuréttinn enda vitað að bókin mun seljast í bílförmum.
Ný ofurtölvutækni CCP getur annað milljón notendum EVE Online
Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP sem hannaði og rekur hinn vinsæla EVE Online tölvuleik hefur tekið upp nýja ofurtölvutækni frá Microsoft. Hún gerir fyrirtækinu kleift að hafa eina milljón notenda í leik sínum EVE Online. Nú eru notendur 300 þúsund.
„Zirp“ eða núllvextir verður tískuorðið í ár
Orð eins og „subprime“ eða undirmálslán auk fjármálakreppu einokuðu fjármálasíður blaða og vefmiðla á liðnu ári. Á hinu nýbyrjaða ári má hins vegar búast við nýju tískuorði eða „Zirp“, núllvöxtum eða núllrentu.
Stöðugt dregur úr olíuframleiðslu Norðmanna
Stöðugt dregur úr olíuframleiðslu Norðmanna. Það bætist við verulega lækkun á olíuverði á heimsmarkaði. Það er þó huggun harmi gegn að áætlanir gera ráð fyrir aukinni framleiðslu jarðgass.
Málflutningur: Jón Ásgeir krefst niðurfellingar
Munnlegur málflutningur hófst kl. 9.15 í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem tekist er á um kröfu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um að rannsókn á skattahluta Baugsmálsins verði dæmd ólögmæt og kröfu ákæruvaldsins um frávísun, að því er mbl.greinir frá.
Fundað um sjávarútveginn og ESB
Sjávarútvegurinn og ESB er yfirskrift fundar sem haldinn verður á sunnudaginn. Þar verður leitað svara við spurningum sem upp kynnu að koma í hugsanlegum aðildarviðræðum Íslendinga við Evrópusambandið, m.a. hvort undantekningar hafi verið gerðar á meginreglunni um „alger yfirráð“.
Í mat og drykk fara 14,6% af útgjöldum heimilanna
Íslendingar verja 14,6% af útgjöldum heimilanna (án eigin húsnæðis) til matar- og drykkjarvörukaupa. Hlutfallið er lægra en í mörgum nágrannalöndum okkar. Austur-Evrópuþjóðir eyða hlutfallslega mest í matar- og drykkjarvörur.
Ferðalög og frístundir - sýning í Laugardalshöll í maí
Sýningin Ferðalög og frístundir verður haldin í Laugardalshöllinni dagana 8.-10. maí nk. Þar mun sameinast á einum stað allt sem viðkemur ferðalögum, frístundum og afþreyingu, innanlands og utan. Sýningin Golf 2009 verður haldin samhliða.
Efnahagshrunið á Íslandi er orðið alþjóðleg viðmiðun. Nú er ástandinu í Lettlandi líkt við það sem gerðist rétt fyrir hrunið í haust. Matsfyrirtækið Moody's lækkaði í gær lánshæfi landsins úr A3 í BAA1. Hið sama gerði það á Íslandi fyrir efnahagsáfallið mikla.
Hlutabréfadeild FIH bankans lögð niður
FIH Erhvervsbank í Danmörku, sem er í íslenskri eigu, mun leggja niður hlutabréfadeild sína. Sagt er að forstöðumaður hennar hafi þegar tekið pokann sinn og öðrum í deildinni verði sagt upp í vikunni. Deildinni var ætlað leiðandi hlutverk í Danmörku.
Eldflaugum skotið á Ísrael frá Líbanon
Fjórum eldflaugum var skotið á norðurhluta Ísrael frá Líbanon nú undir morgun. Fregnir hafa ekki borist af mannfalli en tveir eru alvarlega slasaðir. Ekki er vitað hvort Hezbollah hryðjuverkasamtökin stóðu að árásunum eða meðlimir Hamas samtakanna sem Ísrael tekst nú á við á Gaza.