amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:15
 

Miðvikudagurinn 7. janúar 2009

«
6. janúar

7. janúar 2009
»
8. janúar
Fréttir

Mótmæli við sendiráð Bandaríkjanna vegna innrásarinnar í Gaza

Félagið Ísland Palestína efnir til mótmælafundar við sendiráð Bandaríkjanna á morgun, fimmtudag, kl. 17:00. Samtök hernaðar­andstæðinga vilja að íslensk stjórnvöld beiti sér fyrir alþjóðlegu vopnasölubanni á Ísrael.

Raftækjasýningin í Las Vegas hefst á morgun

Raftækjasýningin CES hefst á morgun en hún er haldin árlega í Las Vegas. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar á vesturlöndum en þar kynna framleiðendur nýjungar í upphafi hvers árs. Sýningaraðilum og gestum hefur fækkað nokkuð frá síðasta ári.

Tæplega tíu þúsund án atvinnu

Samkvæmt tölum Vinnumála­stofnunar eru 9.881 án atvinnu og liðlega sex af hverjum tíu sem eru atvinnulausir eru karlar. Alls eru 6.200 karlar án vinnu og 3.670 konur.

Nær 2.300 útköll hjá Slökkviliðinu á Akureyri

Útköll hjá slökkviliði Akureyrar 2008 voru 2,263 talsins og er það fjölgun um 119 útköll á milli árana 2007 og 2008. Útköll á slökkvibíla liðsins voru 124 og er það fækkun á milli ára, en sjúkrabílar höfðu næg verkefni.

Fjandsamleg yfirtaka á framsóknar­félagi

Fjórtán félagar í Framsóknar­félagi Reykjavíkur segjast hafa orðið vitni að fjandsamlegri yfirtöku félagsins í gærkvöld. Þau vinnubrögð eru fordæmd. Skráðir voru um 70 nýir félagar sem tóku félagið yfir og báru fram nýjan fulltrúalista á flokksþing.

Bjarni Harðarson segir sig úr Framsóknar­flokknum

Bjarni Harðarson, fyrrverandi þingmaður, hefur sagt skilið við Framsóknar­flokkinn. Þetta kemur fram í Sunnlenska fréttablaðinu en Bjarni útilokar ekki nýtt framboð til þingkosninga.

Þrjú lánasöfn sett að veði hjá Seðlabanka Evrópu

Hjá gamla Glitni voru þrjú lánasöfn sett að veði gegn lánveitingu í Seðlabanka Evrópu fyrir milligöngu Seðlabanka Lúxemborgar. Þar á meðal eru lán nokkurra íslenska fyrirtækja, m.a. sjávar­útvegsfyrirtækja. Var það gert að höfðu samráði og að fengnu samþykki viðkomandi fyrirtækja, segir í yfirlýsingu skila­nefndar gamla Glitnis.

Loðna finnst á stóru svæði

Vart hefur orðið við loðnu á mjög stóru svæði úti fyrir Norðausturlandi og norðanverðum Austfjörðum í loðnuleitinni sem nú stendur yfir.

Engar ákvarðanir um yfirfærslu íbúðalána í erlendri mynt

Engar ákvarðanir hafa verið teknar um yfirtöku Íbúðalána­sjóðs á íbúðalánum bankanna í erlendri mynd, líkt og Morgunblaðið greindi frá í morgun og vitnað var til hér á AMX.

Iðnaðar­ráðherra í heimsókn hjá Elkem á Íslandi

Össur Skarphéðinsson iðnaðar­ráðherra og Guðbjartur Hannesson alþingis­maður heimsóttu Elkem á Íslandi í dag til þess að kynna sér þá uppbyggingu sem nú á sér stað á Grundartanga.

„Alvarleg og dýrkeypt mistök við meðferð Icesave-deilunnar“

Þing­flokkur Vinstri grænna lýsir fullri ábyrgð á hendur ríkis­stjórninni vegna alvarlegra og dýrkeyptra mistaka við meðferð Icesave-deilunnar, bæði í aðdraganda og síðar úrvinnslu málsins.

Samkeppnis­eftirlitið: Húsleitin liður í rannsókn á ætluðum brotum

Samkeppnis­eftirlitið hefur í dag framkvæmt húsleitir á skrifstofum Teymis hf., Vodafone - Og fjarskipta ehf. og Tals - IP-fjarskipta ehf. Húsleitirnar eru liður í rannsókn Samkeppnis­eftirlitsins á ætluðum brotum þessara fyrirtækja, segir m.a. í tilkynningu eftirlitsins.

Hagrætt í heilbrigðisþjónustunni

Heilbrigðis­ráðherra hefur í hyggju að gera umtalsverðar breytingar á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar. Með þeim hyggst ráðherra ná fram hagræðingu í rekstri heilbrigðis­stofnana víðs vegar um landið og treysta um leið undirstöður grundvallar­starfsemi þjónustunnar.

Rússar reiðubúnir að opna á ný fyrir gas til Evrópu

Rússland er reiðubúið að opna gasleiðslur sínar á ný til Evrópu um leið og eftirlitsmenn frá Evrópu­sambandinu hafa komið sér fyrir á landamærum Rússlands og Úkraínu.Rússar hafa haldið því fram að Úkraínumenn hafi náð sér óleyfilega í gas úr leiðslum sem liggja frá Rússlandi til Evrópu um Úkraínu..

Rafmagnsnuddstólum stolið

Ef þú hefur rekist á rafmangsnuddsól þá ættirðu að láta lög­regluna vita. Um 30 slíkum stólum auk annars var stolið í innbroti úr fyrirtæki í hafnarfirði

Atvinnuleysi eykst í Þýskalandi í fyrsta skipti í þrjú ár

Nú eru 7,6% vinnufærra manna atvinnulausir í Þýskalandi. Alls misstu 18 þúsund vinnuna í desember - mun fleiri en sér­fræðingar reiknuðu með.

Brynhildur Guðjóns­dóttir hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin

Brynhildur Guðjóns­dóttir leikkona og leikskáld hlaut í dag Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2008. Verðlaunin hafa verið veitt frá 1981, fyrst sem Bjartsýnsiverðlaun Bröste. Alcan á Íslandi hf. er bakhjarl Íslensku bjartsýnisverðlaunanna.

Rekstur Úrvals Útsýnar, Plúsferða og Sumarferða tryggður

Iceland Express hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Ferðaskrifstofu Íslands, sem inniheldur Úrval Útsýn, Plúsferðir og Sumarferðir. Hjá félögunum starfa rúmlega 70 manns.Iceland Express mun koma með nýtt fé inn í reksturinn og tekur við öllum skuldbindingum ferðaskrifstofunnar.

Þjóðin er þjáð

Jóhann Óli Guðmundsson, einn eigandi Tals, segir að hann hafi verulegar áhyggjur af háttsemi fulltrúa Teymis í stjórn Tals, en for­stjóra fyrirtækisins var vikið úr starfi undir lok liðins árs. Jóhann Óli hefur sent fjölmiðlum yfirlýsingu vegna málsins.

Þrettán dagar eftir af valdatíð eins óvinsælasta forseta Bandaríkjanna

George Bush má muna fífil sinn fegurri. Þegar hann tók við völdum í Hvíta húsinu fyrir átta árum voru vinsældir hans töluverðar. Bush að sætta sig við að yfirgefa Hvíta húsið sem einn óvinsælasti forseti Bandaríkjanna.

Lög­reglan nýtir sér nýjan hugbúnað í baráttu við barnaklám

Nýr hugbúnaður gerir lög­reglunni kleift að bera kennsl á barnaklám og annað ólögmætt efni í tölvum sem hafa verið haldlagðar. Ísland verður fyrsta landið í heiminum sem notar slíka lausn í baráttunni gegn barnaklámi og öðru ólögmætu efni.

Óttast íslenskt ástand í Noregi

Við erum næstum komin með íslenskan gjaldmiðil nú og verðum því að fara varlega svo ekki verði íslenskt ástand hér, segir Bjørn Kjos, for­stjóri norska flug­félagsins Norwegian og biður norsk stjórnvöld að gæta að stöðu krónunnar og fara varlega í frekari vaxta­lækkun.

Hækkun greiðslna til stuðningsfjölskyldna

Jóhanna Sigurðar­dóttir, félags- og tryggingamála­ráðherra, hefur sett reglugerð um hækkun á greiðslum til stuðningsfjölskyldna sem annast sólarhringsvistun fatlaðra barna í skamman tíma.

Mótmæli við Landsbankann

Hópur fólks mótmælir nú utan við höfuðstöðvar Landsbankans í Austurstræti. Fólkið hrópar slagorð. Margir mótmælendanna skýla andlitum sínum með klútum.

Mikill samdráttur í bílasölu

Samdráttur í bílasölu hér á landi í desember nam 95% miðað við sama mánuð í fyrra. Ísland er ekki eitt á báti hvað samdrátt í bílasölu varðar en á fáum stöðum hefur samdrátturinn þó verið meiri en gjaldeyris- og bankakreppan hefur haft mikil áhrif á bifreiðasölu, segir Greining Glitnis.

Gjaldeyris­markaður eins og hann var fyrir áratug

Gjaldeyris­viðskipti hérlendis eru nú aðeins brot af því sem var undanfarin misseri. Má segja að gjaldeyris­markaðurinn sé kominn á svipaðar slóðir og fyrir tíu árum síðan hvað umfang millibanka­markaðar með gjaldeyri varðar, segir Greining Glitnis.

Exista bíður niðurstöðu málaferla Kaupþings í Bretlandi

Exista hefur kannað grundvöll málaferla í Bretlandi vegna greiðslustöðvunar Kaupthing Singer & Friedlander, dóttur­félags Kaupþings en félagið var stærsti hluthafi bankans þegar hann var yfirtekinn af breskum stjórnvöldum. Exista hefur hins vegar ákveðið að bíða niðurstöðu málaferla Kaupþings í Bretlandi.

Norska stjórnin vill aukna olíu­sjóðspeninga gegn kreppunni

Olíu­sjóður Norðmanna er gríðarlega öflugur og er í raun lífeyris­sjóður landsmanna. Nú vill norska ríkis­stjórnin sækja aukið fé í hinn digra sjóð til þess að berjast gegn fjármálakreppunni.

Samkeppnis­eftirlitið með húsleit hjá Teymi

Samkeppnis­eftirlitið hefur hafið húsleit á starfstöð Teymis og dóttur­félaganna Og fjarskipta ehf. og IP fjarskipta ehf., að því er mbl.is greinir frá. Rannsakað er hvort fyrirtækið eða dótturfélög hafi brotið samkeppnislög.

Feitar indverskar flugfreyjur reknar

Indverska flug­félagið Air India hefur sagt upp níu flugfreyjum vega ofþyngdar. Félagið segist hafa misst þolinmæðina eftir að hafa gefið þeim nægan tíma til að koma málum sínum í horf. Flugfreyjurnar digru íhuga málssókn gegn flug­félaginu.

Breyting á eignar­haldi Menntaskólans Hraðbrautar

Nýsir og aðrir eigendur Menntaskólans Hraðbrautar hafa selt eignar­hlut sinn í skólanum til hjónanna Borghildar Pétursdóttur og Ólafs Hauks Johnson, skóla­stjóra skólans. Skólinn býður framhaldsskólanám til stúdentsprófs á tveimur árum.

Sigurður og Hreiðar Már úr stjórn FIH Erhvervsbank

Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson hafa gengið úr stjórn FIH Erhvervsbank í Danmörku. Gamla Kaupþing á bankann sem þýðir að hann er í íslenskri ríkiseigu.

Framtíð fjárfestingar­sjóðsins Frumtaks tryggð

Framtíð fjárfestinga­sjóðsins Frumtaks var í óvissu eftir fall bankanna en hún hefur nú verið tryggð. Upphaflega var gert ráð fyrir að stærð sjóðsins yrði 4.650 milljónir en framlag viðskiptabankanna lækkar þannig að heildarstærð hans verður 4.050 milljónir.

Vilja norrænu ríkin selja SAS?

Jafnvel þótt þýska flug­félagið Lufthansa hafi áhuga á að kaupa norræna flug­félagið SAS hafa ríkis­stjórnir Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar, sem eiga sameiginlega um helming í félaginu, enn ekki tekið ákvörðun um sölu.

Erlend lán verða íslensk og miðað við svipað gengi og þau voru tekin

Erlend íbúðalán verða flutt frá viðskiptabönkunum til Íbúðalána­sjóðs um leið og lánunum verður breytt í hefðbundin íslensk verðtryggð lán. Við yfirfærsluna verður stuðst við viðmiðunargengi sem er nálægt gengi krónunnar á þeim tíma sem lánin voru tekin.

Kjalar krefst uppgjörs á gjaldeyris­samningi við Kaupþing

Fjárfestingar­félagið Kjalar, sem er að langstærstum hluta í eigu Ólafs Ólafsson krefst þess að fá greiddan út framvirkan gjaldeyris­samning úr gamla Kaupþingi á viðmiðunargengi krónunnar hjá evrópska seðlabankanum.

Flughált víða á Norðurlandi

Á Norðurlandi er flughált um Þverárfjall, Siglufjarðarveg og frá Akureyri til Dalvíkur en að öðru leiti er þar hálka. Á Norðausturlandi er flughált á Mývatnsheiði, Tjörnesi og frá Þórshöfn að Kópaskeri en að öðru leiti er þar hálka.

Fuglahvísl

Reynir Traustason í nafni gegnsæis

Reynir Traustason, rit­stjóri DV, vildi ekki birta frétt um fyrrverandi banka­stjóra Landsbankann og rægði í staðinn eigin blaðamann. En í nafni gegnsæis birtir hann trúnaðargögn um Árvakur, sem er góðra gjalda vert. En ætti rit­stjórinn ekki að ganga skrefinu lengra og upplýsa almenning um viðskipti DV og Árvakurs?

Sjálfstæðis­menn of uppteknir til að móta stefnu?

Allt púður sjálfstæðis­manna virðist fara í umræður um hvort ganga eigi í Evrópu­sambandið eða ekki. Minna fer fyrir stefnumörkun í efnahagsmálum, skattamálum, húsnæðismálum, heilbrigðismálum, landbúnaðar- og sjávar­útvegsmálum o.s.frv. Á meðan blæðir almenningi og fyrirtækjum út.

Guðmundur fer – Dagur reiðist

Páll Magnússon, formannsframbjóðandi í Framsóknar­flokknum, fagnar því sérstaklega á bloggsíðu sinni, að Guðmundur Steingrímsson (Hermannssonar) hafi sagt skilið við Samfylkinguna og gengið til liðs við Framsóknar­flokkinn. Dagur B. Eggertsson er hins vegar með hæðnislega reiði í garð Guðmundar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX