amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:27
 

Þriðjudagurinn 6. janúar 2009

«
5. janúar

6. janúar 2009
»
7. janúar
Fréttir

Marks & Spencer segir upp um 1000 manns

Breska verslunarkeðjan Marks & Spencer neyðist til að segja um um 1000 starfsmönnum vegna samdráttar í sölu en endaleg tala verður tilkynnt á morgun. Staða margra breskra verslunarkeðja er bágborin.

Fjórtán nýir áfangastaðir easyJet í Evrópu

easyJet tilkynnti í dag um fjórtán nýja áfangastaði í Evrópu, ekki síst flug frá mörgum enskum borgum til suðrænni landa álfunnar. Þetta bætist við aukið flug easyJet til Norðurlandanna.

Danir geta ekki réttað yfir sjóræningjunum í Absalon

Í annað sinn á stuttum tíma gæti áhöfnin á danska herskipinu Absalon þurft að skila sjóræningjum í land þar sem Danir telja sig ekki hafa lögsögu í máli þeirra. Sjóræningjarnir voru staðnir að verki við ránstilraun í hollenskt skip undan Sómalíuströndum.

Hluta­bréf í Bandaríkjunum hækka

Hluta­bréf í bandaríkjunum hækkuðu nokkuð í verði og þá fyrst og fremst bréf tæknifyrirtækja. Þá hækkuðu einnig bréf í fjármálafyrirtækjum, fjarskiptum og orku.

Þrír nýir framkvæmda­stjórar hjá Skyggni

Friðrik Þ. Snorrason hefur tekið við starfi framkvæmda­stjóra Skyggnis ehf. en hjá fyrirtækinu starfa um 200 sér­fræðingar í upplýsinga­tækni á fjórum stöðum á landinu. Skyggnir veitir þjónustu í hönnun, uppsetningu og rekstri upplýsinga­tækni- og samskiptalausna.

Breyting á stjórn Byrs

Frá og með áramótum varð sú breyting á skipan stjórnar Byrs spari­sjóðs að Jón Kr. Sólnes, varamaður stjórnar tók sæti Egils Ágústssonar.

Veð í kvóta seld til erlendra banka

Veð í kvóta a.m.k. þriggja stórra útgerðarfyrirtækja var framselt til erlendra banka á liðnu sumri. Stöð 2 greindi frá þessu í kvöldfréttum og segir að um sé að ræða veðsetningu á þriðja tug milljarða króna.

Styrkir gegn kynbundnu ofbeldi

Jóhanna Sigurðar­dóttir, félags- og tryggingamála­ráðherra, veitti á nýliðnu ári tæpar 8,5 milljónir króna í styrki til félaga­samtaka sem sinna forvarnaverkefnum gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum og kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum

Flugeldaslys og skemmdarverk

Tvö flugeldaslys voru tilkynnt til lög­reglunnar á höfuðborgar­svæðinu í gær en í báðum tilvikum voru aðilar fluttir á slysa­deild.

Fjórir teknir fyrir ölvunarakstur

Fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgar­svæðinu um helgina. Fyrst var kona á sextugsaldri tekin fyrir þessar sakir í Garðabæ aðfaranótt laugardags en hún ók bíl sínum á tvo aðra bíla og kastaðist annar þeirra jafnframt á ljósastaur.

Verulega dregið úr gjaldeyris­viðskiptum

Eftir að millibanka­markaður með gjaldeyri var endurvakinn hefur dregið mjög úr gjaldeyris­viðskiptum Seðlabankans. Frá 4. til 31. desember nam nettósala gjaldeyris 11,1 milljón evra.

Leiga á Manhattan verður ódýrari

Þeir sem hafa áhuga á að leigja sér skrifstofuhúsnæði á Manhattan geta tekið gleði sína. Mörg ár eru síðan jafn mikið hefur verið af lausum fermetrum og verðið fer lækkandi.

Bankarnir kaupa ekki veiðileyfi í sumar

Nýju bankarnir Kaupþing og Landsbankinn munu hvorugur kaupa laxveiðileyfi í sumar, að því er Vísir greinir frá. Ljóst má því vera að eigendur veiðiánna missa spón úr aski sínum enda hafa bankarnir verið meðal helstu kaupenda veiðileyfa í mörg ár.

LÍÚ: Samningsforræði lykilatriði við ákvörðun veiða úr deili­stofnum

Veiðar úr deili­stofnum nema um 30% aflatekna af íslenskum sjávar­afurðum en til þeirra teljast m.a. úthafskarfi, loðna, norsk-íslensk síld, kolmunni, makríll og grálúða. Framkvæmda­stjóri LÍÚ ítrekar mikilvægi forræðis Íslands þegar samið er um veiðar úr slíkum stofnum.

Fjórir hópar áhugasamir um rekstur Árvakurs

Einar Sigurðsson, for­stjóri Árvakurs, segir tvo til fjóra hópa manna áhugasama um að koma að rekstri útgáfu­félags Morgunblaðsins, að því er fram kemur á mbl.is. Hann gerir ráð fyrir að sjá til lands um miðjan janúar en ætlunin sé að afla eins milljarðs í hlutafé.

Framkvæmda­stjórar gömlu bankanna í mál vegna launa

Flestir framkvæmda­stjórar Gamla Glitnis og Kaupþings sem sagt var upp í kjölfar bankahrunsins ætla í mál við bankana vegna vangoldinna launa, segir RÚV í frétt. Fulltrúar skiptaráðenda bankanna telja framkvæmda­stjórana ekki eiga rétt á kröfum á bankana.

Leitað til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna hryðjuverkalaganna

Ríkis­stjórnin hefur ákveðið að kanna til þrautar möguleika á að leita réttar Íslendinga fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu vegna beitingar breskra stjórnvalda á svo­nefndum hryðjuverkalögum frá árinu 2001 gegn Landsbankanum á síðasta ári.

Raungengi krónunnar enn afar lágt

Raungengi krónunnar hækkaði um 8% í desember frá fyrri mánuði ef miðað er við hlutfallslegt verðlag en er þó ennþá mjög lágt í sögulegu samhengi, segir Greining Glitnis. Á síðasta ári lækkaði raungengi krónunnar um tæplega 40%.

Greining Glitnis: Lækkun hrávöruverðs dregur úr bata á vöruskiptajöfnuði

Lækkun hrávöruverðs á heims­markaði undanfarið dregur nokkuð úr þeim bata á vöruskiptajöfnuði sem orsakast hefur af afar lágri krónu og viðsnúningi í hagkerfinu úr þenslu í samdrátt.Þó mun væntanlega verða talsverður afgangur af vöruskiptum á næstunni, segir Greining Glitnis.

Porsche með meirihluta í Volkswagen

Þýski sportbílaframleiðandinn Porsche hefur eignast meirihluta í Volkswagen, stærsta bílaframleiðanda í Evrópu. Porsche stefnir að því að eignast 75% hlut á árinu og ná þannig algerum yfirráðum yfir verksmiðjunum.

Árvakursmenn telja að umskipti verði á afkomunni á þessu ári

EBITDA afkoma Árvakurs á liðnu ár var neikvæð um 570 milljónir króna, en áður höfðu áætlanir gert ráð fyrir 339 milljóna króna jákvæðri afkomu. Af reglulegri starfsemi var hins vegar jákvæð afkoma fyrir afskriftir og fjármagn upp á 49 milljónir króna.

Olíuverðið yfir 50 dollara á ný

Olíuverð hækkar á ný og fór yfir 50 dollara á tunnu í fyrsta skipti síðan í nóvember. Helstu ástæður hækkunarinnar eru taldar vera ófriðarástandið á Gaza of gasdeila Rússa og Úkraínumanna. Þó er ekki búist við sprengingu í olíuverði.

Opnað fyrir viðskipti allmargra sjóða Landsbankans

Landsbankinn hefur opnað fyrir viðskipti allmargra sjóða sinna á ný. Aðrir sjóðir, fyrir utan Peningabréfa­sjóðina sem nú hefur verið slitið, eru sem fyrr lokaðir.

Mörg Evrópu­ríki án gass

Mörg Evrópu­ríki fá alls ekki gas eða mun minna en venjulega vegna gasdeilu Rússa og Úkraínumanna. Mjög hefur dregið úr útflutningi gass frá Rússlandi vegna deilunnar.

MP Banki hf. fær bankanúmerið 700

MP Banki hf. hefur fengið staðfest viðskiptabankaleyfi og hefur í kjölfar leyfisveitingarinnar samið um aðgang að kerfum Reiknistofu bankanna og fengið úthlutað bankanúmerinu 700.

The Economist: Framseljanlegar aflaheimildir lausn fyrir ESB

Framseljanlegar aflaheimildir eru lausnin á vanda sjávar­útvegs­stefnu Evrópu­sambandsins. Fiskveiði­stjórnun á Íslandi er til eftirbreytni á sama tíma og sjávar­útvegs­stefna ESB með öllum sínum ríkisstyrkjum hefur beðið algert skipbrot, segir m.a. í umfjöllun The Economist.

Gengisvísitala með þröngri viðskiptavog

Þröng viðskiptavog, sem Seðlabanki Íslands birtir, er reiknuð út frá vöruviðskiptum við öll lönd sem vega að minnsta kosti 1% í vöruviðskipum Íslands undangengin þrjú ár. Einnig er tekið tillit til hlutfalls ferðamennsku í þjónustu­við­skiptum.

Toyota verksmiðjurnar loka í 11 daga í febrúar og mars

Toyota verksmiðjurnar í Japan hætta framleiðslu í 11 daga í febrúar og mars vegna heimskreppunnar. Framleiðslustöðvunin bætist við 3 daga stopp nú í janúar. Verksmiðjurnar eru nú reknar með tapi í fyrsta skipti í 71 árs sögu.

Íbúðaverð á Bretlandseyjum lækkar sem aldrei fyrr

Íbúðaverð á Bretlandseyjum féll um 15,9% á síðasta ári samkvæmt könnun Nationwide, byggingarsamvinnu­félagsins. Minnsta lækkunin var í Skotlandi þar sem íbúðir lækkuðu að meðaltali um 8,1%.

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 5,4% í nóvember

Vísitala framleiðsluverðs í nóvember 2008 var 197,1 stig og hækkaði um 5,4% frá október. Frá nóvember 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 68,5%, að því er fram kemur í tölum Hagstofu Íslands.

Vöruskipti í nóvember hagstæð um 2,5 milljarða

Vörur voru fluttar út fyrir tæpa 43,2 milljarða í nóvember og inn fyrir 40,6 milljarða. Vöruskiptin voru því hagstæð um 2,5 milljarða króna. Fyrstu 11 mánuði ársins voru vöruskiptin hins vegar óhagstæð um 28,9 milljarða króna.

Mótmæla hækkun raforkuverðs harðlega

Samtök iðnaðarins mótmæla harðlega hækkunum á verði fyrir dreifingu og flutning á raforku nú um áramótin. Ekki sé ásættanlegt að opinberir aðilar gangi fram fyrir skjöldu og hækki verð á nauðsynjum í því árferði sem nú ríkir.

Til liðs við Framsóknar­flokkinn

Guðmundur Steingrímsson, varaþingmaður Samfylkingar­innar, hefur sagt skilið við flokkinn og er genginn til liðs við Framsóknar­flokkinn. Frá þessu greinir Fréttablaðið í dag.

Ísraelar sitja um Gaza-borg

Harðir bardagar standa nú yfir í útjaðri Gaza-borgar, sem er talið helsta vígi Hamas-liða, þriðju nóttina eftir að landher Ísraels gerði innráð í Gaza. Dipómatískar tilraunir til að koma á friði hafa verið árangurslausar.

Hálka og éljagangur á Holtavörðuheiði

Á Suðurlandi er greiðfært á helstu leiðum en hálkublettir víða í uppsveitum. Þoka er á Bröttubrekku. Hálkublettir og éljagangur eru á Holtavörðuheiði, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX