amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 17:59
 

Mánudagurinn 5. janúar 2009

«
4. janúar

5. janúar 2009
»
6. janúar
Fréttir

Bjarni endurgreiðir gamla Glitni 370 milljónir króna

Bjarni Ármannsson, fyrrverandi for­stjóri Glitnis, hefur greitt til baka þær launa­greiðslur sem hann fékk frá gamla Glitni þegar hann lét af störfum. Alls nema greiðslurnar um 370 milljónum króna.

Bandaríski seðlabankinn kaupir pappíra fyrir 500 milljarða dollara

Bandaríski seðlabankinn mun næsta hálfa árið kaupa bréf sem eru með veð í fasteignum. Keyptir verða pappírar með þessum tryggingum,en þau veð hafa þótt vafasöm, fyrir 500 milljarða dollara. Með því reynir seðlabankinn að koma hjólum efnahagslífsins í landinu af stað á ný.

Norðlensk peninga­stofnun í burðarliðnum

Þreifingar eru hafnar um stofnun norðlenskrar peninga­stofnunar. Spari­sjóðir verða sameinaðir og Saga Capital verður stærsti eigandinn.Þá er hugsanlegt að KEA og Kaup­félag Skagfirðinga komi að málinu.

Framkvæmdum frestað við Tónlistarhúsið

Verktaka­fyrirtækið IAV segir í tilkynningu að það hafi ekki fengið greitt fyrir vinnu við Tónlistarhúsið í þrjá mánuði. Því hafi það ákveðið að fresta framkvæmdum. Á verkstað hafa unnið á þriðja hundrað starfsmenn ÍAV auk fjölda undirverktaka.

Kaupþing í mál við bresk stjórnvöld

Skila­nefnd Kaupþings undirbýr nú málshöfðun fyrir breskum dómstóli, vegna þeirrar ákvörðunar breskra yfirvalda frá í haust að beita Kaupþing Singer & Friedlander bankann greiðslustöðvun. Skila­nefnd Landsbankans aðhefst hins vegar ekki að sinni.

Tólf kaupleigu­fyrirtæki gera kröfur á Bagger

Bústjóri í rústunum eftir danska fjársvikarann Stein Bagger, fyrrum for­stjóra IT Factory, hefur fengið kröfur frá tólf dönskum og erlendum kaupleigufyrirtækjum í búið, auk ýmissa annarra fyrirtækja. Kröfurnar nema 1-1,1 milljarði danskra króna eða sem svarar 23-25 milljörðum íslenskra króna.

Nefnd um nýtingu lands

Sjávar­útvegs- og landbúnaðar­ráðherra hefur skipað nefnd til að meta hvort þörf sé á að endurskoða ákvæði laga í þeim tilgangi að tryggja betur en nú er, að land sem nýtanlegt er til matvælaframleiðslu verði ekki tekið til annarra nota með varanlegum hætti.

Ísland áfram í efstu deild þjóða

Samkvæmt Hagstofu ESB verður verg landsframleiðsla á Íslandi tæplega 10 milljarðar evra á á árinu 2009 eða sem nemur 31 þúsund evrum á hvern íbúa. Í samanburði við umrædd 30 ríki verður Ísland í 13 sæti, á svipuðum slóðum og Frakkland og Þýskaland, og allnokkuð hærra en meðaltöl fyrir evru-svæðið eða ESB í heild.

Rússar fylla drekana af tískuvöru í Finnlandi

Rússar hafa hópast í vöruhúsin í Helsinki til stórinnkaupa um jól og áramót. Þeir eru í fríi og sækja vestur yfir landamærin í leit að tískuvarningi. Þeir koma gjarnan á bílum með finnsku ferjunum og drekkhlaða þá fyrir heimferðina.

Bættur aðgangur að lyfjum

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðis­ráðherra hefur með reglugerð opnað fyrir möguleika á útgáfu markaðsleyfa fyrir lyf sem skortur er á og ekki hefur verið sótt um markaðsleyfi fyrir.

Velta á fasteigna­markaði dróst saman um 71%

Velta á fasteigna­markaði á höfuðborgar­svæðinu minnkaði um 71% í desember miðað við sama tíma 2007. Fjöldi kaupsamninga minnkaði um nær 78%.

Sjónvarpssjúkir Danir

Danir hafa aldrei fyrr horft jafnmikið á sjónvarp og á nýliðnu ári. Fyrra met frá árinu 1998 var slegið. Langmest sjónvarpsgláp var um jólin. Vegna mikils framboðs er sjónvarpsefni vinsælt meðal allra aldurs­flokka.

Bon Jovi losar Hillary Clinton úr skuldaklafanum

Jon Bon Jovi mun syngja til stuðnings Hillary Clinton, verðandi utanríkis­ráðherra Bandaríkjanna, á fimmtudaginn í næstu viku. Hillary glímir enn við skuldaklafa vegna kosningabaráttu sinnar þar sem hún varð að lúta í lægra haldi fyrir Barack Obama, verðandi forseta.

Dregur úr hópuppsögnum

Vinnumála­stofnun fékk fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í desember þar sem 94 starfsmönnum var sagt upp. Verulega hefur dregið úr hópuppsögnum á síðustu vikum en alls var 5.100 manns sagt upp á síðasta ári með hópuppsögnum.

Tímamót í loðnumælingu

Hafrannsóknarskip og þrjú fiskiskip eru nú við loðnuleit. Loðnuleitin að þessu sinni markar ákveðin tímamót því í fiskiskipunum er nú búnaður sem hefur verið kvarðaður í samræmi við búnað rannsóknarskipsins þannig að samvörun er á milli mælinga.

Ísraelsmenn telja sig neydda til að verja land sitt

Í kjölfar þess að Hamas samtökin rufu vopnahlé sem staðið hafði í 6 mánuði og tóku upp auknar eldflaugaárásir á almenning í Ísrael hefur Ísrael nú látið verða af hótunum sínum um hernað. Íslenskir ráðamenn fordæma hernað Ísrael og telja of langt gengið.

38 ökumenn kærðir vegna akstur undir áhrifum fíkniefna

Á árinu 2008 voru alls 38 ökumenn kærðir, í umdæmi lög­reglunnar á Vestfjörðum, vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna eða vera með leifar fíkniefna í blóði eða þvagi.

Níu ára sonur Beckhams fær sérsmíðaðan Porsche

Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Knattspyrnugoðið David Beckham er þekkt fyrir áhuga á bílum. Í safni hans má finna Aston Martin, Hummer og Porsche. Nú hefur 9 ára sonur Beckhams eignast sinn fyrsta bíl, sérsmíðaðan Porsche - þó ekki fullvaxinn.

Banaslys austan við Selfoss

Karlmaður beið bana rétt austan við Selfoss í morgun þegar hann varð fyrir sendibifreið. Þetta er annað banaslysið í umferðinni á hinu nýbyrjaða ári.

Lærum af mistökunum, segir Bjarni Ármannsson

Ég og aðrir þeir sem unnu að framgangi fjármálageirans hljótum að viðurkenna mistök okkar, læra af þeim og nýta lærdóminn til að byggja upp til framtíðar. Mikilvægt er að við náum að vinna okkur hratt út úr vandanum og byggja upp traust í sam­félaginu á nýjan leik, segir Bjarni Ármannsson, fyrrverandi for­stjóri Glitnis í grein í Fréttablaðinu í dag.

Framlag íslenskra stjórnvalda til loftslagsviðræðna

Á fundi aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, sem nýverið fór fram í Póllandi, var fjallað um fyrirhugað alþjóðlegt samkomulag um loftslagsmál sem ætlunin er að ljúka á þessu ári. Íslendingar hafa sent sínar tillögur.

Mosaic leitar að riddara á hvítum hesti

Mosaic Fashions, félagið á bak við tískukeðjurnar Oasis, Warehouse, Karen Millen og Priciples, leitar nú að nýjum fjárfestum til að koma í veg fyrir að lánardrottinn félagsins, Kaupþing, eignist ráðandi hlut í því. Baugur er stærsti eigandinn í Mosaic með 49% hlut.

Iceland Express telur samlegðaráhrif mikil

Iceland Express undirritaði viljayfirlýsingu um kaup á Ferðaskrifstofu Íslands í gærkvöld. Ferðaskrifstofan, sem var að þroti komin, er móður­félag Úrvals Útsýnar, Sumarferða og Plúsferða. Iceland Express telur samlegðaráhrif vegna kaupanna mikil.

Jón Ásgeir hefur látið af stjórnar­formennsku 365 miðla

Jón Ásgeir Jóhannesson hefur látið af formennsku í stjórn 365 miðla ehf. sem reka Stöð 2, Bylgjuna, Fréttablaðið og fleiri miðla. Nú á hann ekki lengur sæti í stjórn neins fyrirtækis hér á landi.

Verðrýrnun Apple nær 100 milljarðar dollara

Hluta­bréf í Apple tölvu- og tækni­fyrirtækinu, hafa fallið mjög frá árinu 2007, eða frá 200 dollurum á hlut í 90,75 dollara á hlut. Þróun hluta­bréfaverðsins þýðir að verðmæti Apple hefur minnkað um nær 100 milljarða dollara.

Obama undirbýr 300 milljarða dollara skattalækkun

Barack Obama, sem tekur við embætti forseta Bandaríkjanna eftir rúman hálfan mánuð, undirbýr nú sögulegar skattalækkanir í Bandaríkjunum. Talið er að þær muni nema um 300 milljörðum dollara, bæði á einstaklinga og fyrirtæki.

Mildari refsing Baggers upplýsi hann um brot annarra

Stein Bagger, fjársvikarinn danski, getur mildað refsingu sína komi hann efnahagsbrota­deild dönsku lög­reglunnar á sporið um brot annarra. Nýtt ákvæði í dönskum refsilögum heimilar þetta. Bagger gæti átt átta ára fangelsisvist yfir höfði sér.

Kauphöllin núllstillt

Kauphöll Íslands hefur verið núllstillt. Níu af 15 fyrirtækjum eru horfin úr úrvalsvísitölunni í kjölfar efnahagshrunsins sem leiddi til 96,6% falls í kauphöllinni. Sex fyrirtæki mynda nú vísitöluna OMXI6. Samsetning hennar er endurskoðuð tvisvar á ári.

Fuglahvísl

Samfylking hallmælir stjórnar­samstarfi

Margir sjálfstæðis­menn urðu forviða í morgun, 5. janúar, þegar þeir lásu ummæli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingar­innar, á forsíðu Fréttablaðsins.

Átyllan, svör og spurningar

Nokkrar umræður hafa spunnist vegna hugleiðinga Björns Bjarnasonar, dóms- og kirkjumála­ráðherra, á vefsíðu hans um helgina, þar sem hann ber saman aðdraganda þingkosninga 1956 og samstöðu vinstri flokkanna í varnarmálum á þeim tíma til að útiloka Sjálfstæðis­flokkinn

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX