amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:15
 

Sunnudagurinn 4. janúar 2009

«
3. janúar

4. janúar 2009
»
5. janúar
Fréttir

SI: Allt atvinnulífið sitji við sama borð

Því verður ekki unað ef í ljós koma tilburðir í þá átt að afgreiða vanda einnar atvinnugreinar eða einstakra fyrirtækja með öðrum hætti eða á kostnað annarra. Hér verða allir að sitja við sama borð, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmda­stjóri Samtaka iðnaðarins

Iceland Express sagt koma að sem fjárfestir í Ferðaskrifstofu Íslands

Fullyrt er að Iceland Express komi sem nýr fjárfestir að Ferðaskrifstofu Íslands, móður­félagi Úrvals Útsýnar, Sumarferða og Plúsferða. Brottför flugvélar hefur frestast í allan dag vegna greiðsluerfiðleika félagsins.

Forseti Ísraels segir vopnahlé ekki koma til greina

Shimon Peres, forseti Ísraels, sagði í viðtali við bandaríska sjónvarpsstöð að vopnahlé á Gaza kæmi ekki til greina. Það hefði enga þýðingu. Hamas-samtökin yrðu að læra sína lexíu.

Fogh fatast flugið

Í uppgjöri á störfum Anders Foghs Rasmussens. forsætis­ráðherra Dana, í tilefni áramótanna kemst Berlingske Tidende að þeirri niðurstöðu, að eftir góð ár síðan 2001 hafi árið 2008 reynst honum mótdrægt og honum sé tekið að fatast flugið.

Ingibjörg Sólrún fordæmir árásir

Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir utanríkis­ráðherra fordæmir innrás Ísraelshers á Gazaströndina sem geti aldrei annað en beinst að saklausum íbúum sem séu varnarlausir.

Landher Ísraela réðst inn á Gaza-svæðið

Landher Ísraela hefur ráðist inn á Gaza-ströndina og berast fréttir af hörðum bardögum á milli ísraelskra hermanna og vopnaðra sveita Hamas.

Fyrsti áfangi álvers í Helguvík gangsettur 2011

Norðurál á í viðræðum við fimm evrópska banka um fjármögnun álversbyggingar í Helguvík en stefnt að því að gangsetja fyrsta áfanga álversins í Helguvík eftir mitt ár 2011.

Fuglahvísl

ÞKG og ISG deila – fokið í flest skjól

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, varaformaður Sjálfstæðis­flokksins, og Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir, formaður Samfylkingar­innar, eru teknar til við að deila opinberlega.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX