| « 2. janúar |
■ 3. janúar 2009 |
» 4. janúar |
FME rannsakar viðskipti peningamarkaðssjóða
Rannsókn Fjármálaeftirlitsins í kjölfar falls bankanna beinist meðal annars að því að kanna viðskipti með verðbréf og markaðssetningu og fjárfestingu peningamarkaðssjóða.
Madoff tók við 10 milljónum dollara viku áður en hann játaði svikin
Stórfjárfestirinn og fjársvikarinn Bernard Madoff var virkur á fjárfestingamarkaði allt þar til 50 milljarða dollara svikamylla hans hrundi. Hann tók við 10 milljónum dollara aðeins sex dögum áður en hann viðurkenndi svikin fyrir sonum sínum.
Ingibjörg Sólrún í geislameðferð
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fer í geislameðferð á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í næstu viku, að því er fram kemur í frétt Ríkisútvarpsins. Karólínska sjúkrahúsið hefur yfir að ráða tækjum sem ekki eru til hér á landi.
Ofbeldisfullir mótmælendur mótmæla ofbeldi
Þeir sem harðast hafa gengið fram í mótmælum og sumir með ofbeldi og skemmdarverkum, bera sig illa. Þeir kvarta yfir sinnuleysi lögreglu og að aðrir beiti þá ofbeldi. Þannig fer allt í hring á Íslandi í dag.
Sextán og með byssu föður síns
Hann var aðeins sextán ára pilturinn sem var handtekinn í Breiðholti í nótt með byssu, en eins og komið hefur á AMX var mikill viðbúnaður hjá lögreglu vegna byssumanns í gærkvöldi. Í ljós hefur komið að hann var með byssu föður síns.
Wall Street með bestu byrjun frá árinu 2003
Hlutabréf í Bandaríkjunum byrjuðu nýja árið vel í gær og hefur S&P 500 vísitalan ekki hækkað jafn mikið á fyrsta degi árs síðan 2003.
Ekki undir pressu að selja West Ham
Ónafngreindir heimildarmenn, sem sagðir eru standa nálagt Björgólfi Guðmundssyni, segja að ekki sé tímapressa á að selja West Ham, enska úrvaldsdeildarliðið. Hansa, eignarhaldsfélag Björgólfs, sem heldur um hlutabréfin í knattspyrnufélaginu, er í greiðslustöðvun.
Víðast góð færð en þoka á Hellisheiði
Það er þoka á Hellisheiði en greiðfært á öllum helstu leiðum á Suðurlandi og Vesturlandi. Á Vestfjörðum er einnig autt á flestum leiðum sem á annað borð eru opnar. Þó er snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.
Byssumaðurinn sem leitað var í gærkvöldi í Reykjavík var handtekinn um miðnætti. Hann fannst í Breiðholti og gafst upp án mótþróa. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglunni vegna þessa.
Smáfuglarnir eru á því að framkvæmdastjórar stjórnmálaflokkanna séu í fluguvigt. Þeir hafi áður verið í þungavigt í íslenskum stjórnmálum og fjölmiðlar jafnt sem almenningur hafi lagt við eyrun þegar þeir töluðu. Skúli Helgason er þannig fulltrúi nýrra tíma.