| « 1. janúar |
■ 2. janúar 2009 |
» 3. janúar |
Eiríkur Tómasson ekki í formennsku Framsóknarflokksins
Eiríkur Tómasson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, segist ekki vera á leið í pólitík. Í samtali við Visi.is segist Eiríkur hafa áhuga á þjóðmálum en hann sé ekki að bjóða sig fram til formennsku í Framsóknarflokknum.
Ólafur Stefánsson íþróttamaður ársins
Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður og fyrirliði íslenska landsliðsins var valinn íþróttamaður ársins af samtökum íþróttafréttamanna. Ólafur hlaut fullt hús stiga í kjörinu.
Grunur leikur á að maður vopnaður byssu sé á ferð í Gerðunum í Reykjavík. Lögreglan er með mikinn viðbúnað í hverfinu þar sem mannsins er leitað. Ekki hefur fengist staðfest hvort um alvöru byssu er að ræða.
Kristján Arason hættir hjá Kaupþingi
Kristján Arason, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kaupþings, hefur óskað eftir því láta af störfum. Með því segist hann vilja skapa sátt um störf bankans.
Ríkislögreglustjóri áréttar, í tilefni af frétt Morgunblaðsins á gamlársdag að staða mála í efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra er betri nú en hún hefur nokkru sinni verið. Frétt ríkislögreglustjóra er birt hér í heild.
Ísland situr á neðst á lista þeirra þjóða þar sem samdráttur í þjóðarframleiðslu verður mestur árið 2009, miklu neðar en Zimbabwe sem er næst Íslandi hvað samdrátt varðar, að því er fram kemur í tímaritinu The Economist.
Íslensk kona myrt í Bandaríkjunum
Bandarískur maður skaut íslenska eiginkonu sína til bana á gamlárskvöld og fyrirfór sér í kjölfar voðaverksins. Konan, Isol Cotto, var ættuð úr Njarðvík. Hjónin bjuggu í Marble Town í New York ríki. Konan hafði fengið nálgunarbann sett á manninn.
Danskt herskip tekur sjóræningja
Danska herskipið Absalon tók fimm sjóræningja höndum eftir að þeir reyndu að taka flutningaskip úti fyrir Sómalía þar sem sjórán hafa verið tíð. Skipverjar á flutningaskipinu höfðu áður skotið flaug í bát ræningjanna og kveikt í honum.
Lægsta bjórverð hjá breskri kráarkeðju frá árinu 1989
Kráareigendur í Bretlandi fara ekki varhluta af kreppunni. Neysla hefur dregist mjög saman. Til að bregðast við og laða viðskiptavini að hefur kráarkeðjan JD Wetherspoon kækkað verðið á stórum bjór í 0,99 pund, hið lægsta frá árinu 1989.
Jafnvel Warren Buffet sleppur ekki undan fjármálakreppunni
Fjárfestingamógúllinn Warren Buffett, ríkasti maður heims, sleppur ekki óskaddaður frá fjármálakreppunni frekar en aðrir. Hlutabréf í fyrirtæki hans, Berkshire Hathaway, lækkuðu um 32% á liðnu ári. Mest var fallið þrjá síðustu mánuðina.
Icelandair skaut SAS ref fyrir rass
Icelandair var með besta boð í flug með danska ríkisstarfsmenn á flugleiðinni milli Kaupmannahafnar og New York. Það vekur athygli, ekki síst vegna þess að SAS bauð upp á beint flug en Icelandair millilendir í Keflavík.
VG stærsti flokkurinn en Sjálfstæðisflokkur bætir við sig fylgi
Um 36% kjósenda styðja ríkisstjórnina, samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Stuðningurinn eykst á milli mánaða. Vinstri grænir eru stærsti flokkurinn samkvæmt könnuninni en stuðningur við Sjálfstæðisflokksins eykst töluvert.
Einkaþota Hannesar Smárasonar til sölu
Einkaþota Hannesar Smárasonar, fyrrum forstjóra FL Group, er komin á sölu hjá einkaþotumiðlara í Bretlandi. Vélin er árgerð 2002 af gerðinni Bombardier Challenger 604. Verð er ekki gefið upp en samkvæmt heimildum AMX er ásett verð í kringum 2,5 milljarða króna.
SMS-áramótaskeyti í tugmilljónavís
Ný hefð hefur fest sig í sessi hjá Dönum um áramót, ekki síður en kampavín og nýársávarp drottningar. Þarlendir þumalputtar tifa sem ákafast þegar nýtt ár gengur í garð. Danir sendu 54 milljónir SMS skeyta til að fagna árinu 2009.
Evran lækkar og samdráttur er meiri en í Bandaríkjunum
Evran á undir högg að sækja en gengi hennar hefur lækkað gagnvart helstu gjaldmiðlum. Reiknað er með að Seðlabanki Evrópu verði að lækka vexti til að hamla gegn samdrætti efnahagslífsins, sem er meiri en í Bandaríkjunum.
Bílarnir sem Danir vildu ekki árið 2008
Samdráttur varð í bílasölu í Danmörku á liðnu krísuári, 2008, ekki síður en hér á landi. Sumar bílategundir fóru þó verr út úr kreppunni en aðrar - eða þóttu hreinlega ekki smart. Þó verður að taka fram að bílasmekkur Dana er annar en Frónbúa.
Enginn fórst í sjóslysum 2008 sem er einstakt
Hægt er að leiða líkum að því að síðasta ár sé fyrsta ár frá landnámi þar sem enginn ferst í sjóslysi á íslenskum skipum. Síðasta ár var því einstakt að þessu leyti segir Siglingastofnun.
Fimm norrænar banka- og fjármálastofnanir hafa verið sameinaðar og verða Ikano bank. Ikano fjármálastofnanirnar eru í fjölskyldueign og eru afsprengi IKEA verslunarkeðjunnar. Starfsemi þeirra nær til fjórtán landa í þremur heimsálfum.
SAS klárt fyrir samruna við Lufthansa
Forráðamönnum norræna flugfélagsins SAS hefur tekist að gera félagið söluvænlegra með því að losa sig við dótturfélög, semja við starfsmenn og skera niður útgjöld. Margt bendir því til að þýska flugfélagið Lufthansa taki SAS yfir alveg á næstunni.
Könnun SA: Afleitar aðstæður en von um bjartari tíð
Stjórnendur 99% fyrirtækja sem svöruðu könnun um stöðu og horfur í efnahagslífinu töldu að aðstæður í efnahagslífinu væru þá mjög (73%) eða frekar (26%) slæmar og einungis um 1% álitu aðstæður hvorki góðar né slæmar. Ekkert fyrirtæki taldi aðstæður vera góðar.
Keflavíkurflugvöllur ohf. tekinn til starfa
Opinbera hlutafélagið Keflavíkurflugvöllur tók til starfa í gær, nýársdag, en í því er sameinuð starfsemi Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Kristján L. Möller hleypir fyrirtækinu formlega af stað í dag.
Vegir auðir á Suður- og Vesturlandi
Á Suður- og Vesturlandi eru vegir víðast auðir. Á Vestfjörðum eru víða hálkublettir. Hálka er víða á Norðurlandi og sumstaðar hálkublettir, segir á upplýsingavef Vegagerðarinnar.
Stjórnarmaður í Exista tapar 123 milljörðum á falli Íslands
Robert Tchenguiz hefur tapað yfir 700 milljónum punda, eða um 123 milljörðum króna, á hruni íslenska efnahagslífsins. Þetta kemur fram í frétt The Times í dag. Tchenguiz situr í stjórn Exista sem var stærsti hluthafinn í Kaupþingi banka.
Sögusagnir hafa lengi verið um náin tengsl Jóns Ólafssonar, athafnamanns og Samfylkingarinnar. Smáfuglarnir hafa lengi hvíslað um fjárstuðning og fyrirgreiðslu.
Verður Eiríkur Tómasson formaður Framsóknarflokksins?
Smáfuglarnir hvísla því hljóðlega að Eiríkur Tómasson lagaprófessor sé nýjasta nafnið í leit framsóknarmanna að nýjum formanni. Ekki er vitað hvernig prófessorinn tekur í þær hugmyndir, en hann á djúpar rætur í Framsóknarflokknum og býr yfir meiri pólitískri reynslu en flestir þeirra sem formlega hafa boðið sig fram.
Hvern nýársdag taka forsetahjónin á móti gestum á Bessastöðum. Þrátt fyrir gott veður 1. janúar 2009, voru fáir á Bessastöðum þann dag. Höfðu smáfuglar á orði, að þetta endurspeglaði hug fólks til Ólafs Ragnars Grímssonar.