| « 31. desember |
■ 1. janúar 2009 |
» 2. janúar |
Banaslys varð á Ólafsfjarðarvegi skammt norðan við Árskógssands síðdegis í dag. Tveir fólksbílar, sem komu hvor úr sinni áttinni, skullu saman og lést karlmaður, ökumaður annars bílsins.
Rafmagn til húshitunar og í dreifbýli hækkar mest
Algeng heildarhækkun til heimila vegna rafmagns verður 8-9% nú um áramótin. Stjórn RARIK hefur ákveðið að hækka verð á raforku en mest hækkar verð fyrir dreifingu og flutning eða um 15%. Þeir sem nota rafmagn til húshitunar ásamt þeim sem búa í dreifbýli finna mest fyrir hækkun.
Kosningar ofarlega í hugum leiðtoga
Forseti Íslands vill atkvæðagreiðslu um samfélagssáttmála. Forsætisráðherra vill flýta þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra talar um þingkosningar í vor.
Bankahrun og ábyrgð í áramótaávörpum
Biskupinn yfir Íslandi, forseti Íslands og forsætisráðherra véku allir að bankahruninu í áramótaræðum sínum, hver með sínum hætti. Forsetinn og forsætisráðherran litu í eigin barm og lögðu mat á hlutdeild sína..
Þrír mótmælenda lausir úr haldi
Þremur karlmönnum sem voru handteknir í óeirðum við Hótel Borg í gær hefur verið sleppt úr haldi lögreglu að sögn fréttastofu Ríkisútvarpsins. Forstjóri 365 miðla segir að lögregla hafi tekið of vægt á grímuklæddum ofbeldismönnum.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, sæmdi ellefu Íslendinga riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu við athöfn á Bessastöðum í dag.
Forsætisráðherra segir landsmenn á krossgötum
Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði í áramótaávarpi sínu að landsmenn stæðu á krossgötum. Raunveruleg hætta væri á því að heimsbyggðin sogaðist enn neðar í svelg efnahagskreppu.
Refsilagabrotum fækkaði milli ára
Sérrefsilagabrotum í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 30% á árinu 2008 í samanburði við árið 2007. Umferðalagabrotum fækkaði en hegningarlagabrotum fjölgaði.
Móta þarf sáttmála samstöðu og gagnkvæms trausts
Nú þurfum við í kjölfar hinnar erfiðu reynslu að gefa okkur tíma til að móta sáttmála um samfélagið, ræða efni hans og áherslur á opnum fundum, á vettvangi skóla og atvinnulífs, í félagasamtökum, sveitarstjórnum, á Alþingi og í fjölmiðlunum, sækja í smiðju annarra, sagði forseti Íslands m.a. í nýársávarpi sínu.
Zune tónlistarspilarar biluðu í hrönnum á gamlársdag
Allir tónlistarspilarar af gerðinni Zune 30 hættu að virka á gamlársdag. Samkvæmt tilkynningu frá Microsoft ættu þeir allir að lagast af sjálfu sér í dag.
Erilsöm en stórslysalaus áramót
Erilsamt var hjá lögreglu á nýársnótt en áramótin voru stórslysalaus. Í samantekt Ríkisútvarpsins kom fram að lögreglan sinnti 210 verkefnum, heldur fleiri en á nýársnótt í fyrra.