AMX Viðskipti

Aldrei brugðist vondum málstað
Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því  að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu  skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í  síðarnefnda blaðinu.

Í sjálfu sér þarf ekki að útskýra þessi mál í íslenskum fjölmiðlum. Við þekkjum Þórólf og skrifin hans og vitum auðvitað að þau dæma sig sjálf. Hann hefur verið tíður álitsgjafi á Speglinum  Ríkisútvarpsins og jafnan skipað sér í sveit þeirra sem varið hafa öll gönuhlaup og samningsmistök ríkisstjórnarinnar í Icesavemálinu. Það er því skiljanlegt að honum sárni ummæli Evu Joly. Því eins og máltækið segir: Sannleikanum verður hver sárreiðastur.

En hvað sagði Eva Joly sem særði hinn hörundssára prófessor svo? Það var meðal annars þetta:

„Prófessor Þórólfur Matthíasson hefur um langt skeið stutt kröfur Breta og Hollendinga. Í grein hans, sem birtist í Aftenposten 2. febrúar, er ýmsu sleppt og rangt farið með staðreyndir.“

Og síðar sagði hún ennfremur:

„Þórólfur gefur til kynna með lítt fræðilegum hætti að þeim, sem telja að Icesave-samningarnir séu dæmi um hráa valdníðslu og endurspegli fallið fjármálakerfi, megi líkja við Bernie Madoff, sem var dæmdur í 150 ára fangelsi. Óljóst er í greininni hvernig hann kemst að þeirri niðurstöðu.“

Þetta er allt saman rétt hjá Evu Joly.  Íslenska þjóðin er á góðri leið með að hafna  Icesave óberminu. Meira að segja ríkisstjórnin sér sitt óvænna og vill nú leggja af stað til nýrra viðræðna um málið.

Við þær aðstæður er ekki að undra að maður sem hefur stutt allar útgáfur af Icesaveklúðri  ríkisstjórnarinnar viti ekki sitt rjúkandi ráð; ekki frekar en Indriði H Þorláksson sem einnig hefur verið manna ólatastur við að verja vondan málstað. Líkt er á komið með þeim kumpánum og skrif beggja verða að skoðast í því ljósi. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa aldrei brugðist vondum málstað í Icesavemálinu.

Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjónvarpið

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins.

Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru.

Samkvæmt könnun Frjálsar verslunar fengi Sjálfstæðisflokkurinn um 35% atkvæða ef gengið yrði til kosninga nú. Vinstri grænir eru með 26% fylgi og Samfylking með 22%. Framsóknarflokkurinn er 15%. Aðrir fá 2%.

Samkvæmt þessu fengi D-listi 22-23 þingmann (16 núna), Samfylking 14  (20 nú), Framsókn 10  (9 nú), Vinstri græn 16-17 (14 nú) og aðrir engan (4 nú). Yrðu þetta úrslitin væri aðeins hægt að mynda tveggja flokka stjórn með Sjálfstæðismönnum.

Í frétt á heimur.is segir einnig:

„Alls voru 636  spurðir og mikið var um óvissa og þá sem ekki vildu svara. Í könnuninni voru 36% óviss eða vildu ekki svara, Um 6% ætla ekki að kjósa eða skila auðu.  Reynslan sýnir að óákveðnir séu yfirleitt allmargir þegar langt er til kosninga.

Vikmörk eru allvíð eða miðað við 95% vissu eru +/-5,0%. Þetta þýðir t.d. að í spá um fjölda þingmanna Samfylkingar, VG og Sjálfstæðismanna gæti munað 2-3 þingmönnum til eða frá. Hjá hinum flokkunum er óvissan minni í prósentustigum talið eða 1-2 þingsæti.

Könnunin gefur til kynna að VG og Sjálfstæðisflokkur styrki stöðu sína frá nýlegum könnunum. Samfylking er nú minni en VG en hefur verið talsvert stærri síðan í mars í fyrra. Munurinn er við skekkjumörk.

Einnig var spurt um afstöðu til Icesave-samninganna og birtast niðurstöður úr þeirri könnun fyrir hádegi á morgun, föstudaginn 12. febrúar.

Í fyrsta tölublaði Frjálsrar verslunar sem kemur út eftir miðjan febrúar verða birtar niðurstöður könnunarinnar um vinsælasta fyrirtæki landsins.“

Steingrímur J. látinn sitja eftir með skömmina
Steingrímur J. Sigfússon í viðali við Ríkissjónvarpið.

Jóhanna er flúin af landinu og einn helsti ráðgjafi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, húðskammar Steingrím J. Sigfússon, fyrir hvernig haldið hefur verið á Icesave-málinu. Smáfuglarnir sjá ekki betur en að Samfylkingin ætli að láta Steingrím J. sitja upp með Icesave-skömmina. Margir Samfylkingar eru sannfærðir um að dagar ríkisstjórnar Jóhönnu séu taldir.

Löng og ítarleg grein Kristrúnar Heimisdóttur í Fréttablaðinu í dag er góður vitnisburður um þau viðhorf sem eru nú æ meira áberandi innan Samfylkingarinnar. Kristrún var aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar í utanríkisráðuneytinu. Ekki er langt síðan að Ingibjörg sjálf felldi þann dóm yfir Icesave-samningunum, að íslensk stjórnvöld hafi gengið til þeirra líkt og sakamenn.

Smáfuglarnir eru á því að ástandið á stjórnarheimilinu sé nú við frostmark. Ekki ósvipað og ástandið í þingflokksherbergi Vinstri grænna sem eru klofnir í herðar niður í Icesave.

Lofaði Jóhannes að ekkert þyrfti að afskrifa vegna Haga?
Stöð 2

Jóhannes Jónsson.

Smáfuglarnir eru líklega ekki þeir einu á Íslandi sem eru hættir að skilja málefni Haga. Jóhannes Jónasson hefur haldið því fram að ekkert yrði afskrifað vegna hans og fjölskyldu. Jón Ágseir lýsti því yfir síðasta sumar að þrír ónefndir erlendir aðilar væru tilbúnir að leggja 16 milljarða inn í fyrirtækið. Hvar eru þeir peningar?

Nú hefur hins vegar komið í ljós að allar þessar yfirlýsingar voru innantóm og marklaus. Arion ætlar að vísu að skrá Haga á markað og lofa Jóhannesi og Jóni Ásgeiri að eignast 10 eða 15% hlut í fyrirtækinu, en bankastjórinn neitar að upplýsa hvort bankinn þurfi að afskrifa eitthvað af tugmilljarða skuldum. Smáfuglarnir spyrja aðeins: Voru allar yfirlýsingar Jóhannesar um að ekkert þyrfti að afskrifa marklausar? Voru yfirlýsingar Jóns Ásgeirs um að 16 milljarðar væru væntanlegir án innistæðu? Var allt leikritið um að Malcolm Walker, forstjóri Iceland keðjunnar, ætlaði að veðja á þá feðga, bara leikrit?

Smáfuglarnir spyrja: Er það með þessum hætti sem útrásarvíkingarnir tryggja sér áframhaldandi hlut í íslensku viðskiptalífi? Afhverju telur Arion að bankinn þurfi að taka sérstakt tillit til þeirra feðga sem skulda bankanum tugi milljarða? Á sama tíma eru einstaklingar, sem gerðu ekkert af sér að berjast í bökkum, og fá ekki slíkar afskriftir. Er þetta hið nýja Ísland?

Smáfuglarnir spyrja Jóhannes sérstaklega: Var ekkert að marka loforð sem þú gafst þjóðinni um að ekkert þyrfti að afskrifa?

Sægreifinn Reynir Traustason
dv.is

Reynir Traustason, ritstjóri DV, seldi kvóta fyrir 10 milljónir og fluttist svo frá Flateyri. Nú skrifar hann ljóta texta um þá sem gera það sama.

Smáfuglarnir sem leggja það á sig að fletta síðum DV hafa ekki farið varhluta af því að ritstjóri blaðsins, Reynir Traustason, leggur mikið hatur á þá sem hann kallar sægreifa en það munu vera útgerðarmenn sem hafa selt aflaheimildir og skip til annarra útgerðarmanna eða til nýliða í sjávarútvegi sem kaupa sér skip og heimildir og hefja rekstur. Þeir allra verstu, að mati ritstjórans, hafa svo selt veiðiheimildir burt frá litlum þorpum á landsbyggðinni.

Það vakti því mikla athygli í fuglatrénu þegar upp kom á Youtube myndband sem dregur saman feril Reynis í sjávarútvegi. Samkvæmt myndbandinu fékk Reynir aflakvóta sem hann síðan seldi fyrir 10 milljónir. Bát sinn gerði Reynir út frá Flateyri en seldi bátinn auk kvóta. Að því búnu flutti Reynir burtu frá Flateyri með alla peningana.

Smáfuglarnir telja að hér hafi Reyni enn og aftur tekist að bíta höfuðið af skömminni.

Myndbandið um Sægreifann Reyni Traustason

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
AMX

Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.

Við yfirheyrslur hollenskrar þingnefndar á mánudag lét fyrrum embættismaður í hollenska seðlabankanum þau ummæli falla að íslenskir embættismenn hefðu veitt rangar upplýsingar um stöðu íslensku bankanna í aðdraganda hruns fjármálakerfisins haustið 2008. Í ljósi þessara ummæla sendi Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra frá sér eftirfarandi yfirlýsingu. að því er fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins:

„Við tökum slíkar ásakanir og athugasemdir mjög alvarlega. Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós og dýpka þar með skilning okkar á því hvernig þessir aðilar hefðu getað brugðist við með öðrum hætti.

Frumvarp til breytinga á lögum um fjármálafyrirtæki sem nú liggur fyrir Alþingi til samþykktar mun gerbreyta öllu regluverki íslensks fjármálamarkaðar.  Verði það að lögum munum við hafa tekið mikilvæg skref til þess að tryggja að Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn hafi aðgang að mun betri og nákvæmari gögnum um stöðu nýju bankanna og annarra fjármálastofnana og mun betra svigrúm til að bregðast við slíkum upplýsingum með afgerandi hæti þegar vandamál gera vart við sig.“

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Jonty Sewell

Héraðsdómur Reykjavíkur felld í dagi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair.

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Úrskurðurinn féll á þriðja tímanum í dag, að því er Vísir greinir frá.

Þar segir enn fremur:

„Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu árið 2004 að flugfélagið hefði misnotað markaðsráðandi stöðu með því að bjóða upp á netsmelli til Kaupmannahafnar og Lundúna. Þá var Icelandexpress einnig á ferðamarkaði.

Samkeppniseftirlitið komst í fyrstu að þeirri niðurstöðu að Icelandair skyldu greiða 190 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir brot sitt. Icelandair áfrýjaði þeim úrskurði til áfrýjunarnefndar Samkeppniseftirlitsins sem lækkaði sektina niður í 130 milljónir króna.

Þá stefndi Icelandair Samkeppniseftirlitinu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur sem úrskurðaði í dag að flugfyrirtækið hefði gerst sekt um að misnota markaðsráðandi stöðu sína. Aftur á móti var sektin felld niður.“

Niðurstaðan fagnaðarefni

Í annarri frétt Vísis segir:

„Upplýsingafulltrúi Icelandair, Guðjón Arngrímsson, segir það fagnaðarefni að stjórnvaldssekt upp á 130 milljónir króna hafi verið felld niður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sektina hlaut fyrirtækið upprunalega fyrir að brjóta gegn samkeppnislögum með því að misnota markaðsráðandi stöðu sína gagnvart flugfélaginu Icelandexpress.

Icelandair er þegar búið að greiða sektina en hún verður endurgreidd félaginu samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Þar segir ennfremur að sektin sé úr takti við brotið og því ekki forsvaranlegt að sekta félagið um svo háa sekt.

Upprunalega var fyrirtækið dæmt til þess að greiða 190 milljónir króna. Því var áfrýjað og þá var sektin lækkuð niður í 130 milljónir. Það var árið 2004. Nú, sex árum síðar, komast dómstólar að því að sektin hafi ekki verið réttmæt.

„Það er ánægjulegt að þeir hafi fallist á þetta en samt umhugsunarefni hversu langan tíma og mikla fyrirhöfn það tók hinsvegar,“ segir Guðjón um sex ára baráttu fyrirtækisins. Þess má geta að úrskurður Samkeppniseftirlitsins er óbreyttur að öðru leytinu til.“

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir"
IHN

Einar Valur Kristjánsson segir markmið strandveiðanna á engan hátt hafa gengið eftir. Myndin er úr safni.

„Þetta kemur mér auðvitað ekkert á óvart en eftir því sem dýpra er kafað  ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir,“ segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði, að því er fram kemur á síðu Landssambands íslenskra útvegsmanna.

Þar segir enn fremur:

Með ummælum sínum vísar Einar Valur til svars sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Einars Kristins Guðfinnssonar á Alþingi nú nýverið. Þar kom fram að einungis 17% strandveiðiaflans hafi verið landað í heimahöfn. Allur aflinn sem strandveiðibátarnir veiddu síðastliðið sumar og var landað á Ísafirði, var seldur beint til aðila utan löndunarhafnar.

„Yfirlýst markmið með þessum veiðum var að auka atvinnu og nýliðun. Ég tel augljóst að markmið þessara veiða hafi engan veginn náðst. Ég bíð svo spenntur eftir því að sjá hverju strandveiðarnar skiluðu í skatttekjum til sveitarfélaganna. Það hlýtur líka að verða kannað,“ segir Einar Valur.

Forstjóraskipti hjá Auðhumlu
Sigurður Bogi

Einar Sigurðsson.

Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og  Mjólkursamsölunnar, að því er fram kemur í tilkynningu vegna forstjóraskiptanna.

Þar segir enn fremur:

Magnús Ólafsson hóf störf hjá Mjólkurstöðinni í Reykjavík árið 1961 og hefur unnið nánast óslitið fyrir mjólkuriðnaðinn síðan. Hann er mjólkurfræðingur að mennt og hefur gengt ýmsum trúnaðarstörfum og tekið þátt í margvíslegum þróunarverkefnum sem tengjast uppbyggingu mjólkuriðnaðins hér á landi. Að loknu námi starfaði hann hjá Mjólkursamlagi KEA á Akureyri og síðan hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Þá lá leið hans til Mjólkurstöðvarinnar í Reykjavík þar sem hann var verkstjóri þar til hann varð framkvæmdastjóra Emmess ís árið 1980. Hann tók við starfi forstjóra Osta- og smjörsölunnar árið 2000 þar til starfsemin var sameinuð Mjólkursamsölunni í árslok 2006. Þá varð Magnús aðstoðarforstjóri og síðan forstjóri Mjólkursamsölunnar og forstjóri Auðhumlu.

Einar Sigurðsson tók við starfi forstjóra Mjólkursamsölunnar 1. maí á síðasta ári. Hann hafði verið forstjóri Árvakurs í tvö og hálft ár og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Capacent þar á undan. Um 17 ára skeið var hann starfsmaður Flugleiða síðustu átta árin framkvæmdastjóri stefnumótunar- og stjórnunarsviðs.  Einar er með mastersgráðu í stjórnmálafélagsfræði frá London School of Economics og BA gráðu í fjölmiðlafræði. Hann starfaði að námi loknu sem fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, hljóðvarpi og sjónvarpi, og var fyrsti útvarpsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins og leiddi þar uppbyggingu útvarpsstöðvarinnar Bylgjunnar.

Stjórn Auðhumlu þakkar Magnúsi óeigingjarnt og fórnfúst starf fyrir mjólkuriðnaðinn síðustu áratugina og bíður Einar velkominn til starfa.„

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóðabankann
Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað.

Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóðabankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einkafyrirtæki í þróunarríkjum, að því er fram kemur í tilkynningu Capacent.

Þar segir enn fremur:

„Að loknu alþjóðlegu útboði á síðasta ári ákvað IFC að taka tilboði Capacent í ráðgjöf vegna vörudreifingarfjármögnunar.

Capacent vann í kjölfarið alþjóðlega könnun á markaðsþróun og bestu starfsháttum (best practices) á sviði SCF. Könnunin ber heitið Global Supply Chain Financing Market Study og eru aðstæður í Bangladesh, Brasilíu, Gvatemala, Indónesíu, Rúmeníu, Tyrklandi og Víetnam þar skoðaðar sérstaklega og lagt mat á jafnt þörfina fyrir sem áhugann á vörudreifingarfjármögnun.

Markmið könnunarinnar var að geta í framhaldinu lagt mat á hversu vel SCF hentar sem tæki fyrir Alþjóðabankann til að efla útflutning þróunarríkja.

Vinnu við könnunina lauk í nóvember á síðasta ári og í ljósi niðurstaðna hennar ákvað IFC að gera áframhaldandi samning við Capacent um frekari úrvinnslu á niðurstöðunum og eftirfylgni þeirra.

Hefur Capacent verið falið að þróa tillögur um hvernig IFC geti beitt vörudreifingarfjármögnun í auknum mæli til að styðja við fyrirtæki í þróunarríkjum, sem selja framleiðslu sína til stórfyrirtækja í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan.

„Það er mikil viðurkenning fyrir Capacent að Alþjóðabankinn skuli hafa valið okkur sem samstarfsaðila í þessu verkefni og sýnir að Capacent hefur tryggt sér stöðu sem leiðandi fyrirtæki á sviði rannsókna og ráðgjafar á Norðurlöndunum. Þetta er mjög spennandi og heillandi verkefni og við vonum að niðurstöður þessarar vinnu muni gagnast Alþjóðabankanum vel í stuðningi við fyrirtæki í þróunarríkjunum,“ segir Skúli Gunnsteinsson, forstjóri Capacent International.“