AMX Stjórnmál

Aldrei brugðist vondum málstað
Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því  að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu  skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í  síðarnefnda blaðinu.

Í sjálfu sér þarf ekki að útskýra þessi mál í íslenskum fjölmiðlum. Við þekkjum Þórólf og skrifin hans og vitum auðvitað að þau dæma sig sjálf. Hann hefur verið tíður álitsgjafi á Speglinum  Ríkisútvarpsins og jafnan skipað sér í sveit þeirra sem varið hafa öll gönuhlaup og samningsmistök ríkisstjórnarinnar í Icesavemálinu. Það er því skiljanlegt að honum sárni ummæli Evu Joly. Því eins og máltækið segir: Sannleikanum verður hver sárreiðastur.

En hvað sagði Eva Joly sem særði hinn hörundssára prófessor svo? Það var meðal annars þetta:

„Prófessor Þórólfur Matthíasson hefur um langt skeið stutt kröfur Breta og Hollendinga. Í grein hans, sem birtist í Aftenposten 2. febrúar, er ýmsu sleppt og rangt farið með staðreyndir.“

Og síðar sagði hún ennfremur:

„Þórólfur gefur til kynna með lítt fræðilegum hætti að þeim, sem telja að Icesave-samningarnir séu dæmi um hráa valdníðslu og endurspegli fallið fjármálakerfi, megi líkja við Bernie Madoff, sem var dæmdur í 150 ára fangelsi. Óljóst er í greininni hvernig hann kemst að þeirri niðurstöðu.“

Þetta er allt saman rétt hjá Evu Joly.  Íslenska þjóðin er á góðri leið með að hafna  Icesave óberminu. Meira að segja ríkisstjórnin sér sitt óvænna og vill nú leggja af stað til nýrra viðræðna um málið.

Við þær aðstæður er ekki að undra að maður sem hefur stutt allar útgáfur af Icesaveklúðri  ríkisstjórnarinnar viti ekki sitt rjúkandi ráð; ekki frekar en Indriði H Þorláksson sem einnig hefur verið manna ólatastur við að verja vondan málstað. Líkt er á komið með þeim kumpánum og skrif beggja verða að skoðast í því ljósi. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa aldrei brugðist vondum málstað í Icesavemálinu.

Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjónvarpið

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins.

Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru.

Samkvæmt könnun Frjálsar verslunar fengi Sjálfstæðisflokkurinn um 35% atkvæða ef gengið yrði til kosninga nú. Vinstri grænir eru með 26% fylgi og Samfylking með 22%. Framsóknarflokkurinn er 15%. Aðrir fá 2%.

Samkvæmt þessu fengi D-listi 22-23 þingmann (16 núna), Samfylking 14  (20 nú), Framsókn 10  (9 nú), Vinstri græn 16-17 (14 nú) og aðrir engan (4 nú). Yrðu þetta úrslitin væri aðeins hægt að mynda tveggja flokka stjórn með Sjálfstæðismönnum.

Í frétt á heimur.is segir einnig:

„Alls voru 636  spurðir og mikið var um óvissa og þá sem ekki vildu svara. Í könnuninni voru 36% óviss eða vildu ekki svara, Um 6% ætla ekki að kjósa eða skila auðu.  Reynslan sýnir að óákveðnir séu yfirleitt allmargir þegar langt er til kosninga.

Vikmörk eru allvíð eða miðað við 95% vissu eru +/-5,0%. Þetta þýðir t.d. að í spá um fjölda þingmanna Samfylkingar, VG og Sjálfstæðismanna gæti munað 2-3 þingmönnum til eða frá. Hjá hinum flokkunum er óvissan minni í prósentustigum talið eða 1-2 þingsæti.

Könnunin gefur til kynna að VG og Sjálfstæðisflokkur styrki stöðu sína frá nýlegum könnunum. Samfylking er nú minni en VG en hefur verið talsvert stærri síðan í mars í fyrra. Munurinn er við skekkjumörk.

Einnig var spurt um afstöðu til Icesave-samninganna og birtast niðurstöður úr þeirri könnun fyrir hádegi á morgun, föstudaginn 12. febrúar.

Í fyrsta tölublaði Frjálsrar verslunar sem kemur út eftir miðjan febrúar verða birtar niðurstöður könnunarinnar um vinsælasta fyrirtæki landsins.“

Steingrímur J. látinn sitja eftir með skömmina
Steingrímur J. Sigfússon í viðali við Ríkissjónvarpið.

Jóhanna er flúin af landinu og einn helsti ráðgjafi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, húðskammar Steingrím J. Sigfússon, fyrir hvernig haldið hefur verið á Icesave-málinu. Smáfuglarnir sjá ekki betur en að Samfylkingin ætli að láta Steingrím J. sitja upp með Icesave-skömmina. Margir Samfylkingar eru sannfærðir um að dagar ríkisstjórnar Jóhönnu séu taldir.

Löng og ítarleg grein Kristrúnar Heimisdóttur í Fréttablaðinu í dag er góður vitnisburður um þau viðhorf sem eru nú æ meira áberandi innan Samfylkingarinnar. Kristrún var aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar í utanríkisráðuneytinu. Ekki er langt síðan að Ingibjörg sjálf felldi þann dóm yfir Icesave-samningunum, að íslensk stjórnvöld hafi gengið til þeirra líkt og sakamenn.

Smáfuglarnir eru á því að ástandið á stjórnarheimilinu sé nú við frostmark. Ekki ósvipað og ástandið í þingflokksherbergi Vinstri grænna sem eru klofnir í herðar niður í Icesave.

Steingrímur J. vegur að Björgvini G. og leggur vopn í hendur Hollendinga
Smáfuglarnir lásu á ruv.is 3. febrúar:

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra segir mögulegar brotalamir í íslenska eftirlitskerfinu, í aðdraganda falls Landsbankans, geta gagnast Hollendingum í hugsanlegu dómsmáli.

Steingrímur segir að ríkisstjórnin hafi haft veður af því að Hollendingar teldu að brotalamir hefðu verið í upplýsingagjöf íslenskra eftirlitsaðila. Þetta hafi komið fram í umfjöllun um málið, í rannsóknarskýrslu sem tengist hollenska seðlabankanum og umfjöllun í hollenska þinginu. Þessi afstaða hafi síðan orðið skýrari síðustu daga.

Sigurður Bogi

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.

Smáfuglarnir telja, að Steingrímur J. hefði betur látið þetta ósagt. Hann er með tali af þessu tagi að leggja vopn í hendur andstæðinga Íslendinga, ef til málaferla kæmi við Breta og Hollendinga.

Hvaða ástæðu hefur Steingrímur J. til að gera því skóna, að brotalamir hafi verið í íslenska eftirtlitskerfinu? Jú, hann er sífellt að reyna að koma höggi á ráðherra í ríkisstjórn Geirs H. Haarde. Í þessu tilviki beinir hann vopnum að Björgvin G. Sigurðssyni, þáverandi viðskiptaráðherra, sem bar pólitíska ábyrgð á íslenska eftirlitskerfinu.

Formaður hollvina RÚV krefst tafarlausrar brottvikningar Páls Magnússonar
Páll Magnússon útvarpsstjóri les fréttir.

Þorgrímur Gestsson, formaður Hollvinasamtaka RÚV,  ritar grein í Fréttablaðið 3. febrúar og segir  „bráðnauðsynlegt að víkja Páli Magnússyni þegar í stað úr embætti útvarpsstjóra, jafnvel þótt það myndi kosta 18 milljónir króna, sem eru árslaun hans.“ Vill Þorgrímur ráða menningarvita að RÚV í stað Páls, enda sé RÚV fyrst og fremst menningarstofnun. Í grein sinni segir Þorgrímur einnig í tilefni að skýrslu starfshóps á vegum Katrínar Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, um RÚV:

Reynslan af hinum þriggja ára gömlu lögum um „opinbert hlutafélag“ afhjúpar fjölmarga galla á þeim; þau veita útvarpsstjóra nánast alræðisvald á dagskrá, mannaráðningum og stefnumótun. Stjórn hins opinbera hlutafélags hefur einungis það hlutverk að taka meiri háttar ákvarðanir um rekstur félagsins, sem falla ekki undir daglegan rekstur. Tekið skal undir þá skoðun starfshópsins að þetta sé ólýðræðislegt og ekki viðeigandi í félagi sem gegnir mikilvægu menningar- og lýðræðislegu hlutverki.

Starfshópurinn leggur enn fremur til að yfir Ríkisútvarpið verði sett fagráð, skipað fulltrúum úr ýmsum hópum almennings, háskólasamfélaginu og menningarlífinu. Stjórn Hollvina RÚV hefur ítrekað gert grein fyrir tillögum í þessa átt, meðal annars í athugasemdum við þau frumvörp til útvarpslaga sem lögð hafa verið fyrir Alþingi á undanförnum árum. Þá er í niðurstöðum starfshópsins lagt til að útvarpslögum verði breytt þannig að ráðningartími útvarpsstjóra verði tímabundinn eins og tíðkast með forstöðumenn annarra menningarstofnana.

Smáfuglarnir minna á, að í tíð útvarpsráðs, sem hafði afskiptarétt af dagskrá RÚV, var sífellt umkvörtunarefni starfsmanna RÚV, með stuðningi hollvina sinna, að starfsmennirnir hefðu ekki nægilegt frelsi, þeir þyrftu að lúta afskiptum fulltrúa almennings, sem kjörnir voru af Alþingi. Nú telja starfshópur og hollvinir „ólýðræðislegt“, að stjórn RÚV geti ekki tekið fram fyrir hendur útvarpsstjóra varðandi dagskrá. Hver er úrbótatillagan, jú, að sérhagsmunahópar menningarvita sitji í „fagráði“ um dagskrá og fréttir. Trúir einhver því, að það tryggi lýðræðisleg vinnubrögð?

Smáfuglarnir hafa gagnrýnt framgöngu Páls Magnússonar, sjálfumgleði RÚV og hlutdrægni við fréttamiðlun og álitsgjöf. Smáfuglarnir sjá ekki, að eitthvert „fagráð“ geti breytt RÚV. Það verður að einfaldlega að gera kröfu til þess, að RÚV starfi í samræmi við lög, reglur og samning við menntamálaráðuneytið. Starfsmenn þess hafi burði til að sinna verkefnum sínum á óaðfinnanlegan hátt.

Ráðherrastagl um Icesave, dæmi um ekki-fréttamennsku RÚV
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.

Smáfuglarnir heyrðu í hádegisfréttum RÚV 2. febrúar, að Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, fréttamaður, lagði þá spurningu fyrir Steingrím J., hvort ekki þyrfti eitthvað nýtt að gerast í Icesave-málinu á næstu tvemur vikum, til að hætt yrði við þjóðaratkvæðagreiðsluna 6. mars.

Á Steingrími J. var að heyra, að nú byggðist allt á þverpólitískri afstöðu hér heima fyrir. Um hvað hún ætti að snúast var hvorki spurt né hitt, ef allt byggðist á þessu, hvers vegna ríkisstjórnin hefði ekki leitað eftir henni á því eina ári, sem hún hefur setið.

Eitt fyrsta verk Steingríms J. var einmitt að fela Svavari Gestssyni, vini sínum og flokksbróður, að annast Icesave-málið með Indriða H. Þorlákssyni, sem Steingrímur J. tróð í ráðuneytisstjórastól í fjármálaráðuneytinu og gerði síðan að aðstoðarmanni sínum. Töldu þeir Svavar og Indriði H., að þeir hefðu fundið töfraformúlu til lausnar á Icesave. Óskapnaður þeirra hefur síðan orðið Steingrími J. dýrkeyptur.

Smáfuglarnir velta fyrir sér, hvers vegna Jóhanna Vigdís fór allt í einu að tala um einhvern tveggja vikna frest í Icesave-málinu. Undanfarnar vikur hafa þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. alltaf sagt, að eitthvað mundi geras í Icesave um eða eftir „næstu helgi“.  Hins vegar hefur ekkert gerst og þau eru aldrei spurð um sín fyrri orð. Voru það spunaliðar Samfylkingarinnar, sem lögðu til við Jóhönnu Vigdísi að tala nú frekar um tvær vikur en kalla fram hefðbunda svarið um „næstu helgi“?

Hvenær skyldi fréttastofa RÚV átta sig á því, að þetta ráðherrastagl um að eitthvað gerist í Icesave, sem bjargi ríkisstjórninni undan þjóðaratkvæðagreiðslunni, er í raun aðeins til marks um ekki-fréttamennsku RÚV um málið? Fréttamenn eru dregnir á asnaeyrunum í stað þess, að þeir láti ráðherra standa frammi fyrir eigin orðum og gerðum.

Jóhanna í leyniferð til Brussel
Hrannar B. Arnarsson

Athugun fréttamanna RÚV á vefsíðu ESB leiddi í ljós, að Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, ætlar að hitta Jóhönnu Sigurðardóttur næsta fimmtudag. Hrannar B. Arnarson, aðstoðarmaður Jóhönnu, brást hinn versti við því, að upp hefði komist um fréttina. Sannaðist þar enn, að leyndarhyggjan um athafnasemi Jóhönnu er svo rík, að hún slær jafnvel út baktjaldamakkið í Brussel.

Smáfuglarnir minna á, að Hrannar færir aðeins efni fyrir vini og vandamenn inn á vefsíðu sína. Einar Karl Haraldsson, upplýsingafulltrúi Jóhönnu, er víst aðallega önnum kafinn við að svara neikvæðu bloggi um Jóhönnu. Ekkert er sagt um ferðir Jóhönnu inn á vefsíðu forsætisráðuneytisins.

Jóhanna varðist allra frétta um hverja hún mundi hitta fyrir utan Barroso. Herman Van Rompuy, forseti ráðherraráðs ESB, verður kannski í Brussel. Rétt er að geta þess, að Barack Obama hefur ákveðið að sækja ekki fund leiðtoga ESB-ríkja í Madrid í maí, eins og ráðgert var, af því að hann vill ekki dragast inn í deilu um, hvort hann eigi að heilsa Van Rompuy á undan Zapatero, forsætisráðherra Spánar, en þeir deila um forsetatignarröðina innan ESB, eftir að Lissabon-sáttmálinn var samþykktur. ESB-fréttir um Lissabon-sáttmálann snerust um, að verið væri að einfalda stjórnkerfi ESB með honum. Niðurstaðan er önnur.

Smáfuglunum kæmi ekki á óvart, að Jóhanna áttaði sig ekkert á því, hver er hvað í Brussel og þess vegna hafi Hrannar og Einar Karl einfaldlega ákveðið, að öll ferð Jóhönnu yrði sveipuð leyndarhjúpi.

Skilningsleysi veldur stuðningi forseta ASÍ við ríkisstjórnina
ASÍ

Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands.

Smáfuglarnir heyrðu Svandísi Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, segja á Stöð 2 hinn 2. febrúar, að hún hefði úrskurðað gegn skipulagsbreytingum vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár, af því að hún væri svo góður og vandvirkur ráðherra. Hún hefði komist að því, að þátttaka Landsvirkjunar í kostnaði vegna breytinganna stæðist ekki skipulags- og byggingarlög.

Í Morgunblaðinu 2. febrúar er ákvörðun Svandísar borin undir Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ. Hann segir:

„Ég skil ég ekki hvers vegna umhverfisráðherra telur ólögmætt að sá aðili sem veldur kostnaði taki þátt í að greiða hann. Ég veit ekki hvaða hagsmuna ráðherrann er að gæta.“

Gylfi hefur haldið ríkisstjórn með Svandísi innan borðs á floti síðan 10. maí 2009. Hann telur, að ríkisstjórnin sé best til þess fallin að leysa vanda umbjóðenda sinna, þótt kannanir á vegum ASÍ segi allt annað. Gylfi vill inn í ESB og telur, að Jóhanna og Össur geti troðið þjóðinni þangað inn. Hann skilur hins vegar ekki hinn hæfileikamikla umhverfisráðherra. Í anda stöðugleikasáttmálans mun Gylfi þó örugglega ekki hafast frekar að í málinu.

Forsætisráðherra hittir forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins
Karen Eliot

Höfuðstöðvar Evrópusambandsins.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hittir José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, á fimmtudag. Jóhanna sagði að fundurinn hefði verið löngu ákveðinn. Icesave-málið, samstarf Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og lán frá Norðurlöndunum muni án efa bera á góma, að því er mbl.is greinir frá.

Þar segir enn fremur:

„Engar upplýsingar fengust úr Stjórnarráðinu um ferð Jóhönnu og hafði Útvarpið eftir Hrannari B. Arnarssyni, aðstoðarmanni Jóhönnu, að fundir hennar með embættismönnum Evrópusambandsins, ættu að fara leynt.“

Tveir þriðju hyggjast greiða atkvæði gegn Icesave-lögunum
Um 66% landsmanna hyggjast greiða atkvæði gegn Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fyrirhuguð er 6. mars næstkomandi.

Um 66% landsmanna hyggjast greiða atkvæði gegn Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fyrirhuguð er 6. mars næstkomandi. Kemur þetta fram í könnun sem Capacent Gallup gerði 20.-26. janúar síðastliðinn, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka.

Þar segir enn fremur:

„Er þetta mun hærra hlutfall en fyrir um mánuði síðan en í könnun sem gerð var 5.-6. janúar sögðust 41% ætla að greiða atkvæði gegn lögunum. Andstaðan er hins vegar svipuð og hún var strax rétt fyrir miðjan mánuðinn en í könnun sem Capacent Gallup gerði 9.-11. janúar sögðust 62% ætla að greiða atkvæði gegn lögunum og 66% í könnuninni sem gerð var 12.-19. janúar.

Nú segjast 30% ætla að kjósa með lögunum en í könnuninni fyrir mánuði sögðust 53% ætla að gera það. Í könnuninni 9.-11. janúar var hlutfall þetta komið niður í 33%. Hlutfall þeirra sem ætla að skila auðu hefur lækkað aðeins en það mælist nú 4% en var 6% í janúarbyrjun.

Stuðningur við ákvörðun forsetans um að staðfesta ekki Icesave-lögin hefur aukist jafnt og þétt í janúar. Í könnuninni sem gerð var 5.-6. janúar voru tæplega 41% svarenda sammála ákvörðun forsetans en í könnuninni sem gerð var í lok janúar sögðust 61% svarenda vera sammála ákvörðun forsetans.“