AMX Myndasöfn

Undrið í Dúbaí
Fáir deila um að gríðarlegur uppgangur í Dúbaí á síðustu árum virðist hafa verið byggður í orðsins fyllstu merkingu á sandi. Uppbyggingin hefur verið ótrúleg og svo virtist sem enginn skortur væri á peningum. Menn héldu áfram að byggja og byggja. Erlendir fjárfestar heilluðust af ævintýrinu, þekktar íþróttastjörnur þóttu ekki vera menn með mönnum mena að hafa keypt rándýrar íbúðir eða jafnvel heilu manngerðu eyjurnar.

Hér eru aðeins nokkur dæmi um framkvæmdagleðina. Það er af nægu að taka.

Lúxusíbúð Hannesar Smárasonar í London til sölu -
Lúxusíbúð Hannes Smárasonar við Pont Street í Knightbridge í London er nú til sölu, en Landsbankinn leysti íbúðina til sín fyrir skömmu. Raunar mun íbúðin hafa verið nokkuð lengi til sölu en uppsett verð er 7,5 milljónir punda eða liðlega 1,5 milljarðar króna.

Landsbankinn gekk að félaginu Fjölnisvegi 9 ehf., sem var í eigu Hannesar Smárasonar. Félagið á Fjölnisveg 11 í Reykjavík og íbúðina í London. Bankinn gekk að veðum í húsunum vegna skulda.

Það er Knight Frank fasteignasalan sem er með íbúðina til sölu.

Íbúðin er í einu besta og dýrasta hverfi London. Hún er um 261 fermetri að stærð. Þrjú svefnherbergi eru á efstu hæð öll með sérbaðherbergi. Tvær stofur eru í íbúðinni, sem er með sérinngangi.

Ekki er langt síðan að íbúðin var öll tekin í gegn og endurnýjuð. Fasteignasalan segir að hér sé um að ræða „grand“ íbúð.

Þriggja milljarða íbúð Jóns Ásgeirs í New York
Jón Ásgeir Jóhannesson keypti í janúar 2007 tvær íbúðir, samtals 650 fm, efst í 50 Gramercy Park North sem er eitt dýrasta hús á Manhattan. Jón Ásgeir er stjórnarformaður Baugs Group og leiðandi eigandi Stoða (áður FL Group), sem aftur voru kjölfestufjárfestir í gamla Glitni. Í gegnum sameiginlegt eignarhaldsfélag fjölskyldunnar á Jón Ásgeir Haga, sem rekur meðal annars Bónus, Hagkaup, 10-11 og fleiri smásöluverslanir hér á landi. Þá keypti fjárfestingarfélag Jóns Ásgeirs fjölmiðlahluta 365 fyrir nokkrum vikum. Í gegnum Baug Group hefur Jón Ásgeir verið umsvifamikill í fjárfestingum í smásöluverslunum á Bretlandi og víðar.

Að sögn fasteignasala þá keyptu, Jón Ásgeir og Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona hans, fyrst íbúð á 16. hæð hússins fyrir 10 milljónir dollara og síðar keyptu þau þakíbúð hússins á rúmar 14 milljónir dollara. Þar af greiddu þau 4 milljónir dollara fyrir forkaupsrétt sem var á eigninni. Eftir viðskiptin áttu þau þá þrjár hæðir í húsinu. Í fasteignaheimi borgarinnar var talsvert um það skrifað að Jón Ásgeir hefði gert mjög góð kaup í íbúðinni en upprunanlegt verð hafi verið nokkru hærra en það sem Jón greiddi.

Íbúð þeirra hjóna í New York kostaði alls 24 milljónir bandaríkjadala sem gera 2,9 milljarða króna sé miðað við hver dollar kosti 121 krónu. Þess ber að geta að þegar kaupin voru gerð var gengi dollars mun hagstæðara. Íbúðin er 650 fermetrar ásamt tæplega 70 fermetra svölum á 16. hæð hússins og tveimur stórum svölum á 18. hæð sem samtals mælast 120 fermetrar. Fermetraverð íbúðarinnar reiknast um 4,5 milljónir króna.

Íbúðin er hin glæsilegasta og hönnuð af heimsþekktum arkitektum. Húsið sjálft er blanda af íbúðarhúsi og hóteli en sólahringsþjónusta er fyrir íbúa hússins og geta þeir pantað sér veitingar, nudd, þrif, sett þvott í hreinsun og svo mætti áfram telja. Húsið er að sögn fasteignasala eitt það dýrasta í borginni m.a. vegna þess að stór einkagarður er við húsið sem aðeins íbúar hafa aðgang að.

Kaup Jóns Ásgeirs vöktu mikla athygli í borginni þegar þau voru gerð opinber. Þekkt dagblöð ræddu við fasteignasala og gerðu málinu góð skil.

New York Times þann 29. apríl 2007:

„A businessman from Iceland who built an international retailing empire has just acquired one of the most expensive apartments ever sold in Manhattan below 42nd Street, a Gramercy Park triplex costing more than $24 million, brokers say.“

BusinessWeek þann 30. janúar 2008 þegar blaðið fjallaði um gjaldþrot Glitnis banka:

„These days Jóhannesson spends very little time back in Iceland, instead splitting his time between a home in London and a $24 million triplex apartment near Manhattan's Gramercy Park.“

New York Observer þann 30. apríl 2007:

„Mr. Johannesson is a hot topic in Iceland, where his firm, the Baugur Group, is on trial for fraud and embezzlement. Years earlier, he was accused of using a company credit card to pay female escorts visiting his yacht.

Appropriately, The Financial Times has called him a „dashing 21st-century Rockefeller.“

He can work on maintaining that image in his new triplex: The top floor has only an exercise room (besides the bedroom, bathroom, dressing area and three walk-in closets).“

Einkaþotur og þyrlur íslenskra auðmanna
Hápunkti íslensku útrásarinnar var náð snemma árs 2007 þegar daglega lentu á Reykjavíkurvelli einkaþotur og einkaþyrlur. Um borð voru forstjórar og stjórnir íslenskra fyrirtækja sem nú eru mörg hver komin í þrot. Meðal félaga sem höfðu þotu á eigin snærum eða leigðu slíka vél voru til dæmis Landsbankinn, Novator, Baugur, Glitnir og FL Group. Flogið var á fundi erlendis, í erlend samkvæmi eða með fjölskyldur stjórnarmanna á suðlægar strendur.

Fjölmargir ferðuðust með einkaþotunum, meðal annars Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Í viðtali við Mannlíf sagði forsetinn meðal annars um ferðalög sín:

„Ég óttast ekkert að ég sé að missa tengslin við íslenska alþýðu. Það hvarflar ekki að mér. Þessi umræða um einkaþoturnar er satt að segja afar léttvæg.“

Kaupverð á þotu líkt og þeirri sem Björgólfur Thor Björgólfsson á í dag er 22,5 milljónir dala eða 1,7 milljarðar íslenskra króna sé miðað við gengið 77 krónur fyrir hvern dollar sem var hæsta gengi ársins 2006. Sé horft á gengið 115 krónur fyrir hvern dollar, sem gildir er þessi orð eru rituð, myndi sama vél kosta um 2,6 milljarða króna.

Flugferð til London á fund kostaði að öllu jöfnu tæpa milljón á hvern farþega aðra leiðina ef vélin var nýtt að fullu. Tveir til þrír flugmenn voru á sólahringsvakt í vélunum ásamt flugfreyju. Eldsneyti á vélarnar kostaði sitt og greiða þurfti lendingargjöld, loftrýmisgjöld auk annarra gjalda á hverjum stað sem lent var á.

Kostnaður var í sumum tilvikum greiddur af íslenskum almenningshlutafélögum sem leigðu vélarnar til þessara nota. Þess voru dæmi að stjórnarmenn í almenningshlutafélögum ættu þotu sjálfir í sérstöku einkafélagi sem síðan leigði almenningshlutafélaginu sömu þotu undir þá sjálfa.

Einkaþyrlur voru einnig áberandi og flaug Magnús Kristinsson, eigandi Toyota umboðsins, þyrlu sinni með tveimur flugmönnum reglulega til Vestmannaeyja en slík ferð, fram og til baka, kostaði um 350.000 krónur. Ólafur Ólafsson, einn eigandi Samskipa, flaug þyrlu sinni reglulega sjálfur upp á Snæfellsnes.

Glæsibifreið forsetans
Forseti Íslands er með 21,6 milljón í árslaun auk þess sem hann heldur heimili á Bessastöðum. Á skrifstofu forsetans eru átta starfsmenn og á vegum embættisins eru nokkrar bifreiðar, samkvæmt upplýsingum skrifstofunnar. Samkvæmt ríkisreikningi nam kostnaður við forsetaembættið 184,9 milljónum króna á liðnu ári og í fjárlögum þessa árs er reiknað með að kostnaðurinn verði 196,4 milljónir. Fjárlagafrumvarp fyrir komandi ár gerir ráð fyrir að kostnaðurinn verði 216,9 milljónir.

Bifreið forsetans, Lexus LS600h lúxusbifreið, kostaði hjá Lexus umboðinu í Kópavogi þann 6. desember 2008, 22.650.000 kr. Bíllinn er hinn glæsilegasti og eiga margir af frægustu kvikmyndaleikurum í Hollywood sams konar bíl þeirra á meðal er Mel Gibson.

Uppfært 12. desember 2008: Ábending barst frá forsetaembættinu þann 11. desember 2008 þess efnis að kaupverð bifreiðarinnar hafi verið, með afslætti, 11,7 milljónir þegar hún var keypt af Lexus umboðinu. Bifreiðin var staðgreidd og er í eigu embættis forseta Íslands.

Snekkja Jóns Ásgeirs og Ingibjargar
Árið 2005 skrifuðu Jón Ásgeir Jóhannesson og kona hans Ingibjörg Pálmadóttir undir samning við Heesen skipasmíðastöðina í Hollandi um smíði á 44 metra langri lúxussnekkju. Heesen er leiðandi aðili í smíðum á lúxussnekkjum og hefur smíðað margar af stærstu og ríkulegustu snekkjum heims. Snekkjan var sjósett árið 2007. Snekkjan er til útleigu og getur hver sem leigt hana. Leiguverðið er háð árstímum.

Sambærileg snekkja kostar á markaði um 35 milljónir dollara eða 4 milljarða á núverandi gengi, 115 kr fyrir hvern dollar.

Meðal herbergja um borð eru; eitt aðalsvefnherbergi, þrjú svefnherbergi tvíbreið, eitt svefnherbergi með tveimur rúmum auk snyrtiaðstöðu víða um skip. Þá er skipstjóri með sér herbergi sem og 9 manna áhöfn skiptir með sér þremur herbergjum. Samtals eru því ekki færri en níu herbergi um borð auk annarra rýma.

Snekkjan er búin allri nýjustu tækni og margvíslegum aukabúnaði. Vélar hennar skila 7.400 hestöflum en til samanburðar skilar fólks- og bílaferjan Herjólfur aðeins 7.300 hestöflum. Hámarkshraði snekkjunnar er 25 hnútar eða 46 kílómetrar á klukkustund. Snekkjan kemst 3.400 sjómílur á hagkvæmustu siglingu sem þýðir að ferð frá Reykjavík til Flórída tæki tæpa 12 daga. Eldsneytistankar snekkjunnar taka 69.000 lítra af díselolíu.

Áfylling á snekkjuna í Reykjavíkurhöfn myndi kosta rúmar 12 milljónir miðað við 174 kr/ltr. og sá tankur klárast á einni ferð til Flórída.