AMX Almennt

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Chris S

Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann  þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í  Tjarnarhverfi á Selfossi, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglunnar á Selfossi. „Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.  Síðastliðna þrjá mánuði hefur verið farið inn í um 30 ólæsta bíla á Selfossi, gramsað í þeim og stolið lauslegum hlutum eins og GPS tækjum myndavélum og lausafé.  Lögreglumenn hafa undanfarið lagt í mikla rannsóknarvinnu til að finna þennan náttfara sem hrellt hefur svo marga bíleigendur sem ekki læstu bílum sínum.  Það var svo í nótt að hann náðist eftir mikla þolinmæði og yfirlegu lögreglumanna á Selfossi.  Maðurinn fór eingöngu inn í ólæsta bíla og olli engum skemmdum,“ segir enn fremur í tilkynningu Selfosslögreglunnar.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Hansueli Krapf

Frá Vestmannaeyjum.

Það var frekar rólegt yfir vötnunum hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu.  Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum án þess þó að það væri til teljandi vandræða, segir í tilkynningu hennar.

„Ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið en um var að ræða árás sem átti sér stað í heimahúsi.

Þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í liðinni viku. Tvö af þessum óhöppum voru minniháttar en nokkuð tjón varð á ökutækjum eftir árekstur á gatnamótum Illugagötu og Kirkjuvegar að morgni 27. janúar sl.  Hins vegar urðu engin meiðls á fólki í þessum þremur umferðaróhöppum.

Þrjár kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum en um er að ræða ólöglega lagningu ökutækja í öllum tilvikum,“ segir enn fremur í tilkynningu lögreglunnar í Vestmannaeyjum.

Steingrímur Hermannsson látinn
Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, lést í morgun á heimili sínu í Garðabæ á 82 aldursári. Steingrímur var forsætisráðherra á árunum 1983 til 1987 og síðan aftur frá 1988 til 1991. Hann gegndi einnig öðrum ráðherraembættum og var seðlabankastjóri frá 1994 til 1998, að því er mbl.is greinir frá.

Þar segir enn fremur:

„Steingrímur fæddist í Reykjavík 22. júní 1928, sonur Hermanns Jónassonar, alþingismanns og ráðherra og eiginkonu hans, Vigdísar Oddnýjar Steingrímsdóttur.

Steingrímur lauk stúdentsprófi frá MR 1948 og prófi í rafmarksverkfræði frá tækniháskólanum í Chicago árið 1951. Þá lauk hann  M.Sc.-próf frá California Institute of Technology í Pasadena árið 1952.

Eftir nám starfaði Steingrímur sem verkfræðingur hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur 1952—1953 og hjá Áburðarverksmiðjunni  1953—1954. Hann starfaði einnig sem  verkfræðingur við Southern California Edison Company í Los Angeles 1955—1956. Hann var framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins 1957—1978.

Steingrímur var kjörinn á Alþingi 1971 fyrir Framsóknarflokkinn og sat þar til ársins 1994, fyrst fyrir Vestfjarðakjördæmi en frá 1987 fyrir Reykjaneskjördæmi. Hann var dóms- og kirkjumála- og landbúnaðarráðherra frá 1978 til 1979 og sjávarútvegs- og samgönguráðherra frá 1980 til 1983 þegar hann var skipaður forsætisráðherra. Hann tók árið 1987 við embætti utanríkisráðherra en var árið eftir forsætisráðherra á ný til 1991.

Steingrímur var formaður Framsóknarflokksins á árunum 1979 til 1994 og gegndi að auki fjölda trúnaðarstarfa og embætta.

Steingrímur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sara Jane Donovan og þau eignuðust þrjú börn: Jón Bryan, Ellen Herdísi og S. Neil. Síðari kona Steingríms var Guðlaug Edda Guðmundsdóttir. Þau eignuðust þrjú börn:  Hermann Ölvir,  Hlíf og Guðmund.

Fáir komist nær því að teljast allra

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir á heimasíðu flokksins að Steingríms verði sárt saknað.

„Hann naut mikillar hylli sem stjórnmálamaður ekki aðeins hjá Framsóknarmönnum heldur stórum hluta þjóðarinnar. Fáir stjórnmálamenn hafa komist nær því að teljast allra,“ segir Sigmundur Davíð.“

Móttökuathöfn til heiðurs landsliðinu
Ólafur Stefánsson

Stjórnvöld efna til móttökuathafnar til heiðurs íslenska landsliðinu í handknattleik þegar það kemur heim frá EM-mótinu í Austurríki í dag. Unnið var að skipulagningu í gærkvöldi en staður og stund hafði ekki verið ákveðin. að því er Morgunblaðið greinir frá.

„Landsliðið hefur síðustu daga sent okkur mikla og góða orku og fyllt þjóðina nýjum krafti,“ sagði Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra í samtali við Morgunblaðið.

Í gær tilkynnti ríkisstjórnin að 10 milljón króna styrk til landsliðsins vegna þátttöku í heimsmeistaramótinu í Svíþjóð á næsta ári. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands segir í samtali við Morgunblaðið að kostnaður vegna Evrópumótsins sé um 25 milljónir króna:

„Allur árangur hjálpar til við að tryggja fjárhagsstöðu sambandsins sem er endalaust verkefni.“

Breytingar á AMX
Jónas Haraldsson og Óli Björn Kárason, sem sinnt hafa ritstjórn AMX frá upphafi, hafa ákveðið að láta af störfum. Við ritstjórn vefsins tekur Friðbjörn Orri Ketilsson.

AMX hóf göngu sína í desember 2008 og hefur á þeim tíma haslað sér völl sem einn helsti frétta- og skoðanavefur landsins. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að breytingum á AMX og munu lesendur sjá þess merki þegar á morgun 1. febrúar. Á komandi vikum verða gerðar frekari breytingar á framsetningu efnis sem miða að því að styrkja þjónustu vefsins við lesendur.

Forsætisráðherra sendi bronsliði Íslands hamingjuóskir
Ólafur Stefánsson landsliðsfyrirliði fór fyrir íslenska bronsliðinu.

Íslendingar unnu til bronsverðlauna á EM í handknattleik í dag er þeir lögðu Pólverja með þriggja marka mun. Í tilefni þess sendi forsætisráðherra hinu sigursæla liði hamingjuóskir. Þetta er annað stórmótið í röð sem íslenska liðið vinnur til verðlauna en það náði silfurverðlaunum á ólympíuleikunum í Peking árið 2008.

Liðið sigraði Pólverja 29-26 en staðan var 18-10 fyrir Íslendinga.

Hamingjuóskir forsætisráðherra fara hér á eftir:

„Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sendi íslenska landsliðinu í handbolta eftirfarandi heillaóskaskeyti í dag:

“Til íslenska landsliðsins í handbolta, aðstoðarfólks þess og Handknattleikssambands Íslands

Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar óska ég ykkur til hamingju með verðskulduð bronsverðlaun á Evrópumótinu í handbolta. Ég veit ég mæli fyrir hönd þjóðarinnar þegar ég þakka ykkur innilega fyrir frábæra skemmtun og

drengilega baráttu. Árangur ykkar er kærkomin upplyfting á erfiðum tímum í sögu þjóðarinnar.

Ég sagði á fundi Sóknaráætlunar 20/20 fyrir tíu dögum að við ættum sem þjóð að taka íslenska landsliðið í handbolta til fyrirmyndar. Í ljósi árangursins á mótinu er ástæða til þess að ítreka þá áskorun og sýna þakklæti okkar í verki með því að styðja landsliðið sérstaklega til þátttöku á Heimsmeistaramótinu í Svíþjóð á næsta ári. Ríkisstjórnin leggur fram 10 milljónir króna í því skyni. Áfram Ísland!

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.„

Frakkar unnu Króata í úrslitaleik og hirtu þar enn eitt gullið, eru ríkjandi heimsmeistarar, ólympíumeistarar og Evrópumeistarar. Það hefur engu karlalandsliði tekist áður.

Verið að reyna að brjóta VR niður
Ed

Meirihluti stjórnar VR segir að samtökin Nýtt Ísland, sem stofnuð voru í tengslum við kosningar í VR á síðasta ári, beiti kröfum sínum í að brjóta félagið niður. Harmað er að nokkrir stjórnarmenn í VR tengist samtökum sem virðast m.a. hafa það á stefnuskrá sinni að leggja niður Alþingi Íslendinga.

Í tilkynningu frá meirihluta stjórnar VR segir að samtökin Nýtt Ísland hafi reynt að ná völdum í VR í kosningum um forystu félagsins á síðasta ári en formannsefni þeirra náði ekki kjöri. Síðan hafi samtökin beint spjótum sínum að VR, m.a. með dylgjum og óhróðri á vefsíðu samtakanna:

„Hvað vakir fyrir þeim vitum við ekki en hins vegar er ljóst að þrír stjórnarmenn í VR, Bjarki Steingrímsson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Ragnar Þór Ingólfsson, hafa sterk tengsl við þessi samtök.

Meirihluti stjórnar VR harmar að stjórnarmenn í félaginu leggi lag nafn sitt við samtök af því tagi sem hér um ræðir. Til marks um þá stefnu sem samtökin aðhyllast er eftirfarandi sem birt er á heimasíðu þeirra:

Við erum hægrisinnaður félagsskapur sem er til í að styðja enn frekar undir sjálfstæði Íslendinga.

Lífeyrissjóðum fækkað úr 29 í einn.

Ríkisstarfsmönnum fækkað verulega. Öllum millistjórnendum, framkvæmdastjórum og forstjórum sagt upp á 1.- 3ja ára uppsagnafresti.

Utanþingstjórn / starfsstjórn verði komið á sem fyrst.

Smá sem stór brot verði skilgreind í hertari refsiramma þar sem það á við.

Lýðreglu verði komið á ásamt sérstakri lögreglu sem vinnur í leyni að því að útrýma almennri glæpastarfsemi á Íslandi .

Fangelsi gerð rammgirtari og fjölgað. Skylduvinna og ábótakerfi fyrir fanga verði komið upp.

Er það nauðsynlegt að við  Íslendingar þurfum 63 þingmenn? Þurfum við Alþingi? Þurfum við stjórnmálaflokka? Er hægt að hugsa Ísland án stjórnmálaflokka?

Þúsundir hafa sent landsliðsmönnunum kveðjur á ibs.is
Ólafur Stefánsson landsliðsfyrirliði fer fyrir sínum mönnum á EM í Austurríki.

Þúsundir landsmanna hafa sent landsliðsmönnum stuðningskveðjur á ibs.is, eða „Í blíðu og stríðu“, vettvangi til stuðnings landsliðinu í handbolta. Vefurinn er einskonar miðstöð áhangenda landsliðsins meðan á Evrópumótinu í Austurríki stendur og þar gefst fólki kostur á að taka upp hljóð- og myndkveðjur með vefmyndavél. Þátttakan hefur verið gífurlega mikil og hægt að taka upp kveðjur í gegnum mbl.is og visir.is, að því er fram kemur í tilkynningu Icelandair.

Þar segir enn fremur:

Í morgun höfðu meira en 2.000 myndkveðjur verið settar inn á vefinn til að styðja strákana

Um 2.000 textakveðjur til landsliðsmanna hafa verið sendar á vefnum

Yfir 23.000 heimsóknir eru á ibs.is á hverjum degi, sem gera hann að einum fjölsóttasta afþreyingavef landsins á þeim fáu dögum sem hann hefur verið opinn. Vefurinn er í 8 sæti yfir fjölsóttustu vefi landsins  samkvæmt mælingum Modernus.

11.000 tölvur tengdust beinni lýsingu Audda, Péturs Jóhanns og Gillz af leiknum á móti Noregi í gær og yfir 650 manns voru á spjallrásinni á sama tíma.

Sjónvarpsmaðurinn góðkunni, Auðunn Blöndal eða Auddi, er einmitt stóru hlutverki hjá „Í blíðu og stríðu“ með útsendingu á ibs.is og ljóst að margir eru með fartölvu við hendina að horfa á leiki Íslands á RUV.

Verkefnið Í blíðu og stríðu er hluti af stuðningi Icelandair við HSÍ, en Icelandair hefur stutt landsliðið í handbolta í blíðu og stríðu í hálfa öld.„

Kannabisræktun stöðvuð í Hafnarfirði
Lögreglan

Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í Hafnarfirði í gærkvöld.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 20 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Karl á þrítugsaldri var yfirheyrður í tengslum við rannsókn málsins, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

„Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.“ segir enn fremur í tilkynningu lögreglunnar.

Nauthólsvegur frá Hringbraut opnaður eftir viku
Framkvæmdir við Nauthólsveg frá Hringbraut að Flugvallarvegi eru á lokastigi og er ráðgert að opna hann fyrir almennri umferð eftir viku, föstudaginn 5. febrúar.  Mikill kraftur er í vinnu við fjölmarga verkþætti nú á lokasprettinum, en meðal annars unnið að tengingum umferðarljósa, yfirborðmerkingu gatna, hellulögn, landmótun vegfláa, uppsetningu umferðarskilta og gerð gönguleiða, að því er fram kemur í tilkynningu Reykjavíkurborgar.

Þar segir enn fremur:

Forsteypt undirgöng

„Meðal nýjunga við framkvæmdina var að undirgöng voru forsteypt í einingum og flutt á staðinn. Með því sparaðist bæði tími og fé. Undirgöngin eru hluti af stígakerfinu, en göngu- og hjólastígur er meðfram Nauthólsvegi. Er það hluti af grænum skefum í Reykjavík.  Yfirborð stígsins er ekki frágengið og mun verktaki ljúka frágangi þegar veður leyfir.

Umferðarljósin á gatnamótum Nauthólsvegar og Flugvallarvegar eru hluti af miðlægri stýringu umferðarljósa í Reykjavík.

Segja má að veðrið leggi framkvæmdunum lið, en þó verkinu miði vel þá er ljóst að ekki verður öllum  verkþáttum lokið þegar opnað verður fyrir umferð.  Endanlegum frágangi á yfirborði svo sem þökulagningu, sáningu og hellulögnum á að vera lokið í júní.

Flugvallarvegur verður í framhaldinu tengdur við nýju gatnamótin

Í framhaldi af opnun Nauthólsvegar verður hafist handa við að tengja Flugvallarveg við Nauthólsveg um ný gatnamót. Ráðgert er að hefja þá vinnu mánudaginn 8. febrúar. Umfangsmikil lagnavinna er samfara breytingu á lagningu vegarins og verður af þeim sökum að loka Flugvallarvegi tímabundið í eina til tvær vikur á stuttum kafla við bílaleiguna Herz.  Á þeim tíma verður aðkoma að Háskólanum í Reykjavík, Hótel Loftleiðir og að félagssvæði Vals eingöngu um hinn nýja Nauthólsveg frá Hringbraut.

Umsjón með verklegum framkvæmdum hefur mannvirkjastofa Framkvæmda- og eignasviðs og leiðir Ólafur Ólafsson, deildarsstjóri gatnaframkvæmda þá vinnu. Verktaki er Magni ehf.,  verkeftirlit er í höndum VSÓ Ráðgjafar og Almenna verkfræðistofan sá um hannaði mannvirkið. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður um 480 milljónir króna.“