AMX

Humarinn þarf hvítvín
frelsi.is

Geðþekkur formaður Heimdallar.

Smáfuglarnir fylgdust með ofstæki ölfantanna sem enn hafa aðgang að Facebook og ákváðu að þar væri best að úthúða hinum geðþekka formanni Heimdallar fyrir þá skoðun sína að fólk í frjálsu landi ætti að geta keypt áfenga hvítberjasaft og drukkið með humri. Töldu fantarnir að ógeðfellt væri að ræða slíkar hugmyndir á meðan ekki væri búið að leysa „skuldavanda heimilanna“ sem er tillaga um að færa fé frá varfærnum heimilum til þeirra óvarfærnu.

Skuldamál heimilanna er sérhagsmunamál þar sem lítill hópur vill að ríkið taki fé af öðrum og færi sér! Hvítvín með humri er hins vegar hagsmunamál allra heimila í landinu. Þau fá öll aukið frelsi, aukinn kaupmátt og aukin tækifæri verði áfengissala gefin frjáls. Þá er ónefndur sjálfur humarinn sem hlýtur að hafa einhver réttindi í þessu samhengi.

Hitt er svo alveg víst að þeir sem hæst létu í netheimum vegna málsins hafa sjaldan flotinu neitað, hvorki hvítu, rauðu, brenndu eða heimabrugguðu. Þeim ferst því ofstækið.

Ný stjórn jákvæð
Smáfuglarnir hafa haft hægt um sig síðustu misseri í aðdraganda kosninga og velt fyrir sér hvað verði úr þegar ný ríkisstjórn tekur við. Verkefnin eru ærin og atvinnulífið komið að fótum fram vegna ofurskatta og reglugerða Smáfuglunum koma nokkur mikilvæg atriði til hugar sem taka þarf á strax á næstu misserum.

Fella brott sérstakan tekjuskatt á arðgreiðslur smáfyrirtækja sem að öllum líkindum er óréttlátasti skattur seinni tíma. Smáfyrirtækjunum er ætlað að keppa við stórfyrirtækin sem fyrir hafa augljósa yfirburði og bera til viðbótar lægri skatta!

Eyða þarf pólitískri óvissu í sjávarútvegi svo sú öfluga grein geti aftur hafið fjárfestingar og sókn í sínum störfum. Þeir sem fylgst hafa með greininni síðustu ár hafa séð hvað eftir annað hvernig hótanir, árásir og handstýring vinstrimanna hafði skaðleg áhrif á landsbyggðinni.

Lækka þarf skatta á einstaklinga og heimili. Skiptir þar mestu um sjálfan tekjuskattinn sem lækka þarf með öllum tiltækum ráðum.

Lækka þarf virðisaukaskatt og skapa eitt lágt skattþrep sem er sambærilegt við það sem fólk þekkir í frjálsum löndum á borð við Bandaríkin og Bretland. Það er ekkert sem mælir gegn því að útlendingar komi til Íslands að kaupa barnaföt í stað þess að Íslendingar fari til útlanda.

Samþykkja þarf einkaframtak í heilbrigðismálum sem mörg hver voru stöðvuð í tíð vinstristjórnarinnar. Það er mun betra að hæfir læknar sinni útlendingum á einkarekinni heilsugæslu eða sjúkrahúsi heldur en að þeir fari úr landi og sinni sömu sjúklingum erlendis.

Skera þarf fituna af ráðuneytunum sem eru margsetin eftir ráðningar vinstrimanna á vinum sínum í óauglýst störf. Hreinsa þarf til sem allra fyrst.

Smáfuglarnir láta upptalningu lokið í bili og eru þetta aðeins atriði sem þeim kom til hugar í morgunflugi sínu um miðbæinn. Vissulega er listinn lengri.

Egill hvatti fólk til gjaldeyrislánatöku - uppnefnir aðra hrunvalda
Egill Helgason, hinn æviráðni verktaki á RÚV sem telur að auglýsa eigi öll opinber störf önnur en sitt eigið, kallar nokkra fyrrum ráðherra „hrunvalda“ í nýlegri færslu sinni. Smáfuglarnir sjá á þessu að heift Egils er mikil og er hann sómakær leiðtogi Virkra í athugasemdum.

En hvað gerði Egill í aðdraganda bankahrunsins? Í Rannsóknarskýrslu Alþingis er efnisgrein um Egil Helgason sem hinn sami hefur aldrei nefnt á vef sínum eða svarað með nokkrum hætti. Þar segir:

Egill sagði lesendum sínum að það væri "kraftaverk" hve fljótt gengi á höfuðstól erlendra lána. Svo kom hrunið.

Enn var gengisáhætta erlendra íbúðalána í umræðunni undir lok árs 2007 og þann 12. desember birti sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason eftirfarandi athugasemd á víðlesnu vefsvæði sínu: „Margir verða nú til að benda á að gengisáhætta fylgi því að taka lán í erlendri mynt – þ.e. ef lántakandinn hefur tekjur í íslenskum krónum. [...] Þetta er satt og rétt en auðvitað engin ný tíðindi. Fæstir eru svo heimskir að þeir taki lán í erlendum gjaldmiðli án þess að skilja að afborganirnar sveiflast með gengi krónunnar. Málið er bara það að kjörin á lánamarkaði hér eru með slíkum ólíkindum – okrið er þvílíkt – að krónan má falla ansi mikið áður en erlendu lánin verða dýrari en þau íslensku. Því eins og þeir vita sem hafa tekið gjaldeyrislán er það nánast eins og kraftaverk hversu fljótt fer að ganga á höfuðstólinn.“ Árið 2007 var því nægt framboð af „fjármálaráðgjöfum“ utan bankanna sem hvöttu fólk heils hugar til erlendrar lántöku.

Ef fyrru ráðherrar og seðlabankastjórar voru „hrunvaldar“ fyrir að fylgja lagabókstafnum, hvaða orð ætti þá að nota yfir þann sem hvatti virka vini sína í athugasemdum til þess að taka gjaldeyrislán?

Og hvernig er fyrir þeim sem fylgdu ráðum Egils komið? Eru þeir enn sammála Agli um „kraftaverkið“? Hver ætli hafi valdið hruni í heimilisbúskap þeirra sem fylgdu ráðum Egils Helgasonar í lánamálum? Ætlar Egill að kenna fyrrum ráðherrum um eigin ráðgjöf? Varla.

Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru. Hann hefur lengi andmælt óréttlátum verðlagsmælingum þar sem enginn greinamunur er gerður á tegundum eða vörumerkjum (t.d. öll epli lögð að jöfnu) og hefur sent þau boð til ASÍ ofl að verðlagsmælingar séu óheimilar í verslun sinni.

Góð samskipti

Jón Gerald Sullenberger kaupmaður í Kosti hefur staðið fast á sínu. Lögregla aðstoðaði hann ekki við að vísa út óboðnum gestum í verslun hans.

Svo gerist það í dag að inn í verslunina vaða menn sem búið var að banna inngöngu. Jón biður þá að fara en þeir neita. Jón kallar þá til lögreglu enda óboðnir gestir í fasteign hans. Og hvað gerist þá? Lögreglan kemst að þeirri niðurstöðu að gera ekki neitt!

Hún fjarlægði ekki óboðna gesti úr fyrirtæki Jóns Geralds! Eftir sat Jón einn síns liðs með óboðna gesti í verslun sinni og þurfi sjálfur að leita leiða til að koma þeim út og koma í veg fyrir óheimila söfnun gagna í búðinni.

Hvers konar lögleysuríki er að verða hérlendis? Getur fólk ekki lengur treyst á lögregluna þegar óboðnir gestir vaða inn á fasteignir, fyrirtæki eða heimili? Ætlar lögreglan að ákveða það hver má vera hvar en ekki eigandi húsnæðisins?!

Smáfuglarnir eiga fá orð til að lýsa undrun sinni.

Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.

Sjónvarpið

Álfheiður Ingadóttir hefur komið þingvallanefnd í útstöður við nær alla sem svæðið sækja.

Viðbrögð nefndarinnar við mannaferðum í þjóðgarðinum hafa verið á þá leið að banna sem flest og rukka fyrir það sem eftir stendur. Ráðist var af hörku á minnsta ferðamannaiðnað á Íslandi, köfunarþjónustu, og lögð á hana þyngstu gjöld allra ferðaþjónustuaðila á Þingvöllum. Því næst var ráðist gegn veiðimönnum sem í aldanna rás hafa rennt fyrir fiski að næturlagi við vatnið. Nýjasta útspilið er svo að leggja skatta á þá sem vilja taka upp kvikmyndir í þjóðgarðinum.

Hvernig væri að loka bara Þingvallasvæðinu og taka upp réttara nafn: Bakgarður Álfheiðar Ingadóttur.

Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn

Vilja færa stóra summu úr ríkissjóði til sérvalinna og skilja ríkisskuldir eftir á hinum.

Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa.

Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda. Framsóknarflokkurinn ætlar ekki að greiða niður þessar skuldir heldur færa 400 milljarðana til útvalinna Íslendinga. Skuldir ríkissjóðs munu þá sitja eftir á öllum hinum.

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort einhver sé svo einfaldur að falla fyrir sjónhverfingum Framsóknar?

Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna.

52% af útgjöldum heimilanna fer í skatta og opinber gjöld.

52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman. Það þýðir að annað foreldrið vinnur allt árið fyrir ríkið en hitt foreldrið allt árið fyrir heimilið. Annar er þræll hins opinbera og hinn sér um að framfleyta fjölskyldunni.

Getur skattabrjálæðið orðið mikið meira?

Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar.

Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?

Smáfuglarnir velta því fyrir sér hvort þeir sem ekki nái endum saman og eyða nær öllu sínu fé í skatta ætli grínlaust að kjósa áframhaldandi vinstristjórn með því að kjósa Framsókn?

Sigmundur lofaði eitt sinn 2.000 milljörðum
Smáfuglarnir hafa grúskað í gömlum fréttum og sjá þar að meira er um loforð Sigmundar Davíðs en efndir eða árangur. Í september 2009 mætti Sigmundur í fjölmiðla sem sögðu svo frá:

Sjónvarpið

Lofar peningum útlenidnga hvað efitr annað.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir Norðmenn tilbúna í tvíhliða viðræður um að veita ríkissjóði Íslands lán, eða opna lánalínu að upphæð 100 milljarða norskra króna, jafnvirði 2.145 milljarða íslenskra króna.

Þetta taldi Sigmundur Davíð vera allt eins í hendi þegar bankahrunið var nýafstaðið. Margir stukku á þennan vagn og töldu Framsóknarflokkinn heldur betur með bein í nefinu.

Það kom aldrei króna frá Noregi til Íslendinga - hvað þá 2.145 þúsund milljónir!

Framsóknarflokkurinn hefur ekkert lært og lofar nú einföldum fylgismönnum sínum 400 milljörðum út vasa útlendinga sem flokkurinn ætlar að taka þaðan með valdi. Ætli þeir sem hlupu á eftir norsku peningunum muni hlaupa aftur á eftir peningaloforðum núna?

Ásakar formann Framsóknarflokksins um ósannindi
Sigríður Dögg Auðunsdóttir ásakar Sigmund Davíð um að birta ósannindi á vefsíðu sinni. Forsaga málsins er sú að Sigríður Dögg blaðamaður á Fréttatímanum tók viðtal við Sigmund Davíð þar sem hún ásamt ljósmyndara fóru saman í ísbíltúr á Þingvelli. Þegar viðtalið kom út, brást Sigmundur illa við og sagði blaðamenn hafa rangt eftir sér og taka hluti úr samhengi. Þessu hafnar Sigríður með öllu í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér. Þar segir hún m.a.:

Sjónvarpið

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verður að hreinsa nafn sitt af ásökunum blaðamanns. Eða öfugt.

Sigmundur Davíð heldur því ranglega fram á vefsíðu sinni í dag að ég hafi ekki tekið til greina leiðréttingar sem hann gerði á viðtalinu fyrir birtingu þess í Fréttatímanum. Beinar og óbeinar tilvitnanir í Sigmund sendi ég honum í tölupósti áður en viðtalið fór í prentun. Allar leiðréttingar hans voru teknar til greina og viðtalinu breytt í samræmi við hans óskir.

Smáfuglarnir sjá að eina leiðin til að sjá hvort formaðurinn sé að segja ósatt eða blaðamaðurinn er að birta tölvupóstinn þannig að lesendur geti borið ummælin saman við viðtalið.

Eftir hverju er beðið?