Hjörtur J. Guðmundsson stundar nám í stjórnmálasögu við Háskóla Íslands og hefur um árabil ritað greinar um stjórnmál og sagnfræði í dagblöð, tímarit og vefrit bæði innanlands og erlendis samhliða því sem hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum innan Sjálfstæðisflokksins og fleiri félagasamtaka.

Frá því í lok síðasta árs hefur því ítrekað verið haldið fram í erlendum fjölmiðlum að Ísland hafi tekið upp a.m.k. 2/3 hluta allrar lagasetningar Evrópusambandsins í gegnum aðildina að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Á meðal þeirra sem hafa haldið þessu fram er Olli Rehn, kommissar stækkunarmála sambandsins.
Þar til fyrir fáeinum árum síðan héldu íslenskir Evrópusambandssinnar annað slagið fram hliðstæðum fullyrðingum, að Ísland hefði tekið upp 70 og upp í 90% af lagasetningu Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn. Þessu var ávallt haldið fram án nokkurrar tilraunar til rökstuðnings.
Vorið 2005 sýndi úttekt, sem unnin var af skrifstofu EFTA í Brussel að beiðni utanríkisráðuneytisins, að Ísland hefði þá aðeins tekið upp 6,5% allrar lagasetningar Evrópusambandsins sem fallið hafði undir EES-samninginn frá því að hann tók gildi árið 1994 og fram til ársins 2004.
Í marz 2007 var skýrsla Evrópunefndar forsætisráðherra gefin út og kom þar m.a. fram að 2.500 lagagerðir frá Evrópusambandinu hefðu verið teknar upp á Íslandi fyrsta áratuginn sem EES-samningurinn var í gildi. Ennfremur kom fram að 22% laga sem sett voru af Alþingi á sama tímabili áttu uppruna sinn hjá sambandinu.
Heildar lagasetning Evrópusambandsins er talin vera í kringum 30 þúsund gerðir. Heildarfjöldi íslenzkra lagagerða er hins vegar aðeins í kringum 5 þúsund. Þar af eru um eitt þúsund lög en afgangurinn er reglugerðir. Þetta þýðir einfaldlega að jafnvel þó öll íslenzk löggjöf kæmi frá sambandinu væri hún minna en 20% af heildar lagasetningu þess.
Hvernig er þá hægt að komast að þeirri niðurstöðu að Ísland hafi þegar tekið upp a.m.k. 2/3 hluta lagasetningar Evrópusambandsins?
Aldrei brugðist vondum málstað
Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðarnefnda blaðinu.
Markaðurinn er litblindur - segir Ögmundur
Ögmundur Jónasson alþingismaður hefur sýnt það í gegn um tíðina að hann er vel verseraður í kenningum um markaðsbúskap, kapítalismann. Oftast nær hefur hann nýtt sér þekkingu sína til þess að gagnrýna markaðsbúskapinn og sjaldnast dregið af sér.
Tap lífeyrissjóðanna - ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar
Ekki liggur ljóst fyrir hvað mikið tap lífeyrissjóðanna íslensku verður vegna þeirra sviptinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum frá því síðsumars 2008. Tapið verður þó verulegt. Tæpast hafa stjórnir lífeyrissjóðanna enn afskrifað það sem þarf að afskrifa og gert lífeyrisþegum grein fyrir því hvað mikið lífeyrir þeirra skerðist vegna oft á tíðum gáleysislegrar gæslu stjórnendanna á fjármunum lífeyrisþega.
Alls staðar þvælast þeir fyrir
Merkilegt er hve ríkisstjórninni er lagið að láta til sín taka þar sem síst skyldi, skapa vandamál þar sem þau eru ekki fyrir og auka vandann þar sem hann er til staðar.
Verða bankastjórar seðlabanka Evrópusambandsins ekki örugglega reknir?
Evrulöndin eru að endurtaka mistökin frá 1930 með næstum óaðfinnanlegri nákvæmni. Hagfræðingurinn Paul De Grauwe segir í grein sinni í Financial Times að peningayfirvöld evrusvæðis hafi og séu ennþá að endurtaka þau mistök sem hin svo kölluðu gullblokkarlönd Evrópu gerðu í stóru kreppunni 1930 (Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Sviss).
Það er engin ágreiningur um það milli Íslendinga að við teljum óréttlátt að bera skuldbindingar vegna Icesave reikninganna. Við sem ekki vorum boðin til veislu fjármálafyrirtækjanna finnst hart að þurfa að taka út timburmennina fyrir þá sem voru á blindafjármálafylleríi.
Hin háskalegu tengsl Icesave og ESB
Undirritaður er þess heiðurs aðnjótandi að vera útnefndur „Ráðgjafi ársins“ af hinum oft ágæta og samt hægrisinnaða Vefþjóðvilja. Um leið og ég þakka þeim Andríkismönnum heiðurinn langar mig að gera lítilsháttar grein fyrir þeim störfum og skoðunum sem liggja að baki svo góðum árangri í árlegri útnefningu.
Reddast allt með Icesave-undirskrift?
Það er athyglisvert að staðan í Icesavemálinu hefur orðið ríkisstjórninni að allsherjarafsökun fyrir hvaðeina sem úrskeiðis fer. Öllum eru í fersku minni, hótanirnar og hræðsluáróðurinn sem óð uppi eftir að forsetinn synjaði Icesavelögunum staðfestingar