amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Föstudagurinn 12. mars 2010 - 02:35
 
Pistill birtist 19. maí 2009 klukkan 07:04

IS IT TRUE?

 
Pistill eftir Hönnu Elíasdóttur
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Á laugardaginn var mikill fjöldi fólks samankomminn í miðborginni til að njóta Listahátíðar í blíðskapar veðri. Fjölmenningarhátíð erlendra sem búa á Íslandi hófst með göngu niður Skólavörðustíginn. Skrautbúnar konur dönsuðu með bros á vör undir dillandi tónlist þeirra landa sem þær komu frá. Og ekki vantaði brosið á landann. Allir voru sjáanlega mjög ánægðir og fullir tilhlökkunar að taka þátt í viðburðum helgarinnar og ekki síst Eurovision keppninni.

Ísbirnir á Laugavegi

Gaman að sjá 2 uppstoppaða ísbirni fyrir framan verslun með minjagripi á Laugaveginum. Mjög vel til fallið sérstaklega fyrir ferðamennina sem stöldruðu við að skoða fyrirbærið og strjúka létt yfir feldinn. Góð hugmynd fyrir kaupmenn á Laugaveginum. Því ekki að gera Laugaveginn meira aðlaðandi og dálítið meira eins og útimarkað í góðu sumarveðri á laugardögum. Þarf ekki nauðsynlega að vera á hverjum laugardegi. Nýta sér góðviðrisdaga til þess arna.

Eurovision

Undirbúninginn fyrir Eurovision kvöldið sá maður strax í stórmarkaðnum. Þar hafði verið komið fyrir stöflum af snakki, ídýfum, gosi, nammi. Kjötborðið svignaði undan ýmsu girnilegu til að grilla. Landinn lætur ýmislegt eftir sér á Eurovision kvöldi. Þetta úrslitakvöld hefur víða orðið að reglubundinni samveru þar sem fjölskyldur koma saman og fylgjast með. Það er hið besta mál. Þakka ber RUV fyrir að halda keppninni áfram þrátt fyrir að „buddan“ á þeim bæ sé væntanlega rýr eins og hjá svo mörgum Íslendingum.

Gleðigjafinn Páll Óskar

Menn eins og Páll Óskar eru gleðigjafar. Slíka menn á að virkja til að gleðja þjóðina sérstaklega meðan hún gengur í gegnum sitt erfiða skeið. Páll Óskar hefur einstaka útgeislun og fær mann til að hlusta. Ósjálfrátt verður maður bara sæll með sig þegar hann er í sjónvarpinu. Og svo syngur maðurinn náttúrlega afbragðs vel Þarna er ljúflingur á ferð. Allir elska Palla. Ungir sem aldnir.

Hitt í mark

Og viti menn Ísland varð í 2.sæti í Eurovisoin keppninni. IS IT TRUE? Þessi fallega „ballaða“ sem Jóhanna Guðrún flutti frábærlega vel hitti í mark hjá flestum þjóðum Evrópu. Flutningur lagsins var einmitt svo ekta. Fágun og einlægni allra á sviðinu var með eindæmum, svo eftir var tekið. Ekki var verið að striplast og dansa um allt heldur var laginu, sem er afar ljúft, gerð frábær skil ekki eingöngu með söng Jóhönnu heldur, undirleikarar og bakraddir að senda skír skilaboð frá sér. Svona á að gera hlutina. Þau voru öll til mikils sóma. Perlur. Takk fyrir okkur.

Það var líka ánægjulegt að Noregur skildi hreppa fyrsta sætið. Athyglisvert að svo ungir listamenn sem Alexander og Jóhanna ná fyrstu sætunum og skila sínu með þvílíkum glæsibrag.

Útgeislun þeirra beggja og listsköpun hitti í mark og skaraði langt fram úr öðrum keppendum.

Menn hafa verið að „ grínast“ svolítið með vandamálið sem kæmi upp, ef við skyldum vinna í þessari keppni. Við ættum ekki nógu stórt húsnæði, og ýmislegt týnt til, ekki síst við þær aðstæður sem ríkja á Íslandi í dag. En það eru margir Íslendingar stórtækir dugnaðarforkar og takið nú eftir. Einn slíkur þekktur rafverktaki segist gefa með ánægju vinnu sína við að bjarga svona málum. Og taldi að svo yrði um marga í byggingabransanum, ef til kæmi. Það þarf vart að taka það fram að þessi ágæti maður er náttúrlega mikill Sjálfstæðismaður, maður sem býr yfir þeim krafti og dug sem einkennir einmitt Sjálfstæðismenn. Húrra fyrir svona Íslendingum.

Fleiri perlur

Á sunnudagskvöldið voru píanótónleikar Víkings Heiðars okkar unga snillings. Þar var enn ein Íslensk perla á ferðinni. Troðfullt var í Háskólabíói og mikil stemming. Að hlusta á tónlist er list út af fyrir sig. Og þegar flutningurinn er svo ekta sem hjá þessum hámenntaða snillingi sem bíður fram list sína af einlægni og lítillæti, fyllist maður þakklæti.

Rétta leiðin valin

Listahátíð í Reykjavík byrjar afar vel, allt hefur hjálpast að til að gera góða og vel skipulagða hátíð að stórhátíð, veðrið leikur við okkur. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjórinn okkar, er að vinna sína vinnu á þann hátt að borgarbúar hljóta að vera ánægðir. Hönnu Birnu hefur tekist að halda vel utan um borgarmálin. Og takið eftir, þetta gerir hún hávaðalaust. Þarna er ekki verið að karpa og rífast um hlutina. Þeir eru unnir eins vel og hægt er. Borgarstjórinn

velur rétta leið. Nú er að standa saman og eyða ekki tímanum í þras heldur að

láta verkin tala.

Sumarkveðjur

Hanna Elíasdóttir

 
Fleiri pistlar
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Markaðurinn er litblindur - segir Ögmundur

Ögmundur Jónasson alþingis­maður hefur sýnt það í gegn um tíðina að hann er vel verseraður í kenningum um markaðsbúskap, kapítalismann. Oftast nær hefur hann nýtt sér þekkingu sína til þess að gagnrýna markaðsbúskapinn og sjaldnast dregið af sér.

Jón Magnússon:

Tap lífeyris­sjóðanna - ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar

Ekki liggur ljóst fyrir hvað mikið tap lífeyris­sjóðanna íslensku verður vegna þeirra sviptinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum frá því síðsumars 2008. Tapið verður þó verulegt. Tæpast hafa stjórnir lífeyris­sjóðanna enn afskrifað það sem þarf að afskrifa og gert lífeyrisþegum grein fyrir því hvað mikið lífeyrir þeirra skerðist vegna oft á tíðum gáleysislegrar gæslu stjórnendanna á fjármunum lífeyrisþega.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Alls staðar þvælast þeir fyrir

Merkilegt er hve ríkis­stjórninni er lagið að láta til sín taka þar sem síst skyldi, skapa vandamál þar sem þau eru ekki fyrir og auka vandann þar sem hann er til staðar.

Gunnar Rögnvaldsson:

Verða banka­stjórar seðlabanka Evrópu­sambandsins ekki örugglega reknir?

Evrulöndin eru að endurtaka mistökin frá 1930 með næstum óaðfinnanlegri nákvæmni. Hag­fræðingurinn Paul De Grauwe segir í grein sinni í Financial Times að peningayfirvöld evru­svæðis hafi og séu ennþá að endurtaka þau mistök sem hin svo kölluðu gullblokkarlönd Evrópu gerðu í stóru kreppunni 1930 (Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Sviss).

Ágúst Þórhallsson:

Greiðum Bretum vexti í formi raforku

Uppbygging á sæstreng í sameiginlegri eigu Breta og Íslendinga og lausn Icesave málsins myndi strax varpa jákvæðu ljósi á Ísland. Breta vantar raforku. Hana eigum við. Icesave málið snýst í grunninn um greiðslu á óheyrilega háum vöxtum og þá vexti er vel hægt að greiða í öðru formi en peningum. Lagning rafstrengs yfir hafið er vel framkvæmanleg.

Jón Magnússon:

Er ríkis­stjórnin á móti markaðshagkerfi?

Meðan forsætis­ráðherra og fjármála­ráðherra halda áfram að þrástagast á því að frjáls­hyggjan hafi fellt íslensku bankana en horfast ekki í augu við að meginástæðan var ófullkomið fjölþjóðlegt regluverk eins og fólk allsstaðar annarsstaðar í Evrópu og í Norður Ameríku gerir sér grein fyrir, þá er ekki við því að búast að þetta fólk standi fyrir vitrænni umræðu um endurskoðun á reglum um fjármálastarfsemina og með hvaða hætti megi koma í veg fyrir að bankar verði of stórir þannig að þeim fylgi óhjákvæmilega ábyrgð skattgreiðenda.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

VG með skýra stefnu um votlendisfugla

Stóru tíðindin frá flokks­stjórnar­fundi Vinstri grænna á Akureyri um helgina er ekki hvað þar var sagt, heldur hvað þar var EKKI sagt. Ég las fundarsamþykktir VG fundarins þrim sinnum, áður en ég trúði mínum eigin augum. Þar gat ekki að líta eitt orð um Icesave og þá makalausu stöðu sem ríkis­stjórnin hefur teflt því máli í.

 
 
©2010 Straumröst ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX