amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 10:32
 
Pistill birtist 12. febrúar 2010 klukkan 13:31

Aldrei brugðist vondum málstað

 
Pistill eftir Einar Kristinn Guðfinnsson
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðarnefnda blaðinu.

Í sjálfu sér þarf ekki að útskýra þessi mál í íslenskum fjölmiðlum. Við þekkjum Þórólf og skrifin hans og vitum auðvitað að þau dæma sig sjálf. Hann hefur verið tíður álitsgjafi á Speglinum Ríkisútvarpsins og jafnan skipað sér í sveit þeirra sem varið hafa öll gönuhlaup og samningsmistök ríkisstjórnarinnar í Icesavemálinu. Það er því skiljanlegt að honum sárni ummæli Evu Joly. Því eins og máltækið segir: Sannleikanum verður hver sárreiðastur.

En hvað sagði Eva Joly sem særði hinn hörundssára prófessor svo? Það var meðal annars þetta:

„Prófessor Þórólfur Matthíasson hefur um langt skeið stutt kröfur Breta og Hollendinga. Í grein hans, sem birtist í Aftenposten 2. febrúar, er ýmsu sleppt og rangt farið með staðreyndir.“

Og síðar sagði hún ennfremur:

„Þórólfur gefur til kynna með lítt fræðilegum hætti að þeim, sem telja að Icesave-samningarnir séu dæmi um hráa valdníðslu og endurspegli fallið fjármálakerfi, megi líkja við Bernie Madoff, sem var dæmdur í 150 ára fangelsi. Óljóst er í greininni hvernig hann kemst að þeirri niðurstöðu.“

Þetta er allt saman rétt hjá Evu Joly. Íslenska þjóðin er á góðri leið með að hafna Icesave óberminu. Meira að segja ríkisstjórnin sér sitt óvænna og vill nú leggja af stað til nýrra viðræðna um málið.

Við þær aðstæður er ekki að undra að maður sem hefur stutt allar útgáfur af Icesaveklúðri ríkisstjórnarinnar viti ekki sitt rjúkandi ráð; ekki frekar en Indriði H Þorláksson sem einnig hefur verið manna ólatastur við að verja vondan málstað. Líkt er á komið með þeim kumpánum og skrif beggja verða að skoðast í því ljósi. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa aldrei brugðist vondum málstað í Icesavemálinu.

 
Fleiri pistlar
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Markaðurinn er litblindur - segir Ögmundur

Ögmundur Jónasson alþingis­maður hefur sýnt það í gegn um tíðina að hann er vel verseraður í kenningum um markaðsbúskap, kapítalismann. Oftast nær hefur hann nýtt sér þekkingu sína til þess að gagnrýna markaðsbúskapinn og sjaldnast dregið af sér.

Jón Magnússon:

Tap lífeyris­sjóðanna - ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar

Ekki liggur ljóst fyrir hvað mikið tap lífeyris­sjóðanna íslensku verður vegna þeirra sviptinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum frá því síðsumars 2008. Tapið verður þó verulegt. Tæpast hafa stjórnir lífeyris­sjóðanna enn afskrifað það sem þarf að afskrifa og gert lífeyrisþegum grein fyrir því hvað mikið lífeyrir þeirra skerðist vegna oft á tíðum gáleysislegrar gæslu stjórnendanna á fjármunum lífeyrisþega.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Alls staðar þvælast þeir fyrir

Merkilegt er hve ríkis­stjórninni er lagið að láta til sín taka þar sem síst skyldi, skapa vandamál þar sem þau eru ekki fyrir og auka vandann þar sem hann er til staðar.

Gunnar Rögnvaldsson:

Verða banka­stjórar seðlabanka Evrópu­sambandsins ekki örugglega reknir?

Evrulöndin eru að endurtaka mistökin frá 1930 með næstum óaðfinnanlegri nákvæmni. Hag­fræðingurinn Paul De Grauwe segir í grein sinni í Financial Times að peningayfirvöld evru­svæðis hafi og séu ennþá að endurtaka þau mistök sem hin svo kölluðu gullblokkarlönd Evrópu gerðu í stóru kreppunni 1930 (Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Sviss).

Jón Magnússon:

Sanngjörn lausn á Icesave

Það er engin ágreiningur um það milli Íslendinga að við teljum óréttlátt að bera skuldbindingar vegna Icesave reikninganna. Við sem ekki vorum boðin til veislu fjármálafyrirtækjanna finnst hart að þurfa að taka út timburmennina fyrir þá sem voru á blindafjármálafylleríi.

Bjarni Harðarson:

Hin háskalegu tengsl Icesave og ESB

Undirritaður er þess heiðurs aðnjótandi að vera útnefndur „Ráðgjafi ársins“ af hinum oft ágæta og samt hægrisinnaða Vefþjóðvilja. Um leið og ég þakka þeim Andríkismönnum heiðurinn langar mig að gera lítilsháttar grein fyrir þeim störfum og skoðunum sem liggja að baki svo góðum árangri í árlegri útnefningu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Reddast allt með Icesave-undirskrift?

Það er athyglisvert að staðan í Icesavemálinu hefur orðið ríkis­stjórninni að allsherjarafsökun fyrir hvaðeina sem úrskeiðis fer. Öllum eru í fersku minni, hótanirnar og hræðsluáróðurinn sem óð uppi eftir að forsetinn synjaði Icesavelögunum staðfestingar

Hjörtur J. Guðmundsson:

Ísland er í ESB-aðlögunarferli

Því er nú haldið að okkur Íslendingum að verið sé að hefja svokallaðar „aðildar­viðræður“ við Evrópu­sambandið. Um sé að ræða ferli sambærilegt við hverjar aðrar viðræður á alþjóða­vettvangi. Þá er því gjarnan haldið fram að um um sé að ræða sama fyrirkomulag og Norðmenn gengu í gegnum síðast þegar þeir sóttu um inngöngu í sambandið fyrir 15 árum síðan. Fátt er þó fjarri sanni.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX