amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 16:42
 
Pistill birtist 12. janúar 2010 klukkan 13:20

Er sá franski fífl og lygari?

 
Pistill eftir Einar Kristinn Guðfinnsson
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Það kemur á óvart hve stjórnarliðar mæta allri gagnrýni á Icesavsamninginn sinn af mikilli forherðingu, óöryggi og ósvífni. Það bendir ótvírætt til að þeir séu ekki alltof öruggir með sig; hvorki með stöðu sína í Icesavemálinu né heldur með málið yfirleitt. Óöryggi þeirra birtist í hvatskeytislegum svörum við gagnrýni. Og breytir þá engu hvaðan hún kemur.

Ofsafengin viðbrögð við umdeildri ákvörðun forseta Íslands eru auðvitað glöggt dæmi um þetta og nú hefur annað dæmi bæst við.

Vinstri grænn þingmaður af Evrópuþinginu, Frakkinn Alain Lipetz, tók málstað okkar Íslendinga og sagði kröfur Hollendinga og Breta byggðar á sandi. Þingmaðurinn róttæki fékk góðar undirtektir við þessi sjónarmið; nema auðvitað frá stjórnarliðum hér á landi. Þeir brugðust ekki sínum vonda málstað frekar en fyrri daginn og notuðu þekkta baráttutækni sína. Réðust á þingmanninn sjálfan og sökuðu hann um vanþekkingu og lygar. Freistuðu þess sem sagt að gera hann ótrúverðugan.

Honum var brugðið um þekkingarskort, hann var sagður skrökva til um aðkomu sinni að lagasetningu á evrópska þinginu. Hann væri sem sagt ósannindamaður, lygari.Og svo langt var gengið að því var haldið fram af talsmönnum stjórnarliðsins að sá franski hefði ekki einu sinni gert sér grein fyrir að Ísland væri aðili að EES !

Þetta er ótrúleg ósvífini og sýnir hversu langt menn seilast í ófrægingarherferðum sínum. Það hefði allt eins mátt segja að sá vinstri græni frá Frakklandi væri algjört fífl, eins og að halda því fram að hann tjáði sig um stórpólitísk mál hér á landi, sem snertir tilskipanir ESB, án þess að vita að Ísland væri aðili að EES samningnum.

En þetta sýnir auðvitað hversu langt menn seilast í vandræðum sínum og forherðingu. Þessi blanda, forherðing, ósvífni og óöryggi, er ekki gott veganesi í stjórnmálaumræðu, en eykur samt skilning á bágri stöðu varnarliðs Icesavesamningsins hér á landi.

 
Fleiri pistlar
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Markaðurinn er litblindur - segir Ögmundur

Ögmundur Jónasson alþingis­maður hefur sýnt það í gegn um tíðina að hann er vel verseraður í kenningum um markaðsbúskap, kapítalismann. Oftast nær hefur hann nýtt sér þekkingu sína til þess að gagnrýna markaðsbúskapinn og sjaldnast dregið af sér.

Jón Magnússon:

Tap lífeyris­sjóðanna - ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar

Ekki liggur ljóst fyrir hvað mikið tap lífeyris­sjóðanna íslensku verður vegna þeirra sviptinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum frá því síðsumars 2008. Tapið verður þó verulegt. Tæpast hafa stjórnir lífeyris­sjóðanna enn afskrifað það sem þarf að afskrifa og gert lífeyrisþegum grein fyrir því hvað mikið lífeyrir þeirra skerðist vegna oft á tíðum gáleysislegrar gæslu stjórnendanna á fjármunum lífeyrisþega.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Alls staðar þvælast þeir fyrir

Merkilegt er hve ríkis­stjórninni er lagið að láta til sín taka þar sem síst skyldi, skapa vandamál þar sem þau eru ekki fyrir og auka vandann þar sem hann er til staðar.

Gunnar Rögnvaldsson:

Verða banka­stjórar seðlabanka Evrópu­sambandsins ekki örugglega reknir?

Evrulöndin eru að endurtaka mistökin frá 1930 með næstum óaðfinnanlegri nákvæmni. Hag­fræðingurinn Paul De Grauwe segir í grein sinni í Financial Times að peningayfirvöld evru­svæðis hafi og séu ennþá að endurtaka þau mistök sem hin svo kölluðu gullblokkarlönd Evrópu gerðu í stóru kreppunni 1930 (Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Sviss).

Jón Magnússon:

Sanngjörn lausn á Icesave

Það er engin ágreiningur um það milli Íslendinga að við teljum óréttlátt að bera skuldbindingar vegna Icesave reikninganna. Við sem ekki vorum boðin til veislu fjármálafyrirtækjanna finnst hart að þurfa að taka út timburmennina fyrir þá sem voru á blindafjármálafylleríi.

Bjarni Harðarson:

Hin háskalegu tengsl Icesave og ESB

Undirritaður er þess heiðurs aðnjótandi að vera útnefndur „Ráðgjafi ársins“ af hinum oft ágæta og samt hægrisinnaða Vefþjóðvilja. Um leið og ég þakka þeim Andríkismönnum heiðurinn langar mig að gera lítilsháttar grein fyrir þeim störfum og skoðunum sem liggja að baki svo góðum árangri í árlegri útnefningu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Reddast allt með Icesave-undirskrift?

Það er athyglisvert að staðan í Icesavemálinu hefur orðið ríkis­stjórninni að allsherjarafsökun fyrir hvaðeina sem úrskeiðis fer. Öllum eru í fersku minni, hótanirnar og hræðsluáróðurinn sem óð uppi eftir að forsetinn synjaði Icesavelögunum staðfestingar

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX