amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:59
 
Pistill birtist 11. janúar 2010 klukkan 10:55

Leikið á veikleika íslenskra stjórnvalda

 
Pistill eftir Einar Kristinn Guðfinnsson
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Það kemur ekki á óvart að Hollendingar og Bretar taki fálega hugmyndum um að taka upp samninginn um Icesave að nýju. Hver myndi ekki gera það sem hefði fengið uppáskrifaðan svo einhliða samning frá ríkisstjórn Íslands. Bresk og hollensk stjórnvöld prísa sig sæla með samninginn og vilja því vitaskuld ekki ljá því máls að taka hann upp.

En það er við slíkar aðstæður sem á íslensk stjórnvöld reynir. Við þessar aðstæður að tefla af styrkleika en ekki alltaf eins og staðan sé fyrirfram vonlaus, eins og gert var í Icesavemálinu allt síðasta ár.

Reynsla ríkisstjórna Breta og Hollendinga er sú að forsvarsmenn Íslands beygja sig undan hótunum. Þeir hafa séð það sí og æ. Þess vegna er þeirri herstjórnarlist beitt að láta reyna á þolrifin í ríkisstjórninni. Út á það gengur taktíkin þessa dagana.

Og einmitt þetta er að koma í ljós. Og illu heilli þá virðist herbragðið virka ágætlega. Á meðan upp hrannast rökin úr öllum áttum sem styrkja samningsstöðu okkar, hafa Bretar og Hollendingar uppi hótanir af því að þeir vita að það bítur á ístöðulítil stjórnvöld hér.

Síðan geta viðsemjendur okkar alltaf rifjað upp dómsdagslýsingarnar sem ríkisstjórnin hafði uppi eftir að forsetinn synjaði lögunum staðfestingar. Í þeim sjá þeir stöðumat stjórnvalda okkar. Þeir lesa það skýrt og skilmerkilega, að hér á landi meta stjórnvöldin stöðu sína eins aumkunarverða og hægt er að hugsa sér.

Þess vegna eru menn svona pollrólegur, forhertir og hrokafullir úti í Hollandi og Bretlandi. Þeir vita þar sem er að stjórnvöld sem meta aðstöðu sína svo hraklega, sem hin íslensku, eru ekki líkleg til nokkurra stórræða. Þess vegna var ekki merkilegra svara að vænta frá yfirvöldum í Hollandi og Bretlandi. Þau eru löngu farin að þekkja samningsaðilann á Íslandi og hvers er að vænta frá honum.

 
Fleiri pistlar
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Markaðurinn er litblindur - segir Ögmundur

Ögmundur Jónasson alþingis­maður hefur sýnt það í gegn um tíðina að hann er vel verseraður í kenningum um markaðsbúskap, kapítalismann. Oftast nær hefur hann nýtt sér þekkingu sína til þess að gagnrýna markaðsbúskapinn og sjaldnast dregið af sér.

Jón Magnússon:

Tap lífeyris­sjóðanna - ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar

Ekki liggur ljóst fyrir hvað mikið tap lífeyris­sjóðanna íslensku verður vegna þeirra sviptinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum frá því síðsumars 2008. Tapið verður þó verulegt. Tæpast hafa stjórnir lífeyris­sjóðanna enn afskrifað það sem þarf að afskrifa og gert lífeyrisþegum grein fyrir því hvað mikið lífeyrir þeirra skerðist vegna oft á tíðum gáleysislegrar gæslu stjórnendanna á fjármunum lífeyrisþega.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Alls staðar þvælast þeir fyrir

Merkilegt er hve ríkis­stjórninni er lagið að láta til sín taka þar sem síst skyldi, skapa vandamál þar sem þau eru ekki fyrir og auka vandann þar sem hann er til staðar.

Gunnar Rögnvaldsson:

Verða banka­stjórar seðlabanka Evrópu­sambandsins ekki örugglega reknir?

Evrulöndin eru að endurtaka mistökin frá 1930 með næstum óaðfinnanlegri nákvæmni. Hag­fræðingurinn Paul De Grauwe segir í grein sinni í Financial Times að peningayfirvöld evru­svæðis hafi og séu ennþá að endurtaka þau mistök sem hin svo kölluðu gullblokkarlönd Evrópu gerðu í stóru kreppunni 1930 (Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Sviss).

Jón Magnússon:

Sanngjörn lausn á Icesave

Það er engin ágreiningur um það milli Íslendinga að við teljum óréttlátt að bera skuldbindingar vegna Icesave reikninganna. Við sem ekki vorum boðin til veislu fjármálafyrirtækjanna finnst hart að þurfa að taka út timburmennina fyrir þá sem voru á blindafjármálafylleríi.

Bjarni Harðarson:

Hin háskalegu tengsl Icesave og ESB

Undirritaður er þess heiðurs aðnjótandi að vera útnefndur „Ráðgjafi ársins“ af hinum oft ágæta og samt hægrisinnaða Vefþjóðvilja. Um leið og ég þakka þeim Andríkismönnum heiðurinn langar mig að gera lítilsháttar grein fyrir þeim störfum og skoðunum sem liggja að baki svo góðum árangri í árlegri útnefningu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Reddast allt með Icesave-undirskrift?

Það er athyglisvert að staðan í Icesavemálinu hefur orðið ríkis­stjórninni að allsherjarafsökun fyrir hvaðeina sem úrskeiðis fer. Öllum eru í fersku minni, hótanirnar og hræðsluáróðurinn sem óð uppi eftir að forsetinn synjaði Icesavelögunum staðfestingar

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX