amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 10:03
 
Pistill birtist 4. janúar 2010 klukkan 08:34

Steingrímur hótar forsetanum

 
Pistill eftir Sigurð Kára Kristjánsson
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Mikil taugaveiklun hefur nú augljóslega gripið um sig innan ríkisstjórnarinnar og meðal stjórnarliða vegna þeirrar ákvörðunar Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, að taka sér nokkurra daga frest til þess að ákveða hvort hann eigi að staðfesta Icesave-lög ríkisstjórnarinnar eða synja þeim staðfestingar.

Það sést best á hótunum Björns Vals Gíslasonar, varaformanns fjárlaganefndar og þingmanns Vinstri grænna, í garð forseta Íslands.

Í dag lýsti hann því yfir í viðtali við Bloomberg fréttaveituna að synji forsetinn Icesave-lögunum staðfestingar og vísi þeim til þjóðarinnar þýði það endalok ríkisstjórnarinnar.

Hótun Björns Vals Gíslasonar í garð forsetans getur vart verið skýrari, en hún ber með sér hversu taugastrekktur formaður hans, Steingrímur J. Sigfússon, er orðinn yfir afdrifum Icesave-málsins.

Björn Valur hefur tekið sér það hlutverk í íslenskum stjórnmálum að vera ,,his masters voice„. Hann er afar hollur húsbónda sínum. Nánu sambandi þeirra má lýsa þannig að þegar Steingrímur fær sér kók, þá ropar Björn Valur.

Samband þessara fóstbræðra er með þeim hætti að alltaf má skyggnast inn í hugarheim Steingríms J. Sigfússonar með því að hlusta á hvað Björn Valur Gíslason hefur til málanna að leggja.

Þegar Steingrímur er kominn í vandræði eða mislíkar þróun mála er Birni Val att út á foraðið.

Nú hefur hann verið sendur út af örkinni til þess að koma hótunum Steingríms á framfæri við Ólaf Ragnar.

Þessar hótanir eru auðvitað til marks um það hversu miklu þessi ríkisstjórn er reiðubúin að fórna fyrir völdin.

Þau skipta meira máli í huga norrænu vinstri-velferðarstjórnarinnar en vilji 70% landsmanna.

Þau skipta meira máli en vilji yfir 60.000 Íslendinga sem undirritað hefur áskorun til forseta Íslands.

Hagsmunir Samfylkingar og Vinstri grænna skipta greinilega mun meira máli en hagmunir þjóðarinnar og framtíðarkynslóða hennar.

Þess vegna hefur Steingrímur J. Sigfússon ákveðið að koma þessum hótunum á framfæri við forsetann.

 
Fleiri pistlar
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Markaðurinn er litblindur - segir Ögmundur

Ögmundur Jónasson alþingis­maður hefur sýnt það í gegn um tíðina að hann er vel verseraður í kenningum um markaðsbúskap, kapítalismann. Oftast nær hefur hann nýtt sér þekkingu sína til þess að gagnrýna markaðsbúskapinn og sjaldnast dregið af sér.

Jón Magnússon:

Tap lífeyris­sjóðanna - ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar

Ekki liggur ljóst fyrir hvað mikið tap lífeyris­sjóðanna íslensku verður vegna þeirra sviptinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum frá því síðsumars 2008. Tapið verður þó verulegt. Tæpast hafa stjórnir lífeyris­sjóðanna enn afskrifað það sem þarf að afskrifa og gert lífeyrisþegum grein fyrir því hvað mikið lífeyrir þeirra skerðist vegna oft á tíðum gáleysislegrar gæslu stjórnendanna á fjármunum lífeyrisþega.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Alls staðar þvælast þeir fyrir

Merkilegt er hve ríkis­stjórninni er lagið að láta til sín taka þar sem síst skyldi, skapa vandamál þar sem þau eru ekki fyrir og auka vandann þar sem hann er til staðar.

Gunnar Rögnvaldsson:

Verða banka­stjórar seðlabanka Evrópu­sambandsins ekki örugglega reknir?

Evrulöndin eru að endurtaka mistökin frá 1930 með næstum óaðfinnanlegri nákvæmni. Hag­fræðingurinn Paul De Grauwe segir í grein sinni í Financial Times að peningayfirvöld evru­svæðis hafi og séu ennþá að endurtaka þau mistök sem hin svo kölluðu gullblokkarlönd Evrópu gerðu í stóru kreppunni 1930 (Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Sviss).

Jón Magnússon:

Sanngjörn lausn á Icesave

Það er engin ágreiningur um það milli Íslendinga að við teljum óréttlátt að bera skuldbindingar vegna Icesave reikninganna. Við sem ekki vorum boðin til veislu fjármálafyrirtækjanna finnst hart að þurfa að taka út timburmennina fyrir þá sem voru á blindafjármálafylleríi.

Bjarni Harðarson:

Hin háskalegu tengsl Icesave og ESB

Undirritaður er þess heiðurs aðnjótandi að vera útnefndur „Ráðgjafi ársins“ af hinum oft ágæta og samt hægrisinnaða Vefþjóðvilja. Um leið og ég þakka þeim Andríkismönnum heiðurinn langar mig að gera lítilsháttar grein fyrir þeim störfum og skoðunum sem liggja að baki svo góðum árangri í árlegri útnefningu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Reddast allt með Icesave-undirskrift?

Það er athyglisvert að staðan í Icesavemálinu hefur orðið ríkis­stjórninni að allsherjarafsökun fyrir hvaðeina sem úrskeiðis fer. Öllum eru í fersku minni, hótanirnar og hræðsluáróðurinn sem óð uppi eftir að forsetinn synjaði Icesavelögunum staðfestingar

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX