amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 10:01
 
Pistill birtist 21. desember 2009 klukkan 09:28

Hættulegt lesefni?

 
Pistill eftir Einar Kristinn Guðfinnsson
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Það vekur nokkra undrun að sá mikilvirki álitsgjafi Egill Helgason skuli ekki fylgjast með skrifum í Viðskiptablaðinu. Hann segir frá því sjálfur að hann sé nær hættur að sjá blaðið. Og syrgir raunar þau örlög sín. Úr þessu á hann örugglega hægt með að bæta. Með því að gerast áskrifandi gæti hann tryggt sér að eiga þess kost að lesa þetta ágæta vikurit.

Af skrifum Egils má glögglega ráða að hann hafi ekki kært sig um að lesa blaðið vegna þeirra sjónarmiða sem þar gat að líta. Segir það all nokkuð um hinn þrönga sjónarhól þessa ágæta manns. Fróðleik sinn um skrif blaðsins virðist hann svo sækja í DV og skrif Jóhanns Haukssonar blaðamanns á því blaði. Verða þó hvorugur af sanngirni sakaðir um hlutlægni í frásögnum eða nokkuð af því taginu; hvorki DV eða Jóhann. Bæði Jóhann og DV eru með klára „agendu“, svo vitnað sé í orðalag téðs Egils Helgasonar. Það leynir sér hvorki í skrifum né efnistökum.

Viðskiptablaðið er á hinn bóginn gríðarlega mikilvægur þáttur í fjölmiðlaflóru okkar. Þar eru ýmis viðtekin sjónarmið skoruð á hólm og margar helgimyndir úr pólitískum rétttrúnaði brotnar. Fréttaskýringar eru góðar, bryddað upp á efni sem aðrir fjölmiðlar hafa fremur hljótt um. Og svo er óaðskiljanlegur hluti Viðskiptablaðsins yfirburða blað; Fiskifréttir, sem enginn getur látið framhjá sér fara sem vill fylgjast með sjávarútvegi.

Og loks fylgja hinu ágæta Viðskiptablaði blöð um golf og hestamennsku; tvær af vinsælustu íþróttum landsins. Og hestamennskan í viðbót vaxandi atvinnugrein, útflutningsatvinnuvegur sem ber hróður íslenska hestsins um lönd og álfur.

Þeir eru auðvitað til sem hræðast það að lesa um annað en það sem fellur sem flís við sjónarmiðarassinn sinn. Varla er Egill Helgason í þeim hópi?

 
Fleiri pistlar
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Markaðurinn er litblindur - segir Ögmundur

Ögmundur Jónasson alþingis­maður hefur sýnt það í gegn um tíðina að hann er vel verseraður í kenningum um markaðsbúskap, kapítalismann. Oftast nær hefur hann nýtt sér þekkingu sína til þess að gagnrýna markaðsbúskapinn og sjaldnast dregið af sér.

Jón Magnússon:

Tap lífeyris­sjóðanna - ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar

Ekki liggur ljóst fyrir hvað mikið tap lífeyris­sjóðanna íslensku verður vegna þeirra sviptinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum frá því síðsumars 2008. Tapið verður þó verulegt. Tæpast hafa stjórnir lífeyris­sjóðanna enn afskrifað það sem þarf að afskrifa og gert lífeyrisþegum grein fyrir því hvað mikið lífeyrir þeirra skerðist vegna oft á tíðum gáleysislegrar gæslu stjórnendanna á fjármunum lífeyrisþega.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Alls staðar þvælast þeir fyrir

Merkilegt er hve ríkis­stjórninni er lagið að láta til sín taka þar sem síst skyldi, skapa vandamál þar sem þau eru ekki fyrir og auka vandann þar sem hann er til staðar.

Gunnar Rögnvaldsson:

Verða banka­stjórar seðlabanka Evrópu­sambandsins ekki örugglega reknir?

Evrulöndin eru að endurtaka mistökin frá 1930 með næstum óaðfinnanlegri nákvæmni. Hag­fræðingurinn Paul De Grauwe segir í grein sinni í Financial Times að peningayfirvöld evru­svæðis hafi og séu ennþá að endurtaka þau mistök sem hin svo kölluðu gullblokkarlönd Evrópu gerðu í stóru kreppunni 1930 (Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Sviss).

Jón Magnússon:

Sanngjörn lausn á Icesave

Það er engin ágreiningur um það milli Íslendinga að við teljum óréttlátt að bera skuldbindingar vegna Icesave reikninganna. Við sem ekki vorum boðin til veislu fjármálafyrirtækjanna finnst hart að þurfa að taka út timburmennina fyrir þá sem voru á blindafjármálafylleríi.

Bjarni Harðarson:

Hin háskalegu tengsl Icesave og ESB

Undirritaður er þess heiðurs aðnjótandi að vera útnefndur „Ráðgjafi ársins“ af hinum oft ágæta og samt hægrisinnaða Vefþjóðvilja. Um leið og ég þakka þeim Andríkismönnum heiðurinn langar mig að gera lítilsháttar grein fyrir þeim störfum og skoðunum sem liggja að baki svo góðum árangri í árlegri útnefningu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Reddast allt með Icesave-undirskrift?

Það er athyglisvert að staðan í Icesavemálinu hefur orðið ríkis­stjórninni að allsherjarafsökun fyrir hvaðeina sem úrskeiðis fer. Öllum eru í fersku minni, hótanirnar og hræðsluáróðurinn sem óð uppi eftir að forsetinn synjaði Icesavelögunum staðfestingar

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX