amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. september 2010 - 16:06
 
Pistill birtist 16. desember 2009 klukkan 07:06

Ekki er það beysið

 
Pistill eftir Óttar Felix Hauksson
 
 
Um höfundinn

Óttar Felix Hauksson er formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi.

 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Hin kalda hönd kreppunnar vofir yfir. Gjörningaveður gæti verið í aðsigi. Hagstjórnarmistök huglausrar vinstri stjórnar eru dýru verði keypt. Það gæti orðið erfiðleikum bundið að sigla út úr því fárviðri sem skekur þjóðarskútuna undir skipsstjórn bóndasonarins kotroskna, sem nú gegnir embætti fjármálaráðherra. Hann hefur ekki aðeins reynst sínum nánustu samherjum illa. Svo fór jú sem kunnugt er að sveitungar hans og samherjar sendu honum opið bréf og töldu hann hafa gengið í berhögg við ályktanir landsfundar þess flokks sem hann er þó í formennsku fyrir! Hitt er sýnu verra hversu illa hann hefur reynst þjóð sinni. Óttinn og undirlægjuhátturinn gagnvart nágrannaþjóðum okkar í Evrópusambandinu og taglhnýtingum þeirra í Samfylkingunni er á góðri leið með að koma Íslendingum á vonarvöl.

Hver skyldi hann vera sá mikli ótti í brjósti þessa garps að ekki skuli berast eitt andvarp frá því brjósti til varnar sinni þjóð? Í allt sumar og fram á þennan vetur hafa jafnt andstæðingar sem og sumir samherjar hans reynt að leita svara. Tíminn hefur leitt þau í ljós eitt af öðru. Allar þær ástæður, sem Steingrímur tilgreindi og taldi raunverulegar, reyndust tylliástæður. Gunnar Sigurðsson leikstjóri afhjúpaði hann í Icesave-málinu. Dominiqe Strauss fullyrti að engin tengsl væru milli lánsafgreiðslu AGS og tafanna í uppgjörinu við Breta og Hollendinga. Lánveitingar frá Norðurlöndum eru hafnar þrátt fyrir að Icesave sé ófrágengið nú á öðrum sunnudegi í aðventu. Ein af annarri hafa þessar ástæður óttans raknað upp og afhjúpað fjármálaráðherra hvað eftir annað sem ómerking orða sinna. Hver er þá þessi ægilegi ótti sem hann getur ekki nefnt en býr þó svo djúpt í brjósti hans. Jú, hann er einfaldlega sá að fari hann ekki að fyrirmælum Samfylkingarinnar um skilyrðislausa uppgjöf gagnvart yfirgangi Breta og Hollendinga í Icesave-málinu og tafarlausa inngöngu í Evrópusambandið þá falli stjórnin og hann missi ráðherradóminn!

Ekki er það beysið. Hann er reiðubúinn að skuldsetja þjóð sína fyrir hundruð milljarða, þar sem óvissuþátturinn mælist í milljarðatugum ár hvert fyrir ráðherradóm. Hann er tilbúinn að framselja fullveldi þjóðarinnar til Brussel fyrir ráðherradóm. Hann er tilbúinn að setja helsi á frelsi þjóðar sinnar sem, allar götur síðan hún fluttist frá Noregi, hefur viljað vera frjáls frá erlendri áþján. Afkomendur Gota og Herúla með arfsagnirnar austan úr Skýþíu um Óðin, Ása og Vani, frjálsir menn sem komu á sinni sjálfstæðu stjórnskipan hér á landi. Frelsið er það sem þessi þjóð hefur alltaf barist fyrir og aldrei getað gleymt. Það sveið í sárið þegar Þorvarður Þórarinsson, síðasti goðinn, gaf Noregskonungi Austfirðingafjórðung 1264, tveimur árum eftir að aðrir goðorðsmenn höfðu svarið Hákoni Noregskonungi skatt. Árni Magnússon skrifaði grátandi undir hér í Kópavogi sumarið 1662 undir brugðnum byssubröndum Bjelkes höfuðsmanns þegar Íslendingar voru neyddir undir einveldi Dana. Vesaldómur og þýlyndi fjármálaráðherra gagnvart Samfylkingunni er með eindæmum. Að hann hafi ekki mannrænu í sér til að mæla á móti grunnhyggnum, léttúðugum ásetningi þeirra um að afsala réttindum Íslendinga sem fullvalda, sjálfstæðrar þjóðar í hendur erlendra skattheimtumanna er með eindæmum. Við hliðina á Steingrími eru útrásarvíkingarnir eins og fermingardrengir, slíkur getur skaðinn orðið. Fyrir ráðherradóminn virðist hann tilbúinn að ganga alla leið, fórna fullveldinu og tæma fjárhirslurnar. Kotroskinn kallar hann svo yfir þingsalinn „að nú sé verið að taka til eftir áralanga óstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks“. Fyrir utan Alþingishúsið heyrðist inn á þingfund fyrir nokkrum vikum leikið úr hljómtækjum á hæsta styrk lagið „Þú ert pínulítill karl“...

 
Fleiri pistlar
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Markaðurinn er litblindur - segir Ögmundur

Ögmundur Jónasson alþingis­maður hefur sýnt það í gegn um tíðina að hann er vel verseraður í kenningum um markaðsbúskap, kapítalismann. Oftast nær hefur hann nýtt sér þekkingu sína til þess að gagnrýna markaðsbúskapinn og sjaldnast dregið af sér.

Jón Magnússon:

Tap lífeyris­sjóðanna - ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar

Ekki liggur ljóst fyrir hvað mikið tap lífeyris­sjóðanna íslensku verður vegna þeirra sviptinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum frá því síðsumars 2008. Tapið verður þó verulegt. Tæpast hafa stjórnir lífeyris­sjóðanna enn afskrifað það sem þarf að afskrifa og gert lífeyrisþegum grein fyrir því hvað mikið lífeyrir þeirra skerðist vegna oft á tíðum gáleysislegrar gæslu stjórnendanna á fjármunum lífeyrisþega.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Alls staðar þvælast þeir fyrir

Merkilegt er hve ríkis­stjórninni er lagið að láta til sín taka þar sem síst skyldi, skapa vandamál þar sem þau eru ekki fyrir og auka vandann þar sem hann er til staðar.

Gunnar Rögnvaldsson:

Verða banka­stjórar seðlabanka Evrópu­sambandsins ekki örugglega reknir?

Evrulöndin eru að endurtaka mistökin frá 1930 með næstum óaðfinnanlegri nákvæmni. Hag­fræðingurinn Paul De Grauwe segir í grein sinni í Financial Times að peningayfirvöld evru­svæðis hafi og séu ennþá að endurtaka þau mistök sem hin svo kölluðu gullblokkarlönd Evrópu gerðu í stóru kreppunni 1930 (Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Sviss).

Jón Magnússon:

Sanngjörn lausn á Icesave

Það er engin ágreiningur um það milli Íslendinga að við teljum óréttlátt að bera skuldbindingar vegna Icesave reikninganna. Við sem ekki vorum boðin til veislu fjármálafyrirtækjanna finnst hart að þurfa að taka út timburmennina fyrir þá sem voru á blindafjármálafylleríi.

Bjarni Harðarson:

Hin háskalegu tengsl Icesave og ESB

Undirritaður er þess heiðurs aðnjótandi að vera útnefndur „Ráðgjafi ársins“ af hinum oft ágæta og samt hægrisinnaða Vefþjóðvilja. Um leið og ég þakka þeim Andríkismönnum heiðurinn langar mig að gera lítilsháttar grein fyrir þeim störfum og skoðunum sem liggja að baki svo góðum árangri í árlegri útnefningu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Reddast allt með Icesave-undirskrift?

Það er athyglisvert að staðan í Icesavemálinu hefur orðið ríkis­stjórninni að allsherjarafsökun fyrir hvaðeina sem úrskeiðis fer. Öllum eru í fersku minni, hótanirnar og hræðsluáróðurinn sem óð uppi eftir að forsetinn synjaði Icesavelögunum staðfestingar

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX