amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:58
 
Pistill birtist 9. desember 2009 klukkan 06:21

Ég segi því nei!

 
Pistill eftir Einar Kristinn Guðfinnsson
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Það fjölgaði dálítið í hópi stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar í þinghúsinu í dag við Icesave afgreiðsluna. Þar voru mættir í hliðarsali, spunameistararnir úr Samfylkingunni, sem alltaf eru álengdar, þegar mikið liggur við og hugsjónamál Samfylkingarinnar, ESB og Icesave eru til umræðu. Þarna voru amk. mættir Hrannar B. Arnarson aðstoðarmaður forsætisráðherra og Einar Karl Haraldsson. Þeir félagar munu fá það hlutverk að setja óhæfuverk ríkisstjórnarinnar í Icesvemálinu í sem þekkilegastan búning, rétt eins og spunameistara er hlutverkið.

Forysta ríkisstjórnarinnar hafði greinilega unnið vinnuna sína fyrir þessa atkvæðagreiðslu eins og við var að búast. Útilokað hefði það verið að ríkisstjórnin hefði verið í minnihluta með þetta Icesave-mál, eins og hún var í sumar með hið fyrra. Tveir og þrír þingmenn stjórnarliða fóru þó gegn frumvarpsgreinunum, en Þráinn Bertelsson, upphaflega úr Borgarhreyfingunni, slefaði síðustu grein frumvarpsins að landi með stjórnarþingmönnum.

Ég gerði grein fyrir atkvæði mínu við afgreiðslu um fyrstu grein frumvarpsins með þessum orðum:

„Það hefur aðeins ein ríkisstjórn gert samninga um meintar Icesave skuldbindingar. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Sá samningur var brot á Brusselviðmiðunum; alvarlegt brot á þeim samningsviðmiðunum og því samningsumboði sem ríkisstjórnin fékk frá Alþingi ( 8. desember á síaðsta ári)

Alþingi setti svo í sumar fyrirvara og skilyrði vegna ríkisábyrgðarinnar. Ríkisstjórnin vill nú eyðileggja þetta og brjóta á bak aftur og stórskaða þannig stöðu okkar og hagsmuni Íslands. Þessi samningur er afleitur og ríkisábyrgðin er óverjandi. Ég segi því nei.“

 
Fleiri pistlar
Einar Kristinn Guðfinnsson:

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Markaðurinn er litblindur - segir Ögmundur

Ögmundur Jónasson alþingis­maður hefur sýnt það í gegn um tíðina að hann er vel verseraður í kenningum um markaðsbúskap, kapítalismann. Oftast nær hefur hann nýtt sér þekkingu sína til þess að gagnrýna markaðsbúskapinn og sjaldnast dregið af sér.

Jón Magnússon:

Tap lífeyris­sjóðanna - ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar

Ekki liggur ljóst fyrir hvað mikið tap lífeyris­sjóðanna íslensku verður vegna þeirra sviptinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum frá því síðsumars 2008. Tapið verður þó verulegt. Tæpast hafa stjórnir lífeyris­sjóðanna enn afskrifað það sem þarf að afskrifa og gert lífeyrisþegum grein fyrir því hvað mikið lífeyrir þeirra skerðist vegna oft á tíðum gáleysislegrar gæslu stjórnendanna á fjármunum lífeyrisþega.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Alls staðar þvælast þeir fyrir

Merkilegt er hve ríkis­stjórninni er lagið að láta til sín taka þar sem síst skyldi, skapa vandamál þar sem þau eru ekki fyrir og auka vandann þar sem hann er til staðar.

Gunnar Rögnvaldsson:

Verða banka­stjórar seðlabanka Evrópu­sambandsins ekki örugglega reknir?

Evrulöndin eru að endurtaka mistökin frá 1930 með næstum óaðfinnanlegri nákvæmni. Hag­fræðingurinn Paul De Grauwe segir í grein sinni í Financial Times að peningayfirvöld evru­svæðis hafi og séu ennþá að endurtaka þau mistök sem hin svo kölluðu gullblokkarlönd Evrópu gerðu í stóru kreppunni 1930 (Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Sviss).

Jón Magnússon:

Sanngjörn lausn á Icesave

Það er engin ágreiningur um það milli Íslendinga að við teljum óréttlátt að bera skuldbindingar vegna Icesave reikninganna. Við sem ekki vorum boðin til veislu fjármálafyrirtækjanna finnst hart að þurfa að taka út timburmennina fyrir þá sem voru á blindafjármálafylleríi.

Bjarni Harðarson:

Hin háskalegu tengsl Icesave og ESB

Undirritaður er þess heiðurs aðnjótandi að vera útnefndur „Ráðgjafi ársins“ af hinum oft ágæta og samt hægrisinnaða Vefþjóðvilja. Um leið og ég þakka þeim Andríkismönnum heiðurinn langar mig að gera lítilsháttar grein fyrir þeim störfum og skoðunum sem liggja að baki svo góðum árangri í árlegri útnefningu.

Einar Kristinn Guðfinnsson:

Reddast allt með Icesave-undirskrift?

Það er athyglisvert að staðan í Icesavemálinu hefur orðið ríkis­stjórninni að allsherjarafsökun fyrir hvaðeina sem úrskeiðis fer. Öllum eru í fersku minni, hótanirnar og hræðsluáróðurinn sem óð uppi eftir að forsetinn synjaði Icesavelögunum staðfestingar

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX