Einar Kristinn Guðfinnsson er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Ný hefð hefur nú myndast í þingstörfunum. Stjórnarliðar fara í daglegar morgunheimsóknir í þingsali. Ekki til þess að búa sig undir að ræða um eitt stærsta hagsmunamál Íslands, Icesavemálið. Nei. Erindið er að greiða atkvæði til þess að tryggja að haldnir verði kvöldfundir.
Segir svo fátt af þeim, eftir það.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður VG kallaði það eitt sinn að menn væru eins og atkvæðavélar, sem sætu samviskusamlega við atkvæðagreiðslutakkana sína og hlýddu, en forðuðust að taka þátt í málefnalegri umræðu. Þessi orðaleppur ráðherrans smellpassar við félaga hans í hópi stjórnarliða.
Við höfum ítrekað kallað eftir því að stjórnarliðar kæmu til umræðunnar. Við höfum sagt að það sé hluti af lýðræðislegri umræðu að stjórn og stjórnarliðar geti skipst á skoðunum um ágreiningsmál. Ef ekki er tilefni til þess að stjórn og stjórnarandstaða ræði um þetta ágreiningsmál - mál af þessari stærðargráðu þá hvenær eiginlega?
En til þess hefur nánast ekki komið. Það er eins og stjórnarliðar treysti sér ekki í þessa umræðu; þori ekki. Og þeim er vorkunn. Það þarf sterkan skammt af kjarki og forherðingu til að verja þennan samning. Þess vegna gera þeir það ekki. Þögnin er mestan part þeirra helsta framlag til umræðunnar.
Nú þarf forsætisnefnd Alþingis að velta því fyrir sér hvort ekki eigi beinlínis að gera ráð fyrir þessum dagskrárlið í þingsköpum, daglegar morgunheimsóknir stjórnarliða.
Aldrei brugðist vondum málstað
Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðarnefnda blaðinu.
Markaðurinn er litblindur - segir Ögmundur
Ögmundur Jónasson alþingismaður hefur sýnt það í gegn um tíðina að hann er vel verseraður í kenningum um markaðsbúskap, kapítalismann. Oftast nær hefur hann nýtt sér þekkingu sína til þess að gagnrýna markaðsbúskapinn og sjaldnast dregið af sér.
Tap lífeyrissjóðanna - ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar
Ekki liggur ljóst fyrir hvað mikið tap lífeyrissjóðanna íslensku verður vegna þeirra sviptinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum frá því síðsumars 2008. Tapið verður þó verulegt. Tæpast hafa stjórnir lífeyrissjóðanna enn afskrifað það sem þarf að afskrifa og gert lífeyrisþegum grein fyrir því hvað mikið lífeyrir þeirra skerðist vegna oft á tíðum gáleysislegrar gæslu stjórnendanna á fjármunum lífeyrisþega.
Alls staðar þvælast þeir fyrir
Merkilegt er hve ríkisstjórninni er lagið að láta til sín taka þar sem síst skyldi, skapa vandamál þar sem þau eru ekki fyrir og auka vandann þar sem hann er til staðar.
Verða bankastjórar seðlabanka Evrópusambandsins ekki örugglega reknir?
Evrulöndin eru að endurtaka mistökin frá 1930 með næstum óaðfinnanlegri nákvæmni. Hagfræðingurinn Paul De Grauwe segir í grein sinni í Financial Times að peningayfirvöld evrusvæðis hafi og séu ennþá að endurtaka þau mistök sem hin svo kölluðu gullblokkarlönd Evrópu gerðu í stóru kreppunni 1930 (Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Sviss).
Það er engin ágreiningur um það milli Íslendinga að við teljum óréttlátt að bera skuldbindingar vegna Icesave reikninganna. Við sem ekki vorum boðin til veislu fjármálafyrirtækjanna finnst hart að þurfa að taka út timburmennina fyrir þá sem voru á blindafjármálafylleríi.
Hin háskalegu tengsl Icesave og ESB
Undirritaður er þess heiðurs aðnjótandi að vera útnefndur „Ráðgjafi ársins“ af hinum oft ágæta og samt hægrisinnaða Vefþjóðvilja. Um leið og ég þakka þeim Andríkismönnum heiðurinn langar mig að gera lítilsháttar grein fyrir þeim störfum og skoðunum sem liggja að baki svo góðum árangri í árlegri útnefningu.
Reddast allt með Icesave-undirskrift?
Það er athyglisvert að staðan í Icesavemálinu hefur orðið ríkisstjórninni að allsherjarafsökun fyrir hvaðeina sem úrskeiðis fer. Öllum eru í fersku minni, hótanirnar og hræðsluáróðurinn sem óð uppi eftir að forsetinn synjaði Icesavelögunum staðfestingar